Morgunblaðið - 07.01.2007, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
HÁTEIGSVEGUR - 2. HÆÐ
Stórgóð og vel staðsett 7 herbergja hæð við Háteigsveg. Nýtt eldhús, ný-
ir gluggar, hús nýviðgert að utan. 5 svefnherbergi, stórar og bjartar stofur,
góð sameign og bílskúr, samtals 178 fm. Tvennar svalir. V. 45,9 m. 6277
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða:
http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri
og lögg. fasteignasali.
Viðjugerði
- Glæsilegt einbýlishús
Glæsilegt 290 fm einbýlishús á
tveimur hæðum með innbyggðum
einföldum bílskúr á þessum
eftirsótta stað í austurborginni.
Húsið er allt nýlega tekið í gegn að
utan og málað og er í mjög góðu
ástandi. Nýjar útihurðir eru í húsinu,
nýr þakkantur og allt gler í húsinu er
nýlegt. Útgangur á svalir til suðurs
úr stofum og til vesturs úr
hjónaherbergi. Falleg ræktuð lóð
með afgirtri timburverönd, heitum
potti og útisturtu. Verðtilboð.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
KIRKJUSANDUR 5
GLÆSILEG ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ Í LYFTUHÚSI
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Glæsileg 83 fm 2ja-3ja herbergja íbúð á 3. hæð í þessu eftirsótta lyftuhúsi.
Eitt svefnherbergi og tvær stofur. Fallegar og vandaðar innréttingar. Vestur-
svalir með fallegu útsýni. Parket og flísar á gólfum. Glæsileg sameign.
Stæði í bílageymslu fylgir. Eignin getur losnað fljótlega.
Verð: Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Valgerður sýnir eignina í dag, sunnudag, frá kl. 14:00-15:00.
SEINT á liðnu ári fjallaði Morg-
unblaðið ítarlega um skýrslu Sir
Nicholas Sterns um gróðurhúsa-
áhrifin og þá hættu
sem mannkyninu staf-
ar af þeim. Blaðið
birti auk þess leiðara
um málið.
Á bls. 261 í þessari
skýrslu segir svo:
„Fyrirtæki þurfa að
taka ákvarðanir til
langs tíma þegar
ákveða skal fjárfest-
ingar í verksmiðjum
og tækjum sem ætlað
er að starfa áratugum
saman. Eitt dæmi um
þetta er vöxtur áliðn-
aðarins á Íslandi. Ís-
land hefur dregið til
sín álframleiðendur
bæði frá Evrópu og
Bandaríkjunum, að
hluta til vegna þess að
með því að reiða sig í
miklu ríkari mæli en
áður á raforku úr
endurnýjanlegum
orkulindum draga
þeir úr áhættunni af kostn-
aðarhækkunum vegna strangari
reglna í framtíðinni um losun gróð-
urhúsalofttegunda.“
Í framhaldi af þessu segir svo um
íslenskan áliðnað í rammagrein á
sömu blaðsíðu:
„Á síðustu sex árum hefur Ísland
orðið mesta framleiðsluland hrááls í
heimi, reiknað á hvern íbúa. Þessi
vöxtur álframleiðslunnar er til kom-
inn bæði vegna stækkunar álvers
sem fyrir var og reist var 1969, og
vegna byggingar frá grunni á nýju
álveri í eigu bandarísks fyrirtækis
sem kom í gagnið 1998. Það lítur út
fyrir að í næstu fram-
tíð verði áframhaldandi
hraður vöxtur í ál-
vinnslu á Íslandi. Bæði
álverin sem fyrir eru
hafa áform um miklar
stækkanir í nálægri
framtíð. Búist er við að
þessar stækkanir hafi í
för með sér að álfram-
leiðsla á Íslandi vaxi í
um milljón tonn á ári,
en með því væri Ísland
orðið mesta álfram-
leiðsluland í Vestur-
Evrópu.
Orkufrek framleiðsla
eins og álvinnsla er
rekin af stórum alþjóð-
legum fyrirtækjum
með tiltölulega lausa
fótfestu í einstökum
löndum. Ísland á að-
gang að álmarkaði
bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum, en
meginkostur landsins
er aðgangur að vatni og meng-
unarlausum orkulindum. Losun á
CO2 á mann frá raforkuvinnslu á
Íslandi er hin minnsta í OECD-
löndunum. 70% af frumorkunotkun
landsins kemur frá sjálfbærum
orkulindum í landinu sjálfu. Á Ís-
landi er líka verið að gera ráðstaf-
anir til að draga úr losun flúor-
sambanda frá álvinnslu. Væntingar
um ráðstafanir á heimsvísu í fram-
tíðinni til að draga úr losun gróð-
urhúsalofttegunda eru nú þegar
orðnar einn aðaldrifkrafturinn í að
draga orkufreka starfsemi burt frá
svæðum þar sem mikil slík losun
fylgir orkuvinnslunni til landa með
endurnýjanlegar orkulindir.“
Það er vert að vekja athygli á því
sem hér er sagt um losun flúor-
sambanda frá álvinnslu. Þau sam-
bönd eru meðal sterkustu gróð-
urhúsalofttegunda sem til eru, með
6.000 til 9.000 sinnum sterkari
gróðurhúsaáhrif á hvert kg en
koltvísýringur. Íslenskur áiðnaður
hefur dregið úr losun þeirra á hvert
kg af framleiddu áli um meira en
95% frá 1990. Það er frábær
frammistaða. Þessi árangur hefur
náðst með betri tækni, byggðri á
þekkingu. Það er fjarstæða, sem oft
er endurtekin, að áliðnaður sé ekki
þekkingariðnaður. Eins og sjá má
af ofangreindri rammagrein hefur
þessi árangur íslenska áliðnaðarins
vakið athygli víðar en á Íslandi.
