Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.2007, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Sigrúnu Sigurðardóttur
sigruns@lhi.is
H
vítir og svartir fletir, rauðir
deplar og þegar betur er að
gáð, einn gulur líka. Frosið
vatn á svörtu bergi. Tíminn
hefur stöðvast stundarkorn.
Úr þessu samspili efnis og
tíma verður til ljósmynd.
Svart bergið þrengir sér í
gegnum hvítan snjó. Hvítt hrím sest á svart berg.
Óreglubundið munstur en hvergi skugga að sjá. Gul
grafan er áþreifanlegt ummerki um manninn sem
stendur frammi fyrir ógnvekjandi hlutföllum náttúr-
unnar. Hvernig ætlar hann að fara að því að breyta
þeirri ógnarmiklu náttúru sem gnæfir yfir hann eftir
sínu eigin höfði? Umhverfa henni?
Íslenskt samtímalandslag
Pétur Thomsen hefur vakið verðskuldaða athygli,
ekki síst erlendis, fyrir ljósmyndir sem fjalla um þá
tilfinningu sem kemur yfir þann sem fylgist með því
hvernig manneskjan leitast við að umbreyta nátt-
úrunni, sem er svo miklu stærri en hann sjálfur, eftir
eigin höfði. Sambland af ægifegurð og ógn eða því
sem þýski heimspekingurinn Kant kallaði hið háleita
– das Erhabene á þýsku, the sublime á ensku – er
það sem er undirliggjandi í verkum Péturs. „Ég er
að vinna mjög markvisst með þessa ógnvekjandi feg-
urð sem birtist í baráttu mannsins við náttúruna.“
Flestar mynda Péturs sem fjalla um samspil manns
og náttúru eru teknar á Kárahnjúkum. „Mér finnst
mjög áhugavert að skoða þá ægifegurð sem þarna
birtist og það hvernig þessi fegurð kemur dálítið aft-
an að manni þegar um er að ræða atburði sem eru
kannski siðferðislega rangir,“ segir Pétur þegar ég
hitti hann á vinnustofu hans í Reykjavík og við flett-
um í gegnum ljósmyndir hans af Kárahnjúkavirkjun.
Haustið 2003 fór Pétur fyrst að Kárahnjúkum í því
skyni að taka myndir af virkjanaframkvæmdunum.
„Ég bjóst við örtröð, hélt að ég þyrfti að berjast fyrir
plássi fyrir þrífótinn minn, en það virðast fáir ljós-
myndarar hafa haft áhuga á að mynda þennan atburð
af nokkru viti. Spessi myndaði reyndar verkamenn-
ina sjálfa.“ Pétur segir að vissulega hefði verið
forvitnilegt að fjalla um líf fólksins á Kárahnjúkum en
það hefði þá verið allt annað verkefni. „Ég ákvað að
einblína á framkvæmdirnar sjálfar, á landslagið, til
þess að missa ekki tökin á verkefninu. Það er mjög
mikilvægt að missa ekki tökin á hugmyndinni sem
liggur að baki og vinna út frá henni. Þetta gerist ekki
bara þannig að ég gangi um og ýti á taka. Þetta er
töluvert meira mál. Pétur samdi við Landsvirkjun um
aðgang að svæðinu og hefur á síðustu fjórum árum
farið á Kárahnjúka að jafnaði þrisvar til fjórum sinn-
um á ári til að mynda. Næsta ferð er fyrirhuguð í
október næstkomandi. „Svæðið hefur breyst mjög
mikið á þessum tíma, segir Pétur. „Landslagið sem
ég er að mynda er í stöðugri breytingu. Þetta er í
raun tímabundið landslag.“ Afraksturinn af vinnu
Péturs á Kárahnjúkum er ljósmyndaserían Aðflutt
landslag. Þrátt fyrir að verkinu sé enn ólokið hefur
Pétur sýnt ljósmyndir úr seríunni bæði hér heima og
erlendis, m.a. í Þjóðminjasafni Íslands og á Listasafni
Akureyrar. Þá hefur hann verið með einkasýningar í
Frakklandi, Rússlandi, Sýrlandi og Sviss á undan-
förnum fjórum árum. Sýningarnar byggjast í flestum
tilfellum á ljósmyndunum frá Kárahnjúkum. „Ég hef
fengið mjög sterk viðbrögð við þessum myndum,“
segir Pétur og bætir við: „En umræðan hér heima
hefur dálítið viljað takmarkast við viðfangsefnið,
þ.e.a.s. Kárahnjúka. Það eina sem fólk vill fá að vita
er hvort ég er með eða á móti virkjanaframkvæmdun-
um. Þannig getur pólitíkin spillt fyrir, komið í veg fyr-
ir að fólk horfi á myndirnar sjálfar. Þar sem ég hef
sýnt erlendis hefur umfjöllunin verið miklu almenn-
ari, snúist um þá ægifegurð sem ég er að fjalla um og
samband manns og náttúru.“ Pétur bætir því við að
hann hafi hug á að draga úr tengingunni við Kára-
hnjúka með því að mynda virkjanaframkvæmdir og
umhverfingu mannsins á náttúrunni víðar um land.
„Þetta fjallar um miklu meira en bara Kárahnjúka.
