Morgunblaðið - 26.02.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2007 33
dægradvöl
Staðan kom upp í C-flokki Corus-
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Indverska undrabarnið og stórmeist-
arinn Parimarjan Negi (2.538) frá Ind-
landi hafði svart gegn Hou Yifan
(2.509) frá Kína sem er á þrettánda ári.
29. … Hxf3! 30. Hae1 svartur hefði
einnig haft unnið tafl eftir 30. gxf3
Dg3+ 31. Kh1 Dxh3+ 32. Kg1 exf3.
30. … Hcf8 31. Be3 Be5 32. gxf3 exf3
og svartur gafst upp. Bæði Negi og
Yifan stóðu sig vel á mótinu. Negi
hafnaði í 4. sæti með 7½ vinning og Yif-
an lenti í 5.–6. sæti með 7 vinninga af
13 mögulegum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Þekkt staða, en …
Norður
♠962
♥Á983
♦G82
♣ÁG4
Vestur Austur
♠G84 ♠KD1053
♥D54 ♥KG6
♦1094 ♦K5
♣KD107 ♣653
Suður
♠Á7
♥1072
♦ÁD763
♣982
Suður spilar 3♦
Legan er svo sannarlega á bandi
sagnhafa í þessu spili: laufhjón rétt í
vestur og trompkóngurinn annar í
austur. Enda unnust þrír tíglar út um
allan sal í tvímenningi Bridshátíðar. Þó
ekki á þremur borðum, en þar voru
vesturspilararnir nógu vakandi til að
leggja snöru fyrir sagnhafa. Karl Sig-
urhjartarson var einn þeirra. Hann
kom út með laufkóng, sem sagnhafi
drap strax og spilaði trompi á drottn-
ingu … og Karl lét NÍUNA undir.
Fumlaust. Nú er ekki lengur sjálfgefið
að leggja niður tígulás, því nían gæti
verið blönk eða frá 109 tvíspili og í báð-
um tilfellum er rétti leikurinn að fara
af stað með tígulgosa. Sagnhafi gaf
Karli hornauga, en sá ekkert grun-
samlegt og fór inn í borð á hjartaás til
að spila tígulgosa. Einn niður.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 skjögra, 4
drukkið, 7 uppskrift, 8
tala illa um, 9 greinir, 11
fór á fæti, 13 kvenmanns-
nafn, 14 baunir, 15 far, 17
storms, 20 óhljóð, 22 mat-
reiðslumanns, 23 grefur,
24 deila, 25 sætta sig við.
Lóðrétt | 1 ekki hefð-
bundið mál, 2 áburð-
armylsna, 3 sigaði, 4
snjór, 5 fólk, 6 bik, 10
hagnýtir sér, 12 ílát, 13
bókstafur, 15 poka, 16
fárviðri, 18 heið-
ursmerkið, 19 röð af lög-
um, 20 fífls, 21 málmur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 klófestir, 8 tjóns, 9 lýjan, 10 sút, 11 losti, 13
urrar, 15 skalf, 18 sakna, 21 urt, 22 móðan, 23 rjóli, 24
hafurtask.
Lóðrétt: 2 ljóns, 3 fossi, 4 sultu, 5 iljar, 6 stól, 7 knár, 12
tál, 14 róa, 15 sæma, 16 auðna, 17 fundu, 18 strit, 19
klóks, 20 alin.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
1Merk bílategund á fimmtudags-afmæli um þessar mundir.
Hvaða bílategund?
2 Tvær ungar konur voru fyrstar tilað dæma saman leik í efstu
deild kvenna en í hvaða grein?
3 Femínistar hafa látið mjög til síntaka undanfarið, m.a. í barátt-
unni gegn ráðstefnu klámfarmleið-
enda hér á landi. Hver er talskona
Femínistafélags Íslands?
4 DV er tekið að koma aftur útsem dagblað. Hver er formaður
útgáfufélags þess?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Alþjóðleg sjónvarpsrás er að láta vinna
þáttaröð um farsælasta fólk Evrópu og
þar er þáttur um Magnús Scheving meðal
annars. Hvaða sjónvarpsrás er þetta?
Svar: Discovery. 2. Ein frægasta kvik-
myndahátíð heims á stórafmæli á þessu
ári og verður 60 ára. Við hvaða stað er há-
tíðin kennd? Svar: Cannes. 3. Alþjóðlegt
greiningarfyrirtæki segir Kaupþing besta
fjárfestingarkostinn á Norðurlöndum.
Hvert er fjármálafyrirtækið? Svar: Morgan
Stanley 4. Norska liðið Viking hefur auga
á íslenskum knattspyrnumanni sem leikur
í Bretlandi um þessar mundir. Hver er
hann? Svar: Gylfi Einarsson.
