Morgunblaðið - 04.02.2007, Side 6

Morgunblaðið - 04.02.2007, Side 6
6 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Frá kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn saman í íbúð m. 1 svefnherbergi í 2 vikur, 6. mars, á Oasis Dunas eða Oasis Royal. Gist- ing á Oasis Tamarindo kr. 5.000 aukalega á mann. Frá kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í íbúð/her- bergi í 2 vikur 6. mars, á Oasis Dunas eða Oasis Royal. Gisting á Oasis Tamarindo kr. 5.000 aukalega á mann. Munið Mastercard ferðaávísunina Sólarveisla á Fuerteventura 6. mars frá kr. 39.990 í 2 vikur Síðustu sætin - fyrstur kemur fyrstur fær Bjóðum nú síðustu sætin til Fuerteventura, sem svo sannarlega hefur slegið í gegn hjá Íslend- ingum, á frábæru tilboði. Njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað. Ótrúlegt tilboð - 2 vikur „ÞESSI læti núna fara verr í okkur en desemberflóðið,“ segir Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiði- málastofnunar, þegar hann er spurður að því hvort miklir ísruðn- ingar, eins og urðu í Stóru-Laxá í Hreppum í vikunni, skaði lífslíkur hrogna og seiða í ánum. Stóra-Laxá færðist vegna klakastíflna nærri bænum Hrepphólum, að nokkru leyti úr kvíslunum sem hún rennur þar alla jafna í, meðal annars við rómaða veiðistaði á borð við Berg- snös og Gvendardrátt. Þar í kring eru mikilvæg hrygningarsvæði lax- ins. Sigurður segir hinsvegar að mikil vatnsflóð, eins og urðu í ám á Suður- landi í desember geri ekki ægilegan usla. „En ísruðningar og þegar áin hleypur úr farvegi sínum, ísinn er að taka með sér möl og grjót úr botni; það getur haft meiri áhrif.“ Aftur í gamla farveginn Stefán Jónsson, bóndi á Hrepp- hólum, hefur fylgst með rennsli ár- innar síðustu daga og segir að ís- stífla sem hlóðst upp ofan við Bergsnös hafi beint ánni að mestu úr þeirri kvísl. Samt renni nokkurt vatn undir ísinn og niður kvíslina; von- andi verði hrogn og seiði því ekki fyrir miklum skaða. „Þegar svona rót er á ánni hér spillir það hrognum og seiðum, það gefur auga leið,“ segir Stefán. „Þetta kemur stundum fyrir hérna en hún fer sjálfsagt aftur í gamla farveginn þegar þetta íshröngl er farið.“ Stefán segir að stífluhlaupin sem komu stundum áður fyrr í Stóru- Laxá og Hvítá, hafi verið svo rosaleg að yngra fólk trúi ekki lýsingunum. „Fyrir mörgum árum fór til dæmis gamla brúin á ánni í sundur. Og metra hrönn var á veginum suður að Langholti. Þá var oft mun þykkari ís en nú og mjög stórir jakar.“ Hann segir náttúruna geta verið grimma við fiskinn í ánni; bændur þekki það að miklar sveiflur hafa verið í laxveiðinni gegnum tíðina. „Svo kemur eitt og eitt sumar þar sem veiðist mjög vel, eins og í fyrra“ segir hann, en þá var metveiði í ánni, 709 laxar. Í kjölfarið seldust nær upp öll veiðileyfi á bestu tímana í ánni í nýlegri úthlutun Stangaveiði- félags Reykjavíkur, sem er með ána á leigu. Þrátt fyrir metveiðina í fyrrasum- ar gaf Veiðimálastofnun það út í fyrra að hrognaþekja í Stóru-Laxá væri of lítil. Hræddir um ána „Við erum hræddir um ána og vildum gjarnan fá meiri hrygningu í hana,“ segir Sigurður Guðjónsson. Seiðabúskapurinn er mældur á hverju hausti og það mun koma í ljós í haust hvernig áin kemur undan þessum vetri. Við skoðum þá klak ársins, sem nú er í hrognum, svo og eldri árganga. Hrognin eru grafin í mölina og eru sæmilega varin.