Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2007 13
í Mývatnssveit. Maddama Þóra var
27 ára með tveggja ára dóttur á arm-
inum þegar Jónas reið hjá garði.
Miðað við viðbrögð hennar við
Ferðalokum síðar má ætla að henni
hafi ekki verið rótt innanbrjósts.
Kannski var það léttir fyrir hana
þegar hann var horfinn austur um.
Hitt hefur valdið henni áhyggjum
þegar fréttist af hrakningum hans á
Nýjabæjarfjalli um haustið. Þar lá
við að hann yrði úti og hann lá lengi
veikur, fyrst hjá Rannveigu systur
sinni á Steinsstöðum en um veturinn
í Reykjavík.
Vosbúð og veikindi
Páll Valsson dregur upp skýra mynd
af því hve alvarlegar afleiðingar vos-
búðin og ofkælingin sem Jónas varð
fyrir haustið 1839 höfðu fyrir heilsu-
far hans. Lungnabólgan sem hann
veiktist af í kjölfarið leiddi til var-
anlegs heilsubrests sem hrjáði hann
það sem hann átti ólifað. Þar á ofan
bættist drykkjuskapur sem ágerðist
með árunum, uns honum skrikaði
endanlega fótur.
Í bréfum til kunningja kemur
fram að á Nýjabæjarfjalli og í rúm-
legunni óttaðist Jónas um líf sitt og
síðan bregður oft fyrir dauðabeyg í
skrifum hans þótt tjáður sé með
karlmannlegum hálfkæringi. Miðað
við aðstæður kom hann ótrúlega
miklu í verk. En samfara því að hann
safnar ógrynni efnis fyrir sjálfan sig
og framtíðina að vinna úr, hefst
hægfara ferli uppgjörs og sjálfs-
skoðunar sem nær hámarki í ljóða-
gerð hans síðasta veturinn sem hann
lifði í Kaupmannahöfn.
Það er háttur manna sem vilja bú-
ast vel við dauða sínum að ganga frá
sem flestum málum og kveðja góða
vini. Í hópi „vina“ Jónasar voru
þrjár konur sem höfðu skipt hann
máli um stundarsakir hver um sig.
Bréf sem sagt er að hann hafi skrif-
að tveim þeirra eru glötuð, enda
venja á þeim tíma að farga bréfum
milli elskenda sem ekki náðu saman.
En ljóð flytja skilaboð sem þeir skilja
sem fá skilið. Jónas kveður þessar
konur eina af annarri í ljóðum sem
hann gengur frá til birtingar í Fjölni
1843, 1844 og 1845.
Fjölnir 1843 og 1844
1843 birtist kvæðið Söknuður um og til
Kristjönu Knudsen að áliti Páls Vals-
sonar og fleiri sem telja má næsta víst.
Kristjana er konan sem hafnaði Jónasi
sumarið 1832 og hann sá hana ekki
aftur fyrr en henni brá fyrir á götu í
Kaupmannahöfn einhvern tíma vetrar
1842-43 þegar hann var aftur fluttur
þangað. Þá hét hún frú Thomsen, gift
kaupmanni sem hafði eignast barn ut-
an hjónabandsins með systur hennar,
orðin fimm barna móðir en hafði misst
einn son. „Jónas bliknaði í framan,
hann varð allur annar maður um
stund, og honum fataðist samtalið …“.
að sögn samferðamanns. Lýsingin
minnir á viðbrögð Þóru við Ferðalok-
um.
Í æskuljóðahefti Jónasar var kvæð-
ið Man ég þig mey sem hann slípaði
þennan vetur í Söknuð þar sem loka-
hendingin er: – eina þreyi eg þig.
1844 birtist Ég bið að heilsa. Heim-
ildir segja að Jónas hafi sent Hólm-
fríði Jónsdóttur í Reykjahlíð eig-
inhandarrit að kvæðinu sem hann orti
um vorið í Sorö. Á skáldinu og stúlk-
unni hans var 15 ára aldursmunur og
úthafið á milli. En hún fékk að vita að
hún væri „engill með húfu og rauðan
skúf, í peysu“.
Fjölnir 1845
1845 birtust Ferðalok.
