Morgunblaðið - 04.02.2007, Qupperneq 66
Pera vikunnar:
Summa tveggja talna er 12. Ef stærri talan er þreföld sú minni er
margfeldi þeirra ein eftirfarandi talna.
Hver er hún ?
20, 24, 27, 36, 35.
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12 mánudaginn 12. febr-
úar. Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavog-
ur.is en athugið að þessi Pera verður ekki virk þar fyrr en eftir hádegi
þann 5. febrúar. Þessi þraut birtist á vefnum fyrir kl. 16 þann sama dag
ásamt lausn síðustu þrautar og nöfnum vinningshafanna.
Stærðfræðiþraut Digranes-
skóla og Morgunblaðsins
66 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Lífsmáti og rómantík er voginni ofarlega í huga núna, sem og
börnin og alls kyns afþreying. Á fullu tungli í ljóni um helgina
verða áætlanir og draumar í forgrunni. Mannfagnaður, tilfinn-
ingasemi eða áhugaverðir atburðir eru á döfinni. Spenna gæti
meira að segja látið á sér kræla í samskiptum við óvenjulega
persónu. Vogin gæti fengið innblástur eða kynnst nýjum hug-
myndum og aðferðum. Búðu þig undir örvun eða smávegis fyr-
irstöðu. Breytingar gætu orðið eða snurða hlaupið á þráðinn í
vinnunni. Vogin eltir drauma eða nýja sýn á framtíðina og róm-
antíkin togar í hana, en hvert leiðir það? Óreiða, óvæntar breyt-
ingar og skyndilegar eða dramatísk atburðarás er í vændum.
Vog 23. september – 22. október
Fjarskipti, ferðalög og spennandi sambönd gætu verið ofarlega
á blaði hjá tvíburanum á næstunni. Víkkaðu sjóndeildarhring-
inn til þess að fá fleiri sjónarmið. Fréttir eða viðburðir verða í
tengslum við fullt tungl um helgina, og hrinda nýrri atburðarás
af stað. Kannski stendur tvíburinn í samningaviðræðum. Tak-
markanir þess sem hann getur og getur ekki gert, renna upp
fyrir honum og möguleiki að togstreita varðandi það sem hann
vill gera eða þarf að gera komi upp. Ljós kvikna á öðrum vett-
vangi og toga í hann. Hefur hann frelsi til þess að leita á önnur
mið? Í annarri viku gerir álag eða uppgjör vart við sig, eða þá
að aðskilnaður er í vændum. Stefndu á stjóndeildarhringinn.
Tvíburi 21. maí - 20. j́úní
stjörnuspá 04.02.07
Hrúturinn hugsar um vini, vonir og þrár. Nýttu þér stuðning
félaganna til þess að leysa vandamál. Beittu jaðarhugsun í leit
að lausninni. Næstu vikur einkennast af óróa og þá er best að
temja sér hlutleysi á meðan maður stígur ölduna. Um helgina
er fullt tungl í ljóni og getur það ýtt undir viðkvæmni eða til-
finningasemi. Hrúturinn áttar sig kannski á stöðunni í ótil-
greindu verkefni eða lífinu. Börn koma við sögu. Nýttu það sem
opinberast þér til þess að breyta aðferðum þínum. Nýjar hug-
myndir eða skipulag gerir sitt gagn. Kannski hefur komið upp
ágreiningur í samskiptum við vini sem þarf að lagfæra. Þrýst-
ingur vex innra með hrútnum þegar líður á mánuðinn.
Hrútur 21. mars - 20.apríl
Starfsframinn og vinnutengd málefni eru nautinu ofarlega í
huga núna. Hið sama gildir um samskipti við yfirvald eða
stjórnendur og ábyrgðarhlutverkin sem það gegnir. Á fullu
tungli verða málefni tengd fjölskyldu eða heimili efst á blaði þar
sem nautið leitar jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Tilfinningar
gætu byrjað að vella upp heima fyrir. Spennan heldur áfram í
annarri viku mánaðarins, eitthvað tengt ástum eða peningum á
eftir að koma á óvart, eða breytast. Óvenjulegt eða uppreisn-
argjarnt fólk reynir á þolrifin í samskiptum. Ekki ýta á eftir
þegar mikilvægar ákvarðanir eða skoðanir eru í mótun. And-
rúmsloftið er óstöðugt og einhver gæti brugðist of hart við.