“ Sigurður tekur fram að í vatna- vöxtum verði alltaf einhverjar breyt- ingar á eyrasvæðum, það sé gangur náttúrunnar þótt vissulega leiki hún skjólstæðinga sína misgrátt. Stund- um valda hlaupin slíkum skaða að fiskgengd minnkar og veiði dalar fjórum, fimm árum síðar, þegar full- vaxnir fiskar ættu að snúa úr hafinu. „Fyrir nokkrum árum urðu ægi- leg vorflóð í Vopnafirði, í Hofsá og Selá. Árnar færðust til á eyrasvæð- um og þá sáum við nokkra minnkun. Þetta er gangur náttúrunnar.“ Morgunblaið/RAX Ísstífla Ísruðningur hefur hlaðist upp við farveg Stóru-Laxár við bæinn Hrepphóla, fyrir ofan veiðistaðinn Gvendardrátt. Þarna eru mikilvæg hrygningarsvæði laxins í ánni og hugsanlegt, að þau hafi skaddast. Í HNOTSKURN » Óttast er að miklir ísruðn-ingar í ám geti skaðað lífs- líkur hrogna og seiða og leikið þau verr en flóð eins og þau er urðu í desember síðastliðnum. » Ísstífluhlaupin, sem áðurgerði í ýmsum ám, til dæmis Stóru-Laxá og Hvítá, voru miklu meiri og rosalegri en sést hafa á síðari árum. » Ísruðningarnir valda því, aðklakinn rífur upp botninn og getur þá eyðilagt hrognin. Hafa áhyggjur af miklum ísruðningum á hrygningarsvæði „Vonandi verða hrogn og seiði ekki fyrir miklum skaða“ Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÁSGEIR Ármannsson, bókbindari lést á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi föstudaginn 2. febrúar á áttugasta og sjötta aldursári eftir stutta sjúkralegu. Ásgeir var fæddur í vesturbæ Reykjavíkur 21. febrúar árið 1921 sonur hjónanna Ár- manns Eyjólfssonar og Guðnýjar Jónsdóttur og ólst þar upp en hann var yngstur sjö barna þeirra hjóna. Ármann nam bók- band í Iðnskólanum og starfaði við þá iðn alla tíð, lengst af í prentsmiðj- unni Eddu og hjá Hilmi. Ásgeir var ætíð mik- ill áhugamaður um knattspyrnu og starfaði mikið að þeim málum. Hann sat í stjórn knatt- spyrnufélagsins Vík- ings um árabil og starf- aði mikið fyrir félagið, auk þess sem hann gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Knattspyrnusamband Íslands. Hann var heið- ursfélagi knattspyrnu- félagsins Víkings. Ásgeir kvæntist Láru Herbjörnsdóttur 9. september árið 1944. Hún lifir mann sinn. Þeim varð fimm barna auðið og lifa fjögur þeirra föður sinn. Andlát Ásgeir Ármannsson BORGARRÁÐ hefur samþykkt samhljóða að til- lögu borgar- stjóra að ráða Ragnar Þor- steinsson, fram- kvæmdastjóra Þjónustu- miðstöðvar Breiðholts, í starf sviðsstjóra menntasviðs borgarinnar. Alls sóttu ellefu manns um stöðuna. Ragnar er með MA-próf í stjórnun með sérstaka áherslu á mannauðsstjórnun frá Viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Hann er einnig menntaður kennari í grunn- og framhaldsskóla frá KHÍ og með BS-próf í landafræði og jarðfræði frá HÍ. Ragnar var skólastjóri Breiðholtsskóla frá 1996 til 2005, en þá tók hann við stöðu framkvæmdastjóra þjón- ustumiðstöðvar Breiðholts. „Það má segja að ég sé uppal- inn í grunnskólunum því að ég byrjaði að kenna í Breiðholts- skóla