Morgunblaðið - 07.01.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 19
E ins og gefur að skilja eru út-farir sorglegar athafnir. Þókemur fyrir að spaugileg atvik
eiga sér stað sem brosa má að síðar
meir. Hér á eftir fara sögur af
nokkrum slíkum.
Jarða átti mann nokkurn í síld-
arplássi austur á fjörðum en org-
anistinn var að heiman. Eftir mikla
leit fannst ungur maður á síld-
arplaninu sem eitthvað hafði fengist
við tónlist og tók hann verkefnið að
sér. Ungi maðurinn var ekki vanur
að spila á orgel en klóraði sig fram
úr sálmum í sálmabókinni. Það var
verra með forspil og eftirspil. Eng-
ar nótur fundust að slíkum tón-
verkum. Ekki kom til álita að sleppa
þessu og því þurfti ungi maðurinn
að grípa til spuna. Forspilið sem
hann hristi fram úr erminni var
„Komdu og skoðaðu í kistuna mína“
og eftirspilið var „Við göngum svo
léttir í lundu“.
Prestur í höfuðborginni tafðist í
vondu veðri og kom á elleftu stundu
í kistulagningu. Þegar hann var
kominn í hempuna áttaði hann sig á
því að hann var í bomsum. Hann
gekk því á sokkaleistunum upp að
altarinu, þar sem hann fór með upp-
hafsbæn. Þegar hann sneri sér við
sá hann að allir kirkjugestir voru að
klæða sig úr skónum.
Við andlát eldri manns úti á landi
kom í ljós að hann hafði skilið eftir
sig nákvæm fyrirmæli um það
hvernig staðið skyldi að útförinni.
Ein af óskum hans var á þann veg
að finna átti forláta brennivíns-
flösku á heimili hans, sem hann
hafði geymt fyrir þetta tilefni ára-
tugum saman. Fá síðan prestinum
flöskuna fyrir útförina og skyldi
hann drekka hana ásamt líkmönn-
unum áður en hún hæfist. Ekki
kunnu menn við annað en verða við
óskinni og hermir sagan að athöfnin
hafi verið í „mýkri“ kantinum.
Þar sem ungur prestur stóð við
opna gröf í kirkjugarði nokkrum úti
á landi um hávetur og var að búa sig
undir að molda tók hann eftir því að
eldri kona rann til í hálku og stefndi
óðfluga á gröfina. Hann ákvað því
að stökkva yfir gröfina til að forða
konunni frá falli. Hempan hamlaði
hins vegar stökkgetu klerks og
hann dreif ekki alla leið yfir á hina
brúnina. Á elleftu stundu tókst hon-
um þó að stöðva konuna en féll í
sömu andrá ofan í gröfina sjálfur.
Hraustur bóndi úr sveitinni stóð þar
hjá og kippti presti snarlega upp á
yfirborðið. Svo hélt athöfnin áfram
eins og ekkert hefði í skorist.
Prestur nokkur var svo ánægður
með kórinn sinn að hann mátti til
með að hæla honum í einni útför-
inni. „Englarnir á himnum syngja
ekki betur,“ byrjaði prestur en fékk
svo léttan móral og bætti við: „Það
væri bara öðruvísi!“
Eldri prestur úti á landi var ein-
hverju sinni spurður að því hvort
það væri rétt að hann hefði sérstakt
yndi af því að jarðsyngja framsókn-
armenn. „Það er ekki rétt,“ svaraði
prestur, „en hitt er annað mál að
mér leiðist ekki þegar þeir dunka
niður í jörðina.“
Verið var að jarðsetja í kirkju-
garði nokkrum í sveit og degi tekið
að halla þegar menn létu kistuna
síga niður í gröfina í myrkrinu. Allt
gekk að óskum þar til kistan var
komin í miðja gröf – þá kom hún öll-
um að óvörum upp aftur. Þegar bet-
ur var að gáð kom í ljós að kvíga
hafði sofið svefni hinna réttlátu í
gröfinni og risið upp við dogg þegar
kistan skall á bakinu á henni.
KOMDU OG
SKOÐAÐU Í
KISTUNA MÍNA!
L öng hefð er fyrir erfidrykkjum íheimahúsum eða safn-aðarheimilum. Á undanförnum
fimmtán árum eða svo hefur erfi-
drykkja á hótelum eða sölum hins
vegar færst í vöxt. Mörg hótel bjóða
nú upp á staðlað hlaðborð þar sem
verð er á bilinu 1.200 til 1.400 krónur
á manninn.