Naut 20. apríl - 21. maí
Fjárhagsáætlanir og sameiginlegar skuldbindingar eru í for-
grunni og krabbinn á í samskiptum við fólk sem sýslar með
peninga. Kannski endurskipuleggur hann peningamálin alveg
frá grunni. Nýjar lendur kalla á hann, en fyrst þarf hann að
standa í skilum vegna eldri landamæra sem hann hefur farið yf-
ir. Á fullu tungli í ljóni fær krabbinn gleggri mynd af fjármál-
unum, ekki síst neysluvenjum sínum og áríðandi skuldbind-
ingar í fjármálum. Spenna gæti gert vart við sig eða einhver
þróun orðið í einkalífinu. Hugsanlega er kominn tími á breyt-
ingar. Í annarri viku febrúar á krabbinn að halda jöfnum hraða,
einhverjum hættir til þess að bregðast of harkalega við.
Krabbi 21. júní - 22. júlí
Makar og nánir félagar koma við sögu á næstunni og ljónið þarf
að sinna ástvini eða sambandi sem er að verða til. Með einum
eða öðrum hætti þarf ljónið að eiga samskipti maður á mann og
samvinna er lykilorðið þar að lútandi. Tilfinningar og spenna
verður ekki af skornum skammti þegar fullt tungl verður í ljóni
um helgina. Samtöl eða athafnir framkalla kraftmikil viðbrögð.
Fjárhagsstaðan gæti verið undir álagi. Skapið gæti sveiflast ei-
lítið fyrstu vikurnar í febrúar, ýkjur af öllu tagi liggja í loftinu.
Ekki láta dramatíkina ná tökum á þér í ástar- eða peninga-
málum, og reyndu að temja þér raunsæi. Farðu varlega ef
endalok eða aðskilnaður virðast á döfinni.
Ljón 23. júlí - 23. ágúst
Dagleg rútína og viðfangsefni tengd vinnu og heilsu koma við
sögu. Komdu þér að verki og byrjaðu á því smæsta því þannig
leysast stóru viðfangsefnin af sjálfu sér. Meyjan finnur hugs-
anlega til þreytu eða einhvers konar óyndis á fullu tungli í ljóni
um helgina, uppákoma eða spenna verður til alveg upp úr
þurru. Veltu þínu innra ástandi fyrir þér og fástu við það sem
gerist í kringum þig af rósemi. Í kjölfarið gætu breytingar eða
óvæntir atburðir orðið hjá einhverjum sem þú ert nákomin.
Notaðu tímann frá 8. febrúar til þess að einbeita þér að vinnu
eða heilsu, spennan heldur áfram að magnast eftir það. Óreiða
eða tafir gætu haft áhrif á maka eða náinn félaga.
Meyja 23. ágúst - 23. september
Sólin er í merki vatnsberans. Til hamingju með afmælið! Fyrsta
mál á dagskrá er fullt tungl í ljóni um helgina, sem beinir at-
hyglinni að þörfum og málefnum þinna nánustu eða félaga
þinna. Búðu þig undir að smávegis spennu, áhuga eða hvatar til
að breyta verði vart hjá þeim. Gamalt vandamál þarfnast úr-
lausnar, eða nýtt viðfangsefni krefst tíma og athygli. Hlustaðu!
Gerðu þér far um að vinna eða leysa málin með öðrum, til þess
að búa til nýjan samstarfsgrundvöll. Þeir sem eru í samböndum
gætu fundið fyrir spennu eða ergelsi. Ef það á ekki við er
kannski eitthvað í vændum innan tíðar. Fólk sem vatnsberinn
þarf að vinna náið með kemur líka við sögu.
Vatnsberi 21. janúar – 19. febrúar
Fiskinn langar ef til vill að taka það rólega eða vinna bakvið
tjöldin. Skapandi eða andleg viðfangsefni gætu verið við hæfi.
Betra er að fylgjast með en að reyna að knýja atburðarásina
áfram. Á fullu tungli í ljóni verða vinna, heilsa og dagleg við-
fangsefni í brennidepli. Eitthvað spennandi eða óvænt leiðir til
breytinga. Finnurðu til óvissu eða óskar þess að vera að gera
eitthvað annað? Skapandi eða rómantískar hneigðir magnast,
en ertu að fá það sem þú þarft út úr núverandi aðstæðum? Fisk-
urinn finnur sig knúinn til þess að tala og framkvæma á næst-
unni en þarf að ræða hlutina til hlítar og fara yfir þá áður en
hann tekur mikilvæga ákvörðun.
