Morgunblaðið - 07.01.2007, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
Sími 567 9110 • 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Útfararþjónustan
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÚN GUNNARSDÓTTIR
frá Eiði, Eyrarsveit,
Rósarima 2,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut að morgni
þriðjudagsins 2. janúar.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn
9. janúar kl. 13.00.
Bryndís Theodórsdóttir, Guðni E. Hallgrímsson,
Þröstur Theodórsson, Áslaug Árnadóttir,
Lilja Theodórsdóttir, Birgir Guðmundsson,
Hrönn Theodórsdóttir, Davíð Heiðberg,
Freyja Theodórsdóttir,
Sveinn Theodórsson, Ellen María Þórólfsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÓLÍNA ÓLAFSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Seljahlíð,
er látin.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. janúar
kl. 13.00.
Jenný Ólafsdóttir,
Ómar E. Ólafsson,
Elín Hildur Sigurðardóttir,
Berglind Dögg Ómarsdóttir,
Arndís Þóra Sigfúsdóttir.
✝ Stefán Jónssonfæddist á Hræ-
rekslæk í Hróars-
tungu 24. júlí 1930.
Hann lést í fjórð-
ungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað 10.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Jón
Ágúst Ármannsson
bóndi á Hræreks-
læk, f. í Rauðholti í
Hjaltastaðaþinghá
20. júní 1877, d. 27.
september 1951 og
Anna Björg Pétursdóttir, f. á
Stóra-Steinsvaði í Hjalta-
staðaþinghá 3. júlí 1908, d. 23.
maí 1941. Systkini Stefáns eru:
Svava, f. 13. júní 1915, d. 17.
september 1991, ráðskona á
Keldhólum. Hún var hálfsystir
samfeðra, móðir hennar var Sig-
urrós Eyjólfsdóttir, f. 21. ágúst
1882, d. 6. febrúar 1951. Dreng-
ur, f. 11. október 1926, d. sama
dag. Geirlaug Gunnfríður bóndi í
Ásgarði í Reykholtsdal, f. 2. sept.
1927. Björn verslunarmaður á
Reyðarfirði, f. 23. mars 1929, d.
13. feb. 1992. Ágústa Ósk bóndi á
Eiríksstöðum á Jökuldal, f. 18.
janúar 1940.
Eiginkona Stefáns er Agnes
Valborg Svanbergsdóttir, f. 12.
Rix Stefánsson, f. 12. maí 1975.
Búsett í Danmörku. Sonur hans
og Rögnu Kristbjargar Rúnars-
dóttur er Bjarni Rúnar, f. 9.
febrúar 1990. 4) Anna Heiða, f.
14. mars 1969, maki Stefán Sig-
urbjörn Arnbjörnsson, f. 17. okt.
1959. Búsett í Garðinum. Börn
þeirra eru Elín Hrund, f. 14.
ágúst 1990 og Einar Áki, f. 24.
júlí 1992. 5) Ragnheiður Hrönn,
f. 20. júlí 1983. Búsett á Reyð-
arfirði. 6) Gunnhildur Rán, f. 20.
nóvember 1984. Búsett í Nes-
kaupstað. 7) Hilda Ösp, f. 24.
nóvember 1985. Unnusti hennar
er Stefán Ingi Daníelsson, f. 4.
júlí 1983. Búsett í Reykjavík.
Stefán var bóndi á Hræreks-
læk ásamt Birni bróður sínum og
föður þeirra, uns hann lést, sem
og Svövu systur þeirra. Eftir frá-
fall föðurins bjuggu systkinin
áfram í áratug eða fram til 1961.
En Björn flutti á Reyðarfjörð
1958. Stefán flutti til Akureyrar
1961, ásamt eftirlifandi konu
sinni. Stefán hóf langan feril sem
sjómaður 1970 á Reyðarfirði,
fyrst á netabátnum Snæfugli SU
20 í eitt ár, svo á netabátnum
Gunnari SU 139. Síðan á tveim
skuttogurum er báru nafnið Snæ-
fugl SU 20. Hann lét af störfum
sökum veikinda 1997, fluttist til
Neskaupstaðar 2003 og bjó þar
til dánardags.
Stefán var jarðsunginn í kyrr-
þey frá Norðfjarðarkirkju 14.
nóvember.
október 1943. For-
eldrar hennar voru
hjónin Olaf Gunnar
Svanberg Hjelm sjó-
maður á Eskifirði, f.
