Morgunblaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 64
|laugardagur|17. 2. 2007| mbl.is
staðurstund
Heimir Snorrason fjallar um
árslista yfir bestu myndasögur
síðasta árs og ber þá saman við
sinn eigin. » 65
af listum
Stairway to heaven með Led
Zeppelin er meðal þeirra laga
sem leikin verða á orgel á
Akureyri í dag. » 65
tónlist
Paris Hilton fannst ekkert sér-
staklega gaman á óperu-
dansleik í Vín í Austurríki og
geispaði stöðugt. » 73
fólk
Hlín og Davíð Þór eru liðs-
stjórar í Orð skulu standa, en
gestir eru Friðrik Erlingsson og
Sævar Sigbjarnarson. » 66
útvarp
Níu franskir listamenn sýna á
sýningunni Næstum því ekki
neitt, það er ekki ekki neitt í
Nýlistasafninu. » 67
myndlist
Í KVÖLD kemur í ljós hvaða flytjandi kemur
til með að syngja fyrir Íslands hönd á sviði í
Helsinki í vor í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva.
Níu lög keppast um hylli áhorfenda, en það
eru þeir sem kjósa sigurvegarann með hjálp
símtækja.
Alls bárust 188 lög í keppnina í nóvember.
Valnefnd valdi svo lögin 24 sem kepptu sín á
milli á þremur undarúrslitakvöldum en
áhorfendur sáu um að velja níu bestu lögin
sem keppa í kvöld.
Söngvakeppnin fer fram í Verinu á Selja-
vegi 2 en verður jafnframt sjónvarpað í
beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Útsending
hefst klukkan 20.20.
Úrslitin ráðast í kvöld
Söngvakeppni Sjónvarpsins verður sýnd í beinni útsendingu Sjónvarpsins
Áttu þér gælunafn?
Webber, reyndar bara einn
sem kallar mig þetta en
þetta er eina gælunafnið
samt.
Hvaða lag kaustu í keppn-
inni í fyrra?
Ég kaus að sjálfsögðu
Silvíu Nótt.
Í hverju verðurðu í kvöld?
Ég verð allt öðruvísi en síð-
ast, þá var ég í miklu
svörtu en núna verður
þetta meira hvítt og ljóst.
Hvaða lag af hinum átta myndirðu vilja flytja ef þú fengir
ekki að syngja þitt lag?
„Húsin hafa augu“, lagið sem Matti syngur, þó ég sé mjög sátt-
ur við lagið sem ég flyt í keppninni.
Hvernig segir maður 12 stig á finnsku?
Kaksitoista Pistetta.
Kallaður Webber
Andri Bergmann
„Bjarta brosið“
Lag: Torfi Ólafsson
Texti: Kristján Hreinsson
Áttu þér gælunafn?
Ég er stundum kölluð
Sunny af vinum mínum,
Hvaða lag kaustu í keppn-
inni í fyrra?
Heyrðu, ég kaus Silvíu
Nótt!
Í hverju verðurðu í kvöld?
Leyndó.
Hver verður í öðru sæti í
kvöld á eftir þér?
Ég held það verði Jónsi.
Hvaða lag af hinum átta
myndirðu vilja flytja ef þú
fengir ekki að syngja þitt lag?
Lagið sem Friðrik Ómar syngur.
Hvernig segir maður 12 stig á finnsku?
Ha,ha. Guð, ég veit það ekki, en
það er örugglega mjög skrítið.
Ég held það sé ikse kakse.
Bríet Sunna Valdemarsdóttir
„Blómabörn“
Lag: Trausti Bjarnason
Texti: Magnús Þór Sigmundsson
Klæðnaðurinn leyndarmál
Áttu þér gælunafn?
Allir sem þekkja mig kalla
mig Eika en úti geng ég
stundum undir nafninu
Mister Quackson. Þannig
bar starfsmaður á mjög
fínu hóteli í Englandi fram
eftirnafnið mitt þegar við
Icy-hópurinn vorum þar
stödd til að taka upp Gleði-
bankann.
Hvaða lag kaustu í keppn-
inni í fyrra?
Ég heyrði bara lagið henn-
ar Silvíu Nætur þegar hún var búin að vinna.
Í hverju verðurðu í kvöld?
Það verður bara gallabuxur og leður, þetta venjulega.
Hver verður í öðru sæti í kvöld á eftir þér?
Ég er ekki að ljúga þegar ég segi að ég hafi bara heyrt lögin
þeirra Jónsa og Friðriks Ómars en þau eru bæði fín.
Eiríkur Hauksson
„Ég les í lófa þínum“
Lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson
Texti: Kristján Hreinsson
Eiki Quackson
Áttu þér gælunafn?
Æskuvinirnir kalla mig
Frikka og bændur í Húna-
vatnssýslu Frissa.
Mér var strítt sem krakki
með nafninu „Bomm bomm
egg“ af því að ég
spilaði á trommur og kom
alltaf með eggjabrauð í
skólann. Annars hef ég
ekki fundið upp gælunafn
eins og Gilzenegger, nei…
Hvaða lag kaustu í keppn-
inni í fyrra?
Ég var sjálfur að keppa og
man að ég gleymdi að kjósa! Ég var svo önnum kafinn við að
svara sms-um frá vinum og kunningjum.
Í hverju verðurðu í kvöld?
