Morgunblaðið - 04.02.2007, Blaðsíða 21
legast að lesa um niðurstöður Le-
vitins þegar hann fékk fólk til að
syngja uppáhaldslagið sitt og flest-
ir héldu réttum takti og sungu í
réttri tóntegund. Líklega er mann-
kynið í heild músíkalskara en ég
átti von á, ég hélt satt best að
segja að stór hluti héldi hvorki lagi
né takti. Kannski voru þetta allt
lög sem fólk hafði kynnst mjög vel
með síendurtekinni hlustun, en
mér fannst þetta samt alveg með
ólíkindum. Þetta eru auðvitað mik-
il gleðitíðindi,“ segir Sigurður og
hlær við.
Sigurður segir að sér hafi ekki
komið á óvart að fólk upplifði tón-
listina öðruvísi ef það sá tónlistar-
mann flytja hana. „Mér finnst
gaman að sjá að menn pæla svona
vísindalega í þessu, þótt flestir
sem einhvern tímann hafa sótt
tónleika hafi getað sagt sér þetta.
Það yrði líklega lítið um tónleika-
hald ef þetta væri ekki raunin.“
Sigurður segir að Levitin geri
mikið úr hljómblæ tónlistarmanna,
sem sé mikilvægur í popptónlist,
en einnig í fleiri tónlistargreinum.
„Ég held nú samt að hljómblærinn
einn ráði því ekki að fólk beri
kennsl á lög eins og þau sem hann
nefnir, með Rolling Stones og El-
ton John. Þetta eru lög sem allir
hafa heyrt ótal sinnum.“
Tónlistarhæfileikar og stærð-
fræðigáfa haldast ekkert endilega í
hendur, segir Sigurður og er þar
sammála Levitin. „Af og til heyr-
ast svona fullyrðingar, um eðli
hljóðs og stærðfræðilega hugsun.
Sumt er auðvitað ekkert ósvipað,
það er stærðfræði í ýmsum hljóð-
fræðilegum vangaveltum. Fólk
hefur kannski tilhneigingu til að
líta á stærðfræðina sem kalda og
ólistræna, en það er kannski mis-
skilningur og oft er mjög skapandi
hugsun í ýmsum vísindagreinum.
Svo kannski tengist þetta á ýmsan
hátt, þótt þau tengsl séu ekki aug-
ljós.“
Morgunblaðið/Eyþór
Gleðitíðindi Sigurður Flosason
segir að líklega sé mannkynið mús-
íkalskara en hann hafi átt von á.
» „Við höfum alltaf vit-
að að tónlist er góð til
að bæta skapið, en þetta
sýndi okkur nákvæm-
lega hvernig það ger-
ist.“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 21
Harðnandi samkeppni
H&M var stofnað í Svíþjóð árið
1947 og rekur yfir 1.300 verslanir í 24
löndum. Rauði þráðurinn í rekstr-
inum er tíska á viðráðanlegu verði en
nú eru keppinautar á sama markaði
farnir að þrengja að.
H&M er önnur stærsta fataversl-
anakeðja Evrópu, samkvæmt net-
útgáfu BusinessWeek, en það skýrir
samstarfið við Madonnu með sam-
drætti í rekstrinum vegna harðnandi
samkeppni.
Andsvarið við því er útrás til Asíu
með opnun verslana í Kína og Hong
Kong á þessu ári og í Tókýó á því
næsta. Fleiri ráðstafanir eru ný versl-
anakeðja í aðeins hærri klassa sem
opnuð verður í níu borgum Evrópu.
Annacarin Björne, talskona H&M,
segir á businessweek.com, að í nýju
verslununum verði bæði sígildar
tískuflíkur og hátískuvörur á boð-
stólum, en nafn nýju keðjunnar hefur
ekki verið gert opinbert.
Þriðja úrræðið sé svo samvinna
H&M og Madonnu í fyrrnefndri
tískulínu, M eftir Madonnu, sem
kemur á markað í takmörkuðu magni
í mars.
„Þrengslin á markaðinum fyrir
skammtímatísku hafa aukist nokkuð
upp á síðkastið beggja vegna Atlants-
hafs. Þar takast á verslunarrisarnir
H&M og spænska fyrirtækið Inditex,
eigandi Zöru, og keppa bæði við
smærri heimaverslanir, sem og Wal-
Mart, Target og Tesco.“
BusinessWeek segir engum vafa
undirorpið, að sænska keðjan hafi
enn töglin og hagldirnar, enda frum-
kvöðull á sviði ódýrs tískufatnaðar.
„Á síðastliðnum árum hefur samstarf
við hönnuði á borð við Karl Lag-
erfeld, Stellu McCartney og Victor og
Rolf skerpt stöðu verslunarinnar í
framlínunni og slegið í gegn hjá tísku-
vitum meðal almennings.“
Og nú síðast, Madonnu.
Inditex er stærst á sviði fataversl-
anakeðja Evrópu og hefur þegar opn-
að verslanir í Kína og verslanir fyrir
tískufatnað í aðeins hærri klassa en
sá ódýrasti, eins og til dæmis Mas-
simo Dutti. Inditex á nú átta versl-
anakeðjur sem spanna breitt verðbil,
þeirra á meðal eru Zara Home, Stra-
divarius, Pull & Bear og Bershka.
