Morgunblaðið - 07.01.2007, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Glæsileg 145 fm endaíbúð á 1. hæð með gluggum í þrjár áttir í þessu eftir-
sótta lyftuhúsi við Efstaleiti auk sérstæðis í bílageymslu og sérgeymslu í kj.
Íbúðin skiptist í forstofu með fataherb. innaf, hol, stórar og bjartar samliggj-
andi stofur með útgangi á verönd til suðurs og vesturs, rúmgott eldhús
með góðri borðaðstöðu, 2 herbergi og baðherbergi sem er nýlega endur-
nýjað að hluta. Útgangur á verönd úr hjónaherbergi. Hlutdeild í mikilli sam-
eign, m.a. sundlaug, gufubaði og líkamsræktarsal. Verð 59,0 millj.
EFSTALEITI
Glæsileg 4ra herb. endaíbúð
fyrir 55 ára og eldri
Glæsilegt nýlegt 125-250 fm. skrifstofuhúsnæði til leigu á 2. hæð (efstu) í ný-
legu verslunar og þjónustu/skrifstofuhúsi. Lyfta er í húsinu. Húsið skiptist
m.a. í móttöku, 8 skrifstofur, fundarherbergi, kaffistofu, snyrtingu ofl. Góð
aðkoma og bílastæði. Laust strax.
Upplýsingar gefur Helgi Jón, sölustjóri s. 893 2233
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Flatahraun Hf. - Til leigu skrifstofuhúsnæði
Um er að ræða gott 535 fm. atvinnuhúsnæði. Ágæt lofthæð og innkeyrslu-
dyr. Tilvalið fyrir léttan rekstur og heildsölu. Góð staðsetning. Laust strax.
Upplýsingar gefur Helgi Jón, sölustjóri s. 893 2233
Bæjarhraun Hf. - Til leigu
ÞVÍ miður hefur
undirskriftasöfn-
unin frá árinu
1999 (sjá mynd)
ekki orðið til
þess að menn
hafi fundið sann-
leikann. Og það
þótt bættist við
minnihluti
hreppsnefndar,
Berglind Gunnarsdóttir og Hjörtur
Hjartarson sem beittu sér fyrir
framgangi málsins ásamt Haraldi
Johannessen og Árna Johnsen.
Ríkislögreglustjóri kom kærunum
áleiðis eftir að Árni Johnsen ýtti á
hann. Allar kærurnar voru upp-
lognar og falsaðar en voru stað-
festar sjö sinnum fyrir héraðsdómi
og Hæstarétti án þess að dómunum
hafi verið breytt. Það eru því þrett-
án sem standa að þessum lista, 9
plús 2 plús aftur 2, allt vinstri
menn (utan HJ og ÁJ). En íbúar
Vestur-Landeyjahrepps voru um
180 á þessum tíma. Voru þessar
undirskriftir í anda réttlætis, lýð-
ræðis og frelsis?
EGGERT HAUKDAL,
fv. alþingismaður.
Frá Eggerti Haukdal:
Eggert Haukdal.
Sannleikurinn mun
gera yður frjálsa
BORGARSTJÓRI hefur að und-
anförnu stutt dyggilega við bakið á
Íbúasamtökunum Betra Breiðholt
og öðrum íbúum sem hafa mótmælt
uppsetningu spilasalar í versl-
unarmiðstöðinni í Mjódd. Við í stjórn
íbúasamtakanna viljum þakka borg-
arstjóra fyrir stuðning í baráttu okk-
ar gegn þessum ófögnuði. Baráttan
hefur staðið í nokkurn tíma og er
einkennilegt að svo virðist sem íbúar
eigi ekki að hafa neitt um þetta að
segja. Lög og reglur eru þannig að
Happdrætti Háskóla Íslands virðist
hafa heimild til að opna spilasal þar
sem húsnæði er laust og þurfi varla
að fá sérstakt leyfi til þess.
Borgarstjóri er hins vegar nú bú-
inn að skora á HHÍ að draga til baka
fyrirhugaða opnun spilasalarins.
Íbúasamtökin Betra Breiðholt hafa
mætt í tvígang á fund með rektor
Háskólans ásamt framkvæmda-
stjóra Happdrættis Háskólans, svo
og á fund með rekstraraðilum spila-
salarins. Þar voru aðilar beðnir um
að hætta við fyrirhugaða opnun sal-
arins. Því var neitað og gefið upp að
þrátt fyrir mótmæli verði salurinn
opnaður.
Hverfisráð Breiðholts hefur mót-
mælt þessari opnun og fjöldi manns
hefur lýst vanþóknun sinni á þessu.
Á þriðja þúsund manns hafa und-
irritað áskorun um að hætt verði við
þetta.
Síðan kemur grein í Fréttablaðinu
30.12. 2006 eftir Pál Hreinsson, for-
mann stjórnar HHÍ, þar sem hann
greinir frá því að Háskólinn eigi ekki
spilasal í Mjóddinni. Málið snýst
ekki um það hver eigi húsnæðið
heldur hvaða starfsemi fer þar fram.
Sú starfsemi varðar Happdrætti Há-
skóla Íslands – og þá starfsemi vilj-
um við ekki hafa þarna.
Verði salurinn opnaður í Mjódd-
inni verða margir til að standa upp
og mótmæla. Þar eð brotið er á íbú-
um Breiðholts á þennan grófa hátt
verður mótmælt enn hressilegar.
Það virðist enginn vilja svara fyrir
þetta mál. Rektor Háskóla Íslands
hefur eiginlega vísað þessu frá sér.
Formaður stjórnar Happdrættisins
virðist gera það líka. Dóms-
málaráðuneytið getur ekki tekið á
málinu þar eð ráðuneytið virðist ekki
hafa lögsögu um slíka starfsemi.
Hún er nefnilega skráð sem þjón-
usta og á því flýtur þessi spila-
mennska áfram. Ráðuneytið getur
ekki gert neitt þar eð þetta flokkast
undir þjónustu. Þá er spurning:
Hvað er þjónusta? Hvaða þjónustu
er verið að veita þarna? Kannski for-
maður stjórnar Happdrættisins geti
skilgreint það.
Íbúar í Breiðholti vilja ekki þessa
„þjónustu“, ekki þessa starfsemi
sem ýtir undir spilafíkn og ýmsa
óæskilega hegðun og kemur ekki
síst niður á ungu fólki.
Ábyrgðin er þeirra sem hagnast á
spilafíklunum.
Þess vegna fögnum við hverjum
bandamanni í þessari baráttu og við
væntum þess að forráðamenn Há-
skóla Íslands og Happdrættis Há-
skólans hlusti á borgarstjóra
Reykjavíkur og borgarráð og taki
tillit til óska borgaryfirvalda og
þeirra fjölmörgu íbúa og margra
samtaka í Breiðholti sem vilja ekki
þessa starfsemi í Mjóddina. Það yrði
nöturleg kveðja til íbúa Breiðholts ef
Háskólinn, sem ætti að vera vel upp-
lýst stofnun og virða lýðræðisleg
gildi, ætlar að troða þessum ófögn-
uði upp á Breiðhyltinga með því að
koma spilavíti fyrir á þeim stað
þangað sem flestar fjölskyldur í
hverfinu venja komur sínar til að
sækja uppbyggilega þjónustu. Það
yrði í raun atlaga gegn fjöl-
skyldugildum menntaðs samfélags.
Ábyrgðin er þeirra sem hagnast á
spilafíklunum.
HELGI KRISTÓFERSSON,
ELÍN HULD
HARTMANNSDÓTTIR,
BOGI A. FINNBOGASON,
ELÍSABET JÚLÍUSDÓTTIR,
GUNNAR H. GUNNARSSON,
MAGNÚS GUNNARSSON,
ÞORKELL RAGNARSSON.
