Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.2007, Page 6
6 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Eitthvað virðist ganga erfiðlegaað koma kvikmyndinni Dallas
á koppinn, en eins og nafnið gefur til
kynna er um að ræða kvikmynd í
fullri lengd sem byggð er á sjón-
varpsþáttunum sívinsælu.
Nú stendur til að fá þriðja leik-
stjórann til að stýra verkinu en þeir
Robert Luketic og Gurinder Chadha
hafa báðir þurft að taka pokann sinn
við undirbúning myndarinnar.
Leikarinn John Travolta greindi
frá þessu í viðtali á dögunum, en
hann fer með titilhlutverkið í mynd-
inni, hlutverk sjálfs J.R. Ewing.
Hann sagðist ekki vilja gefa upp
nafn leikstjórans þriðja að svo
stöddu en sagði líklegt að hann tæki
til starfa á nýju ári.
Ekki seinna vænna því áætlað er
að frumsýna myndina á næsta ári.
Og fleiri leikstjórar hverfa frástörfum.
Tim Burton er sagður hafa hætt
við gerð myndarinnar Ripley’s Be-
lieve It or Not! sem áætlað er að
frumsýna á næsta
ári.
Ástæðan ku
vera annríki en
hann er þessa
dagana að leik-
stýra söng-
leiknum Sweeney
Todd með
Johnny Depp í
aðalhlutverki.
Ekki er vitað
hver tekur við stjórn myndarinnar
um Robert Ripely en það er Jim
Carrey sem fer með hlutverk hans.
Ripley var kunnur safnari þess
undarlega í heiminum. Hann ferðað-
ist til rúmlega 200 landa og safnaði
fregnum frá ýmsum fyrirbærum
náttúrunnar, því stærsta, því
þyngsta, því minnsta og svo fram-
vegis.
Fjöldi safna hefur verið opnaður
um heim allan þar sem gefur að líta
ljósmyndir og vaxbrúður af því sem
Ripley þótti markverðast á ferðalög-
um sínum.
Opnunarmynd kvikmynda-hátíðarinnar í Feneyjum hefur
verið valin. Sú nefnist Atonement og
er gerð eftir skáldsögu Ians Mc-
Ewans. Með aðalhlutverk fara Keira
Knightley, Van-
essa Redgrave og
James McAvoy.
Myndin er ein
þeirra sem keppa
um aðalverðlaun
hátíðarinnar,
Gullljónið.
Talsmaður
kvikmynda-
hátíðarinnar,
Marco Muller,
sagði það einsdæmi í sögu hátíðar-
innar að velja verk eftir svo ungan
leikstjóra sem opnunarmynd.
Leikstjóri myndarinnar nefnist
Joe Wright og er 35 ára.
Atonement er önnur kvikmynd
hans í fullri lengd en hann hefur áð-
ur unnið með Knightley við gerð
Hroka og hleypidóma eftir bók Jane
Austen.
Wright sagði heiðurinn stórkost-
legan.
„Það að vera þessa heiðurs aðnjót-
andi eru verðlaun útaf fyrir sig,“
bætti leikstjórinn við og var ófús að
gefa nokkuð upp um hvort hann
gerði sér vonir um verðlaun á hátíð-
inni. Kvikmyndahátíðin í Feneyjum
fer fram þar í borg seinnihluta
ágústmánaðar.
KVIKMYNDIR
John Travolta
Keira Knightley
Tim Burton
Eftir Björn Norðfjörð
bn@hi.is
Það er löng hefð fyrir því að telja leikstjórahöfund kvikmyndar á ekki ósvipaðanmáta og rithöfundur er höfundur skáld-sögu. Þessi hugmynd festist í sessi með
höfundakenningunni svokölluðu sem sett var fram
í Frakklandi fyrir tilstilli François Truffaut, Jean-
Luc Godard, Eric Rohmer, Jacques Rivette og
annarra penna tímaritsins Cahiers du cinema, auk
bandaríska gagnrýnandans Andrew Sarris sem
kynnti hana til sögunnar í Bandaríkjunum. Svo
áhrifamikil er þessi hugmynd í dag að hún er alla-
jafna samþykkt gagnrýnislaust, en sé betur að gáð
leynast á henni margvíslegir vankantar. Kvik-
myndin Ball of Fire (1941), sem nú er kennd við
leikstjórann Howards Hawks samkvæmt höf-
undakenningunni, er ekki bara stórskemmtileg
mynd heldur vekur hún upp mikilvægar spurn-
ingar um kenninguna sem mig langar að reifa hér
eilítið.