Jón F. Ögmundsson, veit-
ingastjóri á Hótel Loftleiðum, segir
erfidrykkjuhlaðborðið þar njóta vin-
sælda. „Ég held að margir séu fegn-
ir að þurfa ekki að sjá um erfi-
drykkjuna sjálfir og því leita þeir til
okkar. Hér getur fólk átt fallega og
hlýja stund með kirkjugestum án
þess að vera að stressa sig á veiting-
unum en eins og við þekkjum ná
sjaldan allir að koma samúðaróskum
sínum á framfæri við aðstandendur
á kirkjutröppunum. Svo getur mað-
ur heldur aldrei stólað á veðrið hér
um slóðir.“
Jón segir að jafnan sé til siðs að
taka frá borð fyrir nánustu aðstand-
endur, þannig að þeir gangi að sæt-
um sínum vísum þegar þeir koma.
Jón segir erfidrykkju á hóteli hafa
það umfram erfidrykkju í safn-
aðarheimili að hótelin bíði með veit-
ingarnar meðan nánustu aðstand-
endur fari í kirkjugarðinn. „Hver
kannast ekki við að hafa farið í erfi-
drykkju í safnaðarheimili kirkj-
unnar þaðan sem útförin er gerð og
vera löngu búinn að drekka þegar
aðstandendur koma úr garðinum.“
Er verð ekki afstætt?
Jón kveðst jafnan gera ráð fyrir
að erfidrykkja taki þrjár til fjórar
klukkustundir en algengt er að nán-
ustu aðstandendur hins látna vilji
eiga stund út af fyrir sig eftir að aðr-
ir eru farnir.
Jón furðar sig á því að ýmsir
prestar hafi horn í síðu erfidrykkju á
hótelum og hafi jafnvel gagnrýnt
þær opinberlega. „Sumum þykir
þetta of dýrt. En er ekki verð af-
stætt í þessu samhengi? Að mínu viti
eiga aðstandendur að ráða þessu
sjálfir án íhlutunar presta. Þetta
hentar sumum og öðrum ekki.“
Maturinn á hlaðborðinu er staðl-
aður og Jón segir hótelið ekki hafa
tök á því að bregðast við séróskum
þar um. Hins vegar hvetji hann fólk
til að koma með persónulega muni í
erfidrykkjuna, ljósmynd af hinum
látna eða annað sem minni á hann. Í
seinni tíð hefur fólk í auknum mæli
komið með myndbandsupptökur af
hinum látna sem spilaðar eru í bak-
grunni meðan fólk drekkur erfið.
Þetta á einkum við um yngra fólk.
Þá segir Jón talsvert um það að tón-
list sé leikin í erfidrykkjum. „Margir
líta á erfidrykkjuna sem framhald á
hinni kirkjulegu athöfn en á mýkri
og óformlegri nótum.“
ERFIDRYKKJAN FRAMHALD Á ATHÖFN
!""##
$ !""## %&
'
(
)))
* +
%
, +
-
&& .
/
+-% 0-
&&1
-
,/
+
+
!"" #
$ % & '
! "
# $ %& "
'
"
( # '
) "' "
* +
,
"" "
' ' - '
' "
. "
' '
' '" / ( "
(
" 0
"
" '
"'
#1
2/)
3/45627208
'
' 627208 79022:8/ 3
" (
# ' ' ' # ""
(
#1
;; </
=
# (
( " (
8
' !
'
"
' '
8
' " # '
/ 9
"
" ' '
8
#$ '
7 "
' # (
" <
'
8
'
4
"
# <
' <
8
$
" '! ( 0' 0
(
$
% $
: ( " "
& * " #
#'
' >"
# "
#
< " #1 "
( (
( (
$
? @ ( )( (
?( A$&
%$&&@
$
$
(
"
( </4/<=20
! $
$ ' </
))
)
())%
!!"## $ !!"## % & '
))) " * + % , + - && . / +-% 0- &&1 -
,/ + + Innritun hefst á morgun, mánudaginn 8. janúar og fer þá fram daglega, virka daga frá 14:00 til
17:00 í skólanum, Síðumúla 17, símar 588 3730 og 588 3630, tölvupóstur: ol-gaukur@islandia.is,
heimasíða: www.gitarskoli-olgauks.is. Á þessari önn verða í boði þau námskeið sem talin eru
upp hér að neðan, miðað við næga þátttöku. Nánari upplýsingar í símum á innritunartíma.