Morgunblaðið - 27.01.2007, Page 24

Morgunblaðið - 27.01.2007, Page 24
24 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | „Það hefur alltaf verið skapandi og gefandi að starfa í Mjólkurbúinu og taka á móti hráefni, vinna það og skila vörum í háum gæðaflokki til neytenda,“ sagði Einar J. Hansson mjólkurfræðingur sem nýlega hætti störfum í Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi eftir 56 ára samfellt starf. Hann byrjaði 14 ára að starfa í búinu sem brúsastrákur á sumrin en á þeim tíma þekktist ekki annað en að unglingar færu í vinnu frá apríllokum fram til septemberloka, annaðhvort í sveit eða á Selfossi. „Það kom alveg af sjálfu sér að ég fór í mjólkurfræð- ina,“ sagði Einar sem byrjaði í gamla mjólkurbúinu og tók þátt í öllum þeim miklu breytingum sem áttu sér stað með tilkomu nýbyggingar sem í þá daga gerði mjólkurbúið að einu því stærsta á Norðurlöndunum. Þróaður vinnustaður „Það var mjög gott að vinna í gamla búinu, maður byrjaði í brús- unum og fór svo yfir í smjörgerð, ostagerð, skyrgerð og vélasalinn en þetta voru aðalþættirnir í starfsem- inni. Þetta var mikil tarna- og erf- iðisvinna, brúsarnir voru óþjálir og þungir. Menn komust í góða þjálfun við þessa vinnu og það fóru sögur af mjög hraustum mönnum, bæði bíl- stjórum og starfsmönnum í búinu,“ sagði Einar og hefur gaman af að rifja upp fyrri tíma í búinu enda oft kapp í mönnum við vinnuna þegar mest var að gera og hlutirnir þurftu að ganga hratt fyrir sig. „Ég fór í iðnskólann og tók síðan próf hér heima en þá var millibils- ástand varðandi mjólkurfræðinga og við vorum nokkrir sem ekki fórum til Danmerkur til að læra eins og síðar varð. Í sveinsprófinu dró ég mér að búa til ost. Í því fólst að taka á móti mjólkinni, hleypa hana, skera, pressa og síðan að móta ostinn í form og verka hann. Í dag eru þetta allt sömu aðgerðirnar nema nú eru komnar vél- ar til að létta störfin en mjólk- urfræðin er alltaf sú sama,“ sagði Einar sem bendir á að tengslin við Danmörku hafi alltaf sett svip sinn á starfsemi mjólkurbúsins. MBF hafi alltaf verið mjög þróaður vinnustaður með framleiðslu- og vinnumenningu frá dönsku mjólkurfræðingunum sem hingað komu á fyrstu árum búsins. „Fyrstu íslensku mjólkurfræðing- arnir fóru til Danmerkur að læra og sóttu þangað þessa vinnumenningu. Danirnir sem hér störfuðu voru mjög vinnusamir og góðir fagmenn. Það var líka alltaf mjög léttur andi í búinu og gaman að starfa þar og reyndar mjög eftirsótt að komast þangað í vinnu á sumrin því þá barst mikil mjólk og menn unnu á þrískiptum vöktum sem gaf vel í aðra hönd,“ sagði Einar og lagði áherslu á að mik- ið öryggi hefði fylgt því að starfa í MBF vegna þeirrar reglufestu í rekstri sem þar hefði ríkt og reglu- semi. Það hefði alltaf verið góður andi í kringum starfsmenn þótt stundum hefði mönnum hlaupið kapp í kinn, einkum í kringum kjarasamninga. Það hefði verið vel hugsað um starfs- menn og starfsmannafélagið haft stuðning til að gera ýmislegt fyrir starfsmennina. „Fyrstu árin mín í búinu voru þeg- ar búið tók á móti mjólk og það var búinn til ostur, smjör og skyr. Á þess- um tíma bjuggu nokkrir starfsmanna í búinu sem á þeim tíma var nokkurn spöl frá aðalbyggðinni á Selfossi. Svo var farið að byggja og nánast byggt utan um gamla búið sem síðan var rif- ið en margir sáu eftir því húsi. Það urðu miklar breytingar með nýbygg- ingunni en stjórnendur búsins hafa alltaf verið í fremstu röð varðandi nýjungar í framleiðslu og tækni- málum. Menn hafa alltaf verið fljótir að tileinka sér nýjungar og ég trúi því að svo verði áfram, þetta er hluti af andanum í búinu. Það var alltaf verið að brydda upp á nýjungum, bæði í framleiðslu á nýjum vörutegundum og varðandi tæknimál. Þetta er svona enn þann dag í dag og mikill metn- aður ríkjandi meðal starfsmanna varðandi það að vera í fremstu röð. Ég er auðvitað verulega stoltur af MBF sem varð einhvern veginn hluti af manni sjálfum,“ sagði Einar sem er fæddur og uppalinn í mjólk- urbænum, eins og Selfoss hefur stundum verið nefndur. Líður vel á Selfossi „Það var gaman að alast upp hér á Selfossi, ég man eftir miklum snjó á veturna með frostum svo að það var hægt að fara á skautum frá Selfossi að Stokkseyri þegar áveitan var kom- in á. Bærinn hérna hefur vaxið mjög mikið í gegnum tíðina og okkur líður mjög vel hérna,“ sagði Einar Jörgen