Morgunblaðið - 04.02.2007, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 51
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. faste ignasal i
Blásalir 16
Sérhæð með útsýni
Sogavegur 144
500 fm. lóð
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Skemmtileg 112,4 fm 4ra herb. efri hæð í fjórbýli í Salahverfi í Kópavogi.
Glæsilegt útsýni. Falleg eign sem skiptist í forstofu, 3 góð herb. m/skápum, rúm-
gott flísalagt baðherb. með sturtuklefa og baðkeri, þvottahús með glugga innan
íbúðar, bjarta stofu og eldhús með útsýni til suðurs, svölum og bogadregnu lofti.
Mjög falleg og rúmgóð íbúð með góðu skápaplássi. Verð 28,5 millj.
Hulda Björg og Magnús taka vel á móti gestum milli kl. 13 og 14 í dag
Um er að ræða 500 fm lóð í grónu
og fallegu hverfi miðsvæðis í
Reykjavík. Á lóðinnn stendur 32 fm
hús á einni hæð ásamt 45,8 fm
bílskúr. Hér er kjörið tækifæri fyrir
verktaka eða einstaklinga til að
nýta lóðina undir nýbyggingu. Verið
er að byggja á nokkrum lóðum á
þessu svæði sem ætti að auðvelda
byggingaleyfi á lóðinni.
Óskað er eftir tilboðum.
Opið hús milli
kl. 13 og 14
í dag
Teikningar á staðnum.
Kári Fanndal Guðbrandsson,
Sigrún Sigurpálsdóttir, lögg. fasteignasali.
● Vilt þú hafa heimilið og gæðingana á sama stað, geta lagt á og reið-
stígar og reiðvegir liggja til allra átta?
● Vilt þú hafa heimilið og vinnustofuna á sama stað og nóg rými fyrir hug
og hönd?
● Vilt þú ala upp börnin við frjálsræði sveitalífsins en njóta jafnframt allr-
ar þjónustu, t.d. skóla, heilsugæslu, íþrótta og menningar, til jafns við
þéttbýlið?
● Vilt þú komast úr skarkala borgarlífsins og njóta seinnihluta æviskeiðs-
ins við t.d. fuglaskoðun, renna fyrir fiski eða stunda golf?
Allt þetta og mikið meira til er hægt að gera í Tjarnabyggð sem er búgarðabyggð 4 km
frá Selfossi í átt að Eyrabakka. Búgarðabyggðin er nýjung í íslensku skipulagi sem
tryggir þér heimild til húsdýrahalds, ræktunar og til léttrar atvinnustarfsemi. Lóðirnar eru eign-
arlóðir, ca 1,0 - 6,0 ha að stærð.
Það má byggja einbýlishús, hesthús, reiðskemmu, listagallerí, gistiheimili eða hvað annað
sem þér dettur í hug, allt að samtals 1.500 fm.
Hitaveita.
Verð frá 4,6 millj. Seljandi lánar allt að 80%.
Ath. gatnagerðargjöld eru innifalin í verði.
Fasteignasalan Garður • Skiphol t i 5 • Símar 562 1200 og 862 3311
SVEITIN KALLAR ! ÞÚ ÁTT VAL!
Búgarðabyggð!
– TJARNABYGGÐ Í ÁRBORG –
Búgarður - Listamannahús - Garðyrkja
Hver er draumurinn?
Við hjá Fasteignasölunni Garði veitum
þér allar upplýsingar um kosti búgarða-
byggðarinnar og viljum gjarnan sýna
áhugasömum svæðið.
Hringið í síma 562 1200 og 862 3311
eða sendið tölvupóst á gard@centrum.is
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Félag heyrnarlausra gerir eftirfar-
andi athugasemdir vegna viðtals
við Atla Árnason lækni og stjórn-
arformann Læknavaktarinnar:
Í Morgunblaðinu hinn 10. janúar
2007 var birt viðtal við Atla Árna-
son, lækni og stjórnarformann
Læknavaktarinnar um táknmáls-
túlkun og kostnað í tengslum við
hana undir yfirskriftinni „Læknar
meta þörf fyrir túlkun“. Upplýs-
ingar sem læknirinn veitti voru
bæði villandi og rangar og er því
ástæða til að gera athugasemdir
við þær.
Orðrétt sagði í fréttinni: „Atli
Árnason, læknir og stjórn-
arformaður Læknavaktarinnar,
sagði engan ágreining vera um
túlkun laga um réttindi sjúklinga.
Hann kvaðst telja réttindi sjúklinga
til túlkaþjónustu mjög mikilvæg en
jafnframt væri nauðsynlegt að sú
þjónusta væri rétt notuð.“ Áfram
sagði síðan í fréttinni: „Hann sagði
það ekki vera í verkahring starfs-
fólks móttöku Læknavaktarinnar
að ákveða hvort kalla ætti til túlka
utan dagvinnutíma, heldur
læknanna sem þar starfa.“
Mjög skýrt kemur fram í 5. gr.
laga um réttindi sjúklinga nr. 74/
1997 að það er hvorki í verkahring
starfsfólks heilsugæslu né lækna að
meta hvort heyrnarlaus ein-
staklingur eigi að fá túlk eða ekki.
Heyrnarlaus einstaklingur ákveður
sjálfur hvort hann þarf að fara til
læknis og þá á hann rétt á túlki.
Svo einfalt er það.
Þessu til áréttingar skulum við
líta nánar á umrædda lagagrein.
Þar stendur: „Sjúklingur á rétt á
upplýsingum um:
a. heilsufar, þar á meðal lækn-
isfræðilegar upplýsingar um ástand
og batahorfur,
b. fyrirhugaða meðferð ásamt
upplýsingum um framgang hennar,
áhættu og gagnsemi,
c. önnur hugsanleg úrræði en
fyrirhugaða meðferð og afleiðingar
þess ef ekkert verður aðhafst,
d. möguleika á að leita álits ann-
ars læknis eða annarra heilbrigð-
isstarfsmanna eftir því sem við á
um meðferð, ástand og batahorfur.
* Þess skal getið í sjúkraskrá
sjúklings að upplýsingar sam-
kvæmt þessari grein hafi verið
gefnar.
* Upplýsingar samkvæmt þess-
ari grein skulu gefnar jafnóðum og
tilefni skapast og á þann hátt og
við þau skilyrði að sjúklingur geti
skilið þær.
* Eigi í hlut sjúklingur sem ekki
talar íslensku eða notar táknmál
skal honum tryggð túlkun á upp-
lýsingum samkvæmt þessari
grein.“
Eins og fram kemur í síðustu
málsgreininni á sjúklingur sem tal-
ar ekki íslensku eða notar táknmál
rétt á því að fá túlkaðar þær upp-
lýsingar sem fjallað er um í 5.
grein. Markmiðið með lögunum er
að tryggja heyrnarlausum sömu
réttindi og öðrum og þessum lögum
fær Atli Árnason ekki breytt.
Við í Félagi heyrnarlausra hörm-
um ummæli læknisins og minnum
hann á að honum ber lögum sam-
kvæmt skylda til að virða rétt
heyrnarlausra til túlkunar. Við
undrumst jafnframt mjög að þessi
orð skuli falla á árinu 2007.
Virðingarfyllst,
f.h. Félags heyrnarlausra,
KRISTINN JÓN BJARNASON
framkvæmdastjóri.
Læknar eiga ekki að meta
þörf fyrir táknmálstúlkun
Frá Félagi heyrnarlausra:
Fréttir á SMS
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn