Morgunblaðið - 07.01.2007, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 23
! "! #
Stórútsala
Veiðihornsins
Aðeins í eina viku
Neoprenvöðlur með vöðlutösku aðeins 7.495
Öndunarvöðlur frá 10.995
Veiðijakkar vatnsheldir með útöndun frá 8.995
Veiðivesti frá 1.995
Kaststangir frá 1.995
Vandaðir hólkar fyrir veiðistangir aðeins 1.500
Flugustangir frá 2.995
Kasthjól frá 995
Fluguhjól frá 2.995
10 spúnar aðeins 1.995
Úrval af veiðifatnaði sem er að detta út úr vöruvali okkar á mikið lækkuðu verði
Útsalan er líka í netverslun Veiðihornsins
Veidihornid.is
Útsalan stendur aðeins í eina viku
Ekki missa af útsölunni í Veiðihorninu
Komdu strax í dag
Veiðihornið Hafnarstræti 5 – Veiðihornið Síðumúla 8
Veidihornid.is
OPIÐ UM HELGINA
LAUGARDAG KL. 10.00 TIL 16.00
SUNNUDAG KL. 12.00 TIL 16.00
pólitískum efnum. Á hinn bóginn
þykir sýnt að bandarísk áhrif fari al-
mennt og yfirleitt vaxandi í frönsk-
um stjórnmálum. Þannig þótti for-
kosningaferli Sósíalistaflokksins um
margt afar „bandarískt“ og sjón-
varpskappræður frambjóðenda
vöktu furðu margra og jafnvel
hneykslan.
Innanríkisráðherrann hefur á
hinn bóginn löngum lýst sig fylgj-
andi ýmsum grundvallarkennisetn-
ingum breskra og bandarískra
stjórnmála. Það á ekki síst við um
stjórn efnahagsmála. Hann telur að
skera beri niður ríkiskerfið í Frakk-
landi, vill auka sveigjanleika á vinnu-
markaði með lagabreytingum og tel-
ur að Frakkar hafi ekki náð að laga
sig að staðreyndum hnattvæðingar-
innar svonefndu.
Sarkozy er því ekki stjórnmála-
maður sem sameinar; þar liggur sér-
staða hans en um leið veikleiki. Hann
boðar „uppgjör“ við fortíðina, telur
arfleifð ’68-kynslóðarinnar svo-
nefndu einkum felast í leti og viðvar-
andi kröfugerð á hendur ríkisvaldinu
og hikar ekki við að fella siðferðis-
dóma í ræðu og riti. Margir fagna
þessum boðskap og telja hann tíma-
bæran. Aðrir óttast að Sarkozy
hyggist framkvæma uppskurð á
sjálfri þjóðfélagsgerðinni og leggja
hina rómuðu „frönsku sérstöðu“ í
rúst.
Sarkozy hefur sem innanríkisráð-
herra verið ómyrkur í máli og jafnan
komið fram sem „maður aðgerða“.
Hann hefur ekki hikað við að taka á
viðkvæmum málefnum á borð við
fjölgun innflytjenda auk þess sem
áhyggjur margra af aukinni glæpa-
tíðni og upplausn í samfélaginu hafa
ekki farið framhjá honum. Með
þessu móti hefur honum trúlega tek-
ist að ná til stuðningsmanna þjóðern-
issinnans Jean-Marie Le Pen, sem
einnig verður í framboði í vor.
Reynslan sýnir að Le Pen er fær um
að valda miklum usla í frönskum
stjórnmálum; í forsetakosningunum
2002 náði hann að komast í aðra um-
ferð og niðurlægja þar með Lionel
Jospin, frambjóðanda sósíalista.
Skömmu áður en óeirðir brutust
út í nokkrum stærstu borgum
Frakklands á nýliðnu ár lýsti Sar-
kozy yfir því að unga fólkið sem þar
lét til sín taka væri „racaille“;
„skríll“ eða „úrhrök“. Vitað er að
þessi ummæli reyndust ekki fallin til
að bæta ástandið í hverfum þessum.
Innanríkisráðherrann brást þó einn-
ig við gagnrýni þeirri sem hann sætti
sökum ummælanna og kom á fót
fyrstu opinberu stofnuninni um mál-
efni íslams auk þess sem hann tók að
mæla fyrir því að innleitt yrði kerfi
„jákvæðrar mismununar“ að hætti
Bandaríkjamanna til að rétta hlut
minnihlutahópa.