árið 1973 og varð síðan skólastjóri við þann skóla. Ég starfaði við Breiðholtsskóla í 32 ár,“ segir hann. Ánægja íbúa í könnun Glæný viðhorfskönnun leiðir í ljós að mikil ánægja er með þjónustu Þjónustumiðstöðvar Breiðholts. Ragnar kveðst vera ánægður með þá niðurstöðu. ,,Þjónustukann- anir, sem gerðar eru tvisvar á ári, sýna mjög góðar niðurstöður fyrir okkur hér í Breiðholtinu og aukna ánægju íbúa með þjónustu okkar. Segja má að 84% íbúa í Breiðholti sem nýta sér okkar þjónustu séu ánægðir með hana og erum við stolt af því.“ Ragnar segir að það leggist vel í sig að taka við starfi sviðsstjóra. ,,Ég hef starfað lengi í skólakerf- inu og þetta er tækifæri sem er verulega spennandi að takast á við.“ Kveðst hann gera ráð fyrir að taka til starfa í þessum mán- uði. Nýr sviðsstjóri menntasviðs Ragnar Þorsteinsson ÓHÆTT er að segja að ökumaður á leið um Kambana hafi sloppið með skrekkinn þegar hann sofnaði und- ir stýri neðst í Kömbunum, í ná- grenni Hveragerðis, um kl. hálfátta á föstudagskvöld. Lögreglan á Sel- fossi segir mildi að maðurinn missti ökutækið til hægri út í möl í stað þess að sveigja bifreiðinni til vinstri. Bifreiðin skemmdist ekkert og ökumaðurinn slapp ómeiddur. Alvarleg slys hafa orðið í Kömb- unum á liðnum árum, bæði með því að bílar hafa rekist saman og farið út af. Í Kömbunum voru sett upp skilti með leiðbeinandi hraða sum- arið 2005 þar sem mælt er með að ekki sé ekið hraðar en 60 km á klst. þótt leyfilegur hámarkshraði sé 90 km. Sofnaði undir stýri í Kömbum JÓN Kaldal aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins hefur verið ráðinn ritstjóri blaðsins í stað Kára Jón- assonar ritstjóra sem lætur af störf- um í næstu viku. Mun Jón Kaldal því ritstýra blaðinu ásamt Þorsteini Pálssyni, segir í frétt blaðsins á fimmtudag. Jón Kaldal er fæddur árið 1968 og var ritstjóri tímaritanna Iceland Review, Atlantica og Skýja frá 1996 og hóf störf á Fréttablaðinu árið 2004. Það sama ár var Kári Jón- asson ráðinn ritstjóri Fréttablaðs- ins, en hann hafði fram að því verið fréttastjóri hjá Ríkisútvarpinu um langt árabil. Hann er fæddur árið 1940 og verður því 67 ára hinn 11. febrúar næstkomandi. Nýr ritstjóri Fréttablaðsins AFAR erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt vegna ölvunar og slagsmála, en tenn- ur voru m.a. slegnar úr einum manni. Fangageymslurnar í Reykja- vík voru því fullar eftir nóttina. Sömuleiðis var erill hjá lögregl- unni á Húsavík vegna ölvunar í bæn- um og þurfti lögreglan að stinga 10 mönnum inn í fangaklefa í fyrrinótt. Meðal verkefna lögreglunnar á Suðurnesjum þá um nóttina var hávaðaútkall í Grindavík og lausa- ganga hrossa á Vatnsleysuströnd. Tveir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur, annar á Njarðar- braut og hinn á Reykjanesbrautinni. Fyrr um kvöldið voru tveir ökumenn teknir fyrir hraðakstur á Garðvegi. Einn ökumaður var einnig kærður fyrir brot á stöðvunarskyldu í Reykjanesbæ. Undir morgun kom síðan upp fíkniefnamál þar sem einn aðili var með smávegis af ætluðu hassi að sögn lögreglunnar á Suð- urnesjum. Annasamt hjá lögreglu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.