Morgunblaðið - 04.02.2007, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 53
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Sími 533 4040
jöreign ehf
Opið mán.–fim. frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.Dan V.S. Wiium hdl.,
OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, KL. 15-17
VESTURÁS 12, 110 RVK
Glæsilegt raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Stærð
168,0 fm. Skiptist í rúmgóða stofu, eldhús, sjónvarpshol, fjögur
svefnherbergi, bað, þvottahús og bílskúr. Allt nýtt á baði og í eld-
húsi. Góður afgirtur garður bæði sunnan og norðan megin við
húsið. Vel staðsett hús í lokuðum botnlanga. Verð 48,0 millj.
Stutt í skóla, útivistarsvæði og aðra þjónustu.
Tekið verður á móti áhugasömum í dag milli kl. 15-17.
lögg. fasteignasali
Kristinn Valur Wiium sölum., s. 896 6913 - Ólafur Guðmundsson sölustjóri, s. 896 4090
Ármúla 21 • Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Öldugata - Glæsileg neðri hæð
Stórglæsileg neðri hæð í fallegu steinhúsi í miðborginni. Íbúðin er nánast algjör-
lega endurnýjuð á vandaðan og smekklegan hátt. Ný, glæsileg, sérsmíðuð inn-
rétting er í eldhúsi, baðherbergi er mjög vandað, ný gólfefni og raflagnir og tafla
eru ný. Rúmgóð stofa með útgangi yfir brú á stóra baklóð og 3 rúmgóð her-
bergi auk fataherbergis. Lofthæð á hæðinni eru um 2,85 metrar. Hús að utan
nýlega viðgert og málað. Verð 50,0 millj.
Ásbúð - Garðabæ - Endaraðhús
Mjög gott 166 fm tvílyft endaraðhús með innb. bílskúr. Húsið er nánast algjör-
lega endurnýjað á vandaðan og smekklegan hátt. Rúmgóðar stofur með útg. á
svalir, glæsilegt eldhús, sjónvarpshol, 3 herbergi og endurnýjað baðherb. og
gesta w.c. Lóð með stórum viðarveröndum og stígum. Verð 44,9 millj.
Seilugrandi – Falleg 5 herb.
íbúð á tveimur hæðum
Mjög falleg 123 fm 5 herb. íbúð á tveimur hæðum ( efstu) auk sér stæðis í bíla-
geymslu. Aðalhæðin sem er 92 fm skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús
með góðri innréttingu, 1 herb. og flísalagt baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Uppi um hringstiga eru hol, 2 herbergi og gesta snyrting. Parket á gólfum. Mik-
ið útsýni úr stofu og útgangur þaðan á suðursvalir. Verð 30,9 millj.
Norðurbrú - Sjáland - Garðabæ
4ra herb. íbúð með um 40 fm svölum
Glæsileg 124 fm 4ra herb. íbúð á efstu hæð í vönduðu lyftuhúsi ásamt 11,4 fm
geymslu í kj. og sérstæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin skiptist m.a. rúmgóða og
bjarta stofu, eldhús með vönduðum tækjum, sjónvarpshol, 3 herbergi og flísa-
lagt baðherbergi, bæði með baðkari og sturtu. Gegnheilt eikarparket á gólfum.
Allar innréttingar og hurðir úr eik. Um 40 fm svalir út af eldhúsi. Sjávarútsýni.
Verðtilboð.
Seljugerði
Mjög glæsilegt 209 fm tvílyft einbýlis-
hús með innb. bílskúr á þessum eftir-
sótta og gróna stað. Samliggjandi
stofur með útgangi á stórar flísalagðar
svalir til suðurs, stórt eldhús, 5 rúm-
góð herbergi og baðherbergi, flísalagt
í gólf og veggi. Hús nýmálað að utan
og í góðu ástandi. Falleg gróin lóð
með hellulögðum veröndum. Nánari
uppl. á skrifstofu. Verðtilboð
Furulundur - Garðabæ
Mjög gott og vel við haldið 208 fm ein-
býlishús á einni hæð auk 50 fm tvöf.
bílskúrs sem er með góðu geymsl-
uplássi. Eignin skiptist m.a. í hol með
sjónvarpsrými, eldhús með góðri borð-
aðstöðu, rúmgóða stofu með arni,
borðstofu með útgangi í sólstofu, 4
herbergi (5 á teikn.) auk fataherbergis
og flísalagt baðherbergi auk gesta w.c.
