Morgunblaðið - 04.02.2007, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2007 73
menning
ÓSKUM EFTIR FASTEIGNUM FYRIR A.M.K. 10 MILLJARÐA
Traustur fjárfestir hefur beðið Eignamiðlun ehf. að útvega góðar fasteignir
svo sem: skrifstofuhúsnæði, verslunarpláss, ýmiskonar atvinnuhúsnæði og
hótel. Eignirnar þurfa helst að vera í útleigu til traustra aðila.
Lágmarksfjárfesting í hverju tilviki væri um 100 milljónir króna.
Kaup á fasteignafélagi koma einnig til greina.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Hákon Jónsson lögg. fasteignasali.
IÐNAÐARPLÁSS ÓSKAST – KAUP EÐA LEIGA
Traustur aðili óskar eftir u.þ.b. 350 fm iðnaðarplássi til kaups eða
leigu. Lofthæð um 3,5 metrar.
Æskileg staðsetning: Kópavogur, Vogar (Rvk).
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Geir Sigurðsson lögg. fasteignasali.
Hver ræður för?
Virðing og samvinna
Málþing Sjónarhóls um skólagöngu barna með sérþarfir
fimmtudaginn 8. febrúar kl. 13.00-16.00
í Gullhömrum, Grafarholti.
Á málþinginu verður varpað ljósi á þjónustu skóla
frá sjónarhóli notenda.
Málþingið er ætlað foreldrum og
öllum þeim sem láta sig málefni barna með sérþarfir varða.
Skráning fer fram á heimasíðu Sjónarhóls
www.sjonarholl.net
Þátttaka er endurgjaldslaus.
Íbúðir á Akureyri óskast
Óskum eftir tveimur „lífeyrissjóðs-íbúðum” á Akureyri. Önnur 2ja
herbergja u.þ.b. 60 fm. En hinni 3ja–5 herb., 100-140 fm. Íbúðirnar
þurfa að vera í blokkum með húsverði og góðri sameign.
Nánari upplýsingar veitir Hákon Jónsson lögg. fasteignasali. Fyrsti konsert er frír SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Akureyri
í boði FL Group og Sinfóníuhljómsveitarinnar
ÞRIÐJUDAGINN 6. FEBRÚAR KL. 19.30
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Lilya Zilberstein
tónleikar í íþróttahúsinu við síðuskóla á akureyri
Jón Leifs ::: Trilogia
Edvard Grieg ::: Píanókonsert
Dímítríj Sjostakovítsj ::: Sinfónía nr. 5
FIMMTUDAGINN 8. FEBRÚAR KL. 19.30
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Lilya Zilberstein
gul tónleikaröð í háskólabíói
Branko Okmaca ::: Inventio
Sergej Rakhmanínov ::: Tilbrigði um stef eftir Paganini
Jean Sibelius ::: Sinfónía nr. 2
miðasala í pennanum í hafnarstræti og við innganginn.
Reykjavík
flugfélag íslands styrkir
ferðina til akureyrar
landsbankinn styrkir hljómsveitina
á tónleikaferðum erlendis
Sinfóníuhljómsveitin heimsækir höfuðstað Norðurlands
og flytur hluta af efnisskrá sem þýskum tónlistarunn-
endum verður boðið upp á í tónleikaferð hljómsveitar-
innar um Þýskaland nú í febrúar.
Rússneski píanistinn Lilya Zilberstein
hefur verið talin einn fremsti píanóleikari
Rússlands af yngri kynslóðinni.
Þýskaland
ÞAÐ var mikið líf í spilamennsku
BONSOM-kvarettsins á Kaffi Rósen-
berg föstudagskvöldið 26. janúar. Öll
lögin voru frumsamin af þeim félögun
og mörg hver hin skemmtilegustu
þótt allólík væru. Þorgrímur með
ljúfar melódíur meðan Andrés og
Eyjólfur voru heldur villtari og Andr-
és meiri hljómamaður en Eyjólfur,
sem er ansi melódískur í tónhugsun
sinni, hvort sem um tónsmíðar eða
spuna er að ræða. Scott átti tvö lög og
var annað þeirra, Free jazz Jump,
óborganlega skemmtilegt og minnti
um margt á Ornette Coleman þegar
hann var í djömpblús fílingnum eins-
og á skífunni New York Is Now.
