Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.2007, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Íkvöld kemur í ljós hvaða myndhlýtur Gullna ljónið, fyrstu verð-
laun kvikmyndahátíðarinnar í Fen-
eyjum, sem hefur staðið yfir síðan 29.
ágúst síðastliðinn.
Það er í höndum sjö leikstjóra að
velja eina mynd af
þeim 22 sem í
keppninni eru.
Dómnefndina
þetta árið skipa
Zhang Yimou
(Curse of the Gol-
den Flower), Cat-
herine Breillat
(Une vieille maî-
tresse), Jane
Campion (The Piano), Emanuele
Crialese, Alejandro González Iñ-
árritu (Babel), Ferzan Ozpetek og
Paul Verhoeven (Basic Instinct ).
Mikið hefur verið spáð og spek-
úlerað um hver komi til með að hljóta
verðlaunin eftirsóttu og hefur nafn
Ang Lee verið nefnt oftar en einu
sinni og oftar en tvisvar. Reyndar eru
ekki nema tvö ár síðan Lee hampaði
verðlaununum góðu fyrir mynd sína
Brokeback Mountain.
Mynd hans, Lust, Caution, er
byggð á skáldsögu Eileen Chang.
Nektarsenur í myndinni vekja at-
hygli en vegna þeirra er myndin
bönnuð börnum undir 17 ára og Lee
neyðist til að klippa stóran hluta at-
riðanna úr myndinni eigi hann að fá
að sýna hana í Kína.
Og enn af Feneyjahátíðinni. Leik-stjórinn Tim Burton er handhafi
heiðursverðlauna hátíðarinnar að
þessu sinni.
„Hann er einn
af hugrökkustu og
óvenjulegustu
kvikmyndagerð-
armönnum
Bandaríkjanna,“
var mat dóm-
nefndarinnar.
Viðeigandi þótti
að leikarinn Jo-
hnny Depp af-
henti honum verðlaunin, en Depp
hefur leikið aðalhlutverk í ófáum
mynda Burtons.
Leikstjórinn sagðist þakklátur
virðingunni sem honum væri sýnd og
sagði verðlaunagripinn, gullna ljónið,
slá Óskarsverðlaununum við.
„Ljónið er talsvert fallegra en nak-
inn og sköllóttur maður,“ sagði Bur-
ton um verðlaunagripina.
Nýjasta mynd leikstjórans, Swee-
ney Todd: The Demon Barber of
Fleet Street, verður einnig frumsýnd
á hátíðinni en þar er Depp í aðal-
hlutverki ásamt Helenu Bonham
Carter, eiginkonu Burtons.
Finnskir kvikmyndagerðarmennhafa lagt niður vinnu til að mót-
mæla því sem þeir segja vera svikin
loforð stjórnvalda um auknar nið-
urgreiðslur til kvikmyndagerðar í
landinu. Í fjárlögum næsta árs sé
upphæðin til kvikmyndagerðar sú
sama og í fyrra þrátt fyrir loforð um
að þær yrðu hækkaðar um rúmlega
100 milljónir íslenskra króna.
Tuttugu og þrír kvikmyndagerð-
armenn hafa lýst því yfir að þeir muni
ekki hefja störf á ný fyrr en frekari
fjárveiting fáist.
Menningarmálaráðherra Finn-
lands, Stefan Wallin, sagði að ekki
væri búið að taka endanlega ákvörð-
un um fjárveitingar til kvikmynda-
gerðar. Kvikmyndagerð í Finnlandi
er í mikilli uppsveiflu en samkvæmt
upplýsingum finnsku kvikmynda-
stofnunarinnar var um fjórðungur
þeirra mynda sem sýndar voru í
Finnlandi í fyrra innlend framleiðsla.
Fyrir tíu árum var þetta hlutfall ein-
ungis fjögur prósent.
