Morgunblaðið - 22.03.2007, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Magnús Guð-björnsson var
fæddur í Reykjavík
31. júlí 1918. Hann
lést sunnudaginn
11. mars sl.
Foreldrar hans
voru Guðbjörn Guð-
mundsson, prent-
smiðjustjóri í
Reykjavík, og Júlía
Magnúsdóttir.
Systkini Magnúsar
eru Friðrik Guð-
björnsson, fæddur
1918, dáinn 1940,
og Elín Guðbjörnsdóttir, fædd
1925.
Magnús var
ókvæntur en á eina
dóttur, Moniku
Ohlenbostel, fædda
23. júní 1941, bú-
setta í Þýskalandi.
Sonur Moniku heit-
ir Lars Magnus
Dietrich, einnig bú-
settur í Þýskalandi.
Magnús starfaði
lengst af sem skrif-
stofumaður.
Útför hans verð-
ur gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykja-
vík fimmtudaginn 22. mars og
hefst athöfnin kl. 13.
Elsku Maggi frændi.
Það er svo skrýtið þegar einhver
fer, að mann verkjar alltaf í hjartað,
jafnvel þó þetta sé það eina sem við
vitum; að við fæðumst og við deyjum.
Þú hefur alltaf verið hluti af minni
nánustu fjölskyldu, og þú hefur verið
nálægt frá því að ég man eftir mér.
Fyrsta minningin mín um þig, er þeg-
ar þú varst hjá okkur á Laugarásveg-
inum að taka við Dolla, kettinum okk-
ar, fyrir okkur eftir að Júlía hafði
fæðst. Ég var uppi á pallinum og
fylgdist hrygg með, en pabbi sagði
mér að ykkur myndi koma vel saman
og að Dolla myndi líða vel hjá þér, og
sú varð raunin.
Síðustu árin hefur Maggi verið í
sambandi daglega og núna í sumar,
meðan fjölskyldan mín dvaldi erlend-
is og ég var heima, þá svaraði ég alltaf
í símann um 6-leytið eða hringdi í
hann úr vinnunni ef ég var að vinna.
Þú vildir láta vita af þér. Þú varst svo
góð manneskja og ljúfur og vildir öll-
um svo vel. Það var bara núna seinast
í sumar sem ég fór í pollagallanum til
þín að setja niður blóm fyrir þig, og
nágranni þinn kom yfir og hjálpaði
okkur. Það vildu allir allt fyrir þig gera
enda varstu gull af manni. Alltaf svo
virðulegur og þér fylgdi mikil reisn.
Það var augljóst hvað þér þótti
vænt um okkur, og okkur vænt um
þig. Þú spurðir reglulega út í hvernig
skólinn, skautarnir og tónlistin gengi
og hafðir mikinn áhuga á því sem við
systurnar vorum að gera. Þú varst svo
stoltur af þínum, og okkur þótti svo
vænt um það. Þú talaðir líka oft um
Moniku, Lars Magnus og fjölskyldur
þeirra og sýndir okkur myndir og last
bréf frá þeim.
Elsku Maggi frændi, með þessum
orðum viljum við minnast stórkostlegs
manns, með hjarta úr gulli. Guð geymi
þig.
Þínar frænkur,
Þórunn og Júlía
Guðbjörnsdætur.
Það er komið að kveðjustund,
Maggi frændi er farinn. Við viljum
þakka fyrir samfylgdina og þá hlýju
sem þúsýndir okkur.
Far þú í friði,
Friður Guðs þig blessi,
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V.Briem)
Guðbjörn og Júlíana.
Magnús Guðbjörnsson
Sigurgeir Númi Birgisson
✝ Sigurgeir NúmiBirgisson fædd-
ist í Neskaupstað
26. janúar 1984.
Hann lést 11. mars
síðastliðinn.
Foreldrar hans
eru Birgir Krist-
mundsson, f. 20.
nóvember 1957, og
Áslaug Guðný Jó-
hannsdóttir, f. 10.
júlí 1958. Bræður
Sigurgeirs Núma
eru Sigurður Elm-
ar, f. 2. jan. 1975,
Guðmundur Hrafn, f. 17. ágúst
1976, og Birgir Björn, f. 1. febr-
úar 1989.
Útför Sigurgeirs Núma fer
fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju í
dag.
Síðasta laugardag
fékk ég þær hræði-
legu fréttir að þú hefð-
ir orðið bráðkvaddur á
heimili þínu 11. mars.
Ég ætlaði ekki að trúa
þessu, því að þú hafðir
hringt í mig á fimmtu-
deginum og við töluð-
um um allt og ekkert
eins og við vorum vön
að gera þegar að við
vorum yngri. Þó svo
að leiðir okkar skildi
þá hittumst við alltaf
aftur og rifjuðum upp
gamlar skemmtilegar minningar.
