Morgunblaðið - 17.02.2007, Side 32
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur
thuridur@mbl.is
Hönnunarverðlaun FÍT,Félags íslenskra teikn-ara, voru afhent í gær ísjöunda sinn í Lista-
safni Reykjavíkur. Veitt eru verð-
laun í ellefu flokkum sem eru:
Bréfagögn, vöru- og firmamerki,
prentað kynningarefni, bæklingar,
bókakápur, bókahönnun, vegg-
spjöld, plötuumslög, umbúðir,
myndskreytingar og opinn flokkur.
„Við veitum líka sérstök verðlaun
fyrir nemendur á lokaári í
Listaháskóla Íslands og Myndlist-
arskólanum á Akureyri. Það er
alltaf gaman að sjá hvað kemur
frá þeim því þar eru hlutirnir að
gerast,“ segir Haukur Már Hauks-
son, sem hefur umsjón með hönn-
unarverðlaununum og er formaður
FÍT.
Spurður um verðlaunaverkin
segir Haukur að frjó hugsun ein-
kenni þau og nefnir sérstaklega
umbúðaverðlaunin. „Maður hefur
ekki séð lopaumbúðirnar utan um
brennivín áður í þessu samhengi
og þar er verið að tengja hið
gamla góða íslenska handverk við
gamla góða brennivínið, það er
mjög skemmtileg tenging. Annars
eru engar nýjungar beint á ferð,
enda gerast þær svo hægt að mað-
ur tekur í raun og veru ekki eftir
þeim.“ Hann segir markmiðið með
verðlaununum vera að vekja at-
hygli á góðri grafískri hönnun og
mikilvægi hönnunarinnar. „Þetta
er auðvitað hluti af því að efla fag-
legan metnað meðal grafískra
hönnuða á Íslandi. Starfsheitið
fékk líka lögverndun síðastliðið
sumar og menn eru agalega glaðir
með það – og mörgum fannst
löngu kominn tími til.“ Haukur
ætlar að um helmingur félags-
manna í FÍT starfi á auglýsinga-
stofum, aðrir sem einyrkjar eða á
minni hönnunarstofum en sjálfur
vinnur hann á auglýsingastofunni
Pipar.
Hversdagslist?
Grafísk hönnun er fyrir mörgum
nokkuð óljós starfsgrein og í raun-
inni gera margir sér ekki grein
fyrir að á bak við t.a.m. mjólkur-
vöruumbúðir liggur mikil vinna.
Verðlaunaflokkarnir endurspegla
einmitt víðtækt starfið. „Það sem
er skemmtilegt við fagið, og um
leið erfitt, er að hönnunin er fyrir
augunum á fólki allan daginn og
alla daga og það gera sér svo fáir
grein fyrir að það sé einhver vinna
og hugsun á bak við þessa hluti.
Þess vegna er kannski svolítið erf-
itt að byggja upp virðingu fyrir
þessu fagi því fólki finnst þetta
svo sjálfsagt. En um leið er vinnan
mjög fjölbreytt, það gerir þetta
svo skemmtilegt. Einn og sami
maðurinn býr til frímerki í dag og
veltiskilti úti á götu daginn eftir.
Auk þess getur hann unnið við
sjónvarp og ýmsa vefmiðla. En
það er rétt að menn hugsa ekki
mikið um góða hönnun á neyslu-
vörunum í stórmörkuðunum. Fólk
skynjar ekki vinnuna á bak við
einfaldar umbúðir sem lenda síðan
í ruslinu.“ „Umbúðaruslið“ megi
þó sums staðar finna á veggjum og
vísar Haukur þar til verka eins og
súpudósa Andy Warhols.
Skyldi þá listin á bak við hönn-
unina ná til fólks? „Við vonumst til
að mikilvægi góðrar hönnunar síist
inn með því að vera sýnileg a.m.k.
einu sinni á ári. Hönnun á Íslandi
er ekki gamalt fag en fyrir ímynd
landsins skiptir máli að grafísk
hönnun sé á háu plani. T.a.m. eru
ýmiss konar skilti með því fyrsta
sem fólk sér þegar það kemur til
landsins. Við eigum líka marga
færa grafíska hönnuði. Gallinn er
að við erum auðvitað fá en verk-
efnin eru mun fjölbreyttari.“
Öll verkin sem unnu til hönn-
unarverðlauna FÍT munu taka
þátt í hönnunarkeppni hjá Art
Directors Club of Europe, sam-
tökum hönnunarfélaga í Evrópu,
sem gefa út bók um öll verkin.
Myndskreytingar
1. verðlaun,
Ámundi Sigurðs-
son: Lands-
bankasería 2006.
Opinn flokkur 1. verðlaun, Hildur H. Zoëga: Boðskort í veiðiferð.
Plötuumslög 1. verðlaun, Ísak Winther, Sigur Rós, Alex og Lukka: Sæglópur.
Umbúðir 1. verðlaun, Arn-
ar Geir Ómarsson og Halla
Helgadóttir: Brenni-
vínsumbúðir/lopasokkur.Frímerki í dag,
veltiskilti á morgun
Umbúðir Viðurkenning,
Ásgerður Karlsdóttir: Nýj-
ar umbúðir fyrir 1944.
daglegt líf
32 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
22
92
7
Sértilboð fyrir korthafa MasterCard
Búdapest
4.-7. maí
Ferðaklúbbur MasterCard, í samstarfi við Heimsferðir, býður korthöfum
frábært tilboð í þriggja nátta helgarferð til Búdapest 4. maí. Í boði er gisting
á nokkrum vinsælum gististöðum í borginni.
