Morgunblaðið - 07.01.2007, Side 21
merkingarlausir og öðrum sem end-
uðu galopnir og án lokahnykks.“
Fjölmargir íslenskir grínistar hafa
nefnt þá félaga sem stærstu áhrifa-
valda sína.
En Cleese vildi prófa eitthvað
nýtt og gerði sem fyrr segir perluna
Fawlty Towers í samstarfi við eig-
inkonu sína. Syrpurnar urðu tvær,
sex þættir í hvorri, sú fyrri 1975 og
sú seinni 1979. Þá hafði hjónaband
þeirra Booth beðið skipbrot, en þau
unnu samt saman og voru samtaka
um að láta staðar numið eftir tólf
þætti svo gæðunum hrakaði ekki.
Þessi kostulega lýsing á litlu ensku
hótelsamfélagi sló í gegn um allan
heim og er af mörgum talin besta
breska gamanþáttaröð allra tíma,
kannski ásamt Yes Minister.
Gæfa og gjörvileiki
Þau Booth og Cleese eignuðust
eina dóttur. Ferill Booth varð ekki
rismeiri og síðast spurðist til henn-
ar í starfi sálgreinanda í London.
Samstarfsmönnum Cleese í Monty
Python hefur einnig vegnað misvel.
Chapman lést úr krabbameini árið
1989. Michael Palin lék nokkur hlut-
verk í bíómyndum á borð við The
Missionary, A Private Function og
Brazil eftir félaga Gilliam, en hefur
í seinni tíð gerst vinsæll leið-
sögumaður í ferðaþáttum fyrir
BBC. Jones, sem nú glímir við rist-
ilkrabbamein, leikstýrði myndum
eins og Erik the Viking, Personal
Services og The Wind in the Wil-
lows, en hefur undanfarin ár sinnt
ýmsum verkefnum á sviði mið-
aldafræða og skrifað barnabækur.
Eric Idle fann ekki góða fótfestu,
reyndi fyrir sér í lánlitlum bíó-
myndum beggja vegna Atlantshafs-
ins, samdi nokkra söngleiki sem
floppuðu en nú hefur hlaupið á
snærið hjá honum því leiksýningin
Spamalot, sem byggð er á gömlu
Pythonefni með blessun gömlu fé-
laganna, hefur slegið í gegn. Gilliam
hefur hins vegar átt athyglisverð-
asta ferilinn, sem höfundur nokk-
urra hugmyndaríkra og kraftmikilla
en misjafnlega heppnaðra bíómynda
eins og Time Bandits, Brazil, The
Fisher King, Twelve Monkeys, The
Adventures of Baron Münchhausen,
Fear and Loathing in Las Vegas og
The Brothers Grimm.
Sjálfur hefur John Cleese, sem
fyrr segir, ekki skilað miklum af-
rekum undanfarna áratugi. Fyrir
utan A Fish Called Wanda og fram-
hald hennar, Fierce Creatures,
sýndi hann fyrri snilldartakta í aðal-
hlutverki gamanmyndarinnar
Clockwise (1986) og auka-
hlutverkum The Out-of-Towners og
Rat Race (2001), en annað, þ.á m.
smáhlutverk í tveimur Bondmynd-
um og Harry Potter, hefur ekki
aukið hróður hans. Í einkalífinu hef-
ur hann kvænst tveimur bandarísk-
um ljóskum eftir Booth og eignast
eina dóttur í viðbót. Hann flúði
heimalandið og settist að í Kali-
forníu. Um það hefur hann sagt: „Á
mínum aldri vil ég vakna á morgn-
ana og sjá sólina hellast gegnum
gluggana á hverjum degi.“
Öfugt við flestar helstu leik-
persónur Johns Cleese og eldra
orðspor segja þeir sem til þekkja að
hann sé stillingin uppmáluð, róleg-
ur, íhugull, nærgætinn, og alls ekki
gefinn fyrir að stappa niður fótum,
berja höfðinu við veggi, löðrunga
þjónustufólk og æða um í hyster-
íukasti. Þannig kom hann líka
stjórnendum Kaupþingsauglýsing-
arinnar fyrir sjónir.
