Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 29 Fjársterkur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi á sunnanverðu Seltjarnarnesi. Verðhugmyndir eru 80-150 millj. Góðar greiðslur í boði. Nánari upplýsingar veitir Hákon Jónsson lögg. fasteignasali. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali EINBÝLISHÚS Á SELTJARNARNESI MÉR brá í brún að sjá fjórar ís- lenskar þingkonur og forstöðukonu skrifstofu alþjóðamála alþingis á mynd með tveim sádi-arabískum prinsum í Morgunblaðinu 9. janúar sl. og aftur hinn 10., allar klæddar að fyrirmælum íslamista. Prinsarnir klæddust eðlilega í samræmi við stöðu sína og siðvenju í Sádi- Arabíu, þar sem mynd- in var tekin, en að fulltrúar alþingis Ís- lendinga skyldu bera höfuðbúnað múslím- akvenna sem tákn um undirgefni hlýtur að verka eins og vand- arhögg á bök íslenskra kvenfrelsiskvenna og lítilsvirðing við hundr- að ára jafnréttisbaráttu þeirra. Hvað fær íslenskar stjórnmálakonur árið 2007 til þess að hylja hár sitt og háls þótt þær þiggi boð um að sitja fundi með fulltrúum ríkisstjórnar Sádi- Arabíu? Hvað er athugavert við hárið á frjálsum konum? Hvað er at- hugavert við hálsinn á þeim? Í Sádi-Arabíu er höfuðbúnaður kvenna vissulega bundinn í lög auk þess sem konum er fyrirskipað að hylja sig svörtum kuflum (abaya) frá hvirfli til ilja fari þær út fyrir húsdyr sínar að viðlögðum þungum refsingum ef út af er brugðið svo sem svipuhöggum og í verstu til- vikum dauða. En lög Sádi-Arabíu ættu ekki að ná til þegna lýðfrjálsra landa. Haft er eftir Sólveigu Pét- ursdóttur, forseta alþingis, að þing- nefndin hafi m.a. kynnt viðhorf sín til málefna kvenna. Því hlýtur að vera spurt hvort túlka beri slæðu- burð hinna íslensku þingkvenna sem stuðningsyfirlýsingu við lög Sádi-Arabíu um klæðnað kynsystra þeirra. Í heimsókn hjá kúgurum Það getur verið flókið að taka þátt í alþjóðastjórnmálum og aug- ljóst að þar verða tiltölulega hrein- lyndir og heiðarlegir stjórn- málamenn stundum að eiga skipti við verstu skúrka, einræðisherra og stórglæpamenn. Ríkisstjórn prins- anna sem eiga og reka Sádi-Arabíu er alræðis- og kúgunarstjórn af versta tagi, og ráð- gjafaþingið í landi þeirra á lítið skylt við lýðræðislega kjörin löggjafarþing Vest- urlanda, eins og drep- ið er á í morgunblaðs- fréttinni af för þingkvennanna. Með tilliti til ömurlegrar stöðu kvenna í landinu og fullkomins skorts á pólitískum réttindum þeirra má telja það nokkra ögrun við gestgjafana að þing- nefndin frá Íslandi skyldi eingöngu vera skipuð konum. En sú ögrun fer fyrir lítið þar sem stjórnmálakonurnar íslensku hafa beygt sig undir það kúgunartæki prinsanna sem felst í lögum um klæðaburð kvenna og eftirlit með honum jafnt af hálfu fjölskyldunnar sem lögreglu. Slæðan – pólitískt tákn Það er alvarleg pólitísk yfirlýsing fólgin í því að taka upp slæðu músl- ímakvenna. Slæðan er mest áber- andi og umdeildasta pólitíska táknið í þeim djúpstæðu átökum sem eiga sér stað milli vestrænna ríkja og stórs hluta hins íslamska heims, en í Arabíu stóð vagga íslams sem