Fiskar 20. febrúar – 20. mars
Heimili, fjölskylda og málefni henni tengd eru í brennidepli.
Einbeittu þér að grundvelli tilverunnar, það gerir þér ekkert
nema gott. Einhvers konar hiksti verður í atburðarásinni þegar
tungl er fullt í ljóni um helgina. Einhver sem ræður ferðinni
leggur línurnar eða sýnir tilfinningasemi, hugsanlega kona.
Kannski sér sporðdrekinn hvert leiðin liggur á vinnusviðinu á
næstunni, áköf eða tilfinningaþrungin samskipti verða. Breyt-
ingar gætu orðið í rómantík eða á lífsmáta á næstu dögum. Til-
finningarnar koma upp á yfirborðið, kannski verður sporðdrek-
inn tilfinningaríkur, í ástarhugleiðingum eða óákveðinn.
Blundar einhver ótti undir hinu svala yfirborði?
Sporðdreki 23. október - 21. nóvember
Ferðalög, fjarskipti og viðskiptaáætlanir eru uppi á borðinu.
Drífðu þig út, gerðu eitthvað. Fylgstu með upplýsingum, ferð-
um og tjáskiptum. Á fullu tungli í ljóni verða atburðir eða frétt-
ir berast sem fá bogmanninn til þess að endurskoða ráðagerðir
sínar eða afla sér nýrra sambanda. Snurða gæti hlaupið á þráð-
inn, eða þá að óvenjuleg manneskja sem ekki sér hlutina sömu
augum og bogmaðurinn verður á vegi hans. Hann klórar sér í
kollinum og verður kannski ráðvilltur, en á að flýta sér hægt og
sneiða hjá meiriháttar ákvörðunum. Hindranir eða tafir á því
sem bogmaðurinn fæst við koma upp á yfirborðið síðar. Ein-
hvers konar breytingar eða endalok virðast í vændum.
Bogmaður 22. nóvember – 21 desember
Fjármálin eru steingeitinni efst í huga. Allt snýst um útgjöld og
sparnað. Komdu skikki á peningana og hafðu gætur á þróuninni
í fjármálaheiminum. Á fullu tungli í ljóni koma vandamál eða
áhyggjur upp á yfirborðið. Spenna eða undrun eru viðbrögðin.
Kannski þarftu að ræna Pétur til að borga Páli? Hugsanlega
ræðir steingeitin peningamálin við einhvern sem hefur meiri
reynslu, einhver kemst úr jafnvægi eða verður tilfinninga-
samur út af peningum. Óvæntur fundur hraðar atburðarásinni
og ber með sér fréttir. Kannski þarf að lappa upp á ástandið en
steingeitin verður að sitja á sér og bíða og sjá til. Frekari breyt-
ingar eða þróun er í spilunum, ekki eltast við regnbogann.
Steingeit 22. desember – 20. janúar
Frá Hreppamönnum
Nú er nýlokið að spila þriggja
kvölda tvenndarkeppni en tíu pör
tóku þátt í henni. Það fór sem nokk-
ur undanfarin ár að enginn hafði roð
við þeim Elínu Kristmundsdóttur og
Guðmundi Böðvarssyni sem sigruðu
með nokkrum yfirburðum.
Röð efstu para var þessi:
Elín Kristmundsd. - Guðm. Böðvarss. 329
Þórunn Ingvarsd. - Pétur Skarphéðinss. 317
Helga Teitsd. og Karl Gunnlaugss. 309
Þórdís Bjarnad. og Stefán Sigvaldason 296
Margrét Runólfsd. og Bjarni H Ansnes 282
Ingibj. Stendórsd.- Loftur Þorsteinss. 281
Nú er hafin keppni í aðaltvímenn-
ingi vetrarins og er nú spilað á sjö
borðum, liðsauki hefur borist af
Skeiðum og Tungum og er nú líflegt
á mánudagskvöldum í Huppusaln-
um. Búast má við spennandi og
skemmtilegri keppni hjá þessum
tuttugu og átta keppendum á þeim
fjórum kvöldum sem hún stendur
yfir.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson.
