Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „HÚN er alveg frjáls að því að bjóða sig fram og það verður landsfundur sem sker úr um það,“ segir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins, um framboð Mar- grétar Sverrisdóttur í embætti vara- formanns flokksins, en kosið verður um það á landsþingi 27. janúar nk. Hann kveðst ekki styðja framboð Margrétar. „Nei, ég styð minn vara- formann sem hefur reynst vel í starfi,“ segir Guðjón. Magnús Þór Hafsteinsson hafi unnið gott starf innan Frjálslynda flokksins og ótímabært sé að takast á um forystu- menn í aðdraganda kosninga. Margrét sagði þegar hún tilkynnti framboð sitt að hún vildi forðast klofning innan flokksins. Guðjón segir að henni hljóti að vera kunnugt um eitthvað sem stefni til klofnings í flokknum, eins og hún orði það. „Ég vissi ekki til þess að það væru slíkar hugrenningar á bak við hennar hugsanir, að við stæðum frammi fyr- ir klofningi,“ segir Guðjón. Hann viti ekki hverjir ætli að standa fyrir klofningi í flokknum. Sér enga ástæðu til að takast á um breytta forystu Guðjón segir að samstarf þeirra Margrétar hafi verið ágætt sem og samvinna allra sem unnið hafi að framgangi flokksins fram að þessu. Fylgi flokksins hafi aukist og flokks- mönnum fjölgað. „Þess vegna sé ég enga ástæðu til þess að takast á um breytta forystu.“ Guðjón segir það ekki koma sér á óvart að Margrét hafi ekki sóst eftir formannsembætti í flokknum. „Mér kemur ekkert á óvart. Það geta margir fleiri gefið kost á sér til trúnaðarstarfa í flokkn- um en Margrét Sverrisdóttir og það kemur mér ekkert á óvart, það hefur hver þann lýðræðislega rétt.“ Spurður um þau ummæli Mar- grétar að mikilvægt sé að konur skipi æðstu stöður til jafns við karla segist Guðjón vilja benda á að Mar- grét hafi gegnt mörgum stöðum inn- an flokksins; stöðu framkvæmda- stjóra flokks og þingflokks, ritara, séð um fjármál, setið í miðstjórn, framkvæmdastjórn og ritnefnd flokksins. Morgunblaðið/Golli Styður Magnús Guðjón A. Kristjánsson segir Magnús Þór Hafsteinsson hafa staðið sig vel sem varaformaður. „Styð minn varaformann sem hefur reynst vel“ MAGNÚS Þór Hafsteinsson, varafor- maður Frjálslynda flokksins, sem til- kynnt hefur að hann gefi áfram kost á sér í embættið, segir ákvörðun Mar- grétar Sverrisdóttur ekki koma sér á óvart. „Hún hefði náttúrlega mátt til- kynna þetta fyrr, en hún er búin að halda flokksstarfinu nánast í úlfa- kreppu vikum saman og hefur slegið úr og í og kemur núna loksins með þessa yfirlýsingu, örfáum dögum fyrir lands- þing,“ segir Magnús. Hann segir ljóst að þingflokkur Frjálslyndra styðji sig til áframhald- andi setu í varaformannsembættinu. Bæði Guðjón A. Kristjánsson og Sig- urjón Þórðarson hafi lýst því yfir. „Þingflokkurinn kærir sig ekki um Margréti sem varaformann,“ segir Magnús. Næði hún kjöri yrði hún því varaformaður í óþökk formannsins. „Ég trúi því að það geti orðið svolítið snúið, bæði fyrir hana og flokkinn.“ Efnt til óvinafagnaðar Magnús segir að reikna megi með að baráttan um varaformannsembættið verði hörð. „Okkur finnst að það hafi verið mjög ódrengilega að okkur vegið um langa hríð. Við höfum setið undir ýmsu ámæli sem við höfum látið ósvar- að fram til þessa en nú er búið að draga þetta fram og það er barátta fram- undan, því er ekkert að leyna.