Fallega ræktaður garður með gróður-
húsi og stórri suðvesturverönd. Hiti í
innkeyrslu að bílskúr. Verð 62,8 millj.
Í UPPHAFI ársins var settur sam-
an vinnuhópur innan okkar raða sem
hefur það eina markmið að setja
saman svokall-
aðar bestu fram-
kvæmdareglur
(e.: best practice)
varðandi frágang
á farmi. Hóp-
urinn sam-
anstendur af ör-
yggisstjórum
aðildarfyrirtækja
SVÞ í vöruflutn-
ingum á vegum.
Ætlunin er að
setja saman reglur sem miðast við
það sem best gerist erlendis og að
innleiða þær reglur innan atvinnu-
greinarinnar. Þannig vill landflutn-
ingageirinn gera kröfur til sjálfs sín
og hafa þessi mál í lagi. Vinnan er
komin í fullan gang sem þýðir að
greinin ætlar sér að taka þetta mál
föstum tökum. Það er ljóst að þetta
starf mun taka nokkurn tíma, en öllu
máli skiptir að byrjað er að greina
vandann og takast á við hann.
Í grein í Morgunblaðinu á föstu-
dag er haft eftir mér að reglugerðin
um frágang á farmi sé handónýt og
má ætla af lestri hennar að atvinnu-
greinin hafi eingöngu tekið við sér
vegna þess að reglugerðin segi ekki
til um hvernig þetta skuli vera. Mér
þykir mjög miður að málið sé lagt
upp með þessum hætti. Við lítum
ekki svo á að landflutningamenn geti
fríað sig ábyrgð af málinu með því að
fela sig á bak við gallaða reglugerð.
Ábendingar blaðamanna og umfjöll-
un í blöðum á haustmánuðum urðu
til þess að við kveiktum á perunni
varðandi að eitthvað varð að gera í
málaflokknum og það strax. Þess
vegna var vinnuhópurinn skipaður,
sem hlýtur að teljast jákvætt skref
af hálfu greinarinnar.
Orðanotkunin handónýt reglugerð
var óheppileg og ónákvæm og beðist
er velvirðingar á því. Reglugerðin
getur verið gölluð en það er ekki að-
alatriði málsins. Aðalatriði málsins
er að vandaður frágangur á farmi er
atriði sem landflutningagreinin hef-
ur ekki lagt nægilega áherslu á en
nú stendur til að bæta úr því. Jafn-
framt þarf að skoða hvort ástæða er
til að breyta einhverju í reglugerð
um frágang farms í flutningum ef
með því móti er hægt að auka öryggi
í umferðinni. Reglugerðin þarf að
vera einföld og skýr og snúast um
aðalatriði þannig að störf bifreiða-
stjóra og lögreglu eða annarra sem
með eftirlit fara séu auðvelduð störf
sín.
SIGNÝ SIGURÐARDÓTTIR,
forstöðumaður flutningasviðs
SVÞ – Samtaka verslunar og þjón-
ustu.
Bestu fram-
kvæmdareglur
Frá Signýju Sigurðardóttur:
Signý
Sigurðardóttir
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Á DÖGUNUM barst okkur hjón-
unum góð sending frá Reykjavík-
urborg. Var þar um að ræða upp-
lýsingabækling um fjölbreytilega
og góða þjónustu sem eldri borg-
urum í Reykjavík stendur til boða.
Þjónustu sem ég er viss um að
margir á mínum aldri hafa ekki
vitað að væri í boði enda hafa upp-
lýsingar af þessu tagi ekki verið
aðgengilegar mörgum eldri borg-
urum sem sjaldnast eru tengdir
við umheiminn í gegnum tölvur.
Borgin stendur fyrir félagsstarfi
af ýmsu tagi í öllum borg-
arhlutum, félagslegri heimaþjón-
ustu fyrir þá sem búa enn á sínu
heimili og þurfa aðstoð við heim-
ilishaldið. Boðið er upp á heitar
máltíðir í hádeginu í félagsmið-
stöðvum og kaffi og með því en
jafnframt að fá mat sendan heim
fyrir þá sem ekki eiga heim-
angengt. Einnig má nefna akst-
ursþjónustu eldri borgara, þjón-
ustuíbúðir, dagvist með
tómstundaiðju, hreyfiþjálfun, fæði
og hvíldaraðstöðu svo eitthvað sé
nefnt.
