Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.2007, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.2007, Blaðsíða 5
terroristarnir vinni kjósið þá demókratana,“ sagði forsetinn a.m.k. þrisvar sinnum á dag fyrir þingkosningarnar 2006. Og hvar eru hinir frjálsu fjölmiðlar? Þeir eru í eigu örfárra auð- hringa. Þeir eru að sjálfsögðu reknir í hagnaðarskyni. Þær fréttir einar eru fluttar sem laða að miklar auglýsingar. Gagnrýni á stjórnvöld, á sama tíma og þjóðin stendur í stríði, er óþjóðholl. Þjóðin þarf að sýna samstöðu. Gagnrýnisraddir eru því þaggaðar niður. Þær heyrast því ekki lengur nema í neðanjarðargöngum netheima. Það er þetta sem Gore á við þegar hann segir að sjálft lýðræðið sé í hættu. Án virkrar stjórnarandstöðu og gagnrýn- innar þjóðfélagsumræðu er lýðræðið ekki svipur hjá sjón. Þegar menntamálaráðherra frá Þýskalandi sneri heim til Berl- ínar eftir nokkurra daga dvöl í „landi óttans“, varð henni á að segja að ástandið minnti hana á andrúmsloftið á árunum eftir valdatöku Hitlers. Hún varð auðvitað að segja af sér því að þýskir valdhafar með sína sögulegu sekt í arf hafa ekki leyfi til að tala svona. En nú staðfestir fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna í bók sem hann kennir við „árás á heilbrigða skynsemi“, að þýski menntamálaráðherrann hafi reyndar haft rétt fyrir sér. Meira að segja aðskilnaður ríkis og kirkju, þessi hornsteinn bandarísku stjórnarskrárinnar, er ekki lengur virtur. Guð er allt í einu orðinn repúblikani og demókratar eru handbendi erlendra hryðjuverka- samtaka. Guð hjálpi Guðs eigin landi. Hvað kemur næst? Sú var tíð að sjálfsímynd bandarískra ríkisborgara var „grunn- múruð og innvígð“ í allt að því goðsögulegri helgisögn sakleysisins. Frelsisstyttan við innsiglinguna til New York lyfti kyndli frelsisins hátt á loft. Hún breiddi út faðminn og tók fagnandi við hinum snauðu, forsmáðu og kúguðu sem leituðu nýrra tækifæra, lausir undan oki stéttaskiptingar, ójafnaðar og ófrelsis í gamla heiminum. Engum datt í hug að taka af þeim fingraförin þá. Sjálfsímynd sakleysisins Bandaríkin voru hinum forsmáðu fyrirheit um nýtt líf. Þar sem ein- staklingurinn í krafti eigin framtaks gat orðið sinnar eigin gæfu smiður. Bandaríska byltingin gegn breskum nýlendudrottnum var systurhreyfing frönsku byltingarinnar um frelsi, jafnrétti og bræðralag. Hinir vitru landsfeður, höfundar sjálfstæðisyfirlýsing- arinnar og bandarísku stjórnarskrárinnar, voru lífsreyndir menn sem skildu mannlegt eðli; sköpunarkraft hins frjálsa anda en jafn- framt breyskleika erfðasyndarinnar um ágirnd og valdafíkn. Þeir voru svarnir óvinir sjálfskipaðra yfirvalda gamla heimsins sem þóttust í hroka sínum hafa umboð sitt frá guði. Þeir mæltu því fyrir um að Bandaríkjamenn skyldu njóta trúfrelsis. En það var bannað að blanda saman stjórnmálum og trúarbrögðum (sem hver ein- staklingur átti við sinn guð). Landsfeðurnir mæltu fyrir um þrískiptingu ríkisvaldsins: Framkvæmdavalds (forsetans), löggjafarvaldsins (Congress) og dómsvalds þar sem Hæstiréttur gegndi því hlutverki að vaka yfir stjórnskipuninni og koma í veg fyrir samþjöppun valds í höndum fárra á kostnað fjöldans. Fulltrúalýðræðið þar sem lýðræðislega kjörnir fulltrúar sóttu umboð sitt til almennings, byggðist að lok- um á trausti á dómgreind upplýsts almennings. Frjálst flæði upp- lýsinga og gagnrýnin rökræða átti að leiða til skynsamlegra ákvarðana, rétt eins og frjálst flæði upplýsinga á markaðnum auðveldaði neytendum að taka ákvarðanir um