Morgunblaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2007 63 Á DÖGUNUM var haldið í Laug- ardalshöllinni Íslandsmeistaramót í 10 dönsum. Mótanefnd Dansíþrótta- sambands Íslands (DSÍ) hafði veg og vanda af skipulagi mótsins. DSÍ er núna undir forystu nýs formanns, Bjargar Jakobsdóttur. Umgjörð keppninnar var mjög glæsileg og skipti þar miklu máli hvað var lagt í lýsingu salarins. Einnig voru sett upp tjöld sem afmörkuðu stúkuna frá salnum sem gerði það að verkum að stemningin var mikið betri en oft áður. Fimm erlendir dómarar dæmdu á mótinu, þau Mareanne Hougesen frá Danmörku, dr. Martin Holder- baum frá Þýskalandi, Gordan Schmidt frá Svíþjóð, Grethe And- ersen frá Noregi og David Douglas frá Englandi. Á Íslandsmeistaramóti í 10 döns- um er dansað í dansi með frjálsri að- ferð og er lagður saman árangur í báðum greinum samkvæmisdansins. Danspörin þurfa því að vera nokkuð jafnvíg á báðar greinar og þau pör sem einungis æfa aðra greinina eru ekki með í þessu móti. Samhliða Ís- landsmeistaramótinu var keppni í öllum flokkum sem keppa í dansi með grunnaðferð. Innmars og fánahylling Dagskrá mótsins hófst kl. 11 að morgni með keppni í yngstu flokk- unum. Þegar þau höfðu lokið keppni fór fram setningarathöfn og hófst hún með innmarsi og fánahyllingu. Venjan er sú að keppendur ganga inn á gólfið í keppnisklæðnaði en nú var sá háttur hafður á að tveir fulltrúar frá hverju dansíþrótta- félagi gengu inn á gólfið og héldu á skilti með nöfnum félaganna. Mér fannst þetta ekki eins skemmtilegt og þegar pörin koma inn á gólfið. Það fylgir því meiri stemning. Að fánahyllingu lokinni hélt nýr for- maður DSÍ tölu en síðan setti forseti ÍSÍ, Ólafur E. Rafnsson, mótið. Keppt var í fjórum aldursflokkum á þessu Íslandsmeistaramóti. Yngsti flokkurinn var Unglingar II (12-13 ára). Þessi flokkur keppir að vísu í átta dönsum. Tvö pör áttust við á dansgólfinu. Íslandsmeistarar voru þau Þorkell Jónsson og Malín Agla Kristjánsdóttir í Dansíþróttafélag- inu Gulltoppi og í öðru sæti voru þau Pétur Geir Magnússon og Lena Rut Sverrisdóttir frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Mér fannst Þorkell og Malín eiga sigurinn vísan. Þau dönsuðu meira saman sem par og kláruðu allar línur betur. Pétur Geir og Lena Rut eru bæði mjög góðir dansarar en hafa ekki dansað lengi saman. Það vantaði töluvert upp á að hún fylgdi honum í dansinum. Þýski dómarinn, dr. Martin Holderbaum, sem ég ræddi við eftir keppnina var sammála mér um þetta og tók sér- staklega fram hversu góðan rytma Pétur Geir sýndi í s.-amerkísku dönsunum. Skiptist í tvennt Í flokki Unglinga II (14-15 ára) dönsuðu sex pör til úrslita. Sá hópur skiptist í tvennt að mínu mati. Tvö efstu pörin eru áberandi sterkust í þessum hópi en þó ég segi það, hefur orðið mikil framför hjá hinum pör- unum. Íslandsmeistarar Unglinga II voru þau Alex Freyr Gunnarsson og Ragna Björk Bernburg frá Dans- íþróttafélaginu Hvönn. Mér fannst þau að þessu sinni vera öruggir sig- urvegarar. Alex Freyr er mjög öruggur og yfirvegaður á gólfinu. Hann er stílhreinn dansari og gæti látið hvaða dömu sem er líta vel út á dansgólfinu. Ragna Björk er glæsi- legur dansari en þarf