Morgunblaðið - 07.01.2007, Síða 31
Morgunblaðið/ÞÖK
Saga hlutanna | permanent
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 31
BÆJARLIND 14 -16 | 201 Kópavogi | Sími 564 4400 | Fax 564 4435 | tekk@tekk.is
OPI‹ ALLA VIRKA DAGA 10-18, LAUGARDAG 10-16 OG SUNNUDAG 13-16
F
A
B
R
I
K
A
N
MANOR-LÍNAN
40% AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM VÖRUM Í LÍNUNNI
VERÐDÆMI:
STÆKKANLEGT BORÐSTOFUBORÐ
ÁÐUR 125.000 kr.
NÚ 75.000,-
STÓR GLERSKÁPUR
ÁÐUR 185.000 kr.
NÚ 111.000,-
ETHNIKRAFT VÍNREKKI
TVÖFALDUR
ÁÐUR 7.800
NÚ 4.680,-
ÞREFALDUR
ÁÐUR 10.800
NÚ 6.480,-
FJÓRFALDUR
ÁÐUR 15.800
NÚ 9.480,-
PLÚTON SÓFI
ÁÐUR 119.000 kr.
NÚ 47.600,-
PISA SÓFI
ÁÐUR 148.000 kr.
NÚ 88.800,-
ETHNIKRAFT EIKARBORÐ
(160X90) OG 4 LJÓSIR
NOMADO LEÐURSTÓLAR
ÁÐUR 133.000,-
NÚ 79.800,-
ÚTSALA! ÚTSALA!
ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR
viðskiptafræði og hann í leiklistinni,
á síðasta ári minnir mig, það var
mjög gaman og mikið fjör, enda
bjuggum við niðri í miðbæ. Við er-
um alveg með á hreinu hvor gerir
hvað í dag, en fyrir tíu ára aldur
vorum við ekki vissir ef við vorum
báðir viðstaddir. Ef annar meiddi
sig til dæmis upplifði hinn það mjög
sterkt.
Við vorum gjarnan ávarpaðir
„þið“ og sögðum alltaf „við“ í stað-
inn fyrir „ég“. Þegar við vorum um
það bil 12–13 ára fórum við að biðja
um að vera ávarpaðir hvor í sínu
lagi.
Við Gunni höfum alltaf viljað ráða
okkur sjálfir. Hann er fyndinn, en
líka þungur. Þó að það virki ekki
þannig er ég aðeins kærulausari en
hann. Hann var mun snjallari með
sín fjármál þegar hann var yngri,
kannski af því að hann var skipu-
lagðari og passasamari. Ég veit það
ekki. Hann á það til að taka eitt-
hvað sem mér finnst léttvægt of al-
varlega og svekkja sig of mikið yfir
því.
Við konan mín eignuðumst okkar
fyrsta barn í október árið 1993 og
Gunni eignaðist sitt fyrsta barn á
sama tíma, sex dögum seinna, líka
strák. Og við mættum heim til
pabba og mömmu nánast sama
kvöldið að tilkynna að barn væri í
vændum.
Við höfum alltaf verið frekar nán-
ir og tölum mjög oft saman. Við er-
um með sömu áhugamálin, förum á
völlinn alltaf þegar við getum að sjá
Þrótt spila, svo erum við saman í
veiði og hann býður mér á allar
frumsýningar. Við höfum alltaf leit-
að hvor til annars með gagnrýni og
erum fullkomlega heiðarlegir, segj-
um ekki bara það sem við höldum
að hinn vilji heyra. Stundum getum
við rætt hlutina af fullmiklum hita
og þá hljómar það í eyrum annarra
eins og rifrildi, sem það alls ekki er.
Gunni er mjög hugmyndaríkur og
skemmtilegur. Þó að við höfum ekki
verið saman á hverjum degi frá því
að við vorum sextán ára kemur það
bara oft fyrir þegar við hittumst að
við ætlum að segja nákvæmlega það
sama á sama augnabliki eða hlæjum
báðir í einu að einhverju sem eng-
inn annar hlær að.
LIÐIN er öld frá því að þýskur hár-
greiðslumaður fann upp perm-
anentið, sem hefur glatt konur og
(fótbolta)menn allar götur síðan.
Gleðin hefur verið blandin því þessi
mikla hárgreiðsla er þekkt fyrir að
fara illa með hárið til lengri tíma
litið.
Enginn hefur þó væntanlega
þjáðst meira fyrir krullurnar en
eiginkona Karls Nessler frá bænum
Todtnau í Svartaskógi. Þjóðverjinn
knái reyndi þessa nýju tækni marg-
oft á henni á hárgreiðslustofu sinni
við Oxford-stræti í London með af-
leiðingum eins og brenndu hári og
hársverði. Svo ekki sé minnst á að
ferlið tók nokkra klukkutíma.
Loks fann Ness-
ler upp réttu form-
úluna að efnum og
hita til að láta
krullurnar festast í
hárinu og fékk
einkaleyfi á form-
úlunni. Þrátt fyrir
vandræðin sem
fylgdu liðunum sló
uppfinningin í
gegn því með
permanenti gátu
konur sleppt því að fara að sofa
með óþægilegar rúllur.
Allt frá upphafi hefur perm-
anent-tískan gengið í bylgjum. End-
urbætur hafa verið gerðar á upp-
runalegu
aðferðinni, þótt
engin sé skaðlaus.
Á sjötta áratugn-
um voru húsmæður
með permanent til
að halda hárinu á
sínum stað og á átt-
unda áratugnum
varð það mjög vin-
sælt. Art Garf-
unkel er dæmi um
mann sem tók afró-
greiðsluna alvar-
lega. Þungarokk-
arar sveifluðu
lokkunum á sviði
og fótboltamenn á vellinum, með
Kevin Keegan fremstan í flokki.
Á níunda áratugnum ruglaðist
fólk í krullunum og hárið varð
meira en nokkru sinni áður. Það
þurfti mikið hár til að passa við
stóru herðapúðana og yfirgengileg
fötin. Stórar hárgreiðslur voru
áberandi í sápuóperunum Dallas og
Dynasty.
Um miðjan tíunda áratug síðustu
aldar fór permanentið úr tísku eftir
að vinsælasta hárgreiðslan varð
náttúruleg og glansandi að hætti
Rachel úr Vinum. Konur sækja nú í
hársápur úr lífrænum efnum og
forðast sterka efnameðferð.
Í heimalandi Nessler fara nú að-
eins 3% kvenna reglulega í perm-
anent en guðfaðir greiðslunnar
mun þó ekki falla í gleymsku um
sinn. „Hann kom af stað byltingu á
heimsvísu og við erum stolt af hon-
um,“ sagði borgarstjóri Todtnau,
Andreas Wiessner, við AFP, en ver-
ið er að byggja safn til heiðurs
Nessler.
Gengur í bylgjum
Hárprúð Stórt hár er vel við
hæfi dívunnar Jennifer Lopez.