kaup og sölu sem byggðist á raunsæju mati og réttum upplýsingum. Öfugt við frönsku byltinguna sem reyndist skammlíf og endaði í hernaðar- einræði keisarans frá Korsíku, Napóleons, stóðst bandaríska byltingin hverja raun, þar á meðal borgarastyrjöldina sem stund- um er kennd við þrælastríðið upp úr miðri nítjándu öld. Vissulega er reginmunur á helgisögn og raunveruleika hins bandaríska lýðræðis. Auðvitað hafa komið tímabil þar sem lýð- ræðið var í hættu frammi fyrir ofurvaldi auðkýfinga sem svifust einskis í harðsvíraðri eftirsókn eftir yfirráðum yfir auðlindum og auðsuppsprettum. Bandaríska þingið hefur á stundum verið lítið annað en lítilþægur uppboðsmarkaður sérhagsmuna. Árið 1906 lýsti Theodore Roosevelt, föðurbróðir Franklins Delanos, ástandinu með eftirfarandi orðum (sem Al Gore segir að eigi að breyttu breytanda vel við um ríkjandi ástand): „Bak við hina sýnilegu ríkisstjórn situr önnur ósýnileg í hásæti sínu og skuldar þjóðinni enga hollustu og ber frammi fyrir henni enga ábyrgð. Fyrsta verkefni lýðræðislega kjörinna stjórnvalda á okkar tíð er að steypa þessari ósýnilegu ríkisstjórn af stalli sín- um; að sundra þessu vanhelga bandalagi spilltra viðskiptajöfra og spilltra stjórnmalamanna.“ Helgisögn hins bandaríska lýðræðis stenst auðvitað ekki gagn- rýna skoðun frekar en aðrar helgisagnir. Fram hjá því verður ekki litið að bandaríska lýðveldið var í upphafi grundvallað á of- beldi sem fólst í útrýmingu hinna innfæddu og hagkerfi sem byggðist á þrælahaldi hinna þeldökku. Jafnvel hinir frjálslynd- ustu í hópi höfunda stjórnarskrárinnar, eins og t.d. sjálfur Thom- as Jefferson, byggðu afkomu sína á þrælahaldi. Sjálfur Abraham Lincoln, mesti andans jöfur sem setið hefur á bandarískum for- setastóli viðurkenndi að þrælastríðið snerist fyrst og fremst um að halda ríkjasambandinu saman fremur en að afnema þrælahald af siðferðilegum ástæðum. En þrátt fyrir allan sinn ófull- komleika, sem staðfesti þrátt fyrir allt skilning höfunda stjórn- arskrárinnar á mannlegum breyskleika, stóðst hið unga lýðveldi hverja raun í tímans rás uns það nú trónir yfir gervallri heims- byggðinni. Hersveitir þess, gráar fyrir járnum, hreiðra nú um sig á framandi meginlöndum þar sem barist er um forræði yfir auð- lindum og auðsuppsprettum. Lýðveldið horska hefur breyst í drottnandi heimsveldi. Gamli og nýi heimurinn Evrópumenn hafa frá upphafi vega gert sér sérstakar hug- myndir um samband sitt við hið rísandi heimsveldi í nýja heim- inum. Ameríka var í upphafi byggð flóttafólki frá Evrópu. Þetta flóttafólk flúði gamla heiminn undan harðstjórn, kúgun, ófrelsi, stéttaskiptingu, ójöfnuði og bágum kjörum. Nýi heimurinn var þessu fólki fyrirheit um frelsun frá fjötrum fortíðar og von um ný tækifæri í leit að lífshamingju. Þegar gamla Evrópa brotlenti evrópskri siðmenningu á víg- völlum fyrri heimsstyrjaldar – hver kom þá til hjálpar á örlaga- stundu nema afkomendur flóttafólksins sem Evrópa hafði á sín- um tíma hrakið frá sér? Og þegar öfgastefnur alræðisins voru við það að slökkva á veiku skari lýðræðisins í gamla heiminum, hver kom þá til hjálpar enn á ný og bjargaði Evrópu frá sjálfri sér? Ameríka – „vopnabúr lýðræðisins“ – eins og Roosevelt forseti lýsti landi sínu. Og hver var það sem rétti gömlu Evrópu hjálp- arhönd þar sem hún lá magnþrota í blóði sínu í rústum seinni heimsstyrjaldar? Marshall-aðstoðin stuðlaði að endurreisn Evr- ópu og bægði frá allri hættu á pólitískri upplausn. Og aðeins Ameríka hafði til þess burði að vera