Maí er frábær tími í Búdapest, vorið allsráðandi og borgin öll í blóma og
skartar sínu fegursta. Fjölbreyttir gistivalkostir í boði.
Búdapest er í dag ein eftirsóttasta borg í Evrópu enda er hér að finna hið
gamla menningarhjarta Evrópu sem státaði af því besta í menningu, listum
og húsagerðarlist. Borgin er staðsett á einstökum stað við Dóná sem rennur í
gegnum borgina miðja og skiptir henni í tvo hluta; Búda sem er byggð í hlíð
vestan megin við ána og er eldri hluti borgarinnar og hinsvegar Pest.
Beint flug Heimsferða gefur þér tækifæri á að kynnast þessari heillandi
borg. Í boði eru góðir gististaðir og spennandi kynnisferðir um borgina með
fararstjórum Heimsferða.
MasterCard verð Almennt verð
City Hotel Matyas *** 44.990 49.990
Hotel Mercure Nemzeti **** 49.990 55.990
Hotel Radisson SAS ****+ 54.990 58.990
Innifalið: Flug, skattar, gisting með morgunverði í 3 nætur og íslensk
fararstjórn. Ferðir til og frá flugvelli eru ekki innifaldar.
Verð eru netverð á mann í tvíbýli.
Nánari upplýsingar og bókanir á www.heimsferdir.is,
á skrifstofu Heimsferða í Skógarhlíð 18 og í síma 595 1000.
Frábært tilboð!
Besti tíminn
í Búdapest
Kynntu
þér einnig
frábært til-
boð til Kúbu
18. mars
ÚTFARIR eru í eðli sínu íhalds-
samar en taka í áranna rás hæg-
fara breytingum. Allstórt stökk inn
í „nútímann“ var þó nýlega tekið á
sýningu á Englandi þar sem kynnt-
ir voru óhefðbundnari jarðarfar-
arsiðir kristinna manna. Skemmst
er frá því að segja að menn gætu
átt von á því í einhverri enskri
jarðarförinni á næstunni að ösku
jarðneskra leifa hins látna yrði
skotið á loft í flugeldasýningu – og
er raunar þegar gert í henni Am-
eríku.
„Við nálgumst dauðann á rangan
hátt. Við verðum auðvitað að fá að
syrgja en líka að fá tækifæri til að
fagna að lokum,“ er haft eftir eig-
anda Flugelda ofar himnum, „og
fólk grætur gleðitárum að lokinni
flugeldasýningu okkar.“
The Daily Telegraph segir frá
þessum nýjungum og er yfirskrift
greinarinnar „Return to Sender“.
Líklegast er þar vísað í rokkkóng-
inn Elvis Presley en í þessu tilviki
ætti gamla þýðingin Þrjú tonn af
sandi ekki sérlega vel við, kannski
mætti frekar notast við orð „sálma-
kóngsins“ Hallgríms Péturssonar,
Upp, upp, mín sál.
Dregur úr ótta fólks
við dauðann
Sr. Paul Sinclair rekur útfar-
arstofu sem býður upp á „mótor-
hjólajarðarför“ þar sem líkvagninn
er hliðarvagn mótorhjóls. Hann
gagnrýnir kirkjuna fyrir að taka
ekki meira tillit til lífsstíls hins
látna, ekki sé hægt að byggja jarð-
arfarir eingöngu á trúnni. Þannig
komi fyrirtæki hans á móts við fólk
sem hafi alla tíð ferðast um á mót-
orhjólum. „Engum dettur í hug að
kveðja kaþólskan mann að sið
múslima eða klæða Liverpool-
áhanganda í Arsenaltreyju þegar
hann deyr,“ segir sr. Sinclair.
Bandarískt fyrirtæki kynnti
einnig nokkuð sem ensk kirkjulög
banna með öllu; sólarorkuskjá til
að koma fyrir á leiði, sem sýnir
myndir af hinum látna undir tón-
listarflutningi, fyrir alla þá sem
vilja einmitt segja frá lífi ástvina
sinna í stað þess að kaupa bara
granítlegstein.
Höfundur bókar um hvers konar
jarðarfarir, The Motorcycle
Hearse and Other Undertakings,
sr. Ian Morris, prísar sig sælan yfir
að fólk nálgist dauðann á gleði-
legri hátt en kirkjan með sínum
dapurleika. Hún eigi að fagna
hverju því sem dragi úr ótta fólks
við dauðann. „Fólk þarf að fá leyfi
til að hlæja og gráta við jarð-
arfarir. Kannski er flugeldasýning
eða mótorhjólalíkvagn einmitt mál-
ið.“
Reuters
Lífsstíll Nýstárlegir jarðarfar-
arsiðir endurspegla ævi hins látna.
„Engum dettur í hug að klæða Liv-
erpooláhanganda í Arsenaltreyju
þegar hann deyr.“
Hinum látna
skotið á loft?