Morgunblaðið - 07.01.2007, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 71
Glæsilegar sérferðir
Heimsferðum er sérstök ánægja að kynna
sérferðir sínar fyrir vor og sumar 2007.
Framboðið hefur aldrei verið glæsilegra en í ár
og ættu flestir að geta fundið spennandi ferð
við sitt hæfi sem býður ævintýri, upplifanir
og ógleymanlegar minningar. Heimsferðir
óska þér og þínum góðrar ferðar hvert sem
leiðin liggur á árinu 2007.
Kynntu þér glæsilegan sérferðabækling okkar
sem dreift er með blaðinu í dag eða á
www.heimsferdir.is
Heimsferða 2007
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
25
43
4
Kína – páskaferð 1.-14. apríl
Marokkó og Andalúsía 14.-24. apríl
Evrópskar borgarperlur 7.-16. maí
Vorið í Mont Tremblant 17.-24. maí
Perlur Búlgaríu 21.-28. maí
Perlur Slóveníu 27. maí - 3. júní
Perlur Grikklands 30. júní - 14. júlí
Ævintýri í Kanada 12.-19. júní
Gardavatn 29. júlí - 5. ágúst
Búlgaría – Rúmenía 30. júlí - 13. ágúst
Þvert yfir Alpana 12.-26. ágúst
Montreal og Québec 23.-30. ágúst
5 landa sýn á Balkanskaga 26. ágúst - 9. sept.
Katalónía 31. ágúst - 14. sept.
Bled í Slóveníu 2.-9. september
Ítölsku Alpavötnin 9.-16. september
Ítalska rivíeran – Rapallo 16.-23. september
Gönguferðir
• Cinque Terre
• Norður-Spánn
• Á göngu í Kanada
• Slóvenía – Júlíönsku Alparnir
• Á mótum þriggja landa (göngu- og hjólaferð)
Glæsisiglingar
• Töfrar Miðjarðarhafsins
• Adría- og Eyjahafssigling
• Gersemar Miðjarðarhafsins
• Gríska-Eyjahafið og Rhodos
• Fornar menningarslóðir Grikklands
og Tyrklands
FLJÚGANDI lofbelgir eru ekki
dagleg sjón í Sydney en auk þess að
vera fallegir gegna þessir belgir
ákveðnum tilgangi. Þeir eru hluti
af verkefni sem nefnist Hljómsveit
himinsins og eru listaverk eftir
Luke Jerram. Hugmyndin að verk-
inu er sprottin af rannsóknum á
hvaða áhrif tónlist hefur á drauma
fólks en loftbelgirnir flugu rétt yfir
borginni snemma í gærmorgun
með áföstum hljóðbúnaði sem lék
mismunandi tónlist.
Svífandi
drauma-
loftbelgir
Reuters
STAÐFEST hefur verið að leik-
arinn Mike Myers komi til með að
fara með hlutverk Who-tromm-
arans Keith Mo-
on í mynd um
æviferil hans.
Fyrrum hljóm-
sveitarfélagi Mo-
on, Roger Dalt-
rey, er sagður
hafa haft hönd í
bagga með ráðn-
ingu Myers í
hlutverkið, en
Daltrey hefur unnið að gerð mynd-
arinnar undanfarinn áratug ásamt
framleiðandanum Nigel Sinclair
(No Direction Home: Bob Dylan,
Terminator 3 og Sliding Doors).
Þeir félagar eru nú að leita að
leikstjóra fyrir myndina sem mun
bera titilinn See Me, Feel Me:
Keith Moon Naked For Your
Pleasure (Sjáðu mig, finndu mig:
Keith Moon nakinn þér til ynd-
isauka).
Moon var þekktur fyrir villt líf-
erni auk afreka á tónlistarsviðinu.
Hann lést árið 1978 eftir of stóran
skammt af lyfinu chlormethiazole,
lyfi sem hann tók í baráttu sinni
við Bakkus.
Moon var 32 ára þegar hann lést
en Myers er 44 ára.
Myndin er væntanleg í kvik-
myndahús árið 2009.
The Who Standandi eru Pete
Townshend og John Entwistle en
Keith Moon og Roger Daltrey sitja.
Myers verð-
ur Moon
Mike Myers
Nýjustu mynd leikarans RussellCrowe er slátrað í gagnrýni í
fjölmiðlum í Frakklandi.
Myndin nefnist A Good Year og
fjallar um Englending búsettan í
Frakklandi. Svo virðist sem Frakk-
ar séu ekki á eitt sáttir með þá mynd
sem dregin er upp af löndum þeirra í
myndinni.
Dagblaðið Liberation segir mynd-
ina „ömurlega“ og sakar leikstjór-
ann Ridley Scott um að notfæra sér
hverja einustu klisju sem til er á
hvíta tjaldinu.
Skríbent Le Parisien segir meðal
annars í kaldhæðni: „Það er greini-
lega á allra vitorði að Frakkar eru
fúlir og skítugir, ganga í sandölum
og keyra eldgamla bíla.“
Í myndinni leiða þeir Crowe og
Scott saman hesta sína í fyrsta sinn
síðan í kvikmyndinni The Gladiator.
Eitthvað virðist þeim vera að bregð-
ast bogalistin í samstarfinu en A Go-
od Year fékk einnig mjög litla að-
sókn í Bandaríkjunum. Einnig settu
margir breskir og bandarískir gagn-
rýnendur spurningarmerki við þá
ákvörðun að láta hasarmyndaleikara
frá Nýja-Sjálandi fara með róm-
antískt gamanhlutverk.
Myndin er lauslega byggð á met-
sölubók Peters Mayle, A Year In
Provence.
Fólk folk@mbl.is