Fyrir nokkrum árum sagði hann:
„Ég held að núna ríki mun meiri
ótti en áður var, mun meiri ótti við
að standa ekki undir væntingum.“
Þegar öllu er á botninn hvolft var
það kannski þessi ótti sem kom fyr-
ir John Cleese.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 21
’Fyrirtæki erlendis í eigu Ís-lendinga hafa mörg hver átt í
erfiðleikum vegna málsins því
fjölmargir hópar hafa hótað því
að hætta að versla við þessi fyr-
irtæki nema hvalveiðum Íslend-
inga verði hætt hið snarasta.‘Úr yfirlýsingu sem Baugur Group sendi
frá sér á miðvikudag.
’Staurinn hlífði mér en augunfóru úr manni sem var við hlið-
ina á mér.‘Sölvi Axelsson flugstjóri sem slapp naum-
lega í sprengjutilræði í Bangkok í Taílandi
á gamlárskvöld.
’Það hafa ekki verið gerð meirimistök í heilbrigðiskerfinu en að
selja Heilsuverndarstöðina. ‘Reynir Tómas Geirsson , sviðsstjóri
kvennasviðs LSH.
’Mér finnst alveg ótrúlegt aðenginn skyldi stoppa til að at-
huga hvort það væri í lagi með
okkur. ‘Rut B. Ásgeirsdóttir sem lenti í bílveltu
skammt frá golfvellinum í Borgarnesi á
miðvikudagskvöld. Fjöldi bílstjóra keyrði
framhjá slysstaðnum.
’Aftaka Saddams var einn við-bjóðslegasti þátturinn í þeirri
ömurlegu atburðarás og verður
eflaust vatn á myllu hermdar-
verkamanna sem nota það tæki-
færi til að réttlæta enn meiri
dráp og skelfingu.‘
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, í ný-
ársprédikun í Dómkirkjunni.
’Hinn langi vinnudagur tekurtoll og börnin bera kostnaðinn í
ríkum mæli.‘Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í
nýársávarpi sínu.
’Vélin bara féll niður, einn,tveir og þrír. ‘
Magnús Ásgeirsson, farþegi í þotu Ice-
landair, sem lenti í mikilli ókyrrð yfir
Bretlandi á þriðjudag.
’Þetta er mjög lítill hluti afveltu okkar en það fer því miður
mjög mikið púður í þetta. ‘Sigmundur Ó. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Norðlenska, um sölu á ís-
lensku lambakjöti til Bandaríkjanna. Að-
eins einu sinni hefur verið hagnaður af því
að selja lambakjöt í verslunum Whole
Foods.
Ummæli vikunnar
Morgunblaðið/Ómar
Mótmæli Baugur telur hvalveiðar
skaða íslensk fyrirtæki erlendis.
2007
Búlgaría frá kr. 29.990
Salou frá kr. 39.995
Bibione frá kr. 49.595
Portoroz frá kr. 68.190
Sumar
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
25
45
3
Terra Nova býður fullt af spennandi nýjungum fyrir sumarfríið 2007. Perla Svartahafsins, Golden Sands
í Búlgaríu, einn vinsælasti áfangastaður Evrópu. Salou og Pineda á Costa Dorada ströndinni sunnan
Barcelona sem er sannkölluð fjölskylduparadís. Bibione á Ítalíu, einnar bestu sólarstrandar Ítalíu, þar
sem í boði eru glæsilegir, nýjir gististaðir og frábær aðstaða í sumarfríinu. Einnig bjóðum við ferðir til
perlu Adríahafsins Portoroz í Slóveníu og til heimsborganna Barcelona og Parísar. Starfsfólk Terra Nova
óskar þér og þínum góðrar ferðar hvert sem leiðin liggur í sumarfríinu í ár.
Bókaðu n
úna á
www.terr
anova.is
Tryggðu þ
ér bestu g
ististaðin
a
og lægsta
verðið.
Búlgaría
Salou og Pineda
Bibione
Perla Svartahafsins
– hvergi meira frí fyrir peninginn
Planetarium – glæsileg gisting.
100% ánægja
Ævintýraparadís fjölskyldunnar
Fyrstu 500 sætin
10.000 kr.
afsláttur á mann
Veldu bestu gistingu
na og fáðu
mesta afsláttinn.
Gildir ekki um flugs
æti eingöngu.
Einungis takmarkað
ur fjöldi sæta í boði
á hverri dagsetning
u.
Barcelona
frá kr. 23.990
París
frá kr. 28.910
Kynntu þér glæsilegan sumarbækling
okkar sem dreift er með blaðinu í
dag eða á www.terranova.is