Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.2007, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.2007, Blaðsíða 13
píanó og horn í Tónlistarskólanum í Reykjavík og spilaði fyrsta horn í hljóm- sveitinni. Þegar hann fór kom Herbert Hri- berchek í staðinn, fyrir atbeina Franz Mixa, sem hélt uppteknum hætti við að senda hingað frábæra tónlistarmenn. Herbert kom frá Graz í Austurríki og ætlaði að taka sér stutt frí frá störfum þar og spila á Ís- landi. Það frí stendur ennþá; hann var fyrsti hornleikari hljómsveitarinnar í ára- tugi, og kennari og skólastjóri Tónlistar- skólans í Keflavík auk þess sem hann hefur sinnt tónsmíðum. Nafnið breyttist í Her- bert H. Ágústsson. Jan Morávek kom til Íslands árið 1948 og var fyrst hljómsveitarstjóri hjá Skemmti- félagi Templara í Gúttó. Þar spilaði hann á klarínett, en hann virðist reyndar hafa get- að spilað á flestöll hljóðfæri. Victor Urban- cic bað hann um að læra á fagott, þar sem fagottleikara vantaði í Sinfóníuhljómsveit- ina við stofnun hennar. Það gerði hann á undraskömmum tíma og spilaði á það í hljómsveitinni fyrst um sinn, en síðar á selló. Hann hafði lagt stund á hljómsveit- arstjórn, klarínettuleik og fleiri greinar við Tónlistarháskólann í Vínarborg áður en hingað kom. Hér á landi spilaði hann, auk klarínetts, fagotts og sellós, á harmonikku, fiðlu, píanó og margt fleira. Hann mun hafa gert tilraun til að taka upp lag eftir sjálfan sig þar sem hann spilaði á öll hljóðfærin sjálfur, en tæknin réði ekki við svo flókið verkefni. Jan Morávek er sagður hafa spil- að á um 20 mismunandi hljóðfæri og lék jöfnum höndum klassíska tónlist og dans- músík. Auk þess var hann liðtækur stjórn- andi, stjórnaði lúðrasveitum og kórum og stjórnaði jafnvel Sinfóníuhljómsveitinni á tvennum tónleikum árið 1956. Hann var auk þess mjög stórtækur við útsetningar. Morávek var í hljómsveit landa síns og vin- ar Carls Billich, sem spilaði á Naustinu allt frá stofnun hennar árið 1955 til dauðadags árið 1970 og þar spilaði hann á þau hljóð- færi sem þörf krafði hverju sinni. Páll Pampichler kom til landsins árið 1949. Segja má að hann hafi verið sendur hingað af Franz Mixa til að stjórna Lúðra- sveit Reykjavíkur og spila á trompet í Sin- fóníuhljómsveitinni sem þá var í undirbún- ingi. Hann spilaði á trompetinn þar í 9 ár, en sneri sér eftir það alfarið að hljómsveit- arstjórn og tónsmíðum. Páll stjórnaði Sin- fóníuhljómsveitinni oft á rúmlega 20 ára tímabili frá 1972 en nú er hann hljómsveit- arstjóri í heimalandi sínu, Austurríki en kemur hingað annað slagið til að stjórna. Samlandi Páls, fagottleikarinn Hans Ploder, kom fyrir áeggjan hans hingað í hálfsárs leyfi frá Sinfóníuhljómsveitinni í Graz í Austurríki en ílentist eins og fleiri og er hér enn. Síðar komu hingað menn eins og Daði Kolbeinsson, fyrsti óbóleikari SÍ frá 1973, sem kom frá Skotlandi, Joseph Ognibene, fyrsti hornleikari frá 1981 sem kom frá Bandaríkjunum og Englendingurinn Bern- harður Wilkinson, sem kom hingað árið 1975 til að spila á flautu í hljómsveitinni, en átti þá fortíð að hafa verið kórdrengur í Westminster Abbey. Eins og allir kór- söngvarar vita er sú baktería ódrepandi og hann var fljótlega orðinn einn af helstu kór- stjórum landsins, stjórnaði Söngsveitinni Fílharmóníu og Hljómeyki við góðan orðs- tír. Hann hefur auk þess getið sér gott orð sem hljómsveitarstjóri og nú er hann einn af þeim hljómsveitarstjórum