Morgunblaðið - 04.02.2007, Side 52
Norðurbrún 4 - 104 Reykjavík
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14:30-15:30
5-6 herb. efri sérhæð ásamt bílskúr í Laugarneshverfi Íbúðin er 130 fm,
bílskúr 24,1 fm og geymsla 12 fm. Samtals 166,1 fm. 4 svefnherbergi, 2
stofur. Allar innréttingar og parket eru úr dökkum við, sem gerir heildarsvip
íbúðarinar mjög fallega. Útsýni til norðus. Skemmtilegir garður sem snýr í
suður, nýlega búið að setja mikin trépall og gert ráð fyrir heitum potti í
garði. Verð eignar 37,8 millj.
VERIÐ VELKOMIN - Reynir s. 820-2145 tekur á móti áhugasömum.
Seljavegur 17 – 101 Reykjavík
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14:00-14:30
3ja herb. íbúð í Vesturbæ Reykjavíkur 57,7 fm rishæð í 3ja hæða húsi.
íbúðin er undir súð að hluta til. Búið er að endurbæta íbúð verulega á
smekklegan hátt, bæði innréttingar, tæki og rafmagnshönnun. Eldhús, nýleg
eikarinnrétting og tæki úr burstuðu stáli, snyrtileg íbúð og hlýleg. Verð eignar
17,3 millj.
VERIÐ VELKOMIN – Anna s. 820-2146 tekur á móti áhugasömum.
Grundarstígur 11 – 101 Reykjavík
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14:00-14:30
2ja herb. íbúð í Þingholtunum 65,9 fm 2ja herb. íbúð. 2. hæð t.h. Mjög
rúmgott andyri, með miklu skápaplássi Stofan er rúmgóð, eldhús m/eldri
innréttingu og borðkrók, svefnherbergi snýr út að bakgarði. Þvottatengi
innan íbúðar, einnig þvottahús í sameign. Falleg viðargólf/fjalir sem gefur
íbúð hlýlegt yfirbragð. Rúmgóð íbúð í hjarta borgarinar. Verð eignar 17,4
VERIÐ VELKOMIN – Páll tekur á móti áhugasömum.
LAUGAVEGUR 82 - 101 Reykjavík
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 13:30-14:00
2ja herb. 54 fm íbúð í hjarta Reykjavíkur 54 fm íbúð, rishæð í 3ja hæða
húsi. íbúðin er undir súð að hluta til. Íbúðin þarfnast standsetningar. Eitt
svefnherbergi, stofa, baðherbergi. Eldhús með eldri innréttingu. Húsið
þarfnast endurbóta að utan, úttekt hefur farið fram. Verð eignar 14,3 millj.
VERIÐ VELKOMIN – Bergur s. 860-9906 tekur á móti áhugasömum.
Opið
hús
Opið
hús
Opið
hús
Opið
hús
52 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Gott einbýli á 2 hæðum, samtals um 138,5 fm, vel staðsett í hjarta Hfj. Eignin
hefur verið mikið endurnýjuð á smekklegan hátt ásamt því að lóð hefur verið
endurskipurlögð. Glæsilegur garður m/sólpöllum og tilheyrandi. V. 35 millj.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi, s. 896 0058.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Öldugata - Hf.
Glæsilegt, mikið endurnýjað einbýli á 1 hæð m/bílskúr, samtals um 168,3 fm á
frábærum útsýnisstað við Sævang í Hfj. Mikið endurnýjuð á mjög smekklegan
hátt, þar með talið innréttingar og gólfefni. Skemmtileg aðkoma er að húsinu,
hellulagðar stéttar og plan. Glæsileg hraunlóð m/hraunpollum. Einstök stað-
setning. V. 51 millj.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi, s. 896 0058.
Sævangur - Hf.
ODDUR Þ. Vilhelmsson, dósent
í líftækni við Háskólann á Ak-
ureyri, skrifar grein í Morg-
unblaðið 9. janúar sl.
um „námsleti nem-
enda og kennara“.
Þessi löstur birtist,
að mati Odds, einkum
í „metnaðarleysi stúd-
enta“, sem hann telur
reglu (með kærkomn-
um undantekningum
þó) og kröfuleysi
skólakerfisins (náms-
leti kennara?) þar
sem „allt virðist snú-
ast um að koma sem
flestum nemendum í
gegnum skólakerfið
sem hraðast og með sem minnstri
fyrirhöfn … [og] ekki má á það
minnast að nemandi falli á prófi“.
Þetta ófremdarástand telur Oddur
meðal annars afleiðingu af röngu
skipulagi kennaramenntunar,
einkum skertri „faggreinamenntun
kennara á flestum skólastigum“.