Íbúarnir vilja ekki spilasal í Mjóddinni
Frá stjórn Íbúasamtakanna
Betra Breiðholt:
MJÖG er nú fjargviðrazt, þessi
dægrin, yfir stofnun Flugstoða ohf,
og er það að vonum. Í því máli hefir
hinn ágæti frændi minn Sturla
Böðvarsson farið fullgeyst enda virt-
ist enga brýna nauðsyn bera til nið-
urlagningar fyrra fyrirkomulags
(sjálfur flýg ég ei, heldur geng, ek
eða sigli enda sérvizka margra okk-
ar Kveldúlfs-niðja undirliggjandi
víða). Spyrja má hvort þarna hafi
eitthvert frjálshyggju-froðusnakk
eða þá hin skelfilega einkavæðingar-
hégilja komið að málum?
Heldur þykir mér lítilmannleg sú
margvíslega orrahríð sem gerð hef-
ur verið, sér í lagi hér á Suðvest-
urlandi, að Sturlu, fyrir þá miklu
djörfung og þor að drífa Héðins-
fjarðargangnagerðina af stað á sl.
vori þó svo að Fljótatengingin hefði
gjarnan mátt vera þar í. Þessir
ágætu samlandar, þéttbýlisbúarnir,
sem eru að mér sýnist 2/3 hlutar
þjóðarinnar, mestmegnis Reykvík-
ingar, virðazt lítt muna að það voru
pláss; eins og Djúpavík á Ströndum,
Siglufjörður og Raufarhöfn t.d. sem
héldu íslenzka þjóðarbúinu gang-
andi á kreppuárunum 1930–1940.
Má því ætla að þeir Tröllaskaga-
menn séu löngu búnir að borga fyrir
Héðinsfjarðargöng. Víðar þarf að
hefja framkvæmdir, sérstaklega tvö-
földun Suðurlands- og Vesturlands-
vegar, nú strax á vordögum 2007!
sagt og skrifað.
Hér með skora ég á þá Sturlu
frænda minn og ekki síður Björn
Bjarnason dóms- og kirkju-
málaráðherra að þeir beiti sér, nú í
upphafi vorþings fyrir að 90% út-
gjaldanna
til utanríkisþjónustunnar verði
skorin niður nú þegar! og, nú nefni
ég það sem fæstir Íslendinga hafa
kjark og áræði til að nefna, leggjum
nú þegar niður forsetaembættið á
Bessastöðum! Þar mætti ná í ein-
hverja milljarða til viðbótar, til vega-
málanna og heilbrigðisþjónust-
unnar. Það gengur ekki að rétt
liðlega 300 þúsund manna þjóð skuli
vera að ganga undir óþarfa flakki ut-
anríkisráðherrans og forsetans, út í
heim þriðja hluta ársins. Mætti al-
veg endurreisa veg og virðing gamla
Landshöfðingjaembættisins, í stað
forsetaembættisins, með innan við
20% kostnaðar núverandi Bessa-
staða embættiskostnaðar, að skað-
lausu.
Færu þeir Sturla og Björn að
þessum tillögum mínum mætti ætla
að vegur Sjálfstæðisflokksins yrði
hinn mesti í komandi kosningum.
Má ég samt ekki láta hjá líða að min-
nazt eins okkar þingmanna í Suður-
kjördæmi, Kjartans Ólafssonar, sem
hefur vilja og snerpu til fylgni við
varanlega vegagerð norður um Kjöl,
úr Biskupstungum yfir í Húnaþing
og Skagafjarðar-héruð, svo dæmi sé
tekið.
Minni jafnframt á Óshlíðina
vestra strax með vorinu! sem og
Suðurstrandarveg, Skógarströnd,
Vestfirðina og þá þurfa Svínfellingar
sitt, verð þó að viðurkenna ókunnug-
leik minn á Austurlandi og Norð-
austurlandi. Ljóst má vera að þeir
Jón Rögnvaldsson og hans fólk allt
hjá Vegagerð ríkisins þurfa að láta
af þessum gálgahúmor, með 2+1-
lausnir.
Hættum að láta mont og prjál-
ferðir háttsettra ráðamanna vera
uppistöðu frétta hér heima fyrir.
Með beztu kveðjum úr Árnes-
þingi.
ÓSKAR HELGI HELGASON,
frá Gamla-Hrauni og
Hvítárvöllum
Um hina
hæfustu menn
Frá Óskari Helga Helgasyni:
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Fréttir á SMS