sem reglulega stendur á stjórnendapallinum hjá SÍ. Þeir þremenningarnir stofnuðu Blásarakvintett Reykjavíkur ásamt Einari Jóhannessyni klaríntettuleikara og Hafsteini Guðmunds- syni fagottleikara árið 1981 og starfa í hon- um enn. Martial Nardeu flautuleikari sem nú er meðal annars kennari við Listahá- skóla Íslands og var lengi fyrsti flautuleik- ari Sinfóníuhljómsveitarinnar, kom hingað 1982 frá Frakklandi. Hann var margverð- launaður fyrir flautuleik sinn og hafði bæði starfað sem einleikari og með hljómsveitum áður en hingað kom. Það er ekki nokkur vegur að telja alla er- lenda hljóðfæraleikara hljómsveitarinnar upp á þessum vettvangi en núna eru 94 fastráðnir hljóðfæraleikarar hjá hljómsveit- inni og þar af hafa 24 komið að utan, eða 23,5%. Það hlutfall hefur heldur farið lækk- andi í áranna rás, eftir því sem íslenskum hljóðfæraleikurum hefur vaxið fiskur um hrygg. Söngvaraþáttur Á sjötta og sjöunda áratugnum komu hing- að nokkrir söngvarar sem áttu það sam- merkt að vera sterkir persónuleikar og skilja djúp spor eftir sig hér á landi. Sigurður (Vincenz) Demetz sem kenndi hálfri þjóðinni að syngja og uppgötvaði ýmsa stórsöngvara, kom hingað árið 1955 fyrir tilviljun eftir því sem hann hefur sjálf- ur sagt frá. Sigurður var frá Suður-Týról, sem var hluti af Austurríki þar til eftir heimsstyrjöldina fyrri en tilheyrði Ítalíu eftir það. Sigurður lærði söng fyrst og fremst á Ítalíu og kynntist óperulífinu af eigin raun, bæði þar og í Dresden í Þýska- landi. Hann starfaði í virtum óperuhúsum en hörð lífsbarátta á Ítalíu á stríðsárunum og fyrstu árunum eftir stríðið færði hann Íslendingum. Hann kynntist íslenskri konu, Svanhvíti Egilsdóttur söngkonu, sem sótti söngtíma hjá sama kennara og hann, en var fljótlega farin að læra hjá Sigurði sjálfum. Segja má að hún hafi flutt hann inn, því hún safnaði saman hópi fólks sem vildi læra að syngja heima á Íslandi og gerðust nem- endur hans. Sigurður varð fljótlega mjög ástsæll kennari, kenndi fyrst í Reykjavík í nokkur ár og stofnaði hér Söng- og óp- erusöngskólann en flutti síðan til Akureyrar og starfaði þar í rúman áratug. Þar var hann meðal annars kennari Kristjáns Jó- hannssonar stórtenórs og hann kom honum til náms á Ítalíu. Eftir að hann fluttist aftur til Reykjavíkur kenndi hann meðal annars þeim bræðrum Gunnari og Guðbirni Guð- björnssonum tenórum og Guðjóni Grétari Óskarssyni, bassa. Engel eða Gagga Lund fæddist á Íslandi árið 1900 og bjó hér fyrstu ellefu ár ævi sinnar. Faðir hennar var apótekari sem hafði flust hingað frá Danmörku og þangað flutti fjölskyldan aftur. Í Danmörku gekk Gagga í skóla og þar lærði hún að syngja. Hér á landi hafði hún aftur á móti lært mörg þjóðlög sem hún flutti með sér og síð- ar, þegar hún var orðin útlærð söngkona ferðaðist hún víða um lönd og flutti þjóðlög frá um 20 löndum. Hún söng alltaf á frum- málunum og mun hafa verið snillingur í að ná réttum framburði á sérhverju máli. Hún söng alltaf íslensk þjóðlög á ferðum sínum og endaði hverja tónleika á íslensku lagi. Þegar hún var sextug ákvað hún að snúa aftur til Íslands og hér bjó hún til dauða- dags, en hún lést 96 ára gömul. Því má segja að hún hafi átt annan fullan starfs- feril hér á landi. Áhrif hennar eru ómet- anleg – hún safnaði íslenskum þjóðlögum og kynnti þau víða um lönd – og fyrir Íslend- ingum sjálfum – og eftir að hún hætti flakk- inu varð hún einn dáðasti söngkennari