Morgunblaðið - 07.01.2007, Blaðsíða 59
sem hlykkjast um myndflötinn, um-
fram allt fjölþættan heim forma og
flata sem eins og spretta fram, djúpt
upp úr hugarheimi gerandans, hann
sækir ekki hugmyndir sem réttlæt-
ast af skólalærdómi fyrirlestum og
námsgráðum. Eins og hinn mikli
þýski málari Max Beckmann (Leip-
zig 1884 – New York 1950) orðaði
það fyrir margt löngu: Fræðikenn-
ingar geta ekki alfarið réttlætt
listina og í hæsta máta tímabært að
gera upp við ismana, láta listnjót-
andann um hvort mynd sé falleg,
slæm eða leiðinleg. Menn eiga ekki
að horfa með eyrunum heldur aug-
unum. Vissulega broddur í þeim
framslætti en líka auðvelt að snúa út
úr honum á ýmsa vegu.
Turner-verðlaunin hafa veriðárviss viðburður frá því1984, og eru ætluð fram-sæknum breskum lista-
mönnum yngri en 50 ára, og var
þetta því í 22 sinnið sem þau eru
veitt. En hin þýskfædda Tomma
Abts hefur sem fyrr segir lifað og
hrærst í listumhverfi Lundúna-
borgar í 12 ár og því geta breskir
eignað sér hana að hluta og má land-
inn ýmislegt læra af því. Nefnilega
yfirmáta neyðarlegt þegar hérlendir
hlaupa upp til handa og fóta og
ásaka Dani um að eigna sér Ólaf Elí-
asson, til þeirra sækir hann nefni-
lega uppeldi sitt, menntunargrunn,
uppörvun og frama, öllu nærtækara
að þakka þeim og velta því fyrir sér
hvernig honum hefði vegnað við hér-
lendar aðstæður.
Því er líka haldið fram að með því
að flytjast til Lundúna 1995 hafi
Tomma Abts forðað sér frá því að
verða hlutlægu sprengjunni að bráð,
áhrifum frá þeirri bylgju og lista-
mönnum eins og Neo Rauch, Daniel
Richter eða Jonatan Reese, frásagn-
arlegt hlutlægt myndmál átti trú-
lega síður við skapgerð hennar.
Vinnulagið allt annað og á stundum
líða ár áður en endanlegt form er
komið á sum málverkanna og undir
hinum sléttu og fastmótuðu mynd-
heildum eru gjarnan aðrar sem hafa
lifað sínu lífi á leiðinni að lokamark-
inu. Engin tilgerð hér á ferð, ein-
ungis hugað að listinni, engar nafn-
leysur né tilvísanir um að snerta
ekki verkin, og til þess tekið að
nöfnin sem hún velur falla ísmeygi-
lega vel að myndheildunum: Zeyn,
Ehme, Ert, Pabe, Koeme, Emo,
Teete, Taade og svo áfram …
– Myndverk Tommu Abts og
hinna þriggja sem komust í úrslit
eru til sýnis í Tate Britain til 14. jan-
úar. Þeir eru myndhöggvarinn Re-
becca Warren, ljósmyndarinn og
myndbandalistamaðurinn Phil Coll-
ins og innsetningalistamaðurinn
Mark Titchner …
ner-verðlaunin
Hnitmiðaðar sjónhverfingar Teete 2003, olía á léreft.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 59
Styrkir úr Forvarnasjóði 2007
Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði.
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að forvörnum á sviði áfengis- og
vímuvarna og eru styrkir veittir til verkefna eða afmarkaðra rannsókna.
Lögð er áhersla á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist
börnum og ungmennum á mismunandi skólastigum eða ungu fólki utan skóla.
Þá er auglýst sérstaklega eftir verkefnum sem taka til félagslegrar stöðu ungs
fólks og ungs fólks af erlendum uppruna. Mikilvægt er að í umsókninni sé gerð
grein fyrir því hvernig hægt sé að meta árangur verkefnisins.
Lýðheilsustöð metur umsóknirnar í samstarfi við áfengis- og vímuvarnaráð og
er áskilinn réttur til að senda umsóknir til umfjöllunar fagaðila og óska eftir
nánari upplýsingum um verkefni, framkvæmdaaðila og fjármögnun. Einnig
áskilja styrkveitendur sér rétt til að skilyrða styrkveitingar og ákveða að styrkir
verði greiddir út í samræmi við framvindu verkefnis. Sé sótt um styrk til
framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2007 og skal sótt um á eyðublöðum sem
eru á heimasíðu Lýðheilsustöðvar, www.lydheilsustod.is. Styrkir, sem
veittir eru á árinu, skulu sóttir fyrir 31. desember 2007.
Nánari upplýsingar fást í síma 5 800 914, hjá rafn@lydheilsustod.is eða á heimasíðunni:
www.lydheilsustod.is
ÚTSALAN
hefst mánudaginn 8. janúar
Meyjarnar Austurveri, Háaleitisbraut 68,sími 553 3305.
TRÉSKURÐUR
Námskeið í myndskurði og öskjugerð hefst 16. janúar.
Kennt verður á gamalgrónu verkstæði á Laugavegi 100.
Örn Sigurðsson myndskeri og húsgagnasmíðameistari.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 848 8659.
sveitarinnar en það eru plöturnar
Sgt Pepper’s Lonely Hearts Club
Band, Abbey Road, Revolver,
Help!, Let It Be og With The
Beatles.
Eins og venja er verður þó mynd
af Elísabetu Englandsdrottningu
ekki langt undan en skuggamynd
af henni prýðir eitthvert horna
hvers frímerkis.
Sargent Pepper’s Lonely Hearts
Club Band.
Help.
Talsverð ættleiðingagleði virðisthafa gripið um sig hjá Holly-
wood-búum og berast nú reglulega
fréttir af þekkt-
um ein-
staklingum sem
hyggjast ættleiða
bágstödd börn.
Kvikmynda-
leikkonan Jenni-
fer Aniston hef-
ur nú að sögn
bæst í hópinn en
hún er sögð vera
að íhuga alvarlega að ættleiða barn.
Leikkonan mun vera að endurmeta
gildismat sitt og forgangsröðun í
kjölfar sambandsslitanna við Vince
Vaughn.
„Jennifer segist hafa farið að
endurmeta forgangsröðun sína eftir
að eins og hálfs árs sambandi henn-
ar við Vince lauk,“ segir ónefndur
heimildarmaður tímaritsins Nation-
al Enquirer „Hún er 37 ára og það
að ættleiða barn myndi vera skref í
átt til þess að festa rætur án þess
að hún þurfi að kvíða framtíðinni.
Hún segist helst vilja eignast son.
Það er það sem hún finnur í hjarta
sér.“
Þá segir heimildarmaðurinn
ónefndi að hana dreymi einnig um
að fæða barn en hún hafi fengið
nóg af ástarsam-
böndum í bili og
geti ekki hugsað
sér að fara á
stefnumót sem
stendur.
„Ættleiðing er
eitthvað sem hún
og Brad ræddu
þegar þau voru
gift, áður en nú-
verandi maki hans Angelina Jolie
ættleiddi sitt fyrsta barn,“ segir
heimildarmaðurinn upplýsti jafn-
framt og vísar þar til Brad Pitt,
fyrrum eiginmanns Aniston, sem
fer nú með forræði tveggja ætt-
leiddra barna Jolie auk þess sem
hann á með henni eina dóttur.
Fólk folk@mbl.is