Þessi kvartett á eftir að spila sig bet-
ur saman og ná betra valdi á efnis-
skránni, en þá ættu þeir að fara í
hljóðver og er ég sannfærður um að
úr því kæmi fyrstaflokks diskur.
Eyjólfi hefur farið gífurlega fram
síðan ég heyrði hann fyrst fyrir
nokkrum árum, sér í lagi er tónninn
fallegri, og stundum er einhver skyld-
leiki milli hans og Gato Barbieri í hin-
um fasta tóni og melódísku hugsun
þótt Eyjólfur ýlfri ekki einsog Arg-
entínumaðurinn. Hinn rolliníski
hugsanagangur liggur honum ekki
heldur fjarri, þótt hvorugur þessara
snillinga stjórni leik hans. Ég hef allt-
af gaman af Andrési Þór þegar hann
sleppir fram af sér beislinu og leyfir
villimanninum sem býr í brjósti hans
að blómstra – hann gerði það strax í
fyrsta laginu, Benson eftir Eyjólf, og
sönglaði með hráum gítarsólónum.
Þorgrímur lék fínan bassainngang í
danska stílnum að gullfallegri mel-
ódíu sinni Spiffy og hrynleikur þeirra
Scott var fínn allt kvöldið. Það er mik-
ill fengur að Scott McLemour hér –
hann er hrikalega góður trommari.
Mörg laga þeirra félaga voru vel
samin og ekki var heillandi laglína
Eyjólfs í Beggja heima sú sísta – en
vonandi fær maður að heyra þessi lög
aftur því margt breytist eftir að hafa
heyrt eitthvað, lesið eða séð aðeins
einu sinni.
Villt og ferskt
TÓNLIST
Kaffi Rósenberg
Eyjólfur Þorleifsson tenórsaxófón, Andr-
és Þór Guðlaugsson gítar, Þorgrímur
Jónsson bassa og Scott McLemour
trommur.
26. janúar 2006 kl. 23.00.
Djasskvartettinn BONSOM
Vernharður Linnet
SÍÐLA á sjöunda áratugnum sá ég
The Happening, litlausa og löngu
gleymda meðalmynd ef ekki hefði
komið til frábært og grípandi tit-
illagið, flutt af slíkri snilli af Diönu
Ross og The Supremes að maður
raular það enn í dag. Stúlkurnar
voru fantagóðar ofurstjörnur og
ekki skaðaði útlitið. Það hefur í raun-
inni dregist furðu lengi að gerð yrði
kvikmynd um ótrúlegan og litríkan
feril stúlknanna frá „Vélaborginni“.
Dreamgirls er byggð á aldarfjórð-
ungsgömlum Broadway-söngleik,
um upprisu söngsveitarinnar The
Dreams og dægurtónlist annarra
þeldökkra listamanna á sjöunda ára-
tugnum og byltingarkennd áhrif
hennar á dægurmenninguna sem
komu til að vera. Þetta er lítið eitt
felulituð saga The Supremes, Mo-
town-hljómsins og plötuframleið-
andans Berry Gordy Jr., sem nefnist
Curtis Taylor Jr. (Foxx), í myndinni.
Hann var eigandi og stofnandi merk-
isins Tamla-Motown í Detroit sem
kom The Supremes og fjölda ann-
arra átrúnaðargoða á framfæri og til
varð nýr risi á íhaldssömum plöt-
umarkaðnum. Um árabil var Mo-
town-sándið eitt það heitasta og
ferskasta í poppinu, borið uppi af
herskara þeldökkra listamanna, en
myndin hefst þegar The Dreamettes
eru að byrja að vekja athygli og
radda hjá stjörnunni og soulsönvar-
anum James Early (Murphy). Að-
aldriffjöðrin í The Dreamettes er Ef-
fie White (Hudson), hún er einnig
lagskona Taylors, en skjótt skipast
veður í lofti. Þegar hróður The Drea-
mettes eykst og auðsætt í hvað
stefnir, gerist margt í einu. Snilli
Curtis felst ekki síst í að vita hvað
áhorfendur vilja sjá og heyra og Ef-
fie er látin víkja sem aðalsöngkona
fyrir hinni grönnu og glæsilegu
Deenu Jones (Knowles). Sveitin tek-
ur upp nafnið The Dreams, hvort
tveggja er þjálla og sölulegra. Curtis
lætur ekki þar við sitja því hann vís-
ar Effie einnig á dyr í svefnherberg-
inu og þar tekur Deena einnig við.
