Morgunblaðið - 17.02.2007, Side 22
22 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
GRÍNSÝNINGIN Laddi
6-tugur verður frumsýnd í
Borgarleikhúsinu í kvöld.
Laddi er auðvitað einn
ástsælasti leikari þjóð-
arinnar og hefur búið til
persónugallerí sem flest-
um er ógleymanlegt.
Nægir að nefna þau Eirík
Fjalar, Jón spæjó, Saxa
lækni og Elsu Lund. Laddi hefur einnig
smíðað fjölda laga og texta sem lifað hafa
með þjóðinni og mun án efa flytja eitthvað
af því gríngóssi sem glatt hefur fólk um það
þriggja áratugaskeið sem hann hefur
skemmt landsmönnum.
Fyrri sýning kvöldsins hefst kl. 20 en sú
seinni kl. 22.30. Upplýsingar um aðrar sýn-
ingar má finna á vefnum midi.is og hjá
Borgarleikhúsinu.
Leikhús
Laddi grínast í
Borgarleikhúsi
ANNA Lind Sævarsdóttir
myndlistarmaður opnar í
dag ljósmyndasýninguna
Feel free to join me í Gall-
eríi auga fyrir auga, Hverf-
isgötu 35.
Þetta er fyrsta einkasýn-
ing Önnu Lindar en hún út-
skrifaðist frá myndlist-
ardeild Listaháskóla
Íslands vorið 2006 og hefur
tekið þátt í mörgum sam-
sýningum hér heima og erlendis.
Í Galleríi auga fyrir auga sýnir hún ljós-
myndir þar sem ólga, fiðringur og frelsi eru
lögð til grundvallar. Það er í framhaldi af
hennar fyrri verkum en hún hefur einnig feng-
ist við málverk og innsetningar.
Sýningin Feel free to join me verður opnuð í
dag kl. 14 og stendur til 11. mars.
Ljósmyndir
Ólga og frelsi
Önnu Lindar
Feel free to
join me.
Í NÓVEMBER síðast-
liðnum fluttu nokkrir fé-
lagar úr Hugleik sagna-
dagskrá í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Dagskráin
kallaðist Einu sinni var…
og var samsett úr örlaga-
sögum af forfeðrum þátt-
takenda. Var þetta afrakst-
ur af námskeiði sem
Benedikt Erlingsson og
Charlotte Böving héldu fyr-
ir Hugleikara. Ákveðið hef-
ur verið að endurflytja dagskrána í Þjóðleik-
húskjallaranum vegna fjölda áskoranna.
Sýningarnar fara fram á morgun, sunnudag og
þriðjudaginn 20. febrúar. Miðaverð er 1.000
kr. og hægt er að panta miða á netfanginu
hugleikur@hugleikur.is. Sýningar hefjast
klukkan 21.
Sýning
Einu sinni
var …
Charlotte Bøving
og Benedikt
Erlingsson.
SÖNGKONAN Ellen
Kristjánsdóttir og Eyþór
Gunnarsson píanóleikari
flytja perlur íslenskra
sálma í eigin útsetningum á
tónleikum í Hallgríms-
kirkju á morgun, sunnudag.
Diskur Ellenar, Sálmar,
hlaut Íslensku tónlistar-
verðlaunin árið 2004 en Ey-
þór, sem hefur lengi staðið í
framvarðasveit íslenskra
hljómborðsleikara, mun á
tónleikunum leika á Bösendorfer-flygil Hall-
grímskirkju. Tónleikarnir verða þeir fjórðu í
röðinni Sálmar á afmælisári sem Listvinafélag
Hallgrímskirkju stendur fyrir.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og miðaverð
er 1.500 krónur, en 500 krónur fyrir náms-
menn.
Tónleikar
Sálmar í Hall-
grímskirkju
Ellen Kristjáns-
dóttir og Eyþór
Gunnarsson.
FJALLAÐ var um
sýninguna Hraun-
land eða Lavaland í
danska dagblaðinu
Berlingske Tidende í
gær.
Á sýningunni, sem
er í listasafninu
Gammel Strand í
Kaupmannahöfn,
getur að líta verk
eftir Ólaf Elíasson
og Jóhannes S. Kjar-
val og er það sýn
listamannanna á
náttúruna sem þar
er til skoðunar.
Myndlistargagnrýnandinn
Torben Weirub gefur Hraunlandi
fjórar stjörnur af sex mögu-
legum. Hann segir að þótt mynd-
ir Kjarvals komi að sjálfsögðu
fyrir sjónir sem gamaldags sé
ýmislegt gott í þeim að finna.
„Og það er hægt að sjá tengingu
við verk Ólafs Elíassonar og geta
sér til um hvað í verkum fyrr-
nefnda málarans gæti hafa vakið
áhuga þess síðarnefnda,“ segir
Weirub sem þykir augljóslega
mikið til Ólafs koma.
Hann gerir sýn listamannanna
á náttúruna því næst skil, segir
Kjarval einbeita sér að formi og
anda hennar en Ólafur nemi úr
gildi þá sýn að íslenska lands-
lagið sé einstakt og áhrifamikið.
Hraunland í Berl-
ingske Tidende
Náttúran Mosi og hraun eftir Jóhannes S. Kjarval.
Sýningin fær fjórar stjörnur af sex
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÚTIBÚ frá Anima-galleríi í Ingólfs-
stræti opnar í dag á annarri hæð í
Iðuhúsinu við Lækjargötu.
