Lesbók Morgunblaðsins - 21.07.2007, Síða 1
Selma Guðmundsdóttir píanóleikarisagði mér að Kolbeinn Ketilsson værieinn af örfáum söngvurum í heim-inum sem réðu við hlutverk Eneasar í
óperunni Trójumönnunum eftir Berlioz. Kol-
beinn þagði samviskusamlega yfir þessu þegar
ég tók hann tali í vikunni, en lumaði þó á þeirri
stórfrétt að í haust færi hann með óperuflokki
Arena di Verona til Ástralíu og syngi meðal
annars í óperunni í Sydney sem stendur við
höfnina eins og fley fyrir seglum og er fyrir
löngu orðin kunnnasta tákn Eyjaálfu. Óperan
Trójumennirnir sem Selma nefndi er byggð á
Eneasarkviðum Virgils, eins og reyndar önnur
þekkt ópera, Dídó og Eneas, eftir Purcell.
Eneas þessi var Trójuprins og mikill sægarp-
ur, og varð frægur að endemum fyrir að skilja
mesta kvenkost þess tíma, Dídó Karþagó-
drottningu, eftir í feigðarharmi eftir ástaræv-
intýri þeirra.
Pablo Neruda lék sama leik öldum síðar, er
hann yfirgaf ástkonu sína Josie Bliss í Rangún
og sigldi á haf út, meðan hún grét og lét öllum
illum látum á hafnarbakkanum. En merkilegt
er það hvaða kraftur býr í ástarharminum, ef
marka má þessar tvær sögur, og aðra þá list
sem af þeim spratt, en Ingi Vilhjálmsson rek-
ur sögu Bliss og Neruda í Lesbók í dag.
Við köllum hann „hundtyrkjann“ þann hóp
manna sem heimsótti okkur af hafi árið 1627.
Þeir sjógarpar fóru þveröfugt að, og í stað
þess að skilja konur eftir í harmi og sigla brott
sóttu þeir sér konur – og menn – og sigldu
með í Barbaríið. Ungur sagnfræðingur og
meistaranemi í þjóðfræði, Bryndís Björgvins-
dóttir, ögrar viðteknum hugmyndum um
Tyrkjaránin á miðopnu Lesbókar og rekur
hvernig ímynd ránanna hefur breyst í tímans
rás, og hvernig við endurnýjum hana og „betr-
umbætum“ í huga okkar á hverjum tíma. Í
niðurlagi greinar sinnar segir hún: „Þau
„Tyrkjarán“ sem við höfum verið að minnast í
gegnum aldirnar og minnumst í dag gerðust
aldrei.“
Sægarpar
og söng-
hetjur
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Reuters
Sydneyjaróperan Segl í stormi.
Laugardagur 21. 7. 2007
81. árg.
lesbók
TIL VARNAR TYRKJUM
ÞJÓÐSAGNIR UM TYRKJARÁNIN LÝSA SÖGULEGUM ATBURÐUM
EINS OG ÍSLENDINGAR KUSU SJÁLFIR AÐ MUNA ÞÁ >> 8
Josie var dökk á brún og brá og afar fríð og vann á skrifstofu í Rangún » 10
Trójuprinsinn Kolbeinn Ketilsson í hlutverki Eneasar á sviði óperunnar í München. Kolbeinn á mikilli velgengi að fagna í söngnum, en hann
hefur starfað við óperuhús í Evrópu í á annan áratug. Hann er bókaður til 2010, en syngur í haust í Íslensku óperunni í Ariadne auf Naxos.