í Færeyjum 7. júlí
1909, d. 19. desem-
ber 1974, og Þórunn
Aðalheiður Ein-
arsdóttir, f. á Eski-
firði 6. ágúst 1911,
d. 29. desember
1949. Börn þeirra
Stefáns og Agnesar
Valborgar eru: 1)
Egill Birkir, f. 28.
janúar 1962, maki Sveinbjörg
Guðjónsdóttir, f. 18. apríl 1963.
Búsett í Neskaupstað. Börn
þeirra eru: a) Sigurður Freyr, f.
14. október 1980, unnusta Salva-
cion Latraza Suarez, f. 29. sept-
ember 1974. Búsett í Reykjavík
b) Sævar Magnús, f. 17. janúar
1982. Búsettur í Neskaupstað. c)
Guðjón Stefán, f. 21. janúar 1983.
Búsettur í Neskaupstað. d) Ævar
Unnsteinn, f. 9. nóvember 1984.
Búsettur í Reykjavík. e) Kristófer
Snær, f. 13. september 1987. Bú-
settur í Reykjavík. f) Ari Fannar,
f. 7. október 1988. Búsettur í
Neskaupstað. 2) Reynir Heiðberg,
f. 9. nóvember 1964. Búsettur í
Neskaupstað. 3) Ingvar Halldór,
f. 23. febrúar 1968, maki Lena
Pabbi dáinn, þetta var eins og að fá
þungann hnefa í hjartastað. Samt
vissi ég að stutt væri eftir af dvölinni
hans hérna á meðal okkar, og var bú-
inn undir þessa stund…hélt ég. En
svo var ekki í raun. Margs er að minn-
ast, en erfitt að koma orðum að
mörgu. Fyrsta minning mín um
pabba er þegar ég heimsótti hann í
spunaverksmiðjuna Gefjun á Akur-
eyri og fannst mikið til kalls koma að
ráða við svona svakalega stóra og
langa spunavél, og nokkur önnur óljós
minningarbrot á ég með honum á Ak-
ureyri. Eftir að við fluttum austur,
haustið 1970, er margs að minnast.
Það eru allar siglingarnar til Þýska-
lands aðallega, en líka ein til Eng-
lands. Ég byrjaði á sjó 14 ára sem full-
gildur háseti á Gunnari, en þá var
pabbi stýrimaður þar. Ég man hvað
það var skrítið til að byrja með, að
vinna við hlið kallsins en samt ákveðið
stolt að hann taldi mig „einn af sín-
um“.Ég réri á sumrin með honum í 4
ár og tengdist honum einhverjum
óséðum böndum sem hafa haldið í
gegnum tíðina, í gegnum súrt og sætt.
Þegar ég fékk bílpróf þá hafði pabbi
keypt sér Trabant sem var alveg rosa-
lega grænn en ég hafði nú tjáð honum
skýrt og greinilega, oftar en einu
sinni, að þessa druslu myndi ég aldrei
snerta. En það fór nú á annan veg, ég
held að ég hafi keyrt Trabbann miklu
meira á einu ári en hann á nokkrum
þeim næstu. Ég man líka að vinahóp-
urinn nefndi þennan bíl „grænu bylt-
inguna“ sökum þess hvað það var
virkilega gaman að rúnta á honum.
Eftir að ég flutti á Neskaupstað man
ég hvað ég hlakkaði alveg svakalega
til að hringja í hann út á sjó og kalla
hann löggildan afa, svo þegar ég
hringdi og tjáði honum tíðindin þá var
það fyrsta sem hann spurði um hvort
ekki hefði gengið vel hjá Sveinu, og
hvort allt væri í lagi.Síðan varð smá-
þögn í símanum og svo öskraði hann
upp „Ég er orðinn afi, strákar!!“ og
svo einhver öskur sem hefðu sæmt
indíána.
Hann var ekki margmáll maður um
sína hagi eða æsku, sumt fékk ég að
vita frá honum og annað frá mömmu,
en mest held ég að ég hafi fengið hjá
Dellu frænku en þar var ég nokkur
sumur í sveit. Sárt þótti mér þegar
pabbi kom suður í Ásgarð eitt sinn,
reyndar til að hjálpa til, en mér fannst
að hann væri kominn til að sækja mig
til Dellu og Dæna sem þýddi bara eitt.