„Þetta er um 100 fm sýningar-
salur með opinni framhlið þannig að
þegar fólk kemur upp stigann þá
blasir salurinn við,“ segir Kristinn
Már Pálmason myndlistarmaður
sem er á bak við rekstur Anima-
gallerís ásamt eiginkonu sinni
Hólmfríði Jóhannesdóttur söng-
konu.
„Þó þetta sé opið gallerí hefur það
samt eiginleika hins hefðbundna
gallerís með einkarýmið. Eini mun-
urinn á þessu og hefðbundnu galleríi
er staðsetningin og hversu opið það
er. Það er heilmikil áskorun, þetta er
í rauninni nýtt form af galleríi sem
nær til miklu fleira fólks. Listin er
að keppa við annað umhverfi þarna
inni en það, að galleríið þurfi að vera
heilagur staður er brotið upp. Menn
eru alltaf að hólfa í galleríum en við
brjótum það upp á faglegum nótum
gallerísins,“ segir Kristinn og minn-
ist þess ekki að hafa séð svipað gall-
erí annarsstaðar í heiminum.
Þrátt fyrir að Anima hafi aðeins
verið starfrækt í eitt ár í Ingólfs-
strætinu hefur það blundað í Kristni
og Hólmfríði í nokkurn tíma að opna
útibú. „Það hefur verið gífurlega
mikil aðsókn í að sýna hjá okkur í
Ingólfsstrætinu þannig að við sáum
fram á að það væri grundvöllur fyrir
þessari stækkun og í rauninni þörf.“
Stefnan þróast með tímanum
Spurður hvort það verði breyttar
sýningaáherslur í Iðuhúsinu frá Ing-
ólfsstræti svarar Kristinn já og nei.
„Við tölum ekki opinberlega um
ákveðna stefnu heldur viljum láta
þetta þróast í friði. En með tilkomu
útibúsins gefst okkur auðvitað færi á
að kynna fleiri myndlistarmenn og
sinna enn öflugri sýningardagskrá.“
Sýningin sem opnar í útibúi Animu í
dag er sett saman úr hópi lista-
manna. „Þeir sem eru þarna núna
eru Jón Garðar Henrysson sem er
ný kominn til okkar, Bára Krist-
insdóttir ljósmyndari, Jón Óskar,
Erla Þórarinsdóttir, Spessi sem er
líka nýr hjá okkur, ég sjálfur, Bjarni
Sigurbjörns, Iain Sharpe og Múni
sem eru tveir ungir listamenn sem
starfa saman og Brynhildur Þor-
geirsdóttir. Við setjum saman sýn-
ingu með verkum þessara lista-
manna sem sýnir kannski svolítið
stefnu gallerísins. Næsta sýning
verður svo opnuð hjá okkur 17. mars
en það verður einkasýning Bjarna
Sigurbjörnssonar.“
Kristinn segir að auk hefðbund-
inna sýninga megi búast við ein-
hverjum uppákomum í galleríinu
þegar fram líða stundir. „Það verður
ekki söngkennsla eins og í Ingólfs-
strætinu en hugsanlega tónlistar-
uppákomur og gjörningar, enda býð-
ur rýmið upp á það.“
Í Lækjargötu gefst fólki kostur á
að skoða myndlistarsýningar í
Anima-galleríi á kvöldin þar sem
húsið er opið alla daga vikunnar frá
kl. 10 til 22.
Morgunblaðið/Golli
Nýjung Hólmfríður Jóhannesdóttir og Kristinn Már Pálmason í hinu nýja útibúi frá Anima-galleríi sem gefur þeim
færi á að kynna fleiri myndlistarmenn og sinna enn öflugri sýningardagskrá en hefur verið hingað til.
Nýtt gallerísform
Anima-gallerí opnar útibú í Iðuhúsinu í Lækjargötu
Í HNOTSKURN
» Nýja galleríið á annarrihæð í Iðuhúsinu í Lækjar-
götu 2a mun einnig heita
Anima-gallerí eins og móður-
galleríið í Ingólfsstræti 8.
» Í dag verður einnig opnuðný heimasíða gallerísins á
slóðinni: www.animagalleri.is.
» Önnur nýjung í starfsemiAnima er þjónusta og ráð-
gjöf við val og innsetningu á
myndlist fyrir heimili og fyr-
irtæki.
Tilbagekalding av
varmekabelprodukter
Nexans Norway AS har opdaget en fejl i et fåtal varmekabel-
produkter. Der er ikke blevet rapporteret nogen hændelser
knyttet til fejlen. Nexans Norway AS har for sikkerheds skyld
besluttet at tilbakekalde følgende produkter:
- Nexans Millimat, solgt i perioden 26.10.06.-14.02.07.
- Hunton Silencio EL, solgt i perioden 09.11.06.-14.02.07.
Nexans Millimat sælges til elektriker gennem elektrogrossist.
Forbrugere som har købt og/eller fået installeret gulvvarmesystem
af denne typen, i det aktuelle tidsrom, skal slå varmekablerne
af. Kontakt derefter ansvarlig elektriker som kan opplyse om dit
varmekabelanleg omfattes av tilbagekaldet. Hvis dette er
tilfældet skal elektrikeren kople varmekablerne fra og derefter
kontakte Nexans Norway AS.
Kontrol og eventuel udbedring af det installerede produkt vil ske
på stedet efter Nexans Norways anvisning. Produkter som ikke
er installeret byttes hos forhandler.
Eventuelle spørsmål rettes til Nexans Norway AS på telefon
800 874 73 eller på firmapost@nexans.com.
Opplysninger om tilbagekaldet og yderligere information til
elektrikere findes også på vores hjemmeside www.nexans.no