þjóð- arinnar. Hún kenndi í Tónlistarskóla Reykjavíkur langt fram yfir eðlilegan eft- irlaunaaldur og eftir að hún hætti þar, kenndi hún heima hjá sér fram í andlátið. Hún var glæsileg kona, stór og mikil og gekk alltaf svartklædd – hún leit út eins og nítjándu aldar kona á göngum Tónlistar- skólans, en augnaráðið var eins og í ungri stelpu, sterkt og fjörlegt. Allir söngvarar syngja lög sem hún safnaði og söng ásamt austurríska píanóleikaranum Ferdinand Rauter, en hann útsetti lögin á mjög lát- lausan hátt og drekkti þeim ekki í róm- antískum hljómum, eins og oft gerðist fyrr á árum. Bókin sem þau gáfu út kom fyrst út árið 1960, en var síðan endurútgefin af Ísalögum árið 1998. Rut L. Magnússon kom hingað til lands- ins uppúr 1960, þá þegar gift Jósef Magn- ússyni flautuleikara. Hún er fædd í Eng- landi en fluttist hingað kornung. Hún hafði lært í Guildhall, og útskrifast þaðan árið 1959 og hafði strax getið sér gott orð. Hún hafði unnið til verðlauna fyrir söng sinn og víða sungið í óratóríum, og konsert- uppfærslum á óperum. Þegar hún kom hingað var lítið um söngkennslu í tónlist- arskólum landsins, líklega hefur Sigurður Dementz verið einn af fáum kennurum auk Guðmundar Jónssonar og Gagga kom til landsins á svipuðum tíma og Rut. Hún tók strax til við að raddþjálfa kóra og tók söng- nemendur heim til sín, auk þess sem hún söng í ýmsum uppfærslum, ýmist á vegum Tónlistarfélagsins eða með Sinfón- íuhljómsveitinni. Segja má að þetta fólk hafi fært sönglistina til Íslendinga, því áður en þau fluttust hingað urðu langflestir sem höfðu áhuga á að læra söng að einhverju marki, að fara til útlanda; eftir að þau komu hingað gat fólk notið kennslu þeirra og reynslu áður en haldið var út í heims- menninguna. Sieglinde Kahmann sópr- ansöngkona fluttist til landsins með manni sínum, Sigurði Björnssyni tenór, árið 1977 og hóf þegar að kenna við Tónlistarskólann í Reykjavík, en hafði áður staðið á óperusv- iðum í Þýskalandi og átt þar farsælan feril í rúm tuttugu ár. Hún bættist í þennan fríða hóp. John A. Speight, sem bæði er söngvari og tónskáld, fluttist til Íslands árið 1972 og hefur starfað ötullega að tónlistinni síðan á báðum sviðum. Hann hefur líka skipt sér að félagsmálum tónlistarmanna; hann hefur t.d. verið formaður Tónskáldafélags Íslands og Norræna tónskáldafélagsins. Tengdabörn þjóðarinnar Fyrir utan þann fjölda sem kom hingað og ætlaði að stoppa stutt, en fann óvart ástina á Íslandi, komu margir hingað upphaflega með maka sínum. Þennan bálk fylla ótrú- lega margir tónlistarmenn og margir þeirra frábærir. Manuela Wiesler flautuleikari kom hingað kornung, aðeins 18 ára gömul með þáverandi manni sínum og varð stór- kostleg vítamínsprauta fyrir íslenskt tón- listarlíf. Íslensk tónskáld kepptust við að semja fyrir hana verk og hún tók þátt í því að stofna til Sumarhátíðar í Skálholti með hugmyndasmiðnum og semballeikaranum Helgu Ingólfsdóttur. Ungir flautuleikarar urðu að sjálfsögðu fyrir djúpum áhrifum frá Manuelu og við búum enn að því. Vladimir Ashkenazy er hvað frægastur þeirra sem telja má til tengdabarna þjóð- arinnar. Kona hans Þórunn Jóhannsdóttir fluttist reyndar með fjölskyldu sinni til London sex ára gömul þar sem hún sjálf var undrabarn á píanó og þurfti að komast í almennilegan skóla. Hún hélt tungumálinu og rótunum við og leit á sig sem Íslending, enda var hún með íslenskan ríkisborg- ararétt fyrir utan þau