Íslenskur áliðnaður í
Stern-skýrslunni
Jakob Björnsson fjallar
um íslenskan áliðnað
Jakob Björnsson
» Losun á CO2á mann frá
raforkuvinnslu
á Íslandi er hin
minnsta í
OECD-lönd-
unum.
Höfundur er fyrrverandi
orkumálastjóri.
STUNDUM virðist hraðinn vera
svo mikill að við gleymum að
staldra við, hugsa okkur um og
velta fyrir okkur hvað
við erum í raun að
gera. Hvort við
stefnum í átt að
markmiðum okkar
eða hvort við höfum
fundið okkur farveg
sem liggur langt fyrir
utan það sem við
höfðum ætlað okkur.
Ef svo er þarf þroska
og kjark til að beina
sér að upphaflegum
markmiðum og
standa við þau. Núna
stöndum við á tíma-
mótum. Um áramót
er tími til að endurskoða markmið
sín og setja sér ný, líta yfir farinn
veg og hæla sér fyrir það sem er
gott og gera betur í því sem miður
hefur farið.
Ég beini orðum mínum að þeim
sem hafa vald til að taka ákvarð-
anir. Bið þau um að hugsa sig vel
um á þessum tímapunkti. Bið þau
um að velta fyrir sér þeirri ábyrgð
sem hvílir á herðum þeirra.
Ákvarðanir um framtíð Íslands. Í
mínum huga er ábyrgð stjórnvalda
mikil, mjög mikil og felur hún í
sér að þau þurfi að leita svara við
mörgum áleitnum siðferðilegum
spurningum áður en endanlegar
ákvarðanir eru teknar.
Það stendur til að drekkja landi,
lítilsvirða vinnu bænda með því að
leggja jarðir þeirra undir lón og
virkjanir. Það er ekki hægt að
meta þetta landsvæði til fjár.
Ríkjandi stóriðjustefna stjórn-
valda sýnir botnlaust virðing-
arleysi og velti ég fyrir mér hvað
vakir fyrir þeim?
Virkjun í byggð!
Fyrsta jökullónið í
byggð! Er það í al-
vöru talið svo nauð-
synlegt að rökin með
því séu sterkari en
þau rök sem stríða
gegn þessari ákvörð-
un? Álver í Straums-
vík þarf orku. Það er
ekki í valdi Hafnfirð-
inga að ákvarða afdrif
Neðri-Þjórsár!
Sökum baráttuvilja
og þrautseigju bænda
og íbúa svæðisins
voru áætlanir um Norðlingaöldu-
veitu á sínum tíma stöðvaðar. Það
er því merkileg staðreynd að
Landsvirkjun ákvað nýlega á
stjórnarfundi að halda áfram að
veita fé til undirbúnings Norð-
lingaölduveitu þvert á áform um
stækkun friðlandsins í Þjórs-
árverum. Ætlar Landsvirkjun að
framkvæma fyrri áætlanir um
Norðlingaölduveitu? Allt bendir til
þess. Hefur stjórn Landsvirkjunar
pólitískan vilja að baki sér til að
framkvæma fyrri áætlanir um
Norðlingaölduveitu?
Stjórnvöld hafa uppi fleiri áform
um stórar virkjanir. Langisjór er
á teikniborðinu. Hugmyndir eru
uppi um að veita vatni úr Skaftá í
Langasjó, breyta honum í uppi-
stöðulón, og að flytja vatn úr
Skaftá yfir í Þjórsá. Langisjór er
langstærsta tæra fjallavatnið á Ís-
landi, náttúrufegurðin á sér engar
hliðstæður og þykir vatnið fágætt
á alþjóðavísu og líffræðilegt
verndargildi er umtalsvert.
Mig langar að biðja alla Íslend-
inga, af því að þetta eru málefni
sem varða okkur öll, um að standa
vörð um þau verðmæti sem við
eigum í fegurð náttúrunnar bæði á
há- og láglendi Íslands. Nú er nóg
komið! Okkur ber að staldra við,
snúa bökum saman og velta fyrir
okkur hvert við viljum fara. Eru
þetta í alvöru talað markmið okk-
ar? Að verða álbræðslu- og virkj-
analand fyrir útlenda einokunarr-
isa sem koma hingað og fá orku á
útsöluverði og leggja undir sig það
sem okkur er svo dýrmætt, Ís-
land?
Er einhver framtíð í því að fórna
landinu okkar fyrir erlenda álrisa?
Alma Lísa Jóhannsdóttir
skrifar um umhverfismál »Eru þetta í alvörutalað markmið okk-
ar? Að verða álbræðslu-
og virkjanaland fyrir út-
lenda einokunarrisa
sem koma hingað og fá
orku á útsöluverði og
leggja undir sig verð-
mæti okkar, Ísland?
Alma Lísa
Jóhannsdóttir
Höfundur skipar 2. sæti framboðs-
lista VG í Suðurkjördæmi við kom-
andi alþingiskosningar.