Hreppamenn Frá keppni í aðaltvímenningi vetrarins á Flúðum. Á spil-
unum halda Páll Árnason, Jóhannes Sigmundsson, Þóra Þórarinnsdóttir
og Karl Gunnlaugsson
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsdeildin spilaði tvímenning á
12 borðum fimmtudaginn 1. febrúar.
Miðlungur 220.
Beztum árangri náðu í N/S:
Sigtryggur Ellertss. - Þorsteinn Laufdal
256
Elís Kristjánsson - Páll Ólason 254
Helga Helgad. - Ásgrímur Aðalsteinss. 252
Bergljót Gunnarsd. - Nanna Eiríksd. 241
AV
Ólí Gísla - Stefán Ólafsson 263
Ernst Backmann - Birgir Ísleifss. 253
Guðrún Gestsd. - Bragi Björnsson 254
Rut Pálsd. - Hlaðgerður Snæbjörnsd 245
Verður Zia Mahmood
sveitarfélagi þinn?
Daginn fyrir upphaf Bridshátíðar,
14. febrúar verður haldið Stjörnu-
Ellefu borð
í Gullsmára
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á 11 borðum mánu-
daginn 29. janúar. Miðlungur 220.
Efst vóru í N-S
Jón Stefánss. – Eysteinn Einarsson 287
Guðlaugur Árnas. – Leó Guðbrandss. 239
Steindór Árnas. – Guðm. Magnúss. 234
Sigurður Guðjónss. – Sigurpáll Árnas. 233
A-V
Guðrún Gestsd. – Bragi V. Björnss. 271
Sigtr. Ellertss. – Þorsteinn Laufdal 252
Kristinn Guðmss. – Guðm. Pálsson 245
Páll Guðmss. – Ragnhildur Gunnarsd. 233
stríð, nánar tiltekið Stjörnu-hrað-
sveitakeppni í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Skráning er hafin í þessa keppni, en
þátttaka er takmörkuð.
Bridshátíðarnefnd velur úr hópi
umsækjenda ef áhugi fer fram úr
vonum. Lokafrestur til að skrá sig
er til 7. febrúar. Skráning fer fram í
pörum og er þátttökugjald 30.000
krónur á parið, en innifaldir í því
gjaldi eru sveitarfélagar á heims-
mælikvarða sem valdir eru af
Bridshátíðarnefnd.
Setningarathöfn þessa móts hefst
klukkan 18:00, spiluð verða um það
bil 30 spil og spilamennska hefst um
klukkan 19:00. Þátttakendur draga
sér sveitarfélaga úr hópi valinna
para í upphafi móts og einnig verður
boðið upp á veitingar. Ef pör útvega
sér styrktaraðila spilar sveitin undir
hans nafni.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin og bötlerárangur para.
Nú þegar hafa verið valin fjölmörg
sterk pör til að spila annan vænginn
og má þar til dæmis nefna Zia
Mahmood – Jacek Pszczola, Sam
Lev – Reese Milner, Jón Baldursson
– Þorlák Jónsson, Sigurbjörn Har-
aldsson – Bjarna Einarsson, Matt-
hías Þorvaldsson – Magnús Magn-
ússon, Rune Hauge – Tor Helness,
P.O. Sundelin – P.G. Eliasson,
George Mittelman – Arno Hobarth,
Boris Baran – John Carruthers.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 23. jan. var spilað á
15 borðum.Meðalskor var 312.
Úrslit urðu þessi í N/S
Jón Hallgrímss. – Jón Lárusson 368
Ragnar Björnss. – Eysteinn Einarsson 366
Magnús Oddss. – Magnús Halldórss. 351
Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 350
A/V
Sverrir Jónss. – Skarphéðinn Lýðss. 383
Björn Karlsson – Jens Karlsson 376
Björn Björnsson – Haukur Guðmss. 367
Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 350
Bridsfélag
Kópavogs
Gísli og Leifur gáfu ekkert eftir á
lokasprettinum og kláruðu Baró-
meterinn með stæl.
Lokastaðan:
Gísli Tryggvason - Leifur Kristjánss. 92
Bernódus Kristins. - Hróðmar Sigurbjs. 85
Eiður M Júlíusson - Júlíus Snorrason 78
Hrund Einarsd. - Vilhj. Sigurðss. 63
Guðni Ingvarss. - Halldór Einarsson 53
Næsta fimmtudagskvöld verður
eins kvölds tvímenningur, sem gæti
verið upplagður sem æfing fyrir
Bridshátíð.