Ég verð í fatnaði sem Selma Ragnars fatahönnuður hannaði á
mig. Ég er rosa ánægður með það, stílhreint og tignarlegt.
Hvernig segir maður 12 stig á finnsku? Kaxi ulla!
Gleymdi að kjósa í fyrra
Friðrik Ómar Hjörleifsson
„Eldur“.
Lag: Grétar Örvarsson
og Kristján Grétarsson
Texti: Ingibjörg Gunnarsdóttir.
Áttu þér gælunafn?
Nei, er reyndar stundum
kallaður Haffi.
Hvaða lag kaustu í keppn-
inni í fyrra?
Ég var erlendis og gat því
ekki kosið.
Í hverju verðurðu í kvöld?
Ég verð í kúrekastígvélum,
gallabuxum, hvítri skyrtu
og jakka.
Hver verður í öðru sæti í
kvöld á eftir þér?
Ætli ég segi ekki bara „Ég
og heilinn minn“.
Hvaða lag af hinum átta myndirðu vilja flytja ef þú fengir
ekki að syngja þitt lag?
„Ég og heilinn minn.“
Hvernig segir maður 12 stig á finnsku?
Ég hef ekki hugmynd! Ég kann bara að telja upp að fjórum og
óska gleðilegs árs á finnsku.
Gleðilegt ár á finnsku
Hafsteinn Þórólfsson
„Þú tryllir mig“
Lag: Hafsteinn Þórólfsson
Texti: Hafsteinn Þórólfsson og
Hannes Páll Pálsson
Áttu þér gælunafn?
Já, ég heiti Ragnheiður en
hef verið kölluð Heiða frá
fæðingu.
Hvaða lag kaustu í
keppninni í fyrra?
Ég hélt með Silvíu Nótt
og kaus hana.
Í hverju verðurðu í
kvöld?
Ég verð í rosa flottu
svörtu og silfruðu dressi.
Hvaða lag af hinum átta
myndirðu vilja flytja ef
þú fengir ekki að syngja
þitt lag?
Góð spurning! Ætli ég verði ekki að segja „Þú tryllir mig“.
Það er uppáhalds lagið mitt fyrir utan „Ég og heilinn minn“.
Hvernig segir maður 12 stig á finnsku?
Ég kunni einhvern tímann að telja upp í tíu allavega.
Kaksi kymmenen punti segi ég.
Í svörtu og silfruðu
Heiða - Ragnheiður Eiríksdóttir
„Ég og heilinn minn“
Lag: Dr. Gunni og
Ragnheiður Eiríksdóttir
Texti: Dr. Gunni
Áttu þér gælunafn?
Ég á mér bara gælunafnið
Jónsi.
Hvaða lag kaustu í keppn-
inni í fyrra?
Ég kaus Silvíu Nótt.
Í hverju verðurðu í kvöld?
Fötum.
Hver verður í öðru sæti í
kvöld á eftir þér?
Finnst ekki að ég eigi að
tjá mig um það í fjölmiðlum
að svo stöddu.
Hvaða lag af hinum átta
myndirðu vilja flytja ef þú fengir ekki að syngja þitt lag?
Það er ekkert annað lag sem ég myndi frekar vilja flytja. Ég
fékk að velja um okkur lög og „Segðu mér“ bar höfuð og herðar
yfir öll hin.
Hvernig segir maður 12 stig á finnsku?
Mina rakastan sinua.
Vildi ekki syngja neitt annað
Jónsi
„Segðu mér“
Lag: Trausti Bjarnason
Texti: Ragnheiður Bjarnadóttir
Áttu þér gælunafn?
Matti, Thewie, Matti Popp.
Hvaða lag kaustu í keppn-
inni í fyrra?
Nú lagið sem ég söng.
Í hverju verðurðu í kvöld?
Einhverju „casual“ fínu.
Hver verður í öðru sæti í
kvöld á eftir þér?
Ég í hinu laginu sem ég
syng í.
Hvaða lag af hinum átta
myndirðu vilja flytja ef þú
fengir ekki að syngja þitt
lag?
„Þú tryllir mig“. Held að svona Eurodisco henti rödd minni ein-
staklega vel, og þá gæti ég sýnt hvers ég er megnugur sem
dansari.
Hvernig segir maður 12 stig á finnsku?
12 stig á finnsku.
Stefnir á efstu tvö sætin
Matthías Matthíasson
„Húsin hafa augu“
Lag: Þormar Ingimarsson
Texti: Kristján Hreinsson
Áttu þér gælunafn?
Sjonni, Sonni, Brinkster,
Sjonnster og Brinkarinn.
Fer eftir því hver er að
kalla á mig.
Hvaða lag kaustu í keppn-
inni í fyrra?
Ég kaus lagið „Hjartaþrá“,
alveg frábært lag með
mögnuðum flytjanda
Í hverju verðurðu í kvöld?
Í brjáluðu stuði.
Hver verður í öðru sæti í
kvöld á eftir þér?
„Húsin hafa augu“.
Hvaða lag af hinum átta myndirðu vilja flytja ef þú fengir
ekki að syngja þitt lag?
Lagið hans Matta, „Húsin hafa augu“.
Hvernig segir maður 12 stig á finnsku?
Kukka pokka le hakkinen.
Verður í brjáluðu stuði
Sigurjón Brink
„Áfram“
Lag: Bryndís Sunna Valdimars-
dóttir og Sigurjón Brink
Texti: Jóhannes Ásbjörnsson