kunnugt er. Slæðunni hefur verið líkt við Gyðingastjörnuna og haka- krossinn. Það mætti einnig líkja henni við hamar og sigð komm- únista eða Maó-búning menning- arbyltingarinnar í Kína. Hún er ein- kenni íslams og gunnfáni íslamista okkar daga. Hvort sem slæðan nær einungis til höfuðs og háls, hidjab, eða hylur líkama konunnar allan eins og búrkan í Afganistan, sjador- inn í Íran og Írak eða abayan á Ar- abíuskaganum og víðar, segir hún í grundvallaratriðum sama hlutinn: Konan er það í sköpunarverki guðs/ allah sem ekki má sjást, konuna verður að fela, að hluta til eða al- veg. Full yfirráð yfir líkama kon- unnar, ef ekki sál, virðist vera inn- takið í afturhvarfshreyfingu múslíma sem farið hefur um lönd þeirra frá byltingunni í Íran 1979. Lengst hefur afturhvarfið gengið í Afganistan og Sádi-Arabíu, landi Mekka og Medínu, þar sem veldi Múhameðs stóð með mestum blóma á árunum 622–632 e.Kr. Þann tíma og það samfélag sjá íslamistar okk- ar daga í hillingum. Kvennabúr Mú- hameðs, sem varð til við vissar sögulegar kringumstæður, er fyr- irmynd að því kvennabúri sem sád- ísku prinsarnir reka í landi sínu í útvíkkaðri mynd. Konum í „búrinu“ standa fáar leiðir til boða um út- göngu, flótti getur kostað þær lífið. Hafi íslensku þingkonurnar viljað sýna konum í Sádi-Arabíu samstöðu með því að íklæðast skyldubúningi þeirra í heimsókn sinni til landsins, þá nær samúð þeirra augljóslega ekki til hinna fjölmörgu ungu músl- ímastúlkna sem hafa hætt lífinu eða goldið það fyrir að kasta hinum ill- ræmda höfuðdúk. Íslenskar þingkonur með íslamistum Steinunn Jóhannesdóttir fjallar um höfuðbúnað íslamskra kvenna og stjórnarfar í Sádi-Arabíu »Ríkisstjórn prins-anna sem eiga og reka Sádi-Arabíu er al- ræðis- og kúgunarstjórn af versta tagi, og ráð- gjafaþingið í landi þeirra á lítið skylt við lýðræðislega kjörin löggjafarþing Vest- urlanda … Steinunn Jóhannesdóttir Höfundur er rithöfundur. EINAR Kr. Guðfinnsson sjáv- arútvegsráðherra hefur um langa hríð undirbúið ásamt ríkisstjórn og Alþingi tilraun til sjálfbærra hval- veiða við Ísland. Tilraunin er full- komlega lögleg samkvæmt al- þjóðalögum og eru með henni undirstrikuð full forráð yfir fisk- veiðilögsögu okkar og nýtingu henn- ar, þar með friðun eða veiði fisks, fugls, sela og hvala ásamt öðrum tegundum sem haf- svæði okkar hýsir. Sjávarútvegur hefur verið höfuðgrein at- vinnuvega Íslands frá upphafi, en sem betur fer hafa aðrar atvinnu- greinar haslað sér völl í atvinnulífi okkar, svo sem iðnaður, ferða- þjónusta, verslun og viðskipti. Sjávarútveg- urinn er í dag ekki efstur á blaði í dag, en heldur áfram sinni stefnu og bíður átekta. Á hon- um hvílir mikil undirstaða á velmeg- un og afkomu hinnar íslensku þjóð- ar. Nú berast fréttir um loftslagsbreytingu í heiminum, hlýn- un lofts og sjávar og sjávardýr kunni að flytja sig norðar á jarð- arkringluna vegna þessara hugs- anlegu breytinga. Allskyns gróða- samtök, sem kalla sig umhverfisverndarsinna láta til sín taka. Þessi samtök virðast ekki upp- lifa hörmungar og dauða fjölda fólks