Morgunblaðið - 10.03.2007, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 3
Íslandsmeistarar FH í knatt-spyrnu endurnýjuðu í gær
samninga við fjóra af lykilmönnum
liðsins. Tryggvi Guðmundsson
gerði samning til loka tímabilsins
2010 líkt og Daði Lárusson mark-
vörður en þeir Freyr Bjarnason og
Davíð Þór Viðarsson skrifuðu undir
samning um að leika með FH
næstu þrjú sumur. Við sama tæki-
færi endurnýjaði félagið samning
sinn við Adidas og gerði samning
við sjö leikmenn úr 2. flokki.
FH lagði síðanVíking R.
að velli, 3:2, í
deildabikarnum í
Egilshöllinni í
gærkvöld. Það
blés þó ekki byr-
lega því Grétar
Sigfinnur Sig-
urðarson og Jón
B. Hermannsson komu Víkingum í
2:0 á fyrstu 10 mínútunum. Sig-
urvin Ólafsson minnkaði muninn úr
vítaspyrnu og Atli Guðnason
tryggði FH sigurinn með tveimur
mörkum um miðjan síðari hálfleik.
KR lagði ÍA, 3:1, í Akraneshöll-inni í gærkvöld, þrátt fyrir að
Sigþór Júlíusson fengi rauða
spjaldið fyrir að slá til mótherja
þegar staðan var 1:1. Andri Júl-
íusson kom ÍA yfir snemma í leikn-
um en Jóhann Þórhallsson, Grétar
Hjartarson og Dalibor Pauletic
skoruðu fyrir KR-inga í síðari hálf-
leiknum.
Gunnar ÞórGunnarsson
skoraði í gær sitt
fyrsta mark fyrir
sænska knatt-
spyrnuliðið
Hammarby.
Hann skoraði þá
beint úr auka-
spyrnu þegar lið-
ið vann 1. deild-
arfélagið Norrköping, 3:2, í
æfingaleik. Heiðar Geir Júlíusson
lék ekki með Hammarby og Stefán
Þ. Þórðarson var ekki í liði Norr-
köping vegna meiðsla. Þar var hins-
vegar Garðar B. Gunnlaugsson í
fremstu víglínu.
Þóra Björg Helgadóttir lands-liðsmarkvörður gat ekki leikið
með Íslandi gegn Írlandi í Algarve-
bikarnum í Portúgal í gær. Hún
þurfti að fara til Belgíu vegna at-
vinnu sinnar. Þóra kom aftur til
Portúgals í gærkvöld og verður
með íslenska liðinu mótið á enda.
Sif Atladóttir meiddist í upphituníslenska liðsins fyrir leikinn
gegn Írlandi í gær og gat ekki spil-
að með. Greta Mjöll Samúelsdóttir
og Ásta Árnadóttir meiddust á æf-
ingu fyrir leikinn og gátu ekki spil-
að. Ekki er ljóst hvort þessar þrjár
spila meira með Íslandi á mótinu í
Portúgal.
Vignir Svavarsson skoraði 7mörk fyrir Skjern og Vil-
hjálmur Halldórsson 4 þegar lið
þeirra tapaði á heimavelli, 25:30,
fyrir AaB í dönsku úrvalsdeildinni í
handknattleik. Jón Þorbjörn Jó-
hannsson náði ekki að skora fyrir
Skjern. Fannar Þorbjörnsson skor-
aði eitt mark fyrir Fredericia sem
vann Ringsted, 30:28.
Halla Gunnarsdóttir, sem bauðsig fram til formennsku í KSÍ
fyrr á þessu ári, hefur verið ráðin
þjálfari kvennaliðs Fjarðabyggðar í
knattspyrnu. Þetta er í fyrsta sinn
sem Halla þjálfar lið í 1. deild en
áður hefur hún þjálfað yngri flokka,
auk þess sem hún lék með Aftur-
eldingu, Þrótti Reykjavík og
Leikni frá Fáskrúðsfirði.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Páll varð að játa sig sigraðan í undan-
úrslitum gegn Fram og þrátt fyrir að
hann sé „hundsvekktur“ að vera ekki
sjálfur með sitt lið í úrslitaleiknum
ætlar Páll ekki að missa af úrslita-
leiknum.
