Morgunblaðið - 04.02.2007, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIKUSPEGILL»Erlent | Nýtt myndefni gefur til kynna að Fidel Castro kunni að vera á batavegi, en í veikindum hans þykir ýmsumörla á merkjum um nýja stjórnarhætti. Tónlist | Af hverju er mannkynið svona músíkalskt? Tíska | Diskódrottn-
ingin Madonna er komin langt frá uppruna sínum og hannar nú og kemur á framfæri fötum fyrir verslunarkeðjuna Hennes og Moritz.
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
Í Miami í Bandaríkjunum erukúbanskir útlagar teknir aðundirbúa hátíðarhöld þegarleiðtoginn aldni kallast burt úr
heimi hér. Deilt er um hversu
smekklegur slíkur viðbúnaður megi
teljast en ef marka má síðustu frétt-
ir af Fidel Castro kann að verða bið
á því að fjendur hans streymi út á
götur og torg í hamslausum fögnuði
(sjá grein hér að neðan). Á hinn bóg-
inn telja ýmsir þeir sem sérfróðir
eru um Kúbu að greina megi breyt-
ingar þar á þeim sex mánuðum sem
liðnir eru frá því að Fidel veiktist
hastarlega og neyddist til að fela
yngri bróður sínum, Raúl, stjórn rík-
isins; á Kúbu ríkir að sönnu óvissa
um framtíðina en teikn eru á lofti um
að ný nálgun einkenni framgöngu
valdhafa.
Hér er varlega að orði komist og
það ekki að ástæðulausu. Kúba er
land andstæðna og mótsagna í ýms-
um efnum: fátækt eyríki sem lýtur
einræðisstjórn en náð hefur merk-
um árangri á ýmsum sviðum við afar
erfiðar aðstæður; sósíalískar ein-
angrunarbúðir sem um leið eru seld-
ar undir lögmál fjármagns og mark-
aða; lögregluríki sem hýsir lifandi
mannlíf og menningu sem margir
heillast af.
Eru líkur á að Raúl Castro og
nánustu undirsátar hans hyggist
koma á djúpstæðum breytingum,
jafnvel þvert á vilja Fidels, og er
þess að vænta að slík umskipti ríði
snögglega yfir?
Tæpast og nei. Á hinn bóginn sýn-
ist nú óhætt að fullyrða að stjórn-
unarstíll Raúls Castro er annar.
Fyrir það fyrsta er hann ekki jafn
sýnilegur og bróðir hans; Fídel hef-
ur alltaf kunnað afar vel við sig í
sviðsljósinu enda býr maðurinn yfir
persónutöfrum og óumdeilanlegum
leikhæfileikum. Einhverjir munu
þegar teknir að fagna því að Raúl
Castro heldur ekki maraþon-ræð-
urnar sem bróðir hans er frægur
fyrir; Kúbanir hafa vísast um annað
að hugsa og vafalaust telja margir
að leiðtoganum beri að huga að
vanda þjóðarinnar fremur en að
flytja fimm klukkustunda langar
ræður um hugmyndafræði og sósíal-
íska baráttu. Trúlega eru framfarir
fólgnar í nálgun Raúls en sjálfsagt
er að halda því til skila að Fídel
Castro er einstakur og magnaður
ræðumaður.
Í fótspor Gorbatsjovs?
Hverjar eru þá þær breytingar
sem greina má og til hvers vísa þær?
Raúl Castro, sem er 75 ára gam-
all, fimm árum yngri en Fidel, hefur
látið að því liggja að stjórnvöld á
Kúbu séu nú tilbúin að hlýða á gagn-
rýni og að ráðamenn hyggist af
auknum þunga snúa sér að þeim
margvíslega vanda sem geri þjóðinni
lífið erfitt. Þar ræðir að sönnu um
nokkuð langan lista og tæpast
myndu menn fljótt ná samstöðu um
hvað þar bæri fyrst upp að telja en
hér skal nefna húsnæðisvanda,
frumstæðar samgöngur og yfir-
gengilega spillingu innan ríkiskerf-
isins.
Vangaveltur hafa kviknað um að
Raúl og samstarfsmenn hans hygg-
ist innleiða eins konar „glasnost“-
stefnu á Kúbu á líkan veg og þann
sem Míkhaíl S. Gorbatsjov kaus að
feta eftir að hann hófst til valda í
Sovétríkjunum árið 1985. „Glasnost“
eða stefna hinnar „opnu umræðu“
var að sönnu mikilvægt framlag af
hálfu Gorbatsjovs ekki síst þar sem
hún gat af sér farveg fyrir efasemdir
sem áttu þátt í því að veldi komm-
únismans í Evrópu og síðar Sovét-
ríkin sjálf hrundu til grunna. Raúl
Castro lýsti raunar yfir því árið 1996
að ekki kæmi til álita að innleiða
„glasnost“ á Kúbu og á síðustu mán-
uðum hefur verið eftir honum haft,
að hann muni aldrei svíkja hugsjónir
byltingarinnar sem kommúnista-
flokkurinn hýsi og verji allt til hins
síðasta.
