Morgunblaðið - 22.03.2007, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Geir minn, varst þú nokkuð búinn að panta upphreinsun frá „Allt í drasli“? Læturðu mig
ekki bara um oj-bjakkið eins og vanalega, góði?
Það er góð hugmynd hjá samfylk-ingarfólki í Breiðholti að
hvetja til þess að gerð verði stytta
af Guðmundi J. Guðmundssyni,
fyrrum formanni Dagsbrúnar, og
að hún verði reist í Breiðholti.
Guðmundur J.lék lykilhlut-
verk í kjarasamn-
ingunum, sem
gerðir voru sum-
arið 1965, en
kjarninn í þeim
samningum var
bygging 1.250
íbúða fyrir lág-
launafólk, sem
síðan voru byggð-
ar í Breiðholti.
Á þeim tíma fólust í þessu sam-komulagi miklar kjarabætur
fyrir láglaunafólk. Og á bak við þá
er athyglisverð saga.
Styttan af Guðmundi J. gæti líkaátt heima við Reykjavíkurhöfn
en lífsstarf Guðmundar J. var ekki
sízt í þágu hafnarverkamanna í
Reykjavík.
Þessi hugmynd ætti jafnframt aðverða til þess að hugað verði að
því að heiðra minningu fleiri
verkalýðsforingja 20. aldarinnar
svo sem Eðvarðs Sigurðssonar,
Hannibals Valdimarssonar og
Björns Jónssonar.
Allir þessir menn unnu merkilegtog óeigingjarnt starf í þágu
verkafólks, sem barðist harðri bar-
áttu frá fátækt til bjargálna fram
eftir 20. öldinni.
Það voru forréttindi að kynnastþeim og hvernig þeir hugsuðu.
Hver þeirra um sig var sérstakur.
Það er eftirsjá að slíkum mönnum.
Samfylkingarfólk í Breiðholti er
hér með hvatt til að fylgja þessari
hugmynd fast eftir og koma henni í
framkvæmd.
STAKSTEINAR
Guðmundur J.
Guðmundsson
Guðmundur J.
!
"#
$ %&
' (
)'
* +,
- %
.
/
*,
01 0
2
31,
1 ),
40
$
5 '67
8 3#'
! "
"
#$
#$
9
)#:;
! ) ##: )
% !&' $
&
$ $( )
<1 <
<1 <
<1
% $'
* + ,#-
;;
: !
1
%& ! #
.
- &
# "
/
"
.
% ' !. & $+ #
&'$.
$ 0 #
&
# ( $ "
<6
%& $+ #
! & &
#
. 1
! 2#
"
/
"
3 ! 44
$ (! 5 #( *
2&34 =3
=)<4>?@
)A-.@<4>?@
+4B/A (-@
0.
0.
" " " " " "6
" " " " " 6" 6" 6" 6" 6"
.
.
.
.
.
0.
0.
.
.
.
.
.
.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
Nýkomin
glæsifatnaður frá
og Taifun
VEÐUR
SIGMUND
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Pjetur Hafstein Lárusson | 21. mars
Smekkagjöf í kirkju
Nú ætla ég ekki að
fella þann dóm að
Grafarvogskirkja hafi
verið gerð að ræn-
ingjabæli enda þótt
tryggingarfélag af-
hendi foreldrum ný-
skírðra barna smekk með bæn á og
láti fylgja með auglýsingabækling
[…] En væri nokkuð úr vegi að sá
prestur […] leiddi að því hugann,
hvers vegna Jesú velti um sölu-
borðum prangaranna í helgidóm-
inum?
Meira: hafstein.blog.is
Eygló Harðardóttir | 21. mars
Slæmt, slæmt, slæmt!
Kristinn Björnsson,
fyrrum forstjóri, var í
Kastljósinu í gær. Við-
talið byrjaði illa og
varð bara verra og
verra.
Hver ráðlagði hon-
um eiginlega að fara í viðtal og út-
skýrði ekki fyrir honum undirstöð-
una í PR-fræðum?
Maður réttlætir ekki, heldur biðst
afsökunar og biðst aftur afsökunar.
Meira: eyglohardar.blog.is
Auður H. Ingólfsdóttir | 21. mars
Stríð og friður í Írak
Í gær horfði ég á
fréttaskýringaþátt á
Sky fréttastöðinni um
innrásina í Írak. Þar
var m.a. litið út fyrir
höfuðborgina og kann-
að hvernig ástandið
væri hjá almennum borgurum ann-
ars staðar í landinu. Í suðrinu var
sama ógnarástand og í höfuðborg-
inni en á ákveðnu svæði í norður-
hluta Íraks virtist ríkja friður og
ákveðin velmegun. Þar var upp-
bygging […]
Meira: aingolfs.blog.is
Guðfríður Lilja | 20. mars
Skemmdar
í skjóli frelsisins
Það er magnað hvernig
ákveðin hagsmunaöfl
samfélagsins komast upp
með að tala um „frelsi“
þegar þau eru í raun að
tala um eigin hag – og þá
oftast eigin græðgisvæð-
ingu og völd. Það er t.d. agalega klókt
af markaðsöflunum og talsmönnum
þeirra að nota orðið „frelsi“ þegar
fjallað er um skefjalausa markaðs-
hyggju. Markaðsöflin reyna ekki að ná
völdum, þau reyna ekki að „stýra“ okk-
ur, þau reyna ekki að hafa „áhrif“ eða
„afskipti“ af börnunum okkar, sei sei
nei. Þau eru bara „frjáls“.
Hver getur verið á móti frelsi?
Í þessu orðfæri verða allar hug-
myndir um samfélagslega ábyrgð, sam-
kennd og sterkt velferðarkerfi að „rík-
isafskiptum“ og „forræðishyggju“.
Auglýsingar kóka kóla í hverju horni
(„kynlíf með zero-forleik“ stendur á
nýju zero-kókflöskunni, sykurlaust fyr-
ir börn) standa bara fyrir frelsi en ekki
„áreiti“, „áhrif“ eða „afskipti“. Skóla-
tannlækningar standa hins vegar fyrir
óþolandi „ríkisafskipti“ (enda er búið að
leggja þær af í nafni frelsisins). Gjald-
frjáls tannlæknakostnaður fyrir börn
og unglinga stendur fyrir úrelta fé-
lagshyggju, enda er búið að henda því
öllu út á hafsauga (í nafni frelsisins).
Það að reyna að koma í veg fyrir að
gosdrykkjum sé bókstaflega verðstýrt
ofan í börn og unglinga stendur fyrir
óþolandi „forræðishyggju“ og er skerð-
ing á frelsinu. Lýðheilsustöð, hvað?
Hinn frjálsi markaður ræður!
Einhvern veginn segir mér svo hug-
ur um að þriggja ára börn með allar
skemmdar og foreldrar þeirra sem hafa
ekki efni á að fara reglulega til tann-
læknis upplifi sig ekkert sérstaklega
mikið sem handhafa frelsisins.
Meira: vglilja.blog.is
BLOG.IS
Pétur Reynisson | 21. mars
Viðskiptahugmynd
Ég ætla selja aðgang að
útsýni sem moldríkt
fólk sér ekki á hverjum
degi. Fólk sem allajafna
hefur séð alla flottustu
staðina í heiminum en á
eftir eitthvað óséð, –
eitthvað sem sker sig frá þeim stöð-
um sem það hefur verið á.
Meira: gattin.blog.is