„Strákarnir í báðum liðum hafa
lagt mikið á sig til þess að komast í
úrslitaleikinn í Laugardalshöll. Þessi
leikur er stórhátíð fyrir alla hand-
boltamenn og -konur landsins. Ég
ætla ekki að missa af þessari hátíð.“
Eins og áður hefur verið minnst á
er liðsheildin sterk hjá Fram og telur
Páll að fátt muni breytast hjá Guð-
mundi Guðmundssyni þjálfara Fram í
úrslitaleiknum.
„Framliðið er með marga góða
leikmenn sem vinna vel saman í vörn
sem sókn. Sigfús Sigfússon er lyk-
ilmaður í sóknarleiknum hjá þeim
þrátt fyrir að hann sé ekki sá marka-
hæsti. Samvinna hans og Jóhanns
Einarssonar er mjög góð í sókninni
og Jóhann þarf að fá slíka aðstoð til
þess að blómstra. Helstu einkenni
Fram í sóknarleiknum eru hraðar
klippingar og það losnar oft um
marga leikmenn sem kunna að nýta
sér þau tækifæri sem gefast.“
Patrekur besti varnarmaðurinn
Patrekur Jóhannesson leikmaður
Stjörnunnar, er mikilvægasti hlekkur
liðsins að mati Páls. „Patrekur er
einn besti varnarmaður deildarinnar
og í sóknarleiknum hefur hann þann
hæfileika að geta tekið af skarið þeg-
ar mest á reynir. Það verður gaman
að fylgjast með Tite Kalandadze,
stórskyttu Stjörnunnar. Hann er öfl-
ugasta skytta landsins. Það er engin
spurning en Tite hefur ekki náð sér
almennilega á strik í vetur vegna
meiðsla en þetta er leikur þar sem
hann gæti blómstrað.
Einstaklingsframtakið er helsti
styrkur Stjörnunnar og stundum get-
ur það einnig verið helsti veikleiki
liða. Ég á samt sem áður ekki von á
öðru en að Stjarnan verði á réttu róli í
þessum leik.“ Páll var inntur eftir
helsta veikleika Fram og sagði hann
að veikleikar liðsins væru ekki marg-
ir.
„Framliðið hefur ekki fengið nóg af
mörkum úr stöðu vinstri skyttu og
Sergej Serenko hefur ekki náð að
leika eins vel og í fyrra vegna meiðsla.
Andri Berg Haraldsson hefur leyst
sitt hlutverk eins vel og hann getur í
þessari stöðu. Framliðið þarf á meiri
ógnun að halda úr þessari stöðu og
meiðsli Serenko hafa gert liðinu erf-
iðara um vik í sókninni.“
Björgvin og Magnús
vinna vel saman
Markvarslan verður að sjálfsögðu
mikilvægasti þátturinn í leik beggja
liða og þar telur Páll að jafnt sé á
komið með liðunum. „Björgvin Gúst-
avsson og Magnús Erlendsson hafa
skipst á að leika hjá Fram og þeir
hafa náð að vinna vel saman í vetur.
Ef annar þeirra finnur sig ekki tekur
hinn við keflinu. Þetta er mikill styrk-
ur fyrir Fram og ég er viss um að þeir
verða í góðum gír á laugardaginn.
Hjá Stjörnunni er Róland Eradze í
aðalhlutverki í markinu og þar er á
ferðinni einn besti markvörður lands-
ins. Roland þarf að mínu mati að eiga
toppleik ef Stjarnan á að ná að verja
titilinn.“
Páll var spurður að því hvaða áhrif
það hefði á leikmenn Stjörnunnar að
mæta til leiks á laugardaginn sem
bikarmeistaraliðið frá því í fyrra. „Ég
er ekki í vafa um að Kristján Hall-
dórsson þjálfari Stjörnunnar mun
leggja það upp að þeir séu mættir til
þess að sækja bikarinn og titilinn á
ný. Það er alltaf erfiðara að verja sinn
hlut og hugarfarið verður oft ekki
rétt í slíkum tilvikum. Ég er viss um
að leikmenn Stjörnunnar mæta til
þess að sækja og það gera leikmenn
Fram einnig,“ sagði Páll Ólafsson.
Mjög ólík lið eigast við
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Rimma Stefán Baldvin Stefánsson, leikmaður Fram, og Stjörnumaðurinn David Kekelia eigast við.
FRAM og Stjarnan eru mjög ólík lið
þar sem að liðsheildin og leik-
skipulagið er helsti styrku Fram.
