Morgunblaðið - 17.02.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2007 35
NEW YORK, París, Mílanó,
London. Tískuvikur í þess-
um borgum vekja venjulega
athygli heimspressunnar og
eru tískuspekúlantar þaul-
sætnir við pallana á meðan
fylgst er með hverri tísku-
sýningunni eftir aðra.
Tískuvikur eru þó haldnar
á mun fleiri stöðum og
sýndu suður-afrískir fata-
hönnuðir til að mynda sínar
línur í Jóhannesarborg nú í
vikunni.
Eins og myndirnar bera
með sér var litríkið mikið,
faldasíddin fjölbreytt og
töluvert um að skrautleg
smáatriði settu svip sinn á
flíkurnar en á tískuvikunni
notuðu tískuhús á borð við
Stoned Cherrie tækifærið til
að vekja athygli á þeim
fjölda barna sem sveltur inn-
an borgarmarkanna.
Tíska
gegn
hungri
Reuters
Í skólann Innblásturinn að þessu
dressi kemur örugglega frá hefð-
bundnum skólabúningum.
Glitrandi Gyllt og svart skapar
skemmtilegar andstæður sem kalla
á athygli. Kjóll frá Stoned Cherrie.
Settleg Dömuleg lína frá Exodus,
þó ekki sé laust við að smá frum-
skógarandi leynist í pilsinu.
Rauði dregillinn Hann myndi sóma sér vel
á rauða dreglinum hvar sem er þessi kjóll
frá Spero Villioti Couture.
ÞAÐ VILL verða mörgum mannin-
um erfitt að finna tíma fyrir reglulega
líkamsrækt fyrir eða eftir vinnu og
því lenda margir í þeim vítahring að
hlaða utan á sig spiki í vinnunni á
meðan heilinn vinnur og líkaminn
slappast niður fyrir framan tölvuna.
Vænlegast til árangurs er að hafa lík-
amsræktaraðstöðu innan seilingar í
vinnunni því þá eru mestar líkur á að
starfsmenn drífi sig í ræktina úr því
þeir þurfa ekki að leggja það á sig að
koma sér út úr húsi. Það kemur í
reynd ekki á óvart að einkaritarar,
skrifstofufólk, lögfræðingar og kenn-
arar fá litla sem enga líkamlega örv-
un í vinnunni, en samkvæmt rann-
sókn, sem gerð var við Wisconsin-
háskóla er allt að fjórfaldur munur á
hreyfingu fólks eftir atvinnugreinum,
samkvæmt netmiðli NBC.
Pósturinn hreyfir sig mest
Rannsakendur fengu 98 sjálfboða-
liða í tíu mismundi starfsstéttum til
að bera á sér skrefmæli í þrjá sam-
fellda vinnudaga. Póstburðarmenn
lentu á toppi listans með 18.904 skref
á dag. Í öðru sæti urðu húsverðir með
12.991 skref , þjónustufólk á veitinga-
húsum lentu í þriðja sæti með 10.087
skref. Því næst kom verksmiðjufólk
með 9.892 skref, byggingaverkamenn
mældust með 9.646 skref og hjúkrun-
arfólk með 8.648 skref. Svo má bæta
við um 2.000 skrefum til útréttinga og
húsverka að afloknum vinnudegi.
Þeir sem eru í kyrrsetustörfum þurfa
að huga að líkamsræktinni í frítíman-
um, sér í lagi ættu þeir einstaklingar,
sem eru að burðast með aukakílóin
utan á sér, að huga að klukkutíma
hreyfingu á dag, að sögn sérfræðinga.
Sé tímaskorturinn slíkur að fólk
kemur ekki auga möguleikana á
reglulegri hreyfingu, má benda á eft-
irfarandi ráð:
Haltu óformlega fundi með því að
bregða þér í göngutúr með öðrum
fundarmönnum.
Notaðu ávallt salernið sem er
fjærst vinnuaðstöðunni þinni.
Farðu nokkrum sinnum upp og
niður tröppurnar í kaffipásunni.
Gakktu um gólf á meðan þú ert í
símanum.
Stattu upp úr stólnum og labbaðu
til vinnufélagans ef þú þarft að tala
við hann í staðinn fyrir að senda
honum tölvupóst.
Hvettu til þess í fyrirtækinu að
starfsmenn hreyfi sig og teygi áð-
ur en sest er niður til skrafs og
ráðagerða því starfsmenn, sem eru
vel á sig komnir, eru líklegri til að
skila betri vinnu en hinir, sem ekki
huga að reglulegri hreyfingu.
heilsa
Gerir vinnan
þig feitan?