Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.2007, Qupperneq 3
Morgunblaðið/RAX
Enn er ofsnemmt að fara í kirkjugarðinn,
segir Dostojevskí í Glæp og refsingu,
enn er það ofsnemmt
eins og lífið iðar við sólgula sundfit
fuglanna á Tjörninni
enn er ofsnemmt að hugsa
inní gjörgæzlumyrkur Landspítalans
eins og sólin iðar í gulum bjórglösum
við gangstéttar Pósthússstrætis
enn er ofsnemmt að ganga á fund
feðra sinna (svo að vitnað sé í 19.öldina)
eins og gjaldkerar Landsbankans
leika við hvern sinn fingur og brosa
í sólinni við Melatorg þar sem öndvegissúlur
Sigurjóns dansa við undirleik sellóleikarans
og höggmyndirnar iða af fjöri
og leika við kvöldbrún augu þín
enn er ofsnemmt að loka augunum
að eilífu eins og fuglarnir syngja
í trjánum við Neskirkju og kettirnir
hlusta eins og gagnrýnendur
með stór gul augu sem endurkasta
sólinni eins og frumskógatungl
enn ofsnemmt að hugsa um síðasta teyming
eins og umhverfið iðar í viðkvæmri kviku
þinni,
nei, hugsaðu ekki um síðasta spölinn
eins og eftirvæntingin hríslast um þig
í jónsmessusólinni þessa löngu nótt.
Sumar ’05
Matthías Johannessen
Á Jónsmessu
„… eru þar margar gátur á hvar Egill hafi fólgið fé sitt“
Egla, 85. kap., um silfur Egils
Öndvegissúlur Sigurjóns Ólafssonar og höggmynd af Erling Blöndal Bengtsson eftir Ólöfu Pálsdóttur.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2007 3
BRANDARAKARLARNIR!
Fyrir krakkana,
mömmurnar,
pabbana
og öll hin
Sumardiskurinn
í ár.
Stútfullur af
bröndurum.
Hentar hvar og
hvenær sem er,
ekki síst
í ferðalagið.
FÆST Í BÓKABÚÐUM
Í GERÐARSAFNI sýna nú fjórir
norrænir listamenn undir yfir-
skriftinni „Útkjálkamennirnir“
(„The Provincialists“). Yfirskriftin
vísar til landsvæða sem liggja utan
stjórnarfarslegrar og menningar-
legrar miðju, yfirleitt í borg. Róm
er forn menningarmiðstöð, ekki síst
í myndlistarsögunni þar sem hún
var lengi eins konar andleg höf-
uðborg. Það er því ekki úr vegi að
listamenn frá jaðarsvæðum á norð-
urhjara veraldar, staddir í norræna
listamannabústaðnum í Róm, spyrji
sig að hvaða leyti hugmyndir um
miðju og „útkjálka“ móti listsköpun
þeirra.
Skemmtileg innsetning Þórdísar
Öldu Sigurðardóttur fjallar um al-
þjóðleg samskipti, landamæri og
landamæraleysi í menningarlegum
boðleiðum. Í málverkum unnum
með blandaðri tækni, sækir Astri
Luihn innblástur til færeyskrar
náttúru og tengir að því er virðist
fornum táknheimi. Í sérstæðri og
áleitinni myndbandsinnsetningu
vekur norski listamaðurinn Ane
Lan áleitnar spurningar sem tengj-
ast veruleikafirringu í fjölmiðla-
væddum heimi, þjóðarsjálfsmynd
og átökum menningarheima. Hin
sænska Madelaine Park fjallar í
innsetningu sinni um „efnaskipti
ástarinnar“ sem mannkynið á í
sameiningu en hún fjallar öðrum
þræði um sviðsetningu þeirra í
vestrænni afþreyingarmenningu.
Verkin eru vissulega ólík en með
áherslu á alþjóðavædda þætti
menningarinnar benda listamenn-
irnir á hin óskýru mörk útkjálkans:
á sýningunni koma við sögu ís-
lenskar lopapeysur, færeyskir sjó-
fuglar, sænsk leikkona og norskur
þjóðbúningur en allt á þetta sér
einnig, með einum eða öðrum
hætti, alþjóðlega tilvist.
Sjónarhorn útkjálkans
Anna Jóa
MYNDLIST
Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn
Til 24. júní 2007. Opið þri.-sun. kl. 11-
17. Aðgangur kr. 400. Eldri borgarar
og öryrkjar kr. 200. Hópar (10+)
kr. 300. 12 ár og yngri: ókeypis.
Ókeypis á föstudögum.
Útkjálkamennirnir (The Provincialists) –
Ane Lan, Astri Luihn, Madeleine Park,
Þórdís Alda Sigurðardóttir
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is