KVIKMYNDIR
Ang Lee
Tim Burton
Eftir Björn Þór Vilhjálmsson
vilhjalmsson@wisc.edu
Nýjasta hefti bandaríska kvikmynda-tímaritsins Cineaste er athyglisvertfyrir margra hluta sakir. Sama mættireyndar segja um flest hefti tímarits-
ins, en það sem gerir það nýjasta sérlega hnýsilegt
er sú staðreynd að verið er að halda upp á 40 ára af-
mæli blaðsins, heilmiklum áfanga hefur verið náð
og slíkum tímamótum fylgir að sjálfsögðu fögn-
uður. En þegar ritstjórar tímarits á borð við Ci-
neaste líta um öxl og virða fyrir sér það sem í raun
mætti líkja við heilt ævistarf er hætt við að heim-
spekilegur andi færist yfir mannskapinn, að tíma-
mótin reynist tilefni fyrir vangaveltur um stöðu og
hlutverk þess listforms sem útgáfan hefur helgað
kröftum sínum, og sú er einmitt raunin. Í anda
þeirrar pólitísku róttækni sem hefur einkennt rit-
stjórnarstefnu blaðsins frá upphafi þarf heldur ekki
að koma á óvart að um afar áhugavert endurlit er
að ræða, endurlit þar sem tekið er á ýmsum grund-
vallarspurningum um tilgang og hlutverk kvik-
myndamiðilsins og vöngum er velt yfir sambandi
miðilsins við umheiminn, hvernig kvikmyndir geta
gripið inn í samtíma sinn og haft áhrif á eða reynt
að draga upp gagnrýna mynd af atburðum líðandi
stundar.
Í grein sem einn af ritstjórum blaðsins, kvik-
mynda- og sagnfræðingurinn Robert Sklar, skrifar
við þetta tækifæri um fyrstu tvo áratugi útgáfu-
starfseminnar (1967-1987) er einmitt dregin upp af-
ar forvitnileg mynd af þeim straumum og stefnum
sem einkenndu skrif þeirra ummælenda og fræði-
manna sem á sjöunda áratugnum vildu auka veg
kvikmyndamiðilsins í samfélagi listanna, en höfðu á
sama tíma gagnrýna sýn á hvernig
áhrifamætti formsins skyldi beitt. Í framhaldinu
bendir Sklar á hvernig hópamyndun átti sér stað og
menn skiptust í fylkingar eftir hugmynda- og að-
ferðalegum áherslum. Þarna er í raun verið að
fjalla um tímabilið sem markaði skil í umfjöllun um
kvikmyndir, kvikmyndafræði í nútímalegri mynd
voru að festa sig í sessi en ákveðnar vígalínur sem
enn gera vart við sig í fræðunum komu einnig upp á
yfirborðið.
En þótt Cineaste hafi tekið þátt í ákveðinni vakn-
ingu hvað varðar róttæka kvikmyndagerð var tíma-
ritið að sama skapi mótað af sögulegum kring-
umstæðum. Útgáfa þess hefst á svipuðum tíma og
félagslega sinnuð kvikmyndagerð tekur að ryðja
sér til rúms, eða verða verulega áberandi, sem
kvikmyndategund víða í heiminum (sem dæmi má
nefna Listen, America! eftir Yves de Laurot frá
1968; Z eftir Costa-Gavras frá 1969; Le chagrin et
la pitie eftir Ophuls, 1969 og Winter Soldier, 1972)
og þótt blaðið sé vitanlega vitnisburður um slíkar
hræringar er það ekki síður einkenni um víðtækari
samfélagslegar umbyltingar sem áttu sér stað á
þessum tíma, með öðrum orðum voru tímarit eins
og Cineaste ekki föst í einhvers konar sjálfhverfu
sníkjukenndu sambandi við kvikmyndirnar sem
fjallað var um á blaðsíðum þess, heldur var hvort
tveggja viðbrögð við byltingar- og frelsisanda sem
þá sveif yfir vötnum.
Cineaste markaði sér sérstöðu sem getur talist
umdeilanleg þótt hún hafi einnig að mörgu leyti
verið á undan sínum samtíma. Cineaste tók afar
gagnrýna afstöðu gagnvart þeim kenningum sem í
upphafi áttunda áratugarins voru í þann mund að
umbreyta kvikmyndaumfjöllun beggja vegna Atl-
antshafsins, kenningum sem tóku mið bæði af sál-
könnun og strúktúralisma og myndu í dag senni-
lega kallast póststrúktúralískar, en ræturnar voru í
Frakklandi og skrif manna á borð við Christian
Metz geta talist dæmigerð fyrir tegundina. Þetta er
í raun andartakið þegar kvikmyndafræði verða há-
skólastofnuninni „sæmandi“ sem fræðigrein en
þarna fannst aðstandendum Cineaste kvikmynda-
umfjöllunin fjarlægjast hinn almenna áhorfanda
um of, og mótmæltu hástöfum: „Við höfum meiri
áhuga á því að breikka hinn hugsanlega stuðnings-
hóp við vinstri sinnaða menningargagnrýni al-
mennt séð heldur en að taka þátt í esoterískum rök-
ræðum um smáatriði við aðra vinstri-menn,“ sögðu
ritstjórarnir á áttunda áratugnum og hafa svo sem
staðið við það síðan.
