Lesbók Morgunblaðsins - 14.04.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 15
lesbók
Morgunblaðið/ÞÖK
Ívar Páll Hann hefur verið að lesa ævisögu Andys Kaufman. „Hann var í karakter allt sitt líf
og jafnvel þeir sem stóðu honum næst komust ekki innfyrir brynjuna og látalætin.“
Lesarinn
Aðdáendur Silvíu Nætur ættu að kynna sér
feril snillingsins Andys Kaufmans, sem flestir
þekkja ef til vill úr myndinni Man on the Mo-
on. Þar fór Jim Carrey með hlutverk Kauf-
mans, en þeir sem hafa séð myndbönd með
frumgerðinni (og þau má fjölmörg panta á
amazon.com) hafa ekkert sérstakt gaman af
þeirri mynd. Andy var einstakur. Hann var í
karakter allt sitt líf og jafnvel þeir sem stóðu
honum næst komust ekki innfyrir brynjuna og
látalætin.
Bókina Andy Kaufman Revealed!: Best Fri-
end Tells All ritaði nánasti samstarfsmaður og
meðhöfundur Kaufmans, Bob Zmuda. Lýs-
ingar hans á ævintýrum þeirra félaga eru
skemmtilegar, enda voru þeir álíka bilaðir.
Þeim fannst brandarinn fyndnastur ef enginn
skildi hann nema þeir og oft var sjálfur brand-
arinn viðbrögð furðu lostinna áhorfenda, sem
gjarnan voru æfir af bræði. Best er að hafa
hæfilegan fyrirvara á því sem maður les í
þessari bók, því auðvitað væri það stílbrot ef
allt í henni væri satt.
Ívar Páll Jónsson,
blaðamaður.
Hlustarinn
Sá diskur sem oftast ratar á spilarann hjá
mér um þessar mundir er reyndar þriggja
diska box og heitir The Big Bang. Hann
inniheldur slagverkstónlist frá öllum heims-
álfum og í flestum þekktum stíltegundum.
Fyrsta upptakan á diski 1 er af simpönsum
sem berja á hola trjástofna og varpa, að
minnsta kosti í mínum huga, örlitlu ljósi á
upphaf menningarinnar. Fyrstu verkfærin
voru ekki vopn, heldur hljóðfæri og menn-
ingin á rót sína í takti sem forfeður okkar
heyrðu í umhverfi sínu og reyndu síðan að
líkja eftir, enda er undirtitill disksins „Í upp-
hafi var trumban“. Síðan fer The Big Bang
vítt um völl og það er gulls ígildi fyrir dellu-
kall eins og mig að reyna að ráða í ferðalag
taktsins um jarðarkringluna og lesa úr því
sögu mannkyns á nýjan og gefandi hátt.
Karl Ágúst Úlfsson
leikari
Morgunblaðið/G.Rúnar
Karl Ágúst „Fyrstu verkfærin voru ekki vopn, heldur hljóðfæri og menningin á rót sína í takti
sem forfeður okkar heyrðu í umhverfi sínu og reyndu síðan að líkja eftir,“ segir Karl Ágúst.
Bókaskápur Guðmundar
Andra Thorssonar
Morgunblaðið/Einar Falur
Guðmundur Andri Á kvöldin þegar allt er orðið hljótt heyri ég stundum hvernig streymir frá bókunum.
EF RÉTT er munað er Hall-
grímspassía Sigurðar Sævars-
sonar, er frumflutt var á föstu-
daginn langa, þriðja íslenzka
óratórían sem samin hefur verið
við Passíusálma Hallgríms Pét-
urssonar. Að fyrri verkum ólöst-
uðum má óhætt telja að hún sé
þeirra aðgengilegust í hlustun.
Sumpart vegna þess hvað tónmál
hennar var sláandi óháð miðevr-
ópskum eftirstríðsmódernisma; í
meginatriðum á tónalt-módölum
grunni impressjónisma og ný-
klassíkur með mismiklu harm-
ónísku kryddi er leiddi stundum
hugann að yngri bandarískum
kórtónskáldum á við Eric Whi-
tacre. Þó án þess að verka gam-
aldags, enda bar né heldur á ýkja
eftirminnilegum laglínum við
fyrstu heyrn.
Hitt var óvenjulegra hvað Hall-
grímspassía Sigurðar hélt góðri
athygli á fullum 75 mínútum.
Burtséð frá „jákvæðri blekkingu“
hins afburðagóða flutnings ein-
söngvara, Scholae Cantorum og
Caputs má eflaust rekja það til
dirfsku einfaldleikans og gegnsæs
ritháttar þar sem ekki sízt inn-
blásin nýting höfundar á lit-
brigðamöguleikum kórs og lítillar
kammersveitar með einskipuðum
tréblæstri hélt uppi stöðugum
dampi, þrátt fyrir oftast nær
hægferðug tempó og ómælda
staði með undirliggjandi bordún.
Fleira er matur en feitt kjöt, og
heillandi ófeimni Sigurðar við lát-
lausan ferskleika leiddi fram
fjölda bráðfallegra augnablika,
ekki sízt hljómrænna, sem eftir 50
ára skraufþurran akademisma
verkuðu furðu nýstárleg. Meðal
frumlegra uppátækja mætti
nefna „Pílatus herrann hæsta“ og
næstu 2 vers með grafískri lýs-
ingu á píslum Krists, þar sem of-
urveikt messandi atkvæðaeintón
kvenradda bak við afgangskórinn
myndaði áhrifamikinn kontra-
punkt; frumlegt „understate-
ment“ þar sem flestir hefðu velt
sér upp úr krassandi tónlýsingum
í dreyra drifnum anda Mels Gib-
son.
Það var auðheyrt að mergjaður
andi Passíusálmanna hafði gefið
jafnt höfundi sem flytjendum og
stjórnanda byr undir báða vængi,
að ógleymdri safaríkri meðferð
Jóhanns Smára á burðarhlutverki
guðspjallaskáldsins. Eftir slíka
úrvalstúlkun er varla að efa að
þetta gullfallega verk eigi eftir að
lifa með þjóðinni.
Nýstárleiki hins einfalda
Ríkarður Ö. Pálsson
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Sigurður Sævarsson: Hallgríms-
passía (frumfl.). Jóhann Smári Sæv-
arsson B (Hallgrímur), Hrólfur Sæ-
mundsson bar. (Jesús), Benedikt
Ingólfsson B (Pílatus), Gísli Magn-
ússon T (Júdas) og Guðrún Edda
Gunnarsdóttir A, Schola Cantorum
og Caput. Stjórnandi: Hörður Áskels-
son. Föstudaginn 6. apríl kl. 22.
Kórtónleikar
Morgunblaðið/Einar Falur
Hallgrímspassía „Eftir slíka úrvalstúlkun er varla að efa að þetta
gullfallega verk eigi eftir að lifa með þjóðinni,“ segir í dómnum.