Arftakinn hafnar meistaranum
Nicolas Sarkozy fæddist 28. jan-
úar 1955 í París. Hann er sonur ung-
versks innflytjanda, Paul Sarközy de
Nagy-Bocsa, og franskrar eiginkonu
hans, Andrée Mallah. Sarkozy ólst
upp í Neuilly, einu „fínasta“ úthverfi
Parísar. Síðar varð hann borgar-
stjóri þar.
Sarkozy nam lögfræði og stjórn-
málaspeki en ólíkt því sem við á um
flesta þá sem tilheyra frönsku valda-
stéttinni lét hann ógert að sækja
menntun til ENA-háskólans (fr.
„Ecole nationale d’administration“).
Hann hóf afskipti af stjórnmálum á
áttunda áratugnum og var þá í hópi
dyggustu stuðningsmanna Jacques
Chirac. Vitað er að Chirac taldi Sar-
kozy sérlega efnilegan á þessum ár-
um og horfði til hans sem arftaka. Til
vinslita kom árið 1995 er Sarkozy
ákvað að styðja Edouard Balladur,
þáverandi forsætisráðherra, í for-
setakosningum. Chirac fór með sig-
ur af hólmi en forsetinn mun jafnan
hafa litið svo á að Sarkozy hafi svikið
sig.
Sarkozy var ráðherra fjárlaga frá
1993 til 1995 í forsætisráðherratíð
Balladurs. Hann var jafnframt fram-
kvæmdastjóri RPR-flokksins, for-
vera UMP. Chirac var endurkjörinn
forseti árið 2002 og töldu þá margir
að Sarkozy myndi hreppa embætti
forsætisráðherra. Chirac skipaði
Sarkozy innanríkisráðherra og ekki
leið á löngu uns ljóst varð að Sarkozy
hafði einsett sér að verða kjörinn
forseti Frakklands árið 2007.
Sarkozy hefur tvívegis gengið í
hjónaband og er faðir þriggja barna.
Samband hans og eiginkonunnar,
Ceciliu, er stormasamt og ku vera
vinsælt umræðuefni manna á meðal
og í fjölmiðlum.
» Aðrir óttast að Sarkozy hyggist framkvæma
uppskurð á sjálfri þjóðfélagsgerðinni og leggja
hina rómuðu „frönsku sérstöðu“ í rúst.
þessa dagana enda þótt hann hafi
aldrei verið sérstaklega sannfærandi
í liði meistaranna, hvorki sem mið-
vörður né í sinni eiginlegu stöðu sem
bakvörður.
Carvalho verður í leikbanni í fyrri
leiknum gegn Wycombe Wanderers
í undanúrslitum deildabikarkeppn-
innar í næstu viku og fróðlegt verður
að sjá hver leikur þá við hlið Ferrei-
ras. Kannski Didier Drogba en það
hefur víst komið til tals í fullri alvöru
að heitasti miðherji Evrópu um þess-
ar mundir hafi endaskipti á vellinum.
Talandi um hremmingar.
Þrátt fyrir þetta ítrekaði Mour-
inho í vikunni að hann myndi ekki
borga yfirverð fyrir varnarmenn í
janúarglugganum. Sjáum til.
Holdlegi hlerinn á batavegi
Mikið hefur verið gert úr hlut
Johns Terrys í þessu skrifi en ekki
má gleyma því að annar gríðarlega
mikilvægur leikmaður, tékkneski
markvörðurinn Petr Cech, hefur
verið frá mánuðum saman vegna
grafalvarlegra höfuðmeiðsla. Munar
um minna. Vísindamenn austan
gamla járntjaldsins eru orðlagðir
fyrir uppátæki sín en ekki er vitað til
þess að þeir hafi í annan tíma fundið
upp hlera af holdi og blóði. Cech
verður ekki lýst með öðrum hætti.
Carlo Cudicini er að vísu verðug
forfallaverja en hann hefur líka verið
talsvert frá vegna meiðsla. Í mark-
inu stendur um þessar mundir gam-
all spilafélagi Mourinhos, Hilario að
nafni, eða „Hilarious“ eins og gár-
ungarnir kalla hann. Á bekknum tel-
ur Magnus karlinn Hedman milljón-
irnar sínar eftir að hafa verið
dreginn á flot eftir langt hlé í haust.
En það er víst í tísku að gamlir Svíar
gerist bjargvætturinn Laufey.
Til allrar hamingju fyrir Chelsea
hefur bati Cechs verið vonum framar
og ekki er loku fyrir það skotið að
hann verði klár í slaginn fyrir stór-
leikinn gegn Liverpool um aðra
helgi. Þar með yrði vörn Chelsea
fullmönnuð á ný.
Það skyldi aldrei vera að þeir
Fergusynir hafi ekki gripið gæsina
meðan hún gafst?