Stjarnan er hinsvegar með nokkra
frábæra einstaklinga sem geta tekið
af skarið þegar mest á reynir en ég
held að það sé vonlaust að spá fyrir
um hvort liðið nær að landa bik-
artitlinum í dag,“ sagði Páll Ólafsson
þjálfari Hauka þegar Morgunblaðið
óskaði eftir því að hann myndi rýna í
kristalskúluna og spá fyrir um úr-
slitaleikinn í SS-bikarkeppninni í
karlaflokki.
Í HNOTSKURN
»Fram sat yfir í 32-liða úr-slitum en á leið sinni í úr-
slitaleikinn hefur liðið lagt
þessi lið að velli; Fylki, Ak-
ureyri og Hauka.
»Stjarnan sigraði HK íhörkuleik í 32-liða úrslit-
um. Stjarnan vann Þrótt úr
Vogum, ÍBV og ÍR á leið sinni í
úrslitaleikinn.
»Haukar og Stjarnan áttustvið í úrslitum í fyrra þar
sem Stjarnan hafði betur,
24:20.
„Leikskipulagið er styrkur Fram og einstaklingsframtak er helsta vopn Stjörn-
unnar,“ segir Páll Ólafsson, þjálfari Hauka, um bikarslaginn í Laugardalshöllinni
ndsliðsmaður í
dögunum nýju
sínu í Noregi,
ngur hans við
árslok og for-
halda Stefáni í
r hann verið í
tvö ár, eftir að
avík.
ki þessu tilboði
um möguleikum
er. Það er stað-
er með samning
að komast eitt-
ar til að breyta
angt um líður.
unnar í Evrópu
en ég útiloka alls ekki
að spila áfram í Nor-
egi og með Lyn. Ég
veit að félög, innan
Noregs og utan, hafa
haft samband við Lyn
og gert félaginu tilboð
í mig án þess að það
hafi farið lengra. En
það sem ég ætla mér
fyrst og fremst að
gera á komandi tímabili er að spila nægi-
lega vel til að vekja áhuga annarra liða,“
sagði Stefán við Morgunblaðið í gær.
Hann hefur spilað 50 af 52 deildaleikjum
Lyn eftir að hann kom til félagsins, alla í
byrjunarliði.
Vålerenga og Lilleström áhugasöm
Hann þótti einn besti miðjumaður
norsku úrvalsdeildarinnar á síðasta ári og
tvö af sterkustu félögum Noregs óskuðu
þá formlega eftir því við Lyn að fá að
ræða við hann um samning. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins voru það
Lilleström og Vålerenga.
Stefán, sem er 26 ára gamall Eskfirð-
ingur, tók við stöðu fyrirliða Lyn á miðju
síðasta tímabili, þegar Tommy Bendtsen
meiddist, og gegnir henni allavega þar til
hann verður leikfær á ný, en óvíst er að
það verði áður en keppni í norsku úrvals-
deildinni hefst í apríl.
„Við höfum rætt málin á jákvæðan hátt
við Stefán. Það er ekki slæmt fyrir okkur
að vera með metnaðarfullan leikmann í
okkar röðum sem vill sýna allar sínar
bestu hliðar,“ sagði Torgeir Bjarmann,
framkvæmdastjóri Lyn, við Nettavisen í
gær.
n hafnaði tilboði Lyn
Stefán Gíslason
XAVI, miðjumaður Barcelona, og Victor Valdes,
markvörður spænska liðsins, eru ekki sáttir við um-
mæli Eiðs Smára Guðjohnsens í spænskum fjöl-
miðlum í fyrradag. Eiður gagnrýndi þá lið Barce-
lona í kjölfarið á brotthvarfinu úr meistaradeildinni
og sagði að leikmenn þyrftu að leggja sig meira
fram í öllum leikjum. Hann skoraði sigurmarkið
gegn Liverpool, 1:0, á Anfield en það dugði liðinu
ekki.
„Það á að ræða um þessa hluti í búningsklefanum.
Þetta eru málefni liðsins og það er ekki neinum í lið-
inu til framdráttar þegar rætt er um þau í fjöl-
miðlum,“ sagði Xavi.
„Ég er ekki sammála því sem hann sagði. Ég tel
að það sé mikil samstaða í liðinu og við styðjum hver
annan. En ég virði skoðanir félaga minna al-
gjörlega. Hver og einn hefur sína skoðun á hlut-
unum og hvernig þeir telja að fótboltinn eigi að
vera,“ sagði Valdes.
Ekki sáttir við
ummæli Eiðs