um allan heim, heldur reyna að ná til sín peningagróða eða athygli í póli- tík á forsendum umhverfisverndar, eða jafnvel á enn verri forsendum. Undir forystu dómsmálaráðherra verður á næstu árum verulega efld gæsla landhelginnar og möguleikar til björgunar fólks úr sjávarháska við Ísland. Þessi efling Landhelg- isgæslu Íslands er að sjálfsögðu af- leiðing baráttu og vinnings Íslend- inga fyrir yfirráðum fiskimiða okkar, baráttu sem all- ur heimurinn við- urkennir og fer eftir. Við Íslendingar mun- um einnig verða undir það búnir að verja okk- ur fyrir árásum og áróðri á þessa auðlind okkar, fiskimiðin og önnur svæði sem land- ið á tilkall til með forn- um eða landfræðileg- um sjónarmiðum gegnum haf og hafs- botn. Hvalveiðarnar í upp- hafi síðasta hausts voru mörgum fagnaðarefni, enda rofin áralöng kúgun á sjálfstæði landsins til að ákveða innan sinnar lögsögu hvað má gera og hvað ekki. Að sjálfsögðu voru ekki allir jafnhrifnir, má þar nefna öflugt fólk sem heldur uppi ferðaþjónustu með hvalaskoðun. Ferðaþjónusta er okkur mjög mik- ilvæg, en hvalaskoðun má vel fara fram án árekstra við hvalveiðar um framtíð. Mér fannst hins vegar ein- kennileg framkoma eins útbreidd- asta fjölmiðils landsins, sem talinn er áreiðanlegur og víðsýnn, Morg- unblaðið. Í því blaði hafa komið fram fréttir og fréttaskýringar í hálf- gerðum hótunartón gagnvart tilraun Íslendinga á sjálfbærum veiðum í eigin lögsögu, sem skiptir verulegu máli um eigið frumkvæði okkar í lögsögunni um framtíð. Nýlega fjöll- uðu Staksteinar Morgunblaðsins um yfirlýsingu stórfyrirtækis sem held- ur úti verslanakeðju í Bretlandi. Fyrirtækið kvartar undan mótmæl- um utan úr heimi gegn hvalveið- unum og telur mótmælin hafa áhrif á verslunarviðskipti sín. Það er með ólíkindum, ef hagsmunir versl- unarkeðju í útlöndum vigta þyngra í augum Staksteina en tilraun til sjálfbærra veiða og undirstrikun Ís- lendinga til forræðis og nýtingar lögsögu sinnar umhverfis Ísland, sem þeir hafa barist fyrir og staðið fyrir forystu meðal þjóða heims. Þeir tímar kynnu að renna upp að frelsi til sjálfbærrar nýtingar lög- sögu okkar umhverfis landið yrði Ís- lendingum meira virði en sjopp- urekstur í útlöndum. Hvalveiðar Íslendinga Gylfi Guðjónsson skrifar um hvalveiðar » Ferðaþjónusta erokkur mjög mik- ilvæg, en hvalaskoðun má vel fara fram án árekstra við hvalveiðar um framtíð. Gylfi Guðjónsson Höfundur er fv. sjómaður og áhugamaður um sjálfstæði Íslands. SAMKVÆMT skýrslu sem Hag- fræðistofnun vann fyrir heilbrigð- isráðuneytið til að kanna þörf á vinnuafli þarf að fjölga sjúkraliðum um 16% og hjúkrunarfræð- ingum um 14%. Siv Frið- leifsdóttir heilbrigð- isráðherra segir það brýnt verkefni að finna lausn á vandanum til að mæta þessum skorti. Aukafjárveitingar voru veittar frá yfirvöldum til að fjölga nemaplássum í hjúkrunarfræðideildum Háskóla Íslands og Há- skólans á Akureyri. Aukafjárveitingar þurfti hins vegar ekki til að sjúkraliðafélagið færi að sinna þörf heilbrigð- iskerfisins heldur er fjölgun sjúkraliða á okk- ar kostnað, með því