Morgunblaðið - 04.02.2007, Side 4
4 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KVIKMYND Páls Steingríms-
sonar kvikmyndagerðarmanns og
samstarfsmanna hans í Kviki um
ginklofann var frumsýnd í Gerðu-
bergi í gær. Myndin hafði áður
verið forsýnd í Vestmannaeyjum.
Magnús heitinn Magnússon sjón-
varpsmaður skrifaði megnið af
handritinu og var sögumaður.
Kvikmyndin verður sýnd í Sjón-
varpinu næstkomandi sunnudag.
Páll sagði að ginklofinn, eða stíf-
krampinn, hefði lagt að velli flest
ungbörn sem fæddust í Vest-
mannaeyjum á öldum áður. Sömu
sögu er að segja frá skosku eynni
St. Kilda. Í kvikmyndinni er tvinn-
uð saman sagan af vanmætti eyja-
fólksins á báðum stöðum gagnvart
þessum ógnvætti og greint frá um
margt líkri lífsbaráttu þess.
„Baldur Johnsen læknir skrifaði
gríðarmerkilega grein um ginklof-
ann og eyddi miklum tíma í að
kanna þennan sjúkdóm. Þar hefur
hann uppi á skýrslum danska
læknisins dr. Peter Antons
Schleisners um ginklofann. Þetta
kveikti í mér að gera myndina,“
sagði Páll. Þegar Schleisner lækn-
ir kom til Vestmannaeyja 1874 dóu
60–80% lifandi fæddra barna úr
ginklofa. Hann kom með smyrsl og
kenndi Vestmannaeyingum hrein-
læti. Í kjölfarið dró mjög úr barna-
dauða af völdum ginklofa og er
sagan af því hvernig tókst að sigr-
ast á plágunni mjög merkileg að
sögn Páls. Í myndinni segir Sig-
urður Gottharð Sigurðsson frá
Kirkjubæ í Vestmannaeyjum sögu
sína, en hann smitaðist af ginklofa.
Telur Páll að hann sé ef til vill eina
barnið sem smitaðist og var svo
lánsamt. Það má þakka að Einar
Guttormsson héraðslæknir réð yf-
ir pensilíni.
„Einar hjólar austur á
Kirkjubæ, sækir drenginn, fer
með hann á sérstaka sjúkrastofu
og myrkvar hana þar sem enginn
fær að vera hjá honum nema
mamma hans. Heldur honum í 10–
12 sólarhringa. Þegar Gotti kemur
út er hann búinn að tapa mætti og
verður að læra að ganga upp á
nýtt, þótt hann sé kominn á fjórða
ár. En hann lifði af,“ sagði Páll.
Magnús heitinn Magnússon
sjónvarpsmaður gerði kvikmynd
um íslenska hálendið, World of
Solitude, með Páli. Við það tæki-
færi nefndi Páll við Magnús að
taka þátt í gerð kvikmyndar um
ginklofann í Vestmannaeyjum.
„Hann sagðist hafa ríka ástæðu
til þess því þetta væru sömu
hremmingar og St. Kilda-búar í
Skotlandi urðu fyrir. Hann var
sögumaður og samdi skoska hlut-
ann af handritinu og bróðurpart-
inn af því íslenska. Ég bætti því við
sem bæta þurfti um veiðarnar og
tengdi Vestmannaeyjasöguna við
St. Kilda-söguna,“ sagði Páll.
Kvikmyndirnar um ginklofann og
hálendið voru síðustu kvikmynd-
irnar sem Magnús vann að en
Magnús andaðist fyrir skömmu.
Ginklofinn festur á filmu
Olli áður miklum
barnadauða í
Vestmannaeyjum
Morgunblaðið/Ómar
Samstarfsmenn Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður ásamt Friðþjófi Helgasyni ljósmyndara.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÉG KYNNTI hvers vegna þessi
upphæð fékkst en við útreikningana
var tekið hæsta verð jarðgangagerð-
ar við Færeyjar og það nærri tvö-
faldað. Þrátt fyrir það varð kostn-
aðurinn ekki hærri en 18,4
milljarðar króna,“ segir Sven Erik
Kristiansen, verkfræðingur og verk-
efnisstjóri hjá skandinavíska verk-
takafyrirtækinu NCC, um kostnað-
aráætlun vegna jarðgangagerðar
milli lands og Vestmannaeyja. Hann
tekur fram að í þeirri tölu sé einnig
tekið tillit til kostnaðar við rann-
sóknir.
