Morgunblaðið - 07.01.2007, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 55
AUÐLESIÐ EFNI
Saddam Hussein,
fyrr-verandi for-seti Íraks, var
hengdur í Bagdad 30.
desember sl.
Sjítar fögnuðu af-tökunni
en súnní-arabar for-dæmdu
hana. Íraska sjón-varpið
sýndi síðar frá því er snara
var sett um háls Saddam, og
lík hans var einnig sýnt eftir
af-tökuna.
Skiptar skoðanir eru hjá
stjórn-mála- og
trúarleið-togum heims um
hvort af-takan marki tíma-mót
í átt til friðar eða hvetji til enn
frekari átaka í
Mið-Austurlöndum.
Margaret Beckett,
utanríkis-ráðherra Bret-lands,
sagði að Saddam hefði þurft
að svara til saka fyrir
hræði-lega glæpi sína gegn
írösku þjóðinni en for-dæmdi
um leið dauða-refsinguna.
Tals-menn
Evrópu-sambandsins voru
sam-mála henni.
Mannréttinda-fulltrúi
Sam-einuðu þjóðanna, hefur
skorað á stjórn-völd í Írak að
taka ekki af lífi 2 gamla
samstarfs-menn Saddams.
Saddam Hussein tekinn af lífi
Reuters
Vopnaðir menn mót-mæla af-töku Saddams í Írak.
Ban Ki-moon
tók við stöðu
fram-
kvæmda-stjóra
Sam-einuðu
þjóðanna á
þriðju-daginn.
Hann sagði við
það tæki-færi
að ástandið í
Darfur væri efst á fram-
kvæmda-listanum. Hann
sagðist vonast til að finna
mætti friðsam-lega lausn á
borgara-stríðinu sem hefur
staðið þar í næstum 4 ár.
Kofi Annan var
framkvæmda-stjóri
Sam-einuðu þjóðanna í 10 ár
á undan Ban. Ban, sem var
utanríkis-ráðherra
Suður-Kóreu, er ráðinn
framkvæmda-stjóri SÞ til 5
ára.
Ban
Ki-Moon
tekinn við
Ban
Ki-moon
Jón Kalman fær
viður-kenningu
Rit-höfundurinn Jón
Kalman Stefánsson hlaut
hina ár-legu viður-kenningu
Rithöfunda-sjóðs
Ríkis-útvarpsins á
gamlárs-dag.
Viður-kenningunni fylgdi
600.000 króna styrkur.
Jón Kalman fékk ís-lensku
bókmennta-verðlaunin árið
2006 fyrir skáld-söguna
Sumar-ljós og svo kemur
nóttin og er nú til-nefndur fyrir
sömu bók til
Bókmennta-verðlauna
Norðurlanda-ráðs 2007 sem
verða veitt í byrjun mars.
Flug-vél lenti í ó-kyrrð
Þrír úr áhöfn hlutu minni
háttar meiðsli, er Boeing 757
farþega-þota Icelandair lenti í
gríðar-legri ókyrrð þegar hún
var hálfnuð á leið sinni til
Parísar á þriðju-daginn.
Matar-vagnar tókust á loft og
og flest laus-legt þeyttist um
far-rýmið
Far-þegunum var boðin
áfalla-hjálp þegar vélin lenti á
Charles de Gaulle
flug-vellinum í París.
Indiana Jones snýr aftur
Fjórða myndin um Indiana
Jones verður frum-sýnd á
næsta ári. Harrison Ford mun
leika aðal-hlutverkið sem fyrr,
en hann er nú orðin 64 ára.
Það hefur ekki verið
stað-fest hvort Sean Connery
muni leika föður hans. Fyrsta
myndin um kappann var
frum-sýnd árið 1981.
Stutt
Reynir Tómas Geirsson,
sviðs-stjóri kvenna-sviðs
LSH, segir að sala
Heilsuverndar-stöðvarinnar
við Barónsstíg séu stærstu
mis-tök sem gerð hafi verið í
heilbrigðis-kerfinu.
Ríki og borg seldu
einka-aðila
Heilsuverndar-stöðina fyrir
980 milljónir króna í lok árs
2005. Hús-næðið hefur
síðan verið aug-lýst til sölu.
Starf-semin er nú flutt í
leigu-húsnæði í Mjódd í
Breiðholti. Mið-stöð
mæðra-verndar þar á meðal
en sökum mann-eklu verður
ekki hægt að senda
sér-fræðinga um
áhættu-meðgöngu til starfa í
Mjóddinni.
Salan er
mis-tök
Flugstoðir ohf. og Félag íslenskra
flugumferðar-stjóra (FÍF) hafa undir-ritað
samkomu-lag og reiknað er með að
flugumferðar-stjórar ráði sig nú hjá
Flugstoðum ohf.
Flugstoðir ohf. er hluta-félag í eigu ríkisins
sem tók til starfa 1. janúar. Það sér um
flugvalla-rekstur og flugleiðsögu-þjónustu
fyrir innanlands-flug og alþjóð-legt flug yfir
N-Atlants-hafi. Aðeins 26 af 89
flugumferðar-stjórum réðu sig hjá
Flugstoðum því þeir voru óánægðir með
kjara-málin, þá sérstak-lega lífeyris-réttindin.
Þeir vildu njóta sömu kjara og þeir höfðu hjá
Flugmála-stjórn Íslands.
Sturla Böðvarsson samgöngu-ráðherra
sagðist ánægður með að náðst hefði
samkomu-lag milli deilu-aðila. Ólafur
Sveinsson, for-maður stjórnar Flug-stoða,
sagði að báðir aðilar væru sáttir og að öll
starf-semi flug-umferðar yrði nú eðli-leg á ný.
Báðir aðilar
sáttir
Morgunblaðið/ JT
Samgöngu-ráðherra með flugumferðar-stjórum.
For-seti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, sæmdi 14
Íslendinga riddara-krossi,
heiðurs-merki hinnar
íslensku fálka-orðu, á
Bessa-stöðum á nýárs-dag.
14 sæmdir
riddara-krossi
Morgunblaðið/Kristinn
For-seti Íslands Ólafur Ragnar ásamt riddarakross-höfunum.
Í vikunni var ljóst að Einar
Hólmgeirsson, leik-maður
Grosswallstadt og
landsliðs-maður í
handknatt-leik, verður frá
keppni í 8–10 vikur. Hann
getur því ekki tekið þátt í
heimsmeistara-mótinu í
handknatt-leik sem hefst í
Þýska-landi 19. janúar.
Einar fékk þungt högg á
þumal-fingur vinstri handar,
skot-handarinnar, í kapp-leik
á laugardaginn, svo lið-bönd í
fingrinum slitnuðu og hann
þarf að gangast undir
að-gerð.
Nú hefur því Einar Örn
Jónsson, leikmaður GWD
Minden í Þýskalandi, verið
kallaður inn í íslenska
lands-liðið í handknatt-leik í
stað hans.
Einar Hólmgeirs-
son er meiddur
Morgunblaðið/RAX
Einar Hólmgeirsson
Netfang: auefni@mbl.is