Ball of Fire segir frá átta einstæðum prófess-
orum sem vinna dag og nótt að alfræðiorðabók.
Langt komnir með verkið lenda þeir í vandræðum
þegar sérfræðiþekking þeirra nær ekki til slang-
urs. Heldur þá leiðtoginn Bertram Potts (Gary
Cooper) af vernduðu heimili þeirra og tekur að
viða að sér daglegu máli götunnar. Á næturklúbb
nokkrum hittir hann fyrir „Sugarpuss“ O’Shea
(Barbara Stanwyck) sem talar tungum og heillar
Bertram upp úr skónum. Hún sest að hjá Bertram
og hinum prófessorunum sjö undir því yfirskyni að
hún sé að hjálpa þeim með alfræðiorðabókina, en í
raun er hún í felum frá yfirvöldum sem vilja hafa
hendur í hári vonbiðils hennar – mafíósans Joe
Lilac (Dana Andrews). Joe þessi reynist hinn mesti
hrotti en þegar hann ætlar að þvinga „Sugarpuss“
til að giftast sér koma Bertram og prófessorarnir
sjö henni til bjargar. Allt er gott sem endar vel.
Við fyrstu sýn virðist Ball of Fire styðja mjög við
höfundakenninguna en hún býr yfir mörgum sam-
eiginlegum einkennum mynda Hawks, sem alla tíð
hefur verið talinn einn af helstu kvikmyndahöf-
undum klassíska tímabilsins í Hollywod. Mætti þar
nefna átök kynjanna, eiturhraðar og smellnar sam-
ræður og árekstur nútíma og fortíðar. Ball of Fire
er þó ekki upphaflega kennd við Hawks heldur
framleiðandann Samuel Goldwyn – líkt og tíðkaðist
á þeim tíma – sem sérhæfði sig í stórmyndum sem
þessum. Ennfremur er þessi hugmyndaríka út-
færsla á ævintýrinu um Mjallhvíti og dvergana sjö
komin frá Billy Wilder sem skrifaði handritið
ásamt félaga sínum Charles Brackett – og fellur
myndin ekki síður að hinni dæmigerðu Wilder-
mynd. Áhugaverðast í þessu samhengi er þó fram-
lag kvikmyndatökumannsins Greggs Toland.
Umfram annað hefur sérstaða kvikmyndahöf-
undarins Hawks þótt liggja í óaðfinnanlegri fram-
vinduklippingu þar sem að frásögninni er miðlað
hratt og örugglega með skipulögðum og stöðugum
klippingum. Þegar árið 1953 lagði Rivette á þetta
sérstaklega áherslu í umfjöllun í grein um leik-
stjórann í Cahiers og í dag er Hawks oftar öðrum
leikstjórum tekinn sem dæmi þegar fjallað er um
framvinduklippingu í kennslubókum, t.d. myndir
hans His Girl Friday (1940) og The Big Sleep
(1946). Í Ball of Fire er eitthvað allt annað upp á
teningunum þar sem að í stað framvinduklippingu
er iðulega beitt nokkuð löngum tökum þar sem að
rýmið er nýtt til hins ýtrasta, oft með úthugsuðum
uppsetningum þar sem má samtímis finna persónu
í nær- og fjarmynd. Hér má ljóslega sjá höfund-
arverk Tolands sem kvikmyndaði einnig sama ár
The Little Foxes fyrir William Wyler og Citizen
Kane fyrir Orson Welles – og ritstjóri Cahiers
André Bazin hrósaði svo mjög í frægri grein um
þróun tungumáls kvikmyndarinnar. Með öðrum
orðum, fyrir tilstilli Tolands renna saman í Ball of
Fire tvær frásagnarhefðir sem allajafna eru taldar
til fullkominna andstæðna í sögu Hollywood. Eitt
og sér gerir það Ball of Fire að stórmerkilegri
mynd.
Goldwyn, Wilder, Toland – hvernig sem á málið
er litið er það heldur vafasöm einföldun að útlista
Hawks einan höfund Ball of Fire.