Ekki hægt að bera
saman við önnur göng
Kristiansen kynnti áætlunina á
fundi með Vegagerðinni, fulltrúum
samgönguráðuneytis og ÍSOR sl.
föstudag og segir hann helsta mun á
skýrslu sinni og þeim, sem unnar
hafa verið fyrir Vegagerðina, að
miðað sé við að notast verði við hefð-
bundna bortækni, þ.e. borun og
sprengingar, sem er mun ódýrara
en að gera ráð fyrir heilborun.
Þær tölur sem nefndar hafa verið
í skýrslum hjá Vegagerðinni hafa
flestar verið á milli 30-40 milljarðar
króna.
„Ég var staddur í Sviss nýverið
og skoðaði þar tiltölulega nýleg
göng en þau voru fóðruð með tvö-
faldri steypueinangrun sem er það
dýrasta í bransanum. Kostnaðurinn
var um tvær milljónir króna á hvern
metra þannig að ef það verð er borið
saman við átján kílómetra göng milli
lands og eyja myndu þau ekki kosta
meira en 36 milljarða króna,“ segir
Kristiansen um og áréttar að fram-
kvæmd svissnesku ganganna séu
t.a.m. allt of dýr fyrir göng til Vest-
mannaeyja, þrátt fyrir það sé verðið
svipuð verðum sem kynnt hafa verið
hjá Vegagerðinni.
„Það kom ekkert nýtt fram á
þessum fundi en þeir óskuðu eftir
honum til að fara yfir sín mál,“ segir
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri
um fundinn með Kristiansen og
Árna Johnsen og segir ekki hægt að
bera þessi göng saman við önnur
neðansjávargöng.
„Aðstæður eru gjörólíkar við það
sem er í Færeyjum, Noregi og einn-
ig í Hvalfirði. Það hafa verið gerðar
ýmsar skýrslur, sú upphaflega á
vegum Vegagerðarinnar en við
fengum aðra til að fara ofan í þetta
þar sem menn voru ekki ánægðir
með tölurnar. Þá fengum við Mott
MacDonald, með milligöngu Línu-
hönnunar, til að fara í þetta mál og
þeir fengu miklu hærri tölur en við
höfðum verið með,“ segir Jón sem
telur kostnaðaráætlun Kristiansens
allt of lága og dregur stórlega í efa
að frekari rannsóknir verði gerðar á
hagkvæmni gangagerðarinnar.
„Við reynum að nálgast þetta út
frá kostnaði, hvort það sé líklegt að
kostnaður við mannvirkið sé á því
bili að fýsilegt sé að leggja í verk-
efnið. Við teljum að það þurfi ekki
frekari rannsóknir til þess.“
Ólíkt mat á gerð ganga til Eyja
Í HNOTSKURN
» Við mat á kostnaði viðjarðgöng til Vest-
mannaeyja tók Sven Erik
Kristiansen hæsta jarð-
gangaverð í Færeyjum og tvö-
faldaði það. Niðurstaðan var
18,4 milljarðar kr.
» Vegamálastjóri segir ekkiunnt að bera saman að-
stæður í Færeyjum og hér.
Morgunblaðið/RAX
HÁLKA var á Sandskeiði, Þrengslum og á
Hellisheiði í gær. Á Suðurlandi var hálka
og hálkublettir og Vesturlandi hálka á öll-
um vegum auk éljagangs á Holtavörðu-
heiði. Á Norðurlandi var víðast hvar snjó-
þekja á vegum. Hálka og éljagangur á
Vatnsskarði og hálka á Öxnadalsheiði.
Víða hálka á
vegum landsins
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur
dæmt karlmann á sextugsaldri í átta mán-
aða skilorðsbundið fangelsi og til að
greiða 20,8 milljónir króna í sekt til rík-
issjóðs vegna skatta-, bókhalds- og hegn-
ingarlagabrota vegna reksturs sem var á
hans eigin nafni.
Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir
dómi en hann vanrækti m.a. að standa skil
á skilagreinum vegna afdreginnar stað-
greiðslu opinberra gjalda ársins 2004, auk
þess sem hann stóð ekki skil á staðgreiðslu
opinberra gjalda sem hann hélt eftir af
launum starfsmanna, samtals 4,5 milljónir
kr.
Sandra Baldvinsdóttir settur héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Karl Ingi Vil-
bergsson fulltrúi sótti málið af hálfu
ákæruvaldsins og Björn Líndal héraðs-
dómslögmaður flutti málið fyrir ákærða.