forysturíki lýð- ræðisins í hálfrar aldar köldu stríði við heimskommúnismann sem ríkti yfir þriðjungi jarðarbúa undir forystu Sovétríkjanna. Bandaríkin og bandalagsríki þeirra unnu þetta kalda stríð. Sov- étríkin eru horfin á öskuhauga sögunnar. Forysturíki lýðræðisins er um leið mesta herveldi allra tíma og stefnir að eigin sögn að því að viðhalda þeim hernaðaryfirburðum á láði og legi, í lofti og í geimnum. Að vísu hafa Bandaríkjamenn hingað til tekið því víðs fjarri að þetta sjálfskipaða forysturíki lýðræðis í heiminum stefni að heimsyfirráðum. Þeir eru aldir upp við þá barnatrú að Banda- ríkin séu góðkynja veldi. Það eitt vaki fyrir þeim að útbreiða lýð- ræði og frelsi í mannheimum. Margir þeirra trúðu því einlæglega að þegar ameríski tækni- herinn hefði haldið innreið sína í Bagdad myndu börn og konur fagna þeim með blómum sem frelsisenglum. Nú hafa þeir við- haldið hernámi sínu í Írak lengur en sem nemur þátttöku þeirra í seinni heimsstyrjöldinni. Blóðið flýtur um götur Bagdad í grimmilegri borgarastyrjöld sem ekki sér fyrir endann á. Og öfl- ugasta herveldi allra tíma ræður ekki neitt við neitt. Og þrátt fyr- ir alla hernaðaryfirburðina geta þeir ekki komið skæruliðum í þriðjaheimsríki eins og Afganistan á kné; ekki frekar en þeir gátu beygt hrísgrjónabændur Víetnam til hlýðni á sinni tíð. Heims- veldið mikla er ekki ósigrandi. Og einhvern veginn hefur mann- inum sem setið hefur í Hvíta húsinu sl. átta ár (þar sem Al Gore ætti að ráða húsum ef allt hefði verið með felldu) tekist að sann- færa almenningsálitið vítt og breitt um heimsbyggðina um að lýð- veldið sem átti að frelsa heiminn sé orðið hættulegt sjálfu sér og afganginum af heimsbyggðinni. Að drottna yfir heiminum Það sætir auðvitað meira háttar tíðindum að fyrrverandi varafor- seti Bandaríkjanna, sem ber persónulega ábyrgð á því að George W. Bush komst til valda, skuli undir lok valdatíma Bush senda frá sér bók þar sem hann lætur sér ekki nægja að gagnrýna stefnu Bush (þó nú væri), heldur gengur svo langt að segja að stjórn- arhættir undir Bush brjóti beinlínis í bága við stjórnarskrána í veigamiklum atriðum og að sjálfu lýðræðinu stafi hætta af forset- anum og hinni pólitísku valdstreituvél Repúblikanaflokksins. Hin sögulega fyrirmynd, að mati Gore, er fall rómverska lýð- veldisins. Þegar Júlíus Sesar rauf bann Senatsins við því að yf- irmaður rómverska hersins kæmi inn fyrir borgarmúra Rómar – nema því aðeins að hann léti af herstjórninni – innsiglaði hann endalok lýðveldisins. Þar með hvarf „lýðræðið“ af yfirborði jarð- ar næstu sautján aldirnar eða svo. Með viðbrögðum sínum við árásinni á tvíburaturnana í New York ellefta september, 2001 hefur George W. Bush kerfisbundið grafið undan burðarstoðum lýðveldisins (þrískiptingu valdsins og opinni þjóðfélagsumræðu). Með því að lýsa yfir viðvarandi styrj- aldarástandi hefur forsetinn, sem yfirmaður heraflans, tekið sér vald langt umfram það sem stjórnarskráin heimilar. Hann hefur afnumið stjórnarskrárvarin mannréttindi með einu pennastriki. Hann hefur smám saman innleitt aðferðir lögregluríkisins (t.d. fangelsanir án dóms og laga og pyntingar á stríðsföngum, svo fátt eitt sé nefnt) og réttlætir það allt með nauðsyn þjóðaröryggis. Gagnrýnisraddir, hvort heldur er á þingi eða í fjölmiðlum, eru miskunnarlaust þaggaðar niður með ásökunum um skort á þjóð- hollustu eða sakargiftum um að ganga erinda óvina ríkisins. Stjórnarfarið einkennist af pólitísku ofsóknarbrjálæði eins og á dögum Macarthyismans og á seinustu