að búa til sjúkraliðabrú til að fjölga sjúkraliðum. Sjúkraliðabrúin er happdrætti fyrir heil- brigðiskerfið en martröð fyrir sjúkraliða, þar sem heilbrigðiskerfið fær ódýrari starfskrafta í framtíðinni. Í brúarnám- inu eru starfsreynsla og námskeið metin sem 60 einingar en í nýjustu samningum sjúkraliða gefa námskeið og starfs- reynsla minni kjarabætur en áður. Þetta er mótsögn þar sem sjúkra- liðafélagið talar um að starfsreynsla sé dýrmæt og mikilvægt að hún sé metin að verðleikum, en í framhaldi af þessum nýju samningum fer ég að hugsa hvort brúarnámið sé strax far- ið að hafa neikvæð áhrif á launa- samninga okkar. Ég tel að núverandi stjórn sé búin að sitja of lengi og geri ekki annað en reyna að láta félagið vaxa til að auka völd sín með því, meðal annars, að útskrifa brúarsjúkraliða. En draum- ur um vaxandi félag er að snúast í andhverfu sína því sundrungin í félaginu af völdum brúarnámsins er al- ger. Margir hugsa sér til hreyfings úr félag- inu ef brúarnámið verður ekki fellt niður. Sjúkraliðar vilja ekki una því að vera með sömu kjarasamninga, sama starfsheiti og brúarsjúkraliðarnir sem eru með helmingi styttra nám að baki. Vitað er að meiri menntun gefur meiri laun, minni menntun minni laun. Formaður félagsins þáði laun frá fé- lagsmönnum á meðan hún fór í framboð. Frá mínum bæj- ardyrum séð hefði verið heiðarlegra ef hún hefði sagt upp stöðu sinni og snúið sér alfarið að sínum pólitísku framtíð- ardraumum. Fram- koma hennar sýndi fram á að félagið er henni eins og varaskeifa, sem gott væri að grípa í ef hún kæmist ekki á þing. Ég minnist á þetta hér því ég er ein af þeim félagsmönnum sem borga henni laun og vil ekki hafa manneskju í vinnu sem ætlar ekki að sinna jafn veigamiklu starfi og því að stjórna Sjúkraliðafélagi Íslands í 100% stöðu. Happdrætti fyrir heilbrigðiskerfið en martröð sjúkraliða Dagbjört Ósk Steindórsdóttir fjallar um málefni sjúkraliða » Sjúkraliðarvilja ekki una því að vera með sömu kjara- samninga, sama starfsheiti og brúarsjúkralið- arnir sem eru með helmingi styttra nám að baki. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir Höfundur er sjúkraliði. GÓÐIR alþingismenn! Ríkisútvarpið er ein mikilsverð- asta menningarstofnun þjóðar- innar, undirstaða lýðræðislegrar umræðu og frjálsrar skoðana- myndunar, traustasti fréttamiðill landsins, leikhús, tónleikahöll, fræðslustofnun, dægrastytting og öryggistæki. Leiki minnsti vafi á, að ný lög um Ríkisútvarpið ohf tryggi stöðu þess sem ríkisútvarps, skora ég á ykkur að greiða atkvæði gegn frumvarpi til laga um Ríkisútvarp- ið ohf – hvar í flokki sem þið standið. Sé tilveru Ríkisútvarpsins stefnt í hættu eða staða þess sem stofnunar í almannaþágu ekki tryggð, er það hið sama og stofna sjálfu hinu háa Alþingi í hættu. Tryggvi Gíslason Opið bréf til alþingismanna Höfundur er fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri, fyrrverandi fréttamaður á Fréttastofu Ríkisútvarpsins og fyrrverandi formaður Hollvina- samtaka Ríkisútvarpsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.