Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 17. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is AÐ LESA Í BOLLA ER ALDAGÖMUL HEFÐ OG NÚ FER SÁ LESTUR FRAM Á NETINU >> 20 HEIMSFRUMSÝNING Í KASSA ÞJÓÐLEIKHÚSSINS SÆLUEYJAN VÍSINDASKÁLDSKAPUR >> 41 NÁI tillaga stjórnarskrárnefndar fram að ganga verða þjóðaratkvæða- greiðslur um stjórnarskrárbreyting- ar mögulegar. Fyrst þyrftu þó 2⁄3 hlut- ar þingmanna að samþykkja tillögu þess efnis. Um er að ræða breytingu á 79. grein stjórnarskrárinnar sem kveður á um að tvö þing, með kosn- ingum inni á milli, þurfi að samþykkja allar breytingar sem gerðar eru á stjórnarskrá. „Með þessu erum við að gera mögulegt að fjalla um stjórnar- skrárbreytingarnar einar í kosning- um en að það skyggi ekki einhver dægurmál önnur á,“ segir Jón Krist- jánsson, formaður nefndarinnar, en bætir við að hugsanlega verði mögu- legt að koma í gegn smávægilegum breytingum með „gamla laginu“. Össur Skarphéðinsson, sem situr í nefndinni, segist styðja þessa breyt- ingu en að það séu vonbrigði að ekki hafi náðst samstaða um frekari breyt- ingar, t.d. um sameign á þjóðarauð- lindum. „Við erum þó í prinsippinu á móti þátttökuþröskuldum en á það var ekki sæst, og þetta var niðurstað- an,“ segir Össur og vísar til þess að 25% kosningabærra manna þurfi að kjósa með tillögunum svo þær fari í gegn. Samið um þjóðaratkvæði Stjórnarskrárnefnd náði samkomulagi um breytingu á 79. gr. Össur Skarphéðinsson Jón Kristjánsson Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is HILLARY Rodham Clinton öldungadeild- arþingmaður, sem talin er líklegust til að verða forsetaefni demókrata í Bandaríkjun- um í kosningunum á næsta ári, vill fjölga í herliðinu í Afganistan. Hún er hins vegar andvíg áformum George W. Bush forseta um að senda meira lið til Íraks. Segir hún áætlun forsetans vera „stefnu ósigurs“. Clinton studdi innrásina í Írak og vill ekki kalla herinn heim að svo stöddu. Hún var nýlega í Afganistan og Írak og hitti að máli bandaríska hershöfðingja. Sagði Clinton í gær að átökin í Afganistan hefðu einkennst af „glötuðum tækifærum“, fjölga yrði í liði bandamanna áður en talíbanar hæfu vor- sókn sína. „Einbeitum okkur að Afganistan og förum rétt að hlutunum,“ sagði Clinton. Múlla Omar undir vernd Pakistana? Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, gaf einnig í skyn í gær að hann vildi fjölga í liðinu í Afganistan en þar eru nú alls um 24.000 Bandaríkjamenn. Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalags- ins, Jaap de Hoop Scheffer, sagði að Pakist- anar yrðu að hindra talíbana í að laumast hindrunarlaust yfir landamæri ríkjanna tveggja. Fyrrverandi talsmaður talíbana, sem handtekinn var í vikunni, sagði í yf- irheyrslum að leiðtogi talíbana, múlla Om- ar, væri í borginni Quetta í Pakistan og nyti þar verndar ISI, leyniþjónustu Pakistana. Clinton vill meira lið til Afganistans Andvíg áætlun Bush um fleiri hermenn til Íraks Sammála um herlið Robert Gates, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna og Hillary Rodham Clinton öldungadeildarþingmaður. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is HEIMILT verður að flytja árlega til landsins tæplega 900 tonn af landbúnaðarvörum, þar af 650 tonn af kjötvörum samkvæmt samkomu- lagi sem Ísland og Evrópusam- bandið hafa náð um viðskipti með landbúnaðarvörur. Jafnframt fær Ísland að flytja út tollfrjálst til ESB 850 tonn af skyri, smjöri og pylsum og 1.350 tonn af lambakjöti. Tolla- breytingarnar taka gildi 1. mars nk. Samkomulagið við ESB felur einnig í sér að almennir tollar á kjötvörum verða lækkaðir um allt að 40%. „Þetta er nokkuð afgerandi niðurstaða og ætti að lækka mat- arverð í landinu. Í þessu felast einn- ig sóknarfæri fyrir íslenskan land- búnað. Ég hef trú á að það skipti verulegu máli fyrir landbúnaðinn að fá markaðsaðgang fyrir skyr og smjör og lambakjöt,“ sagði Valgerð- ur Sverrisdóttir utanríkisráðherra um þá niðurstöðu sem nú er fengin. Valgerður sagði að unnið væri að alþjóðlegu samkomulagi um við- skipti með landbúnaðarvörur, í svo- kölluðum Doha-viðræðum. Hugsan- lega yrðu þar stigin skref sem leiddu til frekari tollalækkana. „Við erum að þoka okkur inn á þessa braut. Ég hef trú á að áfram verði unnið að tollalækkunum og bættum markaðsaðgangi.“ Frekari tollalækkanir  Heimilt verður að flytja tollfrjálst inn um 900 t af landbúnaðarvörum  Við fáum að flytja til Evrópusambandsins 850 t af skyri, smjöri og pylsum Í HNOTSKURN »Samningurinn heim-ilar ESB að flytja inn tollfrjálst 100 tonn af nautakjöti, 200 tonn af svínakjöti og 200 tonn af alifuglakjöti. » Ísland mun geta fluttút til ESB 380 tonn af skyri og 350 tonn af smjöri.  „Ætti að lækka …“ | 12 OLÍUVERÐ á mörkuðum seig enn í gær og endaði tunnan af Brent-olíu í London í 51,89 dollurum, að sögn AFP-fréttastofunnar. Þess má geta að verðið fór í um 78 dollara tunnan seinni hluta nýliðins ár. Verðið hefur lækkað um 16% frá áramótum. Síð- ast fór markaðsverðið niður undir 50 dollara í júní 2005. Þá kostaði lítr- inn hér á landi af 95 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu um 107 krónur hjá Esso, svo að dæmi sé nefnt, en kost- ar nú um 111 krónur. Margt veldur lækkandi heims- markaðsverði á olíu, meðal annars var veðurfar í Bandaríkjunum og V- Evrópu hlýrra en búist hafði verið við í vetur og því minna notað en ella af kyndingarolíu. Hret sem skall á vestra fyrir nokkrum dögumgetur síðan aftur breytt myndinni. Íranar og Venesúela-menn vilja að framleiðsla samtaka olíu- útflutningsríkja, OPEC, verði minnkuð til að tryggja að verð hald- ist hátt. En Sádi-Arabar, sem ráða yfir mestu olíulindunum, segja enga þörf á slíkum aðgerðum. Olíuverð lækkar enn á mörkuðum Reuters MAGNÚS Magnússon, fræðimað- ur og fyrrum þáttastjórnandi hins vinsæla spurningaþáttar Mast- ermind hjá BBC í aldarfjórðung var borinn til grafar í sóknarkirkj- unni í Baldernock nærri Glasgow í gær að viðstöddu fjölmenni. Vigdís Finnbogadóttir, fv. for- seti Íslands, var viðstödd athöfn- ina og lýsti því hvað Magnús hefði verið stoltur af ætterni sínu. Við útförina voru leikin tvö íslensk lög. Magnús fæddist í Reykjavík 1929 en hlaut menntun sína í Ed- inborg þar sem faðir hans var ræð- ismaður Íslands. Magnús hlaut framhaldsmenntun sína í Oxford og hóf síðan störf við blaða- mennsku og fræðimennsku jöfnum höndum uns hann réði sig til BBC. Hann var íslenskur ríkisborgari alla tíð og talaði reiprennandi ís- lensku. Magnús var heiðraður af Elísabetu II Englandsdrottningu 1987 sem gerði hann að heið- ursriddara bresku krúnunnar. Hann lést 7. janúar sl., 77 ára gam- all, úr krabbameini. Magnús jarð- sunginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.