Þetta fjallar um það landslag sem við erum að búa
okkur til í dag; hið íslenska samtímalandslag.“
Engin ljósmynd er hlutlaus
Hvort sem einblínt er á Kárahnjúka eða umbreyt-
ingu mannsins á náttúrunni í víðu samhengi er erfitt
að halda öðru fram en að verk Péturs séu pólitísk. En
hversu mikilvægt er fyrir hann að taka þátt í sam-
félagsumræðunni með list sinni? „Ég er svakalega
pólitískur,“ svarar hann og bætir við: „Mér finnst að
myndir eigi að hafa einhvern tilgang annan en að
vera bara til skrauts. Tilgangurinn með ljósmyndun-
inni er að takast á við eitthvað, fjalla um eitthvað sem
skiptir máli, og í besta falli fá fólk til að spyrja sig
gagnrýninna spurninga. Markmiðið með Kára-
hnjúkaseríunni var til dæmis ekki að hneyksla, eins
og sumir hafa viljað halda fram, heldur að vekja
spurningar sem áður höfðu ekki komið upp í um-
ræðunni. Landslagið sem ég er að mynda er fallegt
en þessi fegurð sem birtist í samspili manns og nátt-
úru stríðir gegn siðferðisvitund manns. Það er mikil
áskorun að horfast í augu við hið fagra sem birtist í
eyðileggingunni, ekki síst þegar miðillinn sem unnið
með er ljósmynd, fyrirbæri sem staðfestir að veru-
leikinn hafi raunverulega litið nákvæmlega svona út
út frá því sjónarhorni sem hann var skoðaður og á því
augnabliki þegar hann var fangaður.“ Pétur við-
urkennir að tengingin við raunveruleikann sé mik-
ilvægur þáttur í ljósmyndun hans. Það er eitt af því
sem gerir ljósmyndina áhugaverða og helst í hendur
við trú fólks á sannleiksgildi ljósmyndarinnar. Pétur
segist þó ekki trúa á hlutleysi ljósmyndarinnar.
„Engin ljósmynd er hlutlaus – og það er alls ekki
slæmt. Ljósmynd er heimild um það hvernig ljós-
myndarinn beitir myndavélinni til að ná fram
ákveðnum áhrifum, hvernig hann tjáir sína persónu-
bundnu sýn á raunveruleikann. Ég leik mér mjög
meðvitað með sjónarhornið í list minni. Verkin mín
eru öll mjög huglæg og eru fyrst og fremst heimild
um það hvernig ég sé hlutina og tjái mig um það sem
ég sé. Landslagsmyndirnar mínar endurspegla þetta.
Ég hef alltaf skilgreint landslag sem sjónarhorn sem
er tengt menningarlegu uppeldi og táknkerfi menn-
ingarinnar. Í ljósmyndunum er ég að búa til landslag
og færa það áhorfendum.“
Pétur segist vinna mikið í ljósmyndu
tökustað og í allri eftirvinnslu. „Ég held
mikill kostur fyrir ljósmyndara að hafa
kunnáttu. Myndlistarmenn sem vinna m
myndina sem miðil hafa stundum viljað
tæknikunnáttunni og telja hana jafnvel
heftandi fyrir sköpunina. Að mínu mati
leysa. Góð tæknikunnátta er ekki hefta
gerir það fyrst og fremst að verkum að
betri stjórn á því sem þú vilt ná fram.“
reGeneration
Pétur lauk BTS-gráðu í ljósmyndun frá
Supérieure des Métiers Artistiques í M
ið 2001 og MFA-gráðu frá École Nation
ieure de la Photographie í Arles í Frak
verkefni Péturs, sem var upphafið að K
seríunni, vakti áhuga stjórnenda Elysé
ins í Lausanne í Sviss en safnið hefur á
um árum staðið fyrir verkefni sem kall
ation. Yfirlýst markmið með reGenerat
velja saman ljósmyndaverk sem væru l
að lifa enn í vitund fólks eftir tuttugu ár
boðið að vera einn af 50 ljósmyndurum
þátt í verkefninu. Sýning með verkum h
ferðast víða um heim, m.a. til Kína, Jap
ríkjanna og Spánar og vegleg bók með
hópsins kom út hjá Thames & Hudson-
ið 2005. Í gegnum reGeneration verkef
ur myndað góð sambönd við bæði galle
aðra listamenn. „Það voru mörg gallerí
samband við mig í tengslum við reGene
á meðal var eigandi gallerís sem nefnis
obscura og er í Madríd á Spáni. Ég náð
bandi við hann og þrátt fyrir að það haf
hvarflað að mér að fara í gallerí á Spán
að slá til. Ég hef selt dálítið í gegnum þ
verð með einkasýningu þar í nóvember
andi.“ Pétur hefur einnig átt í viðræðum
eiganda í Tókýó og á von á því að ganga
ingum við hann á næstunni. Hér heima
sýnir Pétur í Gallery Turpentine og þar
gær, föstudaginn 28. september, sýning
hans undir yfirskriftinni Umhverfing.
Með Umhverfingu tekst Pétur á við
mannsins á landslaginu á höfuðborgars
Tímabundið landsla
Pétur Thomsen hefur vakið athygli fyrir ljósmyndir
sem fjalla um þá tilfinningu sem kemur yfir þann
sem fylgist með því hvernig manneskjan leitast við
að umbreyta náttúrunni, sem er svo miklu stærri en
hann sjálfur, eftir eigin höfði. Flestar þessara
mynda eru teknar á Kárahnjúkasvæðinu en í gær
opnaði Pétur sýningu í Gallerí Turpentine, Um-
hverfingu, sem fjallar um umbreytingu mannsins á
landslaginu á höfuðborgarsvæðinu.
Pétur Thomsen „Ég er svakalega pólitískur. Mér finnst að myndir eigi að hafa einhvern tilgang annan en að vera bara til skrauts. Tilgangurinn með ljósmynduninni er að takast á við eitthvað, fjalla um