Grein Odds er vafalaust að ein-
hverju leyti sprottin upp úr þeirri
deiglu sem kennaramenntun á Ís-
landi er í um þessar mundir. Fyrir
dyrum stendur sameining Kenn-
araháskóla Íslands við Háskóla Ís-
lands og í Háskólanum á Akureyri
sameining kennaradeildar við fé-
lagsvísinda- og lagadeild. Mér
virðist greinin líka öðrum þræði
sprottin af lífseigri
bábilju um kennslu og
kennaranám. Þessi
bábilja nærist á ein-
hvers konar „pól-
ariseringu“ milli þess
sem kallað er fag-
greinamenntun kenn-
ara og þess sem Odd-
ur kallar
„obbeldisfræði“. Fag-
greinaþekkingin vísar
til þekkingar kennara
á fræðasviðum náms-
greina og „ofbeldis-
fræðin“ (sem ég kýs
að stafsetja án tæpitungu) fjallar
um það hvernig kennarar haga
kennslu sinni og námi nemenda.
Undir því að upphefja fag-
greinaþekkingu en gengisfella
kennslufræði lúrir sú hugmynd að
kennsla sé ekki fag (profession)
sem þarf að læra og að kennarar
þurfi ekki að vera sérfræðingar í
kennslu heldur sé sérþekking á
fræðasviðum námsgreina skólans
þeim nægilegt veganesti.
Þessi „pólarisering“ er að mínu
viti ákaflega hæpinn grundvöllur
undir viti borna umræðu um kenn-
aramenntun. Í mínum huga þarf
að byggja kennaramenntun á
grunni einhvers konar sammælis
um hvaða þarfir nemendur og
skólar hafi og hvers konar mennt-
un fyrir kennara sé best fallin til
að uppfylla þær. Út frá því er
hægt að skapa sýn á það hvernig
menntun við viljum að fari fram í
kennaraskólum. Grunnur að slíkri
sýn getur til dæmis verið hlutverk
og markmið grunnskóla, eins og
þau eru skilgreind í almennum
hluta Aðalnámskrár grunnskóla og
markmiðsgrein (2. gr.)grunn-
skólalaga.
Að minni hyggju er mikilvægast
að kennaramenntun taki mið af
því sem kalla má kennslufræðilega
fagþekkingu (Pedagogical Content
Knowledge). Samkvæmt skilgrein-
ingu bandaríska fræðimannsins
Lee Shulman er kennslufræðileg
fagþekking hið sérstaka fræðasvið
kennarans sem verður til við sam-
runa þekkingar á fræðasviðum
námsgreinar eða -greina og
kennslufræðilegrar þekkingar og
færni. Þessi samruni er grunn-
urinn að þeirri kunnáttu og starfs-
hæfni sem kennurum er nauðsyn-
leg til að geta kennt nemendum
með fjölbreytt áhugasvið og náms-
þarfir og skilur sérfræðinginn í
faggreininni frá kennaranum sem
hefur þekkingu og hæfni til að
kenna greinina (sjá t.d: http://
www.intime.uni.edu/model/
teacher/teac2.html#Definition).
Kennaramenntun sem hefur
kennslufræðilega fagþekkingu að
leiðarljósi þarf að byggjast á
breiðum grunni þekkingar og
rannsókna. Þar þurfa margir að
leggja af mörkum, bæði sérfræð-
ingar á fræðasviðum námsgrein-
anna og sérfæðingar á öðrum
fræðasviðum sem kennurum eru
nauðsynleg til að geta sinnt starfi
sínu vel. Grein Odds styrkir hins
vegar þá sannfæringu, sem ég hef
reyndar lengi haft, að kenn-
aramenntun sem stendur undir
nafni verði að vera á forræði og á
ábyrgð kennaraskóla og skipulögð
frá grunni á forsendum kennslu
og náms en ekki einstakra fræði-
greina. Í slíkri kennaramenntun
er ekki rúm fyrir hallærislegar
klisjur um „obbeldisfræði“ né við-
horf sem telja það „ankannaleg[a]
hundalógík“ að kennarar líti í eig-
in barm til að leita skýringa á
slöku námsgengi nemenda. Þar
getur heldur ekki átt upp á pall-
borðið sú skoðun, sem ég leyfi
mér að lesa milli línanna í grein
Odds, um að áhersla kennara á
fræðin sem eru grunnur fag-
mennsku þeirra stafi af námsleti.
Vafalaust deilum við Oddur
áhuga á góðri menntun íslenskra
ungmenna. Ég held samt að fram-
tíðarsýn hans um kennara-
menntun á forræði annarra deilda
háskóla en kennaradeilda yrði
skólastarfi á Íslandi síst til fram-
dráttar og vona að hún verði aldr-
ei að veruleika; hvorki í Háskól-
anum á Akureyri né við
sameiningu Kennaraháskóla Ís-
lands og Háskóla Íslands.
Kennaramenntun
á kaldri slóð
Rúnar Sigþórsson fjallar um
kennaramenntun og svarar
grein Odds Þ. Vilhelmssonar
»Kennaramenntunsem hefur kennslu-
fræðilega fagþekkingu
að leiðarljósi þarf að
byggjast á breiðum
grunni þekkingar og
rannsókna.
Rúnar Sigþórsson
Höfundur er dósent í mennt-
unarfræði við kennaradeild Háskól-
ans á Akureyri.