Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.2007, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.2007, Qupperneq 1
Laugardagur 11. 8. 2007 81. árg. lesbók FÖT OG KYNÞOKKI HVAÐ ER KYNÞOKKAFULLT OG AF HVERJU? HVAÐA ÁHRIF HEFUR KYNÞOKKI Á FÓLK? >> 8 Hvers vegna ætli þolmörkin gagnvart mótmælum liggi svona lágt? » 2 Morgunblaðið/Kristinn Guðrún og Fórnin Tuttugu ár eru síðan Guðrún Gísladóttir lék eitt af aðalhlutverkunum í síðustu kvikmynd Andrei Tarkovskys, The Sacrifice. Guðrún rifjar upp stemninguna á tökustað sem var allsérstæð og viðbrögðin hér heima við þessum frama hennar sem einnig voru allsérstæð. » 4 Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Doris Lessing er satt að segja ekki einn af mínum uppáhaldshöfundum. En efni nýjustu skáldsögu hennar vakti athygli mína. Í henni rifjar fornfræðingur nokkur upp frásögn af einangruðu samfélagi kvenna sem fyrirfannst við sjávarströnd einhvern tímann í fyrndinni og var kallað The Cleft (eins og skáldsagan) eða Sprungan eftir kennileiti við ströndina. Engan karlmann var að finna í þessu samfélagi og konurnar höfðu heldur enga þörf fyrir þá né vitneskju um slík fyr- irbæri. Þær fæddu eingöngu stúlkubörn þar til einn daginn að stórundarlegt barn kom í heiminn, drengur sem konurnar kölluðu ófreskju. Þetta skrímsli setti allt á annan end- ann í samfélagi kvennanna og spurningar um samskipti kynjanna taka fljótt að brenna á þessu litla og friðsama samfélagi. Eins og margar fyrri bækur Lessing hefur þessi vakið æði misjöfn viðbrögð. Konum þykir hún draga ansi gamaldags og neikvæða mynd af konum í henni og hið sama þykir sumum um karlana. Og þótt Lessing sé aug- ljóslega að taka upp þráðinn í þeirri umræðu um stöðu kvenna sem hún átti svo mikinn þátt í að hefja á sjöunda áratugnum með bók sinni The Golden Notebook (1962) þá eru ekki allir vissir um hvað hún sé að fara með The Cleft. Hvað sem því líður þá er bókin æði for- vitnilegur lestur. Karllaus sprunga MENNINGARVITINN

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.