“ Magnús segir áhugavert að skoða aðdragandann að framboði Margrétar. „Hún er búin að vera að undirbúa þetta lengi. Fyrst eru búnir til óvinir eða efnt til óvinafagnaðar með blásaklausu fólki,“ segir hann. Margrét, og faðir hennar einnig, hafi látið hastarleg og niðrandi ummæli falla um fólk sem gengið hafi til liðs við flokkinn. „Svo er búinn til málefnaágreiningur og farið að tala um rasisma í umræðu sem Margrét fagnaði mjög til að byrja með. Þar næst er hjólað í þingflokkinn og þingmenn flokksins niðurlægðir á op- inberum vettvangi. Síðan er búið til framboð og þá er það látið líta út eins og það sé einhver sátt sem felist í því framboði,“ segir Magnús. Margrét hafi farið fremst í flokki í því að skapa ófrið, úlfúð og illindi innan flokksins. Það sé einkennilegt að ætla að fara að rétta fram sáttahönd núna eftir það sem á undan er gengið. Margrét sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að það væri mat sitt að það myndi styrkja Frjálslynda flokk- inn að kona gegndi öðru æðsta emb- ætti hans. Magnús segir Margréti tala um að hún vilji komast í forystu flokks- ins, en þar hafi hún verið allan tímann. Eitt af andlitum flokksins út á við og talsmaður hans „Hún er búin að vera eitt af andlit- um flokksins út á við, eða talsmaður, og við höfum beitt henni mjög sem slíkri, langt umfram það sem gert er hjá öðrum stjórnmálaflokkum varð- andi framkvæmdastjóra. Hún er ritari flokksins, fjármálastjóri og prókúru- hafi, í miðstjórn, í fjármálaráði og framkvæmdastjórn. Þá hefur hún leitt framboðslista í öllum kosningum sem flokkurinn hefur tekið þátt í þannig að hún getur ekki alveg sagt það og staðið við það að hún hafi ekki verið í forystu þessa stjórnmálaflokks,“ segir Magn- ús. Magnús segir að reikna megi með harðri baráttu „Hún hefði mátt tilkynna þetta fyrr“ ALLS greindust 108 einstaklingar á sýklafræðideild LSH með salmonellu á árinu 2006 og er það svipaður fjöldi og á sl. fimm árum. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Farsóttafrétta. Við athugun á uppruna smits eftir löndum árin 2005 og 2006 kom í ljós að fjöldi tilfella af innlendum uppruna var svipaður milli ára, en nokkuð breytilegt var hvar íslenskir ferða- menn smituðust erlendis. Árið 2005 greindust langflestir með smit eftir dvöl á Spáni, eða 33 einstaklingar, en 2006 fækkaði til- fellum frá Spáni töluvert, eða niður í 23. Enn meiri munur milli ára er á tölum frá Búlgaríu. Árið 2005 greind- ist enginn með salmonellu eftir ferð til Búlgaríu, en 2006 greindust 23 til- felli. Í Farsóttafréttum er tekið fram að á þessu sé einföld skýring sem sé sú að árið 2005 voru engar skipulagðar ferðir til Búlgaríu frá Íslandi, en árið 2006 buðu tvær ferðaskrifstofur hér- lendis upp á ferðir þangað. Ítrekað er að ekki sé hægt að draga ályktun um hættu á smiti í mismunandi löndum með því að horfa eingöngu á fjölda til- fella sem koma þaðan. „Til að fá ein- hverja hugmynd um smithættu í hverju landi þarf að liggja fyrir vitn- eskja um heildarfjölda íslenskra ferðamanna þangað, en þær upplýs- ingar eru ekki fyrir hendi,“ segir í Farsóttarfréttum. Salmonella berst nær undantekn- ingarlaust til fólks með matvælum. Samkvæmt ráðleggingum á: www.doktor.is ætti fólk að forðast matvæli sem kunna að vera menguð. Bent er á að ferska ávexti ætti að þvo vandlega og síðan afhýða. Grænmeti og salat þurfi einnig að þvo áður en þess er neytt. Forðast eigi illa soðinn eða steiktan mat sem og sósur og majónes sem ekki hefur verið geymt við nægilega köld skilyrði. Einnig ætti að forðast ósoðið vatn, þar með talið ísmola. Morgunblaðið/Ómar Ráðleggingar Til að varast salmonellusmit á ferðalögum erlendis er gott að þvo allt grænmeti og ávexti vel og forðast illa soðinn eða steiktan mat. Fleiri ferðamenn smitast í Búlgaríu SAMKOMULAG Íslands og