fáu ár sem hún var sovéskur þegn. Áhrif Ashkenazys eru víð- tæk. Hugmyndin að Listahátíð í Reykjavík er frá honum komin og fjöldi frábærra tón- listarmanna sem hingað kom, sérstaklega á fyrstu árum hátíðarinnar, var beinlínis á hans vegum eða kom hingað vegna þess að fólk þekkti til hans sem píanósnillings. Hann fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 1972 og bjó hér í áratug, á árunum 1968– 1978 þar sem þau hjónin höfðu fengið nóg af erlinum sem fylgdi því að búa í London. Héðan fluttu þau síðan til Luzern í Sviss og sameinuðu með því friðsældina frá Íslandi og það að búa í hjarta Evrópu. Ashkenazy hefur einnig lengi verið mjög öflugur hvata- maður að byggingu tónlistarhúss í Reykja- vík og ósmeykur við að láta í ljós vanþókn- un sína á seinaganginum við að koma þeirri framkvæmd af stað. Nú þegar hillir undir húsið er hann strax farinn að nefna að koma hingað með erlendar gæðasveitir. Í næstu grein, sem verður sú síðasta í þessum flokki, verður farið vítt og breitt um sviðið; vikið verður að kennurum sem hafa unnið sín störf í ró og spekt í fjörðum og dölum landsins, rætt um hóp tónlistar- manna sem fluttist hingað frá löndum Aust- ur-Evrópu á níunda og tíunda áratugnum og dreifðist víða um land, fjallað um þá tón- listarmenn sem komið hafa hingað reglu- lega til að vinna án þess að hafa hér fasta búsetu og síðast en ekki síst verður reynt að draga einhverjar ályktanir af þessu öllu.  Árni Heimir Ingólfsson: John A. Speight, Grove Music Online ed. L. Macy (18.04.2007) <http://www.grovemu- sic.com> Bjarki Bjarnason: Tónlist og tónlistarmenn á Íslandi, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Saga og stéttartal, Reykjavík: Sögusteinn, 2000. Bjarki Sveinbjörnsson: Tónlist á Íslandi á 20. öld: Árin 1930–60, http://www.ismennt.is/not/bjarki/Phd/ Sidur/11–26.html Erwin Koeppen: Með Íslendingum, Reykjavík: Tónlistar- mannatal FÍH, 1995. Gunnar Egilson: Saga Sinfóníuhljómsveitarinnar: sjá vef hljómsveitarinnar; http://sinfonia.is/de- fault.asp?page_id=2047 Jasper Parrott: Ashkenazy austan tjalds og vestan. Jasper Parrott ræðir við Ashkenazy. Reykjavík: Vaka 1984. Úr greinasafni Morgunblaðsins: Minningargreinar: En- gel Lund; 03.07. og 14. 07. 1996 Jan Morávek; 28.05.1970 Vefur Félags íslenskra söngkennara, Viðtöl við meistara; Rut L. Magnússon og Sieglinde Kahmann: www.fisis.is/ index.php?option=com_content&task=blogcate- gory&id=14&Itemid=35 – 44k – Þór Jónsson: Á valdi örlaganna:Æviminningar maestro Sigurðar Demetz óperusöngvara Reykjavík:Iðunn,1995. Blásarakvintett Einar Jóhannesson klarinett, Hafsteinn Guðmundsson fagott, Joseph Ognibeni horn, Daði Kolbeinsson óbó og Bernard Wilkin- son flauta. Sigurður Demetz Franzson Kenndi hálfri þjóðinni að syngja. Engel eða Gagga Lund Þegar hún var sextug ákvað hún að snúa aftur til Ís- lands og hér bjó hún til dauðadags. kjölfar velmegunar Höfundur lauk BA-prófi í tónlistarfræði frá LHÍ vorið 2005 og starfar á Ríkisútvarpinu. » Saga klassískrar tón- listar á Íslandi eftir 1950 er mjög samofin sögu Sinfóníuhljómsveitarinnar eins og vonlegt er. Hún gerir það líka að verkum að eftir stofnun hljómsveit- arinnar jókst mjög straum- ur erlendra tónlistarmanna til landsins, til að hægt væri að halda henni full- skipaðri. Þeir fengu samn- ing í skamman tíma í senn en ótrúlega margir settust hér að til frambúðar ... MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.