Það var stutt í skólann og langt þar til
ég kæmist í sveitina mína aftur. En
kall huggaði mig og sagði að um leið
og skólinn yrði búinn að vori mætti ég
fara einn suður, aleinn, þá 10 ára. Og
sú tilhugsun ein var nóg til að ég sætt-
ist við hann aftur.
Pabbi var mjög ungur, sem og þau
systkini hans öll, þegar mamma hans
lést af slysförum á leið á milli bæja.
Þetta hafði mikil áhrif á hann og
skyldi eftir ör á sál það sem eftir var.
Svava systir hans réðst sem bústýra
til pabba þeirra, auk þess sem hún tók
við uppeldi hálfsystkina sinna, og varð
móðir sjálf sama sumar. Varð mjög
kært með þeim pabba og Svövu upp
úr því og allt þeirra líf. Kærleikur sem
ég skildi ekki fyrr en núna, þegar
hann er horfinn úr þessu jarðlífi. Sárt
sakna ég hans, en hugga mig við það,
að nú er hann kominn til sinna for-
eldra og systkina og þó aðallega
mömmu sinnar og verður hjá þeim í
annarri og betri veröld. Veröld friðar
og kærleika.
Annað slagið fórum við á rúntinn
saman, stundum í héraðið þegar hann
treysti sér til, en mest þó innanbæjar
og inn í Fannardal. Síðasta rúntinn út
fyrir bæinn fórum við á Fáskrúðs-
fjörð til að keyra í gegnum nýju göng-
in,hann hafði ekki séð þau, og kíkja í
kaffi til Vigga og Láru. Það var í síð-
asta skipti sem hann fór í kaffi þang-
að. Mikið hlakkaði hann til að verða
langafi og spurði mig mikið út í „litlu
dömuna“, hvort ekki væri allt í lagi
þar á bæ og gengi vel og líka um afas-
telpuna sem er væntanleg úti í Dana-
veldi. En honum hrakaði hratt síðustu
mánuðina og nú er hann farinn og
ekki verður úr því að hann berji döm-
urnar augum. Hann sér þær að hand-
an og mun vaka yfir þeim er ég viss
um. Handviss.
Pabbi greindist með illvígan
krabba 1997 og var ekki huguð lengri
jarðvist en einhverjir mánuðir, er
urðu að 9 árum. Flestum góðum, en
síðasta árið var erfitt. Hann lá inni á
spítala meira og minna síðasta ár,
hrakaði hratt og síðasta orrustan varð
stutt. Að morgni þess 10. nóvember,
er ég ætlaði inn í bæ og var að klæða
mig í skóna, skeði eitthvað. Ég varð
að fara fyrst út á spítala. Þegar þang-
að kom opnaði hann augun, þar sem
ég hélt í höndina á honum, og sagði
mér hátt og skýrt að hann væri að
fara og tók af mér loforð, sem ég játti.
Þetta er stund sem ég mun aldrei
skilja, því daginn áður var hann svo
máttfarinn að hann gat ekki mælt.
Þetta er það síðasta er ég talaði við
hann. Hann dó einni klukkustund síð-
ar. Hans vil ég minnast með þessum
fátæklegu orðum en þeim mun meira
mun ég minnast hans um aldur og ævi
og sakna hans. Lokaorðin mín verða
þau, er ég kvaddi hann alltaf með.
Blessaður gamli minn.
Birkir.
Stefán Jónsson
Þegar ég byrjaði
að vinna í Axel Ó var
verslunin til húsa á
Vestmannabrautinni.
En hugurinn og
krafturinn í fjölskyldunni var mik-
ill og tók nú fjölskyldan til hend-
inni. Skömmu síðar var búið að
opna þessa stórglæsilegu verslun á
Steindór Árnason
✝ Steindór Árna-son fæddist á
Vopnafirði 10. júlí
1953. Hann lést á
Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja 29. des-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Landa-
kirkju 6. janúar.
Bárustíg 6. Þennan
tíma sem ég þekkti
Steindór féll honum
aldrei verk úr hendi
og var boðinn og bú-
inn að hjálpa öllum í
kringum sig.
Ég þakka fyrir að
hafa kynnst manni
eins og Steindóri.
Hann var einstakur.
Elsku Bára,
Maggi, Bergey, Guð-
rún Bára, Anton
Smári og Karen Eir,
Stefán, Þórhildur og
Logi. Þið áttuð einstakan fjöl-
skylduföður.
Guð veri með ykkur.
Aðalheiður.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birt-
ist valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Minningargreinar