Á hinn bóginn liggur fyrir að
meira ber nú á gagnrýni á opinber-
um vettvangi en oftast áður. Í dag-
blöðum má t.a.m. finna greinar þar
sem fjallað er um ýmislegt - nefna
má spillingu, þjófnaði innan ríkisfyr-
irtækja og hagkerfisvanda – sem
ekki hefur verið til vinsælda fallið
fram til þessa. Menningarblys og
listamenn eru sagðir hóflega bjart-
sýnir.
„Pragmatismi“
Getur verið að Raúl Castro horfi
nú einkum til Kína?
Má vera. Um margt minnir krafa
hans um að stjórnvöld og ríkisstarfs-
menn hugi fyrst og fremst að þörf-
um fólksins á áróðurinn sem berst
að austan. Kúbufræðingar hafa
löngum haldið því fram að Raúl
Castro sé fyrst og fremst „pragmat-
isti“, raunsæis- eða nytjastefnumað-
ur; eldmóðinn og hugmyndafræðina
leggi eldri bróðirinn til. Vera kann
að Raúl hafi aflað sér upplýsinga um
fyrstu skref Kínverja á umskipta-
brautinni miklu sem stigin voru und-
ir lok áttunda áratugarins. Sumir
innvígðir eru þessarar hyggju. En
um leið þykir óhugsandi að núver-
andi ráðamenn á Kúbu áformi að
innleiða þann villta kapítalisma sem
kommúnistar í Kína hafa upphafið.
Trúlega verður mælikvarðinn sá
hvort einkaframtakinu verður veitt
meira (en þó hófstillt) svigrúm á
Kúbu. Og áleitin er sú hugsun að
ráðamenn telji hóflegar breytingar í
þessa veru fallnar til að tryggja
völdin óháð því hversu löng biðin
verður eftir því að Fidel renni saman
við astralsviðið. Má ekki ætla að
„pragmatismi“ Raúls Castro móti
einnig viðleitni hans og valdastétt-
arinnar til að tryggja stöðu sína?
Hví skyldi hann greina sig frá öðrum
stjórnmálaleiðtogum í þessu efni?
Nýir vendir?
En Raúl er ekki frekar en bróðir
hans hafinn yfir lögmál hnignunar
og hinnar tímanlegu bölvunar. Lík-
lega er því hyggilegt að fylgjast með
öðru fólki og yngra sem nú lætur til
sín taka í kúbönskum stjórnmálum.
Í mörgum tilfellum ræðir þar um
syni og dætur þeirra sem börðust í
byltingunni og tryggðu þeim Fidel
og Raúl sigurinn í janúar árið 1959.
Nefna má til sögu rithöfundinn
Abel Prieto sem nú er menningar-
ráðherra. Prieto er 56 ára gamall,
prýðilega síðhærður, frjálslegur í
fasi og þekktur fyrir áhuga sinn á
Bítlunum, einkum John Lennon.
Prieto hefur að vísu lengi tengst rík-
ismenningunni á Kúbu en skrið-
þungi hans innan stjórnkerfisins fer
vaxandi.
Ástæða þykir til að vænta þess að
áhrif hans eigi enn eftir að aukast.
Carlos Lage Davila, er sömuleiðis
rúmlega fimmtugur og hefur nú með
höndum embætti framkvæmda-
stjóra ráðherraráðs Kúbu. Kemst
hann þannig nærri því að geta talist
starfandi forsætisráðherra Kúbu
(Fidel er bæði forseti og forsætis-
ráðherra). Lage sem er barnalæknir
að mennt hefur verið einn helsti ráð-
gjafi Fidels á sviði efnahagsmála og
hefur sem slíkur lagt grunn að ýms-
um þeirra breytinga sem innleiddar
hafa verið á undanliðnum árum. Lík-
legt er að til hans verði enn horft og
áhrif hans verði meiri en áður ákveði
Raúl Castro og forustusveitin að
leita nýrra leiða á efnahagssviðinu.
Mariela, dóttir Raúls Castro, hef-
ur einnig verið nefnd í þessu við-
fangi. Hún er stjórnandi Lýðheilsu-
stöðvar Kúbu á sviði kynfræðslu og
ku mæla fyrir hóflegum breytingum
á sviði efnahags- og stjórnmála. Sagt
er að hún sé frjálsari í andanum en
aðrir í fjölskyldunni og vitað er að
hún fyllti flokk aðdáenda Míkhaíls S.
Gorbatsjovs á níunda áratugnum.