Hansson mjólkurfræðingur sem ásamt konu sinni, Hrönn Péturs- dóttur hárgreiðslukonu, eignaðist 4 börn og eiga þau 11 barnabörn og eitt langömmu- og langafabarn sem þau segja að gefi lífinu mikið og gott inni- hald. Stjórnendur hafa alltaf verið opnir fyrir tækninýjungum Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Langur starfsaldur Einar Jörgen Hansson, mjólkurfræðingur á Selfossi. Hann var leystur út með gjöfum við starfslokin hjá Mjólkurbúinu. Einar J. Hansson hefur starfað í 56 ár samfleytt hjá MBF Í HNOTSKURN »Einar J. Hansson byrjaði14 ára sem brúsastrákur hjá Mjólkurbúi Flóamanna. Hann lærði mjólkurfræði. »Hann hefur upplifað mikl-ar breytingar í 56 ára sam- felldu starfi hjá fyrirtækinu. ÁRBORGARSVÆÐIÐ Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is Í VIKUNNI var byrjað að setja mjaðma- gerviliði í fólk með nýstárlegum hætti á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA), í fyrsta skipti hérlendis. Hér er um að ræða mun minni aðgerð en þurft hefur hingað til en aðferðin hefur verið notuð í Danmörku og Noregi und- anfarin tvö ár og er nú að ryðja sér til rúms annars staðar í Evrópu. Nýlega hefur þessi aðferð verið samþykkt í Bandaríkjunum; tæknin er raunar bandarísk. En Guðni Arinbjarnar, bæklunarlæknir á FSA, starfaði um tíma erlendis í fyrra og hitt- iðfyrra og kynntist þá aðferðinni í Noregi. Hann segir um það bil eins árs undirbúning á FSA að baki. Fyrstu þrjár aðgerðirnar voru framkvæmdar á miðvikudaginn og aðrar þrjár á fimmtudaginn. „Áður þurfti að saga mjaðmarkúluna af, hreinsa upp úr mergholunni úr lærleggnum og svo var langur og mikill pinni steyptur niður í lærlegginn. Nú tökum við lærleggshausinn ekki af; sögum hann reyndar aðeins til, setjum stálklæðningu með fóðringu upp í mjaðma- skálina, stálkúlu þar inn í og síðan kemur lítill pinni niður í lærleggshálsinn,“ segir Guðni. Hann kallar þetta stál í stálgervilið. „Þetta var gert með þessum hætti fyrir 20 árum en gekk ekki upp. Nú er hins vegar búið að finna upp betri tækni, komin er tíu ára reynsla á rannsóknir og þetta virðist halda mjög vel; jafnvel betur en þegar þetta er gert með hefð- bundnu aðferðinni.“ Guðni segir að þessi aðferð henti ekki öllum, en mjög vel ungu og hraustu fólki. Vitað sé að þegar gömlu aðferðinni sé beitt þurfi að skipta út gerviliðnum eftir 15–20 ár og það sé mjög stór aðgerð. „Með þessari nýju tækni má hins vegar segja að verið sé að auðvelda leiðina seinna meir því mjög einfalt er að skipta þessu út fyrir hefðbundinn gervilið.“ Þrír sjúklingar fóru í þessa aðgerð á mið- vikudag og aðrir þrír á fimmtudaginn. Sá elsti er 54 ára og sá yngsti 48 ára. „Það eru margir kostir við þetta, fólk er til dæmis fljótt á fætur eftir þessa aðgerð.“ Guðni segir að á ári hverju ári séu gerðar um það bil 300 mjaðmargerviliðsaðgerðir á Ís- landi, en giskar á að þessi nýja aðferð myndi henta árlega 20–30 sjúklingum mjög vel. Hann segir nýju aðferðina heldur tæknilega flóknari en þá gömlu og segist munu óskar eftir því að henni verði aðeins beitt á Akureyri því varla borgi sig að gera það á fleiri stöðum. „Þrír af þessum sex sjúklingum sem fóru í aðgerðina nú eru að sunnan og sumir hafa beð- ið eftir þessari nýju tækni.“ Danskur starfsbróðir Guðna var með honum í aðgerðunum í vikunni, til þess að hjálpa hon- um að leggja úr vör en Daninn hefur unnið við þetta frá byrjun í heimalandinu. Guðni segir þessa nýju aðferð tvöfalt dýrari en þá ódýrustu með hefðbundna laginu. „En við veljum oft aðra útgáfu af gömlu leiðinni fyrir ungt fólk, þá er hún dýrari en venjulega og munurinn á kostnaði minni. Svo þegar upp er staðið og horft er til lengri tíma, má segja að heildarkostnaðurinn verði lægri. Svo má segja að þegar þessari aðferð verður beitt oftar verður hún ódýrari.“ Nýja kúlan Aðgerðin gekk mjög vel og þarna eru þeir Guðni búnir að koma nýja stálgerviliðnum fyrir á réttum stað. Nettur Nýi stálgerviliðurinn; pinninn er mjög stuttur. Hægra megin er stálklæðningin sem sett er upp í mjaðmaskálina. Mjaðmakúlan Guðni mælir kúluna með þar til gerðum mæli til að glöggva sig á því hvaða númer af gerviliðnum passar. Gerviliðir settir í mjöðm með nýrri og einfaldari aðferð Aðgerð Guðni Arinbjarnar, bæklunarlæknir á FSA, mundar borvélina í einni mjaðma- gerviliðsaðgerðinni í vikunni. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.