dögum Nixon-stjórn- arinnar. Forsetinn og pólitískir varðhundar hans sjá óvini í hverju horni. Höfuðáhersla er lögð á leynd upplýsinga. Skýrslur fást ekki birtar. Pólitískir varðhundar ritskoða allar upplýsingar sem frá stjórnarstofnunum koma. M.a.s. vísindamenn í þjónustu stjórnvalda þurfa að þola ritskoðun pólitískra spunameistara. Andrúmsloftið í stjórnkerfinu einkennist af ótta, tortryggni og ofsóknum. Og þjóðfélagið dregur dám af því. Al Gore lýsir Am- eríku undir stjórn Bush sem „landi óttans“. En hvernig stendur á því að stjórnarandstaðan og fjölmiðlarn- ir brugðust, a.m.k. allt þar til repúblikanar misstu þingmeirihlut- ann í þingkosningunum 2006 og mönnum fór smám saman að verða ljóst að stefna frjálshyggjuhaukanna í Hvíta húsinu og í Pentagon hafði leitt Bandaríkin út í hreinar ógöngur? Gore svar- ar því með því að benda á að sjálft ónæmiskerfi lýðræðisins – op- inská og gagnrýnin þjóðfélagsumræða með almennri þátttöku upplýsts almennings – hafi á undanförnum árum veikst svo mjög að virku lýðræði sé vart hugað líf að óbreyttu. Hann segir fullum fetum að þorri þingmanna sé svo upptekinn við að afla fjár hjá út- gerðaraðilum sínum að þeir hafi ekki tíma aflögu til mikils annars eða að þeir séu ófrjálsir að skoðunum sínum. Andlegt skyndibitafæði Hann bendir á að sjónvarpið sé eini miðillinn sem nái augum og eyrum almennings í Bush-landi (Bush-land er meginland Ameríku og hið djúpa Suður, að fráskildum stórborgum austur- og vest- urstrandarinnar, þar sem vitrænir prentmiðlar þrífast enn, þótt þeir nái til fárra). Þar í landi ver meðaljóninn fjórum og hálfum klukkutíma á degi hverjum fyrir framan sjónvarpsskjáinn. Það eru tveir þriðju hlutar af frítíma hans utan vinnu. Þessar sjónvarps- stöðvar eru í eigu og undir stjórn örfárra auðhringa. Sjónvarps- efnið, þar með taldar fréttir, er við það miðað að afla auglýs- ingatekna. Þetta andlega fóður er svipað að gæðum og skyndabitaruslið sem selt er á McDonalds. Umfjöllun um stjórn- mál birtist í þrjátíu sekúndna auglýsingum þar sem gagnrýn- endum Bush er lýst sem guðleysingjum, óþjóðhollum leiksoppum hryðjuverkamanna eða annarra óvina ríkisins. Upplýst umræða? Gagnrýnin skoðun? Virkt aðhald að stjórnvöldum? – Gleymdu því. Þótt kosningavél repúblikana njóti rausnarlegs stuðnings „big oil and big tobacco“, (les: vígbúnaðar-, olíu- og orkuiðnaðarins, ásamt lyfja- og tryggingarisum), mundi það eitt út af fyrir sig ekki duga til að tryggja þeim meirihluta. Það þarf meira til. Það þarf blessun Guðs. Það er hið þéttriðna net ótal þaulskipulagðra trúfélaga sem komu trúbróður sínum í Hvíta húsið. Guð er ekki bara amerískur – hann er repúblikani. Kristna bandalagið að baki Bush er andlega skylt samtökum öfgatrúfélaga í Ísrael (Lik- ud), og meðal múslíma og hindúa. Þegar saman fer trúarofstæki og þjóðremba – er fjandinn laus (afsakið orðbragðið). Bókstafs- trúarmenn allra trúarbragða eiga það sameiginlegt að þeir lifa í trúarvissu þar sem efi um eigið ágæti og gagnrýnin hugsun um rétt og rangt á ekkert erindi. Í slíku samfélagi fær ekkert lýðræði þrifist. Þar þekkist heldur ekkert umburðarlyndi gagnvart mannlegum breyskleika. Og engin virðing fyrir skoðunum ann- arra. Hinir kristnu boða krossferð (crusade) gegn hinu illa – synir Múhameðs boða heilagt stríð – Jihad – gegn hinum trúlausu. Sér um líkir sækjast þeir. Þetta vandamál vill vefjast nokkuð fyrir Al Gore. Hann kveðst sjálfur vera trúaður og á því bágt með að sam- þykkja inngöngu Guðs í Repúblikanaflokkinn. Hann