BusinessWeek segir jafnframt, að
þótt Inditex hafi náð stærðarforskoti
á helsta keppinaut sinn, H&M, sé
framlegð þess síðarnefnda nokkrum
prósentustigum betri, enn sem komið
er.
„Inditex ráðgerir að færa út kví-
arnar í Asíu og Evrópu og opnaði eina
nýja verslun á dag á síðasta ári. Það
rekur nú 3.000 verslanir í 64 löndum.“
Lífrænt í tískunni
Svo vikið sé aftur að vortískunni í
H&M verður kvenfatalína með flík-
um úr lífrænt ræktaðri bómull enn-
fremur sett á markað fyrir alla ald-
urshópa innan tíðar, í völdum
verslunum. Yfirhönnuðurinn, Marg-
areta van den Bosch, segir hana sam-
eina meðvitað val á hráefni og nýj-
ustu tísku, svo þeir sem gangi í
fötunum hafi tök á því að líta jafn vel
út að utan og þeim líður vel að innan,
eins og hún orðar það.
Í kvenstærðum 34-44 verður
áhersla lögð á rómantískar línur, víða
kjóla með A-sniði, mussur, blússur og
jerseytoppa við gammosíur.
Einnig verður að finna há-
tískuflíkur úr joggingallaefni,
brjóstahaldara og pínustuttbuxur.
Litaskalinn endurspeglar síðan svo-
kallaða nýtískuliti með jurtablæ, sem
draga dám af kartöflum, eggaldini,
súraldini og rósum, svo dæmi séu
nefnd.
Lífræna tískulínan er byggð upp
með gallabuxum, joggingtreyjum og
stuttermabolum fyrir unglingana og í
barnafatalínunni er áherslan lögð á
kjóla, stuttermaboli, gammosíur,
samfellur og galla.
Tíska með góða samvisku?
» Þrengslin á markaðinum fyrir skammtímatísku
hafa aukist nokkuð upp á síðkastið beggja
vegna Atlantshafs. Þar takast á verslunarrisarnir
H&M og spænska fyrirtækið Inditex.
» Þá er ljóst að bensínstöðvarhér á landi eru fleiri en
markaðurinn þarf á að halda og
þeim fjölgar dag frá degi.
Hermann Guðmundsson , forstjóri Olíufé-
lagsins, spurður um hverju það sæti að
álagning olíufélaganna í bensínsölu er um
130% hærri hér á landi en í ríkjum Evr-
ópusambandsins.
» Þetta ástand er orðið al-gjörlega ólíðandi – nema
bara fyrir þá sem eru búnir að
drekka þeim mun meira brenni-
vín.
Ófeigur Þorgeirsson , yfirlæknir á slysa-
og bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi,
spurður um hópslagsmál ölvaðra manna á
biðstofu slysadeildarinnar um liðna helgi.
» Ég fór kollhnís, lenti áhausnum, beint út í sjó og á
kaf.
Thomas H. Jensen , háseti á Sólbaki RE,
sem varð fyrir tveggja tonna lóði með
þeim afleiðingum að hann kastaðist fyrir
borð. Honum var bjargað eftir tíu mínútur
í sjónum.
» Þetta eru hreint ömurleg úr-slit, ekki síst af því að við er-
um með betra lið en Danir.
Guðjón Valur Sigurðsson handknattleiks-
maður eftir ævintýralegan leik íslenska
landsliðsins gegn Dönum á heimsmeist-
aramótinu í Þýskalandi sem tapaðist með
einu marki.
» Forseti Íslands er þjóðkjör-inn. Hann sækir umboð sitt
til íslensku þjóðarinnar en heyr-
ir ekki undir einstök ráðuneyti.
Svar skrifstofu forseta Íslands við þeirri
spurningu Morgunblaðsins hvers vegna
forsetaembættið hafi ekki haft samráð við
utanríkisráðuneytið áður en forseti Ís-
lands ákvað að þekkjast boð um að taka
sæti í þróunarráði Indlands.
» Forsetinn og einkapersónaní alþjóðasamskiptum er eitt-
hvað sem ekki verður skilið á
milli.
Grétar Már Sigurðsson , ráðuneytisstjóri
utanríkisráðuneytisins, um ofangreinda
ákvörðun forseta Íslands.
» Forseti Íslands getur ekkifrekar en forsætisráðherra
eða biskup sagt, nú er ég prívat-
maður og nú er ég forsætisráð-
herra, forseti eða biskup. Þeir
geta ekki tvískipt sér frekar en
annað fólk.
Halldór Blöndal , formaður utanríkismála-
nefndar, um sama mál.
» Ég viðurkenni að sjálfsvirð-ing mín leyfði ekki að ég færi
að draga vagninn fyrir flokk sem
gefið hefur sig Nýju afli á vald.
Margrét Sverrisdóttir er hún kunngjörði
þá ákvörðun sína að segja skilið við
Frjálslynda flokkinn.
Ummæli vikunnar
Morgunblaðið/Golli
Álagning Talsmaður FÍB segir fá-
keppni einkenna bensínmarkaðinn.
-hágæðaheimilistæki
Ef þú kaupir Miele þvottavél eða þurrkara færðu
kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvottinum
Íslenskt stjórnborð
Ný og betri tromla
Verð frá kr. 114.800
Hreinn sparnaður
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
1.
verðlaun
í Þýskalandi
W2241WPS
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri Sími 588 0200 | www.eirvik.is