Enginn vafi leikur á því að höfnun ritstjóranna á
„fræðilegri“ umfjöllun um kvikmyndir var byggð á
misskilningi. En misskilningurinn var þó ekki al-
slæmur þar sem áherslurnar sem komu fram í kjöl-
farið hafa reynst ekki síður mikilvægar fyrir skiln-
ing okkar á samtímakvikmyndagerð. Staðföst trú
aðstandenda Cineaste hefur alltaf verið að pólitís-
kasta kvikmyndagerðin fyrirfinnist í Bandaríkj-
unum og sú áhrifamesta, í hugmyndafræðilegum
skilningi, sé sú sem kemur frá Hollywood, en að
mörgu leyti hefur þetta viðhorf einmitt leitt til þess
að tímaritið varð brautryðjandi í gagnrýnni grein-
ingu á meginstraumnum. Því mætti einnig halda
fram að hugmyndirnar sem blaðið hélt á lofti um að
boðskapurinn sem slíkur (hver sem hann svo sem
er) næði aldrei markmiði sínu, væri í sjálfu sér ár-
angurslaus ef dreifingin brygðist, hafi fundið sér
kraftmikla sporgöngumenn í kvikmyndagerð-
armönnum á borð við Robert Greenwald og Mich-
ael Moore, svo tvö augljós dæmi séu nefnd. Mönn-
um sem tala til hins almenna áhorfanda um málefni
sem eru mikilvæg á máta sem er aðgengilegur.
Allt er betra en að vera passífur
SJÓNARHORN » Staðföst trú aðstandenda Cineaste hefur alltaf verið að pólitískasta
kvikmyndagerðin fyrirfinnist í Bandaríkjunum og sú áhrifamesta, í hug-
myndafræðilegum skilningi, sé sú sem kemur frá Hollywood…
Eftir Björn Norðfjörð
bn@hi.is
K
vikmyndahátíðir eru auðvitað í
gangi árið um kring, en þær hafa
heldur betur verið í sviðsljósinu
þessa dagana. Telluride-hátíðin
vakti glimrandi lukku, frábæru
prógrammi í Feneyjum lýkur í
dag, öngþveitið í Toronto er rétt nýhafið og það
styttist óðum í Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í
Reykjavík.
Telluride
Kvikmyndahátíðin í smábænum Telluride í Colo-
rado kann vel að vera virtasta hátíðin vestanhafs
í dag. Aðstandendur hennar leggja áherslu á að
ekki séu veitt verðlaun þar sem allar myndirnar
séu ígildi sigurvegara. Enda var prógrammið í ár
geysiflott, en þar var að finna nýjar myndir eftir
Wayne Wang, Kevin Macdonald, Werner Herzog
og hinn vanmetna leikstjóra Sean Penn – ekki
slæmur félagsskapur fyrir Baltasar Kormák sem
sýndi á hátíðinni Mýrina. Að öðrum ólöstuðum
virðist Todd Haynes vera ókrýndur sigurvergari
Telluride en mynd hans I’m Not There hlaut
feikilega góðar viðtökur, en hún mun taka Bob
Dylan svipuðum tökum og Haynes tók David Bo-
wie í Velvet Goldmine og Carpenters í Barbie-
myndinni Superstar. Talandi um tónlistarfólk þá
var líka sýnd á hátíðinni endurunnin filma af
Bítlamyndinni Help!, auk þess sem þöglu stór-
virkin Menschen am Sontag og The Big Parade
voru sýnd við lifandi undirleik stórsveita.
Feneyjar
Ekki er annað að sjá en aðalkeppnin á Feneyjum
sé í sérflokki í ár og flottari en bæði Cannes og
Berlín. Þarna er að finna í keppni myndir m.a.
Wes Anderson, Youssef Chahine, Peter Gree-
naway, Ang Lee, Miike Takashi, og öldunginn
Eric Rohmer. Mest hefur þó verið látið með
myndina hans Todd Haynes líkt og á Telluride,
auk Redacted eftir Brian De Palma sem sjálfur
hefur farið mikinn í Feneyjum. Myndin sú lýsir á
afar grafískan máta hópi bandarískra hermanna
sem í mars í fyrra nauðguðu, myrtu og brenndu
14 ára íraska stúlku og drápu aðra í fjölskyldu
hennar. Líkt og gefur að skilja mun myndin vera
afar áhrifarík, og þótt enginn velkist í vafa um
pólitískan tilgang myndarinnar veltir maður fyrir
sér hvernig De Palma takist upp með svo við-
kvæmt efni alræmdur sem hann er fyrir graf-
ískar lýsingar á ofbeldi gagnvart konum. Báðar
myndirnar hljóta að teljast líklegar til verðlauna
þótt rétt sé að hafa í huga hvernig Still Life stóð
uppi sem sigurvegari öllum að óvörum í fyrra.