reynir því að skýra hin herfilegu mistök frjálshyggjuhaukanna í Írakstríðinu eingöngu með vísan til hugmyndafræðilegrar blindu nýfrjáls- hyggjunnar. Hann vill helst ekki trúa því að trúarofstækið byrgi þeim sýn. Þetta er sá kafli bókar Gore, sem er síst sannfærandi. Og svo lengi sem demókratar taka ekki upp harða gagnrýni á kerfisbundna misnotkun repúblikana á trúhneigð og ættjarð- arást mannskepnunnar er hætt við að þeir standi höllum fæti í baráttunni um „hug og hjörtu“ sjónvarpsglápenda í Bush-landi. „Áfram Kristmenn, krossmenn …“ Hryðjuverkastríð Bush og félaga er komið út í hreinar ógöngur, hvort heldur er í Afganistan eða Írak. Blindur stuðningur Bush við ofstækisöflin í Ísrael, sem eru að ganga af palestínsku þjóð- inni dauðri í ásýnd alþjóðasamfélagsins, er stöðugur fleinn í holdi eðlilegra samskipta vestrænna ríkja við arabaheiminn. Stefna Bush í utanríkismálum flokkast nú orðið víðast hvar undir stór- slys. Svipaða sögu er að segja af heimavígstöðvunum. Þeir, sem bandarískir kjósendur fela að taka við pólitísku þrotabúi Bush- stjórnarinnar eru ekki öfundsverðir af sínu hlutskipti. Á tveimur kjörtímabilum hefur Bush vísvitandi rústað fjárhag ríkisins og búið svo um hnútana að Hillary og Obama verða að byrja á því að hækka skatta til að endurreisa fjárhag ríkisins. Kínverskir kommúnistar, sem hafa fjármagnað hallarekstur Bandaríkjanna með kaupum á ríkisskuldabréfum, munu sennilega ráða meiru um stöðu dollarans en seðlabankastjórinn bandaríski. Átta ára valdaferill Bush hefur þegar reynst bandarísku þjóð- inni, og reyndar jarðarbúum öllum, dýrt spaug. Margir virðast binda vonir við það að valdaferill Bush sé senn á enda og að demó- krötum muni takast að bæta fyrir áorðin mistök og að endurreisa álit Bandaríkjanna með öðrum þjóðum. En það er einmitt í þessum punkti sem ádeilurit Al Gore veldur lesandanum mestum von- brigðum. Það er satt að segja fátt um fína drætti þegar kemur að tillögugerð um lausnir á kreppu hins bandaríska lýðræðis. Bush er þessi misserin fyrst og fremst að gjalda afleiðinga eigin heimsku og mistaka, fremur en að Demókrataflokkurinn, eða foringjar hans (Hillary, Obama og John Edwards) hafi byggt upp trúverðugan valkost um frjálslynda umbótastefnu eða sigursælt bandalag and- stæðinga hinna kristilegu afturhaldsafla í Bandaríkjunum. Mun Hillary þora að ganga í berhögg við fjármálavald gyðinga í heima- ríki hennar í New York til þess að halda aftur af öfgaöflunum í Ísr- ael í því skyni að Palestínumenn nái aftur lands- og mannrétt- indum sínum? Gleymdu því. Mun konan sem klúðraði kosningaloforði Bills Clinton um almannatryggingar handa al- menningi í Bandaríkjunum bæta fyrir þau mistök nái hún sjálf hús- bóndavaldi í Hvíta húsinu? Trúum því varlega. Eftir stendur svo að lokum ein áleitin spurning fyrir smáþjóð sem enn í dag er að finna á listanum yfir bandarísk leppríki í krossferðinni í Írak; og er enn í varnarbandalagi við heimsveldið: Hversu lengi getur vopnlaus smáþjóð, sem á líf sitt og þjóð- arhagsmuni undir því komna að alþjóðasamfélagið virði lög og rétt í samskiptum þjóða, haldið sig í slíkum félagsskap? íska heimsveldinu » Guð er ekki bara amerískur – hann er repúblikani. Kristna bandalagið að baki Bush er andlega skylt samtökum öf- gatrúfélaga í Ísrael (Likud) og meðal múslíma og hindúa. Þegar saman fer trú- arofstæki og þjóðremba – þá er fjandinn laus (afsakið orðbragðið). Höfundur var sendiherra í Bandaríkjunum 1998-2002. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.