að huga betur að því að styrkja ökkla og fætur. Í öðru sæti höfnuðu þau Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Þau eru snaggaraleg í hreyfingum og er gott jafnvægi á milli þeirra í dansinum. Í þriðja sæti voru síðan þau Björn Halldór Ýmisson og Björk Guðmundsdóttir einnig frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Björk er mjög ákveðinn dansari en Björn Halldór, sem er mjög efnileg- ur dansari, hefur ekki sömu reynslu og Björk þarf að styrkja sig betur. David Douglas frá Englandi sagði mér um þennan hóp að Alex Freyr hafi verið sigurvegari þessa hóps ef ekki keppninnar allrar. Í flokki Ungmenna (16-18 ára) kepptu sjö pör. Þar er sömu sögu að segja um tvö efstu pörin. Þau eru mjög sterk og áttu í mikilli baráttu. Svo fór að Íslandsmeistarar í flokki Ungmenna urðu þau Haukur Freyr Hafsteinsson og Denise Margrét Yaghi frá Dansíþróttafélaginu Hvönn og í öðru sæti þau Björn Pálsson og Hanna Rún Óladóttir frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Ég og dómarar keppninnar vorum öll sammála um það, að þessi pör hefðu mjög ólíkan stíl og því mjög erfitt að gera upp á milli þeirra. Mér fannst persónulega Björn og Hanna sterk- ari í standarddönsunum og Haukur og Denise í s.-amerísku dönsunum. Í þriðja sæti höfnuðu þau Jón Eyþór Gottskálksson og Helga Soffía Guð- jónsdóttir frá Dansíþróttafélaginu Hvönn. Mér fannst þau ná vel saman í standarddönsunum en ekki dansa s.-amerísku dansana eins vel . Í flokki fullorðinna eru keppendur 16 ára og eldri. Þar kepptu sömu pör um verðlaunasætin og í flokki Ung- menna og röðuðu þau sér í sömu sæti. Hafa góðan grunn Almennt um keppnina þá sagði dr. Martin Holderbaum að danspörin væru með góðan grunn. Hann benti einnig á að dansararnir og þá sér- staklega þeir sem keppa í dansi með grunnaðferð ættu að hafa það í huga að það er ekki verið að dæma sporin sjálf, heldur hvernig þau eru dönsuð. Grethe Andersen frá Noregi hefur komið áður til Íslands að dæma á Ís- landsmeistaramóti. Henni fannst áberandi hversu vel dansararnir væru almennt klæddir. Einnig tók hún eftir því hversu góða dansstöðu yngstu dansararnir höfðu í keppn- inni í dansi með grunnaðferð. Henni hefur hingað til fundist íslensku drengirnir sterkari en stúlkurnar en nú hefur stúlkunum farið fram og komið betra jafnvægi á milli par- anna. Keppnin tókst að mínu mati með ágætum. Umgjörðin var glæsileg og til fyrirmyndar. Það voru örlítil vandræði með tónlistina í seinni hluta keppninnar þar sem sum lögin voru of hæg. Tímaplan stóðst að mestu þó að það hafi þurft að gera smá breytingar á keppninni. Óska ég öllum dönsurum og skipuleggj- endum keppninnar til hamingju með vel heppnað mót. Vel heppnað mót í Höllinni DANS Laugardalshöllin Íslandsmeistaramót í samanlögðum árangri. ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í DANSI Sigurður Már og Sara Rós. Björn og Hanna Rún. Haukur Freyr og Denise Margrét, meistarar ungmenna og fullorðinna. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Alex Freyr og Ragna Björk Íslands- meistarar 14–15 ára. Þorkell og Malín Agla Íslandsmeistarar 12–13 ára. Kara Arngrímsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.