Sígildi þátturinn er ansi tilkomumikill sömu-
leiðis. Það kemur kannski ekki á óvart að Miche-
langelo Antonioni skuli gert hátt undir höfði, en
það var óvænt útspil að sýndur skyldi fjöldi
vestra eftir Budd Boetticher. Frumsýndar voru
endurunnar filmur af myndum Bernardo Berto-
lucci La Via del petrolio og Strategia del ragno
(e. The Spider’s Stratagem), auk nýjustu útgáf-
unnar af mynd Ridley Scott Blade Runner.
Reykjavík
Stóru bandarísku myndirnar frá Telluride og
Feneyjum munu skila sér hingað til lands auk
þess sem Græna ljósið er líklegt til að næla sér í
einhverjar smærri myndanna (og hefur reyndar
tryggt sér sýningarrétt á hinum eftirtektarverðu
Persopolis og Terror’s Advocate og þegar sýnt
Die Falscher en allar vöktu athygli á Telluride).
Hérlendir kvikmyndaunnendur þurfa þó ekki að
bíða lengi þar til þeir geta sjálfir farið að sækja
úrvalsmyndir víða að úr heiminum en Alþjóðlega
kvikmyndahátíðin í Reykjavík hefst 27. sept-
ember og stendur til 7. október.
Dagskráin er sem fyrr afar vönduð og ber þar
fyrst að nefna rúmensku kvikmyndina 4 mánuðir,
3 vikur, 2 dagar sem vann Gullpálmann í Cannes
í ár, auk nýrrar mynd eftir Fatih Akin sem sló í
gegn þegar mynd hans Gegen die Wand hlaut
gullbjörninn í Berlín fyrir þremur árum en sú
nýja nefnist Auf der anderen Seite. Á meðal ann-
arra áhugaverðra mynda í opna flokknum eru
Fay Grim eftir Hal Hartley, Brand Upon the
Brain! eftir Guy Maddin og Aleksandra eftir
Aleksandr Sokurov – góðir og gegnir „Íslands-
vinir“. Nöfn leikstjóra í keppnisflokknum eru
minna þekkt enda um að ræða fyrstu eða aðra
mynd leikstjóra – þó leynist á meðal þeirra hæfi-
leikaríki myndbandasmiðurinn Anton Corbijn.
Heimildamyndum er gert hátt undir höfði sem
endranær og ólíkt hinum flokkunum eru þar
bandarískar myndir í brennidepli – líkt og reynd-
ar á nýafstöðnum bíódögum græna ljóssins.
Crazy Love hefur verið mikið í umræðunni en
þar segir frá hjónum sem giftust eftir að eig-
inmaðurinn hafði setið inni í fjölda ára fyrir að
skvetta sýru í andlit konunnar. Þá verður einnig
sýnd mynd Barböru Kopple um hljómsveitina
Dixie Chicks en Kopple hefur verið í fram-
varðasveit bandarísku heimildamyndarinnar allt
frá því að hún gerði hina sígildu Harlan County
USA fyrir rúmum þremur áratugum. Þá gleym-
ast sígildu myndirnar heldur ekki en þær tengj-
ast í ár heiðursgestum hátíðarinnar sérstaklega
en sýndar verða myndir eftir Rainer Werner
Fassbinder sem skarta Hönnu Schygulla í aðal-
hlutverk auk mynda Finnans rómaða Aki Kaur-
ismäki.
Það styttist því óðum í að íslenskir kvikmynda-
unnendur geti farið að berja augum úrvals-
myndafjöld rétt eins og kollegar þeirra vestan og
austan hafs gera nú um þessar myndir.
Telluride, Feneyjar og Reykjavík
Margar af lykilhátíðum kvikmyndaársins fara
fram um þessar mundir. Hér er rýnt í dagskrár
þeirra og reynt að meta hvaða myndir séu mest
spennandi með hliðsjón af umræðu á Netinu og
víðar.
Í Feneyjum Richard Gere, Todd Haynes og Heath Ledger á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum, en mik-
ið var látið með mynd þeirra Ím not There á hátíðinni.