Líf Effie breytist fljótlega á ný í
martröð fátæktar og vansældar á
meðan hún fylgist með The Dreams
sigra heiminn. Lífið er heldur enginn
dans á rósum hjá stjörnunum, Curtis
verður stjórnsamari og aðgangs-
harðari með hverjum deginum. Á
þeim 10–15 árum sem myndin
spannar, fellur Early frá af völdum
eiturlyfja, Curtis einangrast, tónlist-
in breytist og Dreamgirls endar þeg-
ar nýr kafli, diskóið, er að taka yfir.
Dreamgirls er oft á tíðum hrífandi
sjónarspil fyrir augað, sjöundi ára-
tugurinn endurspeglast í nost-
urslegum sviðsmyndum, leikmunum
og búningum og leikararnir eru sem
snýttir út úr þessum bylting-
artímum, bæði í útliti og framkomu.
Söng- og dansatriðin eru glæsileg og
leikararnir standa sig yfirhöfuð vel.
Tónlistin er því miður alls ekki í
sama gæðaflokki, því síður að finna
tónsmíðar eftir Holland-Dozier-
Holland né aðra sögufræga laga-
smiði sem áttu stóran þátt í að skapa
Motown-hljóminn og gera þann sjö-
unda að þeim einstaka tónlistarfagn-
aði sem hann var. Í staðinn fáum við
dæmigerða Broadway-söngleikja-
tónlist, og það eru ekki góð skipti,
með heiðarlegum undantekningum.
Umgjörðin verður fyrir vikið of-
urvenjulegt músíkal og persónurnar
ná ekki að fanga mann tilfinn-
ingalega – með heiðarlegum und-
antekningum.
Jennifer Hudson sem Effie (hin
brottrekna Florence
Ballard í The Supre-
mes) lýsir upp atriðin
þar sem hún fær að
njóta sín. Þegar hún
syngur „And I’m Tell-
ing You I’m Not Go-
ing“, rís Dreamgirls í
hæstu hæðir fyrir til-
stuðlan þessarar frá-
bæru söngkonu, sem á
mjög raunhæfan
möguleika á Ósk-
arsverðlaunum fyrir
leik í aukahlutverki. Sama gildir um
Murphy, hann er ótvíræður senu-
þjófur sem söngvarinn Early, sem
hann túlkar útlitslega til heiðurs
Little Richard og Glover er þéttur
að venju.
Verr gengur að kyngja túlkun
Knowles og Foxx, hvorugt þeirra
nær til manns, reyndar hefur söng-
konunni ekki tekist að sýna umtals-
verð leikræn tilþrif til þessa.
Condon á m.a. að baki meist-
araverkið Gods and Monsters, hina
eftirminnilegu Kinsey og handrit
Chicago, sem er ein ofmetnasta Ósk-
arsverðlaunamynd síðari ára. Það
má vel vera að Dreamgirls verði
einnig hlutskörp í ár, þá að öllum lík-
indum fyrir besta lagið, og þau
Murphy og Hudson eiga Óskarinn
skilið, frammistaða þeirra ein og sér
nægir til að bregða sér í bíó. En
þrátt fyrir allt glitrið og ljósadýrðina
er skugginn af tónlist Diönu Ross og
the Supremes, of fyrirferðarmikill.
Drauma-
verksmiðjan
frá Detroit
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Bill Condon. Aðalleikendur:
Jamie Foxx, Beyoncé Knowles, Eddie
Murphy, Danny Glover, Jennifer Hudson,
Anika Noni Rose. 131 mín. Bandaríkin
2006.
Draumastúlkur/Dreamgirls Dreamgirls „Söng- og dansaatriðin eru glæsileg
og leikararnir standa sig yfir höfuð vel.“
Sæbjörn Valdimarsson