Morgunblaðið - 07.01.2007, Side 11
Í dag, sunnudag:
Sýningin verður opin frá kl. 13.00-17.00
Kl. 15.00 – leiksýningin „Brot úr sögu banka”
Farandleikhús Landsbankans sýnir Brot úr sögu
banka, leikdagskrá í léttum dúr þar sem rakin er
saga Landsbankans, árin 1886-2006, í tónum og
tali. Handritshöfundur er Felix Bergsson, leikstjóri er
Valur Freyr Einarsson og leikendur eru Björgvin
Franz Gíslason, Jakob Þór Einarsson og Kristjana
Skúladóttir. Valdimar Kristjónsson stjórnar lifandi
tónlist. Sýningin fór á milli útibúa Landsbankans í
haust við miklar vinsældir.
Á Sögusýningu Landsbankans er margt markvert
að sjá og skoða, ekki aðeins úr bankasögunni
heldur eru dregnar upp myndir úr þjóðlífi fyrri
tíðar enda saga bankans og þjóðarinnar sam-
tvinnuð á ýmsan hátt.
Gestum er boðið upp á sögulegan fróðleik í máli
og myndum. Leikmyndir og munir frá mis-
munandi tímum vitna um ólíkan tíðaranda auk
þess sem hljóðsetning, myndbönd, líkön o.fl. setja
svip sinn á sýninguna.
Á sýningunni má m.a. sjá skrifstofuherbergi frá
árinu 1886, nýtt módel sem sýnir miðbæinn eftir
brunann mikla 1915, tækniþróunina allt frá
pennastöng til samskiptatækja nútímans og líkan
af framtíðarskipulagi miðborgarinnar.
Sögusýningin er til húsa í Aðalstræti 6 og spannar 120 ára sögu bankans
og þjóðarinnar. Skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna.
Sögusýning Landsbankans
Aðalstræti 6 (húsnæði TM). Sími: 410 4300
Opið virka daga kl. 11.00-17.00 og helgar kl. 13.00-17.00
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
B
I
35
53
4
01
/0
7
Landsbankinn
120 ára
SÖGUSÝNING
Opið í dag