8 mánaða fangelsi
fyrir skattsvik
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hef-
ur dæmt nítján ára stúlku í þriggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir að
smygla til landsins 84,56 grömmum af
kókaíni í mars á síðasta ári. Henni var
jafnframt gert að greiða 323 þúsund krón-
ur í sakarkostnað.
Í umfjöllun héraðsdóms kemur meðal
annars fram að stúlkan hafi verið hand-
tekin á Keflavíkurflugvelli við komuna til
landsins frá Amsterdam og að hún hafi fal-
ið fíkniefnin innvortis. Stúlkan kom fyrir
dóminn og játaði verknaðinn en hún hefur
áður verið dæmd til greiðslu sektar vegna
fíkniefnalagabrots.
Við ákvörðun refsingar var litið til þess
að um hættuleg fíkniefni var að ræða, hins
vegar hefði stúlkan aðeins verið 18 ára að
aldri þegar hún framdi brotið og játað
skýlaust. Þá segir í niðurstöðu dómsins að
þáttur hennar hafi einungis verið að flytja
efnið til landsins fyrir tilstuðlan annarra
aðila. Þar sem stúlkan hefur nýlega eign-
ast barn þótti dómara ástæða til að skil-
orðsbinda refsinguna. Voru efnin jafn-
fram gerð upptæk.
Freyr Ófeigsson dómstjóri kvað upp
dóminn. Eyþór Þorbergsson sýslumanns-
fulltrúi flutti málið af hálfu ákæruvaldsins
og Arnar Sigfússon héraðsdómslögmaður
flutti málið fyrir ákærðu.
3 mánaða fangelsi
fyrir kókaínsmygl
SEXTÍU og fimm prósent Reykvíkinga telja
þjónustu borgarinnar góða eða mjög góða og
hefur þetta hlutfall hækkað um 10 prósentustig
á einu ári frá könnun í nóvember 2005 þegar
55% borgarbúa töldu þjónustu borgarinnar
annaðhvort góða eða mjög góða. 10% Reykvík-
inga telja hins vegar þjónustu borgarinnar ann-
aðhvort slæma eða mjög slæma.
Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Fé-
lagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir
Reykjavíkurborg á þriggja vikna tímabili frá
miðjum nóvember síðastliðnum og fram í des-
ember. Könnunin náði til tæplega tólf hundruð
Reykvíkinga á aldrinum 16–80 ára og var end-
anlegt svarhlutfall 63%.
Í könnuninni kemur einnig fram að af menn-
ingarstofnunum borgarinnar höfðu flestir heim-
sótt Borgarbókasafnið eða 77% og næstflestir
Listasafn Reykjavíkur eða 57%. Mikil ánægja
kom fram með starfsemi Borgarbókasafnsins
en alls lýstu 95% notenda safnsins sig annað-
hvort ánægða eða mjög ánægða með starfsem-
ina þar.
Þá kemur fram að 80% borgarbúa telja við-
mót borgarstarfsmanna annaðhvort gott eða
mjög gott og 88% þeirra telja mjög gott að geta
hringt í eitt númer vegna allrar þjónustu borg-
arinnar en það er 411-1111.
Svarendur í elsta aldurshópnum 65–80 ára
voru sérstaklega spurðir um það hversu vel þeir
þekktu til félagsstarfs eldri borgara í Reykja-
vík. Rúmur helmingur eða 55% taldi sig þekkja
frekar vel eða mjög vel til starfsins og lítið eitt
fleiri eða 56% höfðu mikinn eða frekar mikinn
áhuga á að fá kynningu á félagsstarfinu. Fram
kemur jafnframt að upplýsingabæklingur hér
að lútandi var sendur öllum Reykvíkingum 70
ára og eldri í byrjun janúar síðastliðins.
73% aka sjálf til vinnu eða skóla
Í könnuninni var einnig spurt um það hvernig
grunnskólabörn fari í skóla og kemur fram að
69% þeirra fara fótgangandi. Þá kemur fram að
73% svarenda aka sjálf til vinnu eða skóla og
57% eru sammála þeirri fullyrðingu að Reykja-
vík sé heilnæm eða mjög heilnæm borg. Þá eru
ríflega tveir af hverjum þremur sammála því að
há hús eigi rétt á sér í skipulagi borgarinnar.
65% Reykvíkinga ánægð