Hawks, Wilder, Goldwyn
eða Toland?
SJÓNARHORN »Umfram annað hefur sérstaða kvikmyndahöfundarins Hawks
þótt liggja í óaðfinnanlegri framvinduklippingu þar sem að frá-
sögninni er miðlað hratt og örugglega með skipulögðum og stöðugum
klippingum.
Eftir Björn Þór Vilhjálmsson
vilhjalmsson@wisc.edu
Þ
rjú ár eru síðan haldið var upp á 100
ára fæðingarafmæli spænska lista-
mannsins og súrrealistans Salvador
Dali með stórum yfirlitssýningum
víða um heim. Að sumu leyti var
ekki vanþörf á slíku framtaki þar
sem skoðanir eru skiptar um stöðu og mikilvægi
Dali í listasögu 20. aldar og nokkur samhljómur er
um að afköst listamannsins hafi verið æði misjöfn
að gæðum í gegnum tíðina. Ýmislegt bendir þó til
þess að Dali sé að rísa á nýjan leik í hugum listá-
hugamanna og þar hafa áðurnefndar afmælissýn-
ingar eflaust skipt umtalsverðu máli. En til við-
bótar mætti nefna nýlegar viðhafnarútgáfur á
DVD á kvikmyndum þeim sem Dali gerði í sam-
starfi við Luis Buñuel á þriðja áratugnum, þá
staðreynd að hvorki meira né minna en þrjár
kvikmyndir eru í bígerð um ævi og störf lista-
mannsins, og síðast en ekki síst má nefna sýningu
sem stendur yfir um þessar mundir í listasafninu
Tate Modern í London, Dali and Film, sem gerir
einmitt tengsl Dali við kvikmyndalistina að um-
fjöllunarefni.
Framúrstefna og kvikmyndir
Það er náttúrlega hvorki nýtt né fréttnæmt að
tala um þær sérstöku kringumstæður sem kvik-
myndalistinni eru búnar. Frá upphafi formsins,
eða svo gott sem, hefur togstreitan milli fjárhags-
legra sjónarmiða og listrænna þótt einkennandi
fyrir framleiðsluferli kvikmynda og hafa raddir
sem benda á ókosti fjárfrekra framleiðsluaðferða
síst orðið fyrirferðarminni eftir að kvikmynda-
gerð flestra landa tók á sig mynd skipulags iðn-
aðar. Þannig voru listamenn áberandi strax á upp-
hafsárum kvikmyndarinnar sem litu á kvikmynd-
ina fyrst og fremst sem sjónrænan miðil, og
(síðar) hljóðrænan líka, en alls ekki frásagnar-
legan. Persónulegar áherslur voru í fyrirrúmi og
leitast var við að nýta sér einstaka hæfileika kvik-
myndatökuvélarinnar til að bæði líkja eftir veru-
leikanum og framandgera á máta sem gróf undan
hefðbundinni skynjun. Í dag er náttúrlega ekki
hægt að stíga inn á listasafn eða gallerí án þess að
við blasi vídeóverk af einhverju tagi en fyrsta kyn-
slóð framúrstefnulistamanna sem nýttu sér kvik-
myndina við sköpun verka sinna, eða bókstaflega
störfuðu við kvikmyndagerð, voru í þeirri sér-
stöku aðstöðu að verða svo gott sem vitni að til-
komu hennar. Fyrir þeim var um nýtt form að
ræða. Kvikmyndin var í þeirra augum ný á máta
sem ég held að við sem ölumst upp umkringd fjöl-
miðluðum ímyndum getum vart skilið. Þetta á
náttúrlega við um alla sem komu nálægt kvik-
myndum á árdögum listformsins, en ég held að fá-
ir hafi spáð jafnmikið í möguleika og áhrifamátt
formsins og einmitt framúrstefnulistamenn í
Evrópu og Bandaríkjunum á þessu tímabili. Í
raun mætti halda fram að það hafi einmitt verið
þessi kynngimagnaði nýstárleiki sem reyndist afl-
vaki áhugans og tilraunamennskunnar, og útskýri
að hluta til spennuna og kraftinn sem enn skilar
sér þegar horft er á verkin sem þá voru búin til.