Spurt er …
ritstjorn@mbl.is
HLAUPANÓTAN er með athygl-
isverðustu tónlistarþáttum í útvarpi í
dag. Umsjónarmenn víla ekki fyrir
sér að krossa úr „háu“ yfir í „lágt“ og
leitast við að kynna og vera á tánum
hvað nýja og spennandi íslenska tón-
list áhrærir. Tónleikar þessir voru
einkar vel heppnað dæmi um hvað í
gangi er í þættinum, en efnisskráin
samanstóð mikið til af framlagi
ungra tónlistarmanna sem hafa verið
nokk áberandi að undanförnu í tón-
listarlífi landans. Einkenni þessa
hóps, sem tengist þvers og kruss í
hinum og þessum tónlistarhópum
(t.d. Benni Hemm Hemm, múm,
Skakkamanage, Seabear, Borko,
Stórsveit Nix Nolte, Flís o.fl.) er m.a.
að virða að vettugi hvers kyns reglur
í tónlistarsköpun; margir meðlimir
þessa nafnlausa hóps eru þannig
sprenglærðir en námið er nýtt í mis-
kunnarlausa könnun og tilrauna-
starfsemi.
Fyrst til að stíga á svið í Hafn-
arhúsinu var einn fulltrúi hópsins,
Ólöf Arnalds, sem gaf út sína fyrstu
sólóplötu fyrir stuttu.
Spilamennska hennar og Róberts
Reynissonar gítarleikara kallaði
fram gæsahúð, svo einfalt var það.
Áreynslulaus og undurblíð fegurð
sem hitti beint í hjartastað og besta
dæmið þar um var titillag sólóplöt-
unnar, „Við og við“. Stórkostlegt.
Næstur var svo sellóleikarinn Sig-
urður Halldórsson sem lék verk eftir
Svein Lúðvík Björnsson, „Egófónía“.
Stuðst var við upptöku af leik Sig-
urðar þannig að hann var í raun að
leika á móti/með sjálfum sér. Verkið
byrjaði hæglætislega en leystist svo
upp í eins konar brjálæði. Sigurður
gerði sitt af fagmennsku en verkið
sjálft kannski full fyrirsjáanlegt.
Þá voru það þeir Eiríkur Orri
(trompet) og Valdimar Kolbeinn
(kontrabassi) sem starfað hafa með
hinum og þessum sveitum, og er
sumra þeirra getið hér að framan.
Framlag þeirra var hreinn spuni, vel
sýrður á köflum. Þeir félagar fóru
geysivel af stað en þegar á leið varð
þetta dálítið endasleppt.
Hildur Guðnadóttir kom ein fram,
en hún átti eina af betri plötum síð-
asta árs, Mount A (undir nafninu
Lost in Hildurness). Tónlistin var
hægstreym og þægileg; og það
myndaðist kyrrlátt og værðarlegt
„ástand“ í salnum. Tónarnir luktu sig
um áheyrendur og þetta minimalíska
innslag Hildar var stórvel heppnað.
Síðastur var svo Ben Frost, Ástr-
ali búsettur á Íslandi. Hann er hluti
af útgáfunni/samfélaginu Bedroom
Community sem Valgeir Sigurðsson
hleypti af stokkunum síðasta haust
og gaf Frost út stórgóða plötu undir
merkjum þess fyrir stuttu, Theory of
Machines. Frost frumflutti verk þar
sem notaðir voru sex gítarleikarar,
en þeir voru Haukur S. Magnússon
og Guðmundur B. Halldórsson (úr
Reykjavík!), Benedikt Reynisson (úr
Skátum), Steinar Guðjónsson og
Gunnar Jónsson (úr Coral) og Egill
Tómasson. Sexmenningarnir
strömmuðu einfalda hljóma og Frost
lék síðan á gítarleikarana eins og
þeir væru nótur á píanói, hækkaði og
lækkaði í þeim eftir því sem hentaði
og skaut svo inn rafhljómum og
-hljóðum eftir því sem við átti. Frost
stóð framan við þá líkt og brjálaður
vísindamaður, renndi sleðum á hljóð-
blöndunarborðinu upp og niður og
það var skemmtilegt að fylgjast með
því hvernig gítarleikarnir brugðust
við framvindu verksins. Þetta verk
kvað í vinnslu en það sem heyra
mátti þetta kvöld var frábært, og því
afar spennandi að heyra hvernig
Frost hyggst vinna með þessa hug-
mynd áfram.
Allt í allt voru þetta bráðvel
heppnaðir tónleikar, og gott að
landsmenn til sjávar og sveita skuli
hafa fengið tækifæri til að hlýða á
nokkra af framsæknustu tónlist-
armönnum landsins í dag. Hafi
Hlaupanótan þökk fyrir framtakið.
Í jötunmóð
Morgunblaðið/Kristinn
Nótur Ben Frost var einn þeirra sem spilaði á tónleikum Hlaupanótunnar
og frumflutti þar verk sem hann notaði sex gítarleikarar í að flytja.
TÓNLIST
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús
Hlaupanótan er tónlistarþáttur á Rás 1
og voru tónleikar þessir liður í Vetr-
arhátíð Reykjavíkurborgar. Fram komu
Ólöf Arnalds (ásamt Róberti Sturlu Reyn-
issyni), Eiríkur Orri Ólafsson og Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson, Sigurður Hall-
dórsson, Lost in Hildurness (Hildur Ingv-
eldardóttir Guðnadóttir) og Ben Frost
ásamt sex gítarleikurum. Föstudags-
kvöldið 23. febrúar. Tónleikarnir voru
sendir beint út og upptöku er hægt að
nálgast á vef ríkisútvarpsins
(www.ruv.is).
Tónleikar Hlaupanótunnar
Arnar Eggert Thoroddsen