Viðræður og viðskiptabann
Í ræðu (sem raunar var sæmilega
innblásin) er hann flutti í byrjun
desembermánaðar lýsti Raúl Castro
yfir því að stjórnvöld á Kúbu vildu
leysa deiluna við Bandaríkin við
samningaborðið. Jafnframt fór hann
hörðum orðum um ný-frjálshyggju
þá sem hann kvað bandarísk stjórn-
völd og stuðningsmenn þeirra í Evr-
ópu hafa þröngvað upp á þjóðir
Rómönsku-Ameríku. Svar Banda-
ríkjastjórnar var hið sama og áður;
stjórnvöld á Kúbu þyrftu fyrst að
innleiða lýðræði áður en til greina
kæmi að ræða bætt samskipti og af-
nám viðskiptabannsins lífseiga.
Með sigri Demókrataflokksins í
haustkosningunum í Bandaríkjun-
um hafa á hinn bóginn orðið nokkur
pólitísk umskipti þar vestra og fyrir
liggur að nýr þingmeirihluti er tilbú-
inn að taka ýmsar hliðar deilu þess-
arar til endurskoðunar. Ætla má að
demókratar í Bandaríkjunum fylgist
af áhuga með teiknum um breyting-
ar á Kúbu og að hin afdráttarlausa
stefna George W. Bush forseta og
Repúblíkanaflokksins eigi heldur
undir högg að sækja. Kúbanir kveð-
ast þó ekki vænta breytinga í bráð;
Ricardo Alarcon þingforseti gerði á
fimmtudag heldur lítið úr mikilvægi
sigurs demókrata hvað varðaði af-
stöðu Bandaríkjamanna og sagði að
ekkert myndi breytast á meðan
Bush, sem hreppt hefði forsetaemb-
ættið með svikum, réði ríkjum í
Hvíta húsinu.
Ef til vill eru stærstu tíðindin frá
Kúbu fólgin í tíðindaleysinu. Ætla
hefði mátt að skyndilegt brotthvarf
Fidels gæti af sér meiri ólgu. Fjend-
ur hans ýmsir hafa löngum spáð því
að ofbeldi muni brjótast út þegar
hann hverfur af sjónarsviðinu, aðrir
hafa sagt að menn muni ekki síður
fagna í Havana en í Miami. Kjörin
sýnast kyrr á Kúbu og vera má að
allt gangi samkvæmt áætlun bræðr-
anna ólseigu og valdaklíku þeirra.
Kúbanir á krossgötum
REUTERS
Byltingarmóður Ungmenni bera myndir af Raúl Castro (t.v.) og skæruliða-
leiðtoganum Ernesto „Che“ Guevara um Byltingartorgið í Havana.
Greina má breytingar í kjölfar veik-
inda Fidels Castro Kúbuleiðtoga
»Má ekki ætla að„pragmatismi“
Raúls Castro móti einn-
ig viðleitni hans og
valdastéttarinnar til að
tryggja stöðu sína?
ERLENT»
FIDEL Castro hefur ekki sést á op-
inberum vettvangi í sex mánuði.
Greint var frá því í júlímánuði að
leiðtoginn ætti við veikindi að
stríða. Á dögunum skýrði spænska
dagblaðið El País frá því að ástand
Fidels væri „mjög alvarlegt“, þrjár
skurðaðgerðir hefðu ekki skilað til-
ætluðum árangri.
Á þriðjudag birti sjónvarpið á
Kúbu nýtt myndskeið af Fidel og
verður ekki annað séð en að hann
líti nú mun betur út en á myndum
þeim sem áður hafði verið dreift.
Myndskeiðið, sem er sex mínútna
langt og var tekið á mánudag, sýnir
Fidel ræða við vin sinn og banda-
mann, Hugo Chavez, forseta Vene-
súela. Fidel sést drekka ávaxtasafa
og lesa frétt argentínska dagblaðs-
ins Clarín sem birt var 27. janúar.
Leiðtoginn segir að „orrustan [sé]
hvergi nærri töpuð“ en víkur ekki
að þeim möguleika að hann taki á
ný við völdum. Chavez lýsir yfir því
að Fidel hafi þegar sigrast á veik-
indum. Fundur þeirra mun hafa
staðið yfir í tvær klukkustundir
enda báðir ágætlega málglaðir
menn.
Athygli vekur að Fidel, sem er
áttræður, virðist hafa bætt á sig
nokkrum kílóum en á eldri mynd-
unum var leiðtoginn þreytulegur,
tekinn og grindhoraður. Þar eð
hann glímir við sjúkdóm í melting-
arvegi þykja nýju myndirnar gefa
til kynna að Castro kunni að vera á
batavegi.
Reuters
Vopnabræður Fidel Castro Kúbuleiðtogi ásamt vini sínum Hugo Chavez, forseta Venesúela. Myndin var tekin á
mánudag í Havana er Chavez sótti Castro heim ásamt bróður sínum, Adnan Chavez menntamálaráðherra.
„Orrustunni er hvergi nærri lokið“