Evr- ópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvör- ur kveður á um að heimilt verði að flytja til landsins tæplega 900 tonn af landbúnaðar- vörum, þar af 650 tonn af kjötvör- um. Á móti fær Ísland að flytja út tollfrjálst til ESB 850 tonn af skyri, smjör og pylsum og 1.350 tonn af lambakjöti. Tollabreytingarnar taka gildi 1. mars næstkomandi. Áfram unnið að lækkun tolla Valgerður Sverrisdóttir utanríkis- ráðherra sagði að þessi niðurstaða væri í samræmi við það sem lagt var upp með. Stefnt hefði verið að því að lækka almenna tolla á kjötvörum um 40%. „Þetta er nokkuð afgerandi niðurstaða og ætti að lækka matar- verð í landinu. Í þessu felast einnig sóknarfæri fyrir íslenskan landbún- að. Ég hef trú á að það skipti veru- legu máli fyrir landbúnaðinn að fá markaðsaðgang fyrir skyr og smjör og lambakjöt.“ Aðspurð sagði Valgerður að það mætti deila um hvort þetta væri nægilega mikið magn af kjöti sem heimilt yrði að flytja inn tollfrjálst. „Við erum að þoka okkur inn á þessa braut. Ég hef trú á að áfram verði unnið að tollalækkunum og bættum markaðsaðgangi,“ sagði Valgerður og vísaði þar til Doha-viðræðnanna sem nú er unnið að því að hrinda af stað að nýju. Þar ráði hins vegar Bandaríkin og ESB mestu um þróun mála. Samkomulag við ESB um lækkun tolla Bráðabirgðasamkomulag við ESB náðist fyrir jól og það var efnislega samþykkt af aðildarríkjum ESB á þriðjudag. Í lok ársins 2005 hafði náðst samkomulag milli aðila um viðskipti með landbúnaðarvörur en í ljósi breyttra aðstæðna var ákveðið að seinka gildistíma samkomulags- ins til 1. mars nk. og freista þess að ná fram frekari lækkun á tollum og eða bættum markaðsaðgangi í við- skiptum. Samkvæmt samkomulaginu verð- ur fullt tollfrelsi í viðskiptum Íslands og ESB með hesta, hreindýrakjöt í heilum og hálfum skrokkum, tóm- ata, agúrkur og vatn. Sömuleiðis verður full tollfrelsi í viðskiptum með blóm og plöntur, þ.m.t. jólatré, þó ekki afskorin blóm eða potta- plöntur undir metra á hæð. Tollar af frosnu grænmeti verða felldir niður. Þessi atriði eru hluti af samkomu- laginu frá 2005. Það sem er nýtt er að Ísland mun lækka tolla á kjöti og kjötafurðum um allt að 40% í 2. kafla í tollskránni. Það er ennfremur nýjung að Ísland mun veita ESB tollkvóta án aðflutn- ingsgjalda á eftirfarandi vörum: nautakjöt 100 tonn, svínakjöt 200 tonn, alifuglakjöt 200 tonn, pylsur 50 tonn [var 15 tonn], unnar kjötvörur 50 tonn, skinka 50 tonn, kartöflur 100 tonn [var 25 tonn], rjúpa 20 tonn [var 15 tonn] og ostar 100 tonn [var 20 tonn]. Á móti mun ESB veita Íslandi tollkvóta án aðflutningsgjalda á eft- irfarandi vörum: lambakjöt 1.850 tonn [var 1.350 tonn fyrir samkomu- lagið frá 2005 en hækkaði þá um 500 tonn], skyr 380 tonn, smjör 350 tonn [var 20 tonn] og pylsur 100 tonn [var 15 tonn]. Efnislegri umfjöllun um sam- komulagið af hálfu ESB er lokið og einungis tæknileg og formleg úr- vinnsla eftir, s.s. þýðingar og full- gildingarferli. Stefnt er að því að skrifa undir samninginn í febrúar þannig að hann taki gildi 1. mars nk. „Ætti að lækka matarverð í landinu“ Heimilt að flytja inn um 900 tonn af landbúnaðarvörum Í HNOTSKURN »Samkomulagið gerir ráðfyrir að heimilt verði að flytja inn tollfrjálst 100 tonn af nautakjöti, 200 tonn af svína- kjöti, 200 tonn af alifuglakjöti, 50 tonn af pylsum, 50 tonn af unnum kjötvörum og 50 tonn af skinku. » Ísland fær að flytja út toll-frjálst til ESB 1.850 tonn af lambakjöti, 380 tonn af skyri, 350 tonn af smjöri og 100 tonn af pylsum. Valgerður Sverrisdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.