Þá var Jónas dáinn og grafinn í
Hjástoðarkirkjugarði. Íslandslýs-
ingin í molum. Seinasti og þungbær-
asti veturinn í lífi hans að baki. Þó
hafði hann ort eins og berserkur
myrkustu mánuðina. Þegar vinir hans
tíndu saman jarðneskar eigur hans í
herberginu í St. Pederstræde fundu
þeir margt óbirtra ljóða. Þar var
Einbúinn, Líkur sínum (Allt hef ég af
öfum mínum), Alsnjóa, Stökur ( Eng-
inn grætur Íslending), Sólhvörf, Jóla-
vísa, Svo rís um aldir árið hvert um
sig, Að vaði liggur leiðin, Vorvísa a la
Jón Þorláksson, Hulduljóð og fleira.
Nýprentuð í Fjölni voru Óhræsið,
Þorkell þunni, Kvæði eftir Horatius,
Formannsvísur og syrpa með kvæð-
um sem tengdust ferðum hans á Ís-
landi í þessari röð: Fjallið Skjald-
breiður, Víti, Fremri-námar,
Aldarháttur, Ferðalok.
Ferðalok síðast.
Hann vissi að á Íslandi var kona
sem myndi þekkja sjálfa sig í frásögn
kvæðisins.
Hvað vakti fyrir honum?
Í vetrarmyrkrinu og kuldanum í
Kaupmannahöfn þegar hann var ým-
ist að búa sig undir dauðann eða telja
í sig kjark til að lifa rifjaðist upp fyrir
honum hreint og fagurt ævintýri sem
hann átti með ungri stúlku á fjöllum
meðan sumarnóttin var björt á Ís-
landi. Það var ekki seinna vænna að
þakka henni samfylgdina eftir 17 ár.
Ó, að hann væri orðinn nýr og ynni
henni að nýju! En hann var með þrá-
látan verk í brjóstinu og átti ekki von
á því að hitta hana framar. Hann
hengdi kveðjuna aftan í aðrar ferða-
vísur.
Hélt ég þér á hesti
í hörðum straumi
og fann til fullnustu
blómknapp þann
gæti eg borið og varið
öll yfir æviskeið.
Svo fór sem fór. Það var komið að
ferðalokum.Hún myndi vonandi
skilja.
Og.
„Sáu menn nú, að hún varð harm-
þrungin mjög.“
Heimildir:
Björg Einarsdóttir. Úr ævi og starfi íslenskra kvenna II Bókrún. Rvík 1986
Fjölnir Árrit. Gefið út af nokkrum Íslendingum. Prentað hjá Kvisti. Khöfn 1843-1845
Hannes Pétursson. Kvæðafylgsni. Um skáldskap eftir Jónas Hallgrímsson. Iðunn. Rvík
1979
Hannes Pétursson. Rauðamyrkur, söguþáttur. Iðunn. Rvík 1973
Jónas Hallgrímsson. Kvæði og laust mál. Iðunn. Rvík 1993
Knudsensætt. Niðjatal L.M. Knudsens og konu hans Margrethe Andreu. Ritstj. Þorsteinn
Jónsson. Sögusteinn. Rvík 1986
Matthías Þórðarson. Ferðalok, grein. Iðunn. Rvík 1924-1925
Páll Bjarnason. Ástarkveðskapur Bjarna Thorarensens og Jónasar Hallgrímssonar.
Studia Islandica 28. Heimspekideild HÍ og Bókaútgáfa menningarsjóðs. Rvík 1969
Páll Valsson. Jónas Hallgrímsson. Ævisaga. Mál og menning. Rvík 1999
Þingeyjarsýslur. Sýslu- og sóknarlýsingar HIB 1839-1844. Gott mál. Rvík 1994
ngin mjög …
Ljósmynd: Steinunn Jóhannesdóttir
Þóra Legsteinn á leiði Þóru Gunnarsdóttur framundan kirkjudyrum á Hólum í Hjaltadal. Síðasta erindi Ferðaloka eftir Jónas Hallgrímsson letrað á steininn.
Höfundur er rithöfundur.
Knúinn sannleiksþrá tekst
skrásetjari á við ofvaxið
verkefni: að fanga langanir
mannanna og aukaverkanir
sem af þeim hljótast.
Hér er hárbeitt samfélagsrýni
sett fram í þjóðsagna- og
ævintýrastíl og mannlífið
skoðað ýmist frá sjónarhóli
fugls eða í nærmynd.
Kraumandi fyndin alvara.
Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur
sími 561 0055 • www.ormstunga.is
Halldóra Krist ín Thoroddsen
AUKAVERKANIR