Til viðbótar þessari þjónustu
sem sérstaklega er hönnuð með
eldri borgara í huga er svo auðvit-
að öll önnur þjónusta, heima-
hjúkrun, bókasöfn, sundlaugar,
heilsugæsla, kirkjur og önnur trú-
félög tíunduð í þessum góða bækl-
ingi sem auðvelda eldri borgurum
að sækja sér þjónustu og njóta
allra þeirra góðu tilboða sem boð-
ið er upp á. Sjálfur hef ég aldrei
fengið jafn skilmerkilega fram
settar og jafn góðar upplýsingar í
þau 12 ár sem ég hef verið eldri
borgari.
Vil ég með bréfkorni þessu
þakka velferðarsviði Reykjavík-
urborgar, þjónustu- og rekstr-
arsviði borgarinnar og þjón-
ustuhópi aldraðra í Reykjavík
fyrir fallegan og aðgengilegan
bækling sem kemur eflaust mörg-
um vel og gerir ævikvöldið
skemmtilegra í návist annars góðs
fólks.
MATTHÍAS MATTHÍASSON,
eldri borgari, 82 ára.
Gott upplýs-
ingaflæði til
eldri borgara
í Reykjavík
Frá Matthíasi Matthíassyni:
KSÍ-ÞING er framundan. Þar
ráða fulltrúar félaganna ráðum
sínum um þessa vinsælustu
íþróttagrein á
Íslandi. Þetta
þing verður
áreiðanlega um
margt sögulegt.
Bæði er það að
farsæll foringi
stígur úr for-
mannsstól eftir
margra ára starf
og svo hitt að
mörg góð mál
liggja fyrir þinginu. Nægir þar að
nefna framfaramál eins og fjölgun
liða í efstu deild. Það var löngu
orðið tímabært að knattspyrnufor-
ustan tæki af skarið í því máli.
Vonandi fylgja í kjölfarið lausnir á
því hvernig hægt verður að lengja
keppnistímabilið að sama skapi.
Annað sögulegt tækifæri býðst
þingfulltrúum að þessu sinni.
Nefnilega að velja stórkostlega
hæfa konu í stjórn Knattspyrnu-
sambands Íslands. Guðrún Inga
Sívertsen hagfræðingur gefur kost
á sér til setu í stjórn. Fyrir utan
að eiga gæfuríkan feril sem knatt-
spyrnukona með KR, Gróttu og
Þrótti hefur Guðrún Inga gengt
fjölmörgum trúnaðarstörfum í
knattspyrnuhreyfingunni. Hún
hefur t.a.m. setið í stjórn knatt-
spyrnudeildar Þróttar í 4 ár, verið
framkvæmdastjóri um skeið og
varaformaður félagsins sl. 2 ár.
Hún á stóran þátt í því að búa til
ótrúlega sterka kvennaknatt-
spyrnu í Þrótti á undraverðum
tíma. Á örfáum árum hefur tekist
að margfalda iðkendafjöldann og í
sumar sem leið tefldi Þróttur fram
liðum í Íslandsmóti í öllum flokk-
um kvenna. Það eru ekki mörg fé-
lög sem leika það eftir. Þeir sem
til þekkja vita að þessi kraftur er
ekki síst kominn frá Guðrúnu
Ingu. Hún situr nú í landsliðs-
nefnd kvenna fyrir A og U21
landslið kvenna sem og í und-
irbúningsnefnd vegna EM U19
kvenna hjá KSÍ.
Að undanförnu hefur KSÍ verið
legið á hálsi fyrir að gera ekki
nægilega vel við kvennaknatt-
spyrnuna í landinu. Að mörgu
leyti á sú gagnrýni rétt á sér og
nýverið áréttaði fráfarandi for-
maður að hér væri ekki um að
ræða vísvitandi kvenfyrirlitningu,
heldur hefðu menn hreinlega ekki
slegið nægilega í takt við tíð-
arandann í þessum efnum. Með
því að kjósa Guðrúnu Ingu í stjórn
KSÍ munu forystumenn knatt-
spyrnuhreyfingarinnar á Íslandi
svo sannarlega slá í takt við tíð-
arandann.
KRISTINN EINARSSON,
formaður Þróttar.
Er KSÍ líka fyrir konur?
Frá Kristni Einarssyni:
Kristinn Einarsson