Eftir Dali og vin hans og félaga Luis Buñuel
liggja tvö lykilverk kvikmyndalegrar framúr-
stefnu, Un Chien andalou (Andalúsíuhundurinn,
1929) og L’Age d’or (Gullöldin, 1930), en eitt af
fyrstu atriðum fyrrnefndu myndarinnar telst án
efa eitt víðfrægasta myndskeið
kvikmyndasögunnar, en þar er rak-
hnífi beitt á galopið auga og það rist
í tvennt. Mikið hefur verið skrifað
um auga þetta en það er sama
hversu oft horft er á atriðið, alltaf
hefur það áhrif og þá ekki síst vegna
tengslanna sem óhjákvæmilegt er
að sjá milli þess og stöðu áhorfand-
ans sem horfir á verknaðinn. Kvik-
myndin ræðst á skynfæri (allra)
áhorfenda og blindar þau óbeint.
Hvað segir þetta atriði okkur um
kvikmyndaáhorf? Eða samband list-
ar og neytanda? Myndirnar tvær
eru hluti af Tate-sýningunni, auk at-
riða sem Dali hannaði fyrir aðrar
myndir, t.d. draumaatriðið í Spell-
bound eftir Hitchcock og tækifæri
gefst til að kynna sér drög að mynd-
skeiði sem hann gerði fyrir til-
stuðlan Marx-bræðra. En ef sýning-
in leitast við að varpa ljósi á eitt
öðru fremur þá er það hvernig kvik-
myndatæknin og myndrænar að-
ferðir formsins höfðu áhrif á mynd-
list Dalis út í gegnum ferilinn.
Þannig má tengja hinar fjölmörgu
umbreytingar og umskipti sem eiga
sér stað á myndfleti ýmissa Dali-
verka við ákveðna tegund af mynd-
fléttu, og skugganotkun og skörun
gefa vísbendingar um framrás tím-
ans. Þá ber einnig fyrir augu allhroðalegt verk
sem Dali málaði af stúdíómógúlnum Jack Warner,
en algengt var að Dali notaði sér einnig frægar
ímyndir kvikmyndaleikara á borð við Shirley
Temple en setti þær í samhengi sem einmitt verð-
ur að teljast ansi fjarlægt hefðbundinni ímynda-
sköpun Hollywood.
Það sem kannski vekur mesta athygli er heims-
frumsýning 7 mínútna teiknimyndar, Destino,
sem Dali hóf vinnu við fyrir sjálfan Walt Disney á
fimmta áratugnum en lauk aldrei, enda þótt hann
hafi varið tæpu ári við gerð teikninga og annars
konar undirbúningsvinnu. Sagan segir að fundur
Disneys og Dalis hafi fyrst orðið í kvöldverðarboði
árið 1945 og hafi þá strax í kjölfarið verið farið að
huga að samvinnu. Hins vegar leist Walt ekki
meira en svo á hugmyndir Dalis þegar til kom að
fallið var frá gerð myndarinnar. Nú hefur hins
vegar Roy Disney, frændi Walts, ásamt John
Hench, einum af upprunalegum samstarfs-
mönnum Dalis við gerð myndarinnar, lokið við
verkið, og segjast þeir hafa haldið sig eins nálægt
upprunalegum hugmyndum Dalis og unnt var.
Fullbúin, segir Roy, er myndin rós í hnappagat
Disneys.
Salvador Dali og kvikmyndin
Um þessar mundir stendur yfir sýning í lista-
safninu Tate Modern í London, Dali and Film,
sem gerir tengsl Dali við kvikmyndalistina að
umfjöllunarefni. Sýningin leitast við að varpa
ljósi á hvernig kvikmyndatæknin og myndrænar
aðferðir formsins höfðu áhrif á myndlist Dalis út
í gegnum ferilinn. En þar er einnig heimsfrum-
sýnd 7 mínútna teiknimynd, Destino, sem Dali
hóf vinnu við fyrir sjálfan Walt Disney á fimmta
áratugnum en lauk aldrei enda leist Disney ekk-
ert á verkið.
Disney-mynd Dalís Nú hefur Roy Disney, frændi Walts, ásamt
John Hench, einum af upprunalegum samstarfsmönnum Dalis
við gerð myndarinnar, lokið við Disney-mynd Dalís.