Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.2007, Qupperneq 1
Laugardagur 31. 3. 2007
81. árg.
lesbók
SNAUÐIR OG SNOÐNIR
KVEÐSKAPUR VESTUR-ÍSLENDINGA ER DAPURLEGUR
VITNISBURÐUR UM VIÐHORF ÞEIRRA TIL INDJÁNA » 8-9
Ráðherrar útdeila peningum almennings í hitt og þetta vinsældajukk » 10
Þ
egar ég var lítil
stelpa, þá bjó ég nú á
mjög góðum stað
hvað veður snerti. Í
vondum veðrum var alveg
svakalegt, hristist allt og nötr-
aði og maður lá vakandi á
nóttunni og hugsaði hvað yrði
ef húsið fyki út í sjó. Jú jú, ég
bara bjó til skip úr því, ef það
fýkur þá hlýtur það að fara á
hvolf og sigla á þakinu og þá
er ég vernduð inni í húsinu.
Þetta lifði maður við uppundir
tíu ára aldur.
Nú svo er ég sjómannskona
og maður var nú ekki alltaf
öruggur þegar veðrin voru
sem verst á þessum tíma, á
þessum árum. En einhvern-
veginn gat maður svæft þetta.
Hér í Stykkishólmi er veðra-
samt, það er alltaf hvasst ein-
hverntíma á deginum. Einu
sinni fór ég að heimsækja
manninn minn, hann var á sjó í
2
Hjalti Geir Kristjánsson „Það var einhver sem sagði að stóll húsgagnaarkitektsins samsvaraði súpu kokksins.“
Rætt er við Hjalta Geir um húsgagnahönnun í tilefni af opnun sýningar á stólum hans í næstu viku.» 4
Morgunblaðið/Sverrir
Bryan Ferry er miklu betri Dylan enBob sjálfur.Þetta segi ég ekki bara til þess aðfara í taugarnar á lesendum: Ég hef
aldrei getað hlustað á Bob Dylan flytja tónlist
sína!
Þetta mætti hæglega kalla menningarlega
fötlun eins og látið hefur verið með þetta ann-
ars frábæra tónskáld.
Í mínum eyrum lætur rödd Bobs Dylan eins
og pirrandi bílflauta. Hún kemur öll í gegnum
nefið.
Rödd hans hefur reyndar skánað með ár-
unum, orðið dýpri og rámari. Á nýjustu plöt-
unni má heyra að hann er í raun hættur að
geta sungið og þar með hefur hann eiginlega
orðið betri.
Bryan Ferry er auðvitað ekki frægur fyrir
sterka eða mikla rödd en auðþekkjanlegur,
brothættur og flauelskenndur karakter henn-
ar hæfir flestum lögum Dylans mjög vel.
Ferry hefur sent frá sér plötuna Dylanes-
que þar sem hann syngur 11 lög eftir meist-
arann. Plötuna tók Ferry upp á einni viku í
London ásamt túrbandi sínu. Útgáfan ber þess
merki að vera hugdetta. Frágangur á hulstr-
inu er hraðsoðinn og reyndar smekklaus en
innihaldið svíkur engan. Ferry, sem hefur spil-
að Dylan grimmt á tónleikum undanfarið, fer
sérstaklega vel með Just Like Tom Thumb’s
Blues, Simple Twist of Fate og The Times
They Are A-Changing.
En það er auð-
vitað ekkert nýtt
að ábreiður Dyl-
ans slái sjálfan
hann út. Jimi
Hendrix á auðvit-
að All Along the
Watchtower með
húð og hári og
Ferry slær að
minnsta kosti ekki
við útgáfu Guns and Roses á Knocking on
Heavens Door.
En hvað um það: Fáið ykkur þennan disk.
Ferry er betri Dylan en Dylan
MENNINGARVITINN
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is