Morgunblaðið - 07.01.2007, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 61
menning
JÓGA – DANS – PILATES
www.man.is
MANNRÆKT Í MOSÓ
GAMANLEIKARINN Will Ferrell
virðist ætla að leika sama leikinn og
Jim Carrey, en Ferrell hefur smám
saman verið að feta sig úr trúðs-
hlutverkinu yfir í „alvarlegri“ hlut-
verk í kvikmyndavali sínu. Aðahlut-
verk Ferrells í Skrýtnara en
skáldskapur eða Stranger than Fict-
ion er gott dæmi um þetta, en hér er
á ferðinni kvikmynd sem á ýmislegt
sameiginlegt með The Truman
Show, kvikmyndinni þar sem Jim
Carrey sannaði breidd sína sem leik-
ari. Skrýtnara en skáldskapur teflir
fram frumlegu handriti sem snýr
veruleikalögmálunum á hvolf, þó svo
að ekki sé beinlínis hægt að setja
hana í sama gæðaflokk og fyrr-
nefnda Truman Show. Í Skrýtnara
en skáldskapur segir af einstæð-
ingnum Harold Crick (Will Ferrell),
sem er starfsmaður hjá skattinum
og lifir mjög regluföstu lífi. Dag einn
heyrir Harold undarlega rödd af
himnum ofan sem lýsir daglegum at-
höfnum hans um leið og þær eiga sér
stað. Þegar röddin tekur að lýsa því
sem á eftir að koma fyrir Harold, fer
hann að gruna að hann sé að-
alpersónan í sögu, og að röddin á
himnum sé rödd sögumannsins.
Þegar röddin hins vegar spáir fyrir
um sviplegt fráfall Harolds líst hon-
um ekki á blikuna og leitar ráða hjá
bókmenntafræðiprófessor (Dustin
Hoffman) um hvernig færa megi
sagnasmíðina til betri vegar.
Kostir myndarinnar felast í frum-
legu handriti og skemmtilegri sjón-
rænni útfærslu á þeim veru-
leikasnúningum sem hún gengur út
á. Þegar öllu er á botninn hvolft eru
þó róttækir möguleikar í handritinu
ekki nógu vel nýttir og lausnirnar á
þeim vandamálum sem þar koma
fram oft of einfeldningslegar. Mynd-
in er vel búin leikurum, Will Ferrell
túlkar hinn dauðyflislega Harold
einkar vel og Maggie Gyllenhaal er
mjög góð í hlutverki stúlkunnar sem
Harold verður skotinn í. Þá er Dust-
in Hoffman góður að vanda, þó svo
að persóna hans, sem er hreinlega
ekki nógu skemmtilega útfærð, setji
honum ákveðnar hömlur. Engu að
síður getur myndin talist nokkuð vel
heppnuð, einkum framan af, sökum
frumlegs efniviðar og skemmtilegra
vangaveltna um samband lífsins og
skáldskaparins.
Alvarlegur „Will Ferrell túlkar hinn
dauðyflislega Harold einkar vel.“
Sögu-
flétta
lífsins
KVIKMYNDIR
Sambíóin Álfabakka, Kringlunni
og Akureyri
Leikstjórn: Marc Forster. Aðahlutverk:
Will Ferrell, Maggie Gyllenhaal, Emma
Thompson, Dustin Hoffman og Queen
Latifah. Bandaríkin, 113 mín.
Skrýtnara en skáldskapur (Stranger than
Fiction) Heiða Jóhannsdóttir