Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.2007, Blaðsíða 1
Laugardagur 8. 9. 2007
81. árg.
lesbók
BÓKMENNTAHÁTÍÐIN Í REYKJAVÍK
Enginn virðist eiga heima í Bandaríkjunum» 2
Naphatson og Justé Sýningin Undrabörn á ljósmyndum Mary Ellen Mark af fötluðum nemendum í Öskjuhlíðar-
og Safamýrarskóla verður opnuð í Þjóðminjasafninu í dag. Á myndinni eru tveir nemendanna í Safamýrarskóla.
Ljósmynd/Mary Ellen Mark
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Bókmenntahátíðin í Reykjavíkverður sett í áttunda sinn ámorgun, sunnudag. Þetta erfjölmennasta hátíðin til þessa,
að sögn forsvarsmanna hennar, og er
sannarlega von á mörgum áhugaverðum
gestum. Mesta eftirvæntingu vekur þó
koma suður-afríska nóbelsverðlaunahaf-
ans J.M. Coetzee en hann þykir einkar
hlédrægur maður og lítt gefinn fyrir
mannamót af þessu tagi. Verður að telj-
ast afrek að hafa fengið hann til þess að
koma og þar að auki halda opinberan fyr-
irlestur á vegum hátíðarinnar.
Ayan Hirsi Ali er einnig afar áhuga-
verður gestur. Ali fæddist í Mogadishu í
Sómalíu árið 1969 en leitaði hælis í Hol-
landi árið 1992. Þar var hún kjörin á þing
árið 2003 og varð fljótlega þekkt fyrir
mannréttindabaráttu sína og gagnrýni á
viðhorf til kvenna í íslömskum ríkjum;
gerði hún meðal annars kvikmynd um
það efni með Theo van Gogh, sem var
myrtur árið 2004. Árið 2005 kaus tímarit-
ið Time hana eina af 100 áhrifamestu
persónum ársins í heiminum. Hirsi Ali
hefur skrifað tvær ævisögulegar bækur
og er önnur þeirra, Frjáls, væntanleg í
haust á íslensku hjá Veröld.
Hátíðin hefur hingað til notið gríð-
arlegra vinsælda. Segja má að staðið hafi
verið út úr dyrum á upplestrum. Þessi
mikla aðsókn hefur komið á óvart en
ástæðan fyrir vinsældum upplestrarins
er einfaldlega sú að það er mjög for-
vitnilegt að heyra höfunda lesa upp úr
verkum sínum, auk þess sem tekist hefur
að skapa mjög huggulega stemningu yfir
þessum uppákomum.
Gleðilega hátíð!
Coetzee Hann þykir einkar hlédræg-
ur maður og lítt gefinn fyrir manna-
mót á borð við hátíðir.
Gleðilega
hátíð!
MENNINGARVITINN