Ég man þegar ég átti mjög erfitt um
tíma, það var verslunarmannahelgi.
Þá dróstu mig með þér til Akureyr-
ar og annað eins hef ég ekki vitað.
Þetta var ein skemmtilegasta helgi
sem ég hef upplifað, keyrandi um á
handónýtum Subaru með ónýtan
hljóðkút sem virtist vera Impreza af
hljóðinu og allir bílaguttarnir litu við
þegar við gáfum allt í botn. Við gát-
um lengi hlegið að þessu. :) Elsku
Sigurgeir, þú varst gull af manni og
varst alltaf til staðar fyrir mig, sama
hvað það var. Það er svo margt sem
mig hefði langað til að segja þér,
taka utan um þig og þakka þér fyrir
að hafa stutt við bakið á mér, sama
hvaða vitleysu ég fór út í. Þú munt
alltaf eiga stað í hjarta mínu og vil
ég trúa því að þú sért á betri stað
núna og að þér líði vel. Við sjáumst
seinna.
Ég vil votta fjölskyldu Sigurgeirs
alla mína samúð, megi Guð hjálpa
ykkur á stundu sem þessari.
Þín vinkona,
Ólöf (Óa)
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát
HANSÍNU JÓNATANSDÓTTUR.
Sigurður Ásgrímsson, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir,
Karen Ósk Sigurðardóttir,
Sveinn Pétur Sigurðsson,
Marta Eir Sigurðardóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
MÁLFRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Stillholti 9,
Akranesi.
Guðmundur Ó. Guðmundsson,
Sigurður Guðmundsson, Hulda Guðbjörnsdóttir,
Björgvin Guðmundsson, Lidia Andreeva,
Birgir Guðmundsson, Ragnheiður Hafsteinsdóttir,
Jón Þór Guðmundsson, Ástríður Jónasdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Elsku mamma mín, núna ertu
loksins búin að fá hvíldina eftir harða
og erfiða baráttu og ert komin til
pabba og Benna. Efast ég ekki um að
þar hafi orðið fagnaðarfundir, þó
mér hafi þótt þetta allt of fljótt.
Ásta Kristinsdóttir
✝ Ásta Kristinsdóttirfæddist í Reykja-
vík 2. október 1944.
Hún lést á heimili sínu
11. mars sl.
Útför Ástu fór fram
frá Fríkirkjunni í
Reykjavík 21. mars sl.
Vegna mistaka við
vinnslu eftirfarandi
minningargreina sem
komu í blaðinu í gær
eru þær birtar hér aft-
ur. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Margs er að minnast
er litið er til baka. Þú
varst frábær mamma,
amma og síðast en
ekki síst frábær vinur
sem talaðir við mig á
hreinni íslensku ef
þér fannst það hæfa.
Minningarnar um
okkar samveru ætla
ég að geyma, minn-
ingar um gleði og fé-
lagslyndi, minningar
um óbilandi kjark í
baráttu við illvígan
sjúkdóm og ekki síst
ótakmarkaða forvitni um hvað næsti
dagur byði upp á.
Langar mig að þakka þér innilega
fyrir allt sem þú gafst mér, Þór og
börnunum okkar. Við eigum aldrei
eftir að geta endurgoldið þér það.
Elskulega mamma mín,
mjúk er alltaf höndin þín.
Tárin þorna í sérhvert sinn
sem þú strýkur vangann minn.
Þegar stór ég orðin er,
allt það skal ég launa þér.
(Höf. ókunnugur)
Blessuð sé minning þín.
Þín dóttir
Sigrún.
Elsku amma. Ég þakka þér allt
það sem við höfum átt saman. Þú
varst alltaf til staðar í blíðu og stríðu.
Þó ég sakni þín mikið þá veit ég að
þú ert komin á betri stað, til afa og
Benna frænda. Ég vona að þið komið
og pikkið í okkur bara smá og þú
verðir dugleg að láta mig taka til í
herberginu mínu, eins og þegar þú
varst hérna með okkur. Ég mun gera
þig stolta í framtíðinni.
Blessuð sé minning þín.
Ástar, ástar, ástar kveðjur.
Karen Björk.
✝ Ingibjörg Páls-dóttir fæddist á
Herjólfsstöðum,
Skefilsstaðahreppi í
Skagafjarðarsýslu,
22. mars 1915.
Hún lést á Hrafn-
istu í Reykjavík 23.
nóvember 2006.
Foreldrar hennar
voru Páll Jóhanns-
son, fæddur á Skíða-
stöðum í Laxárdal,
Skag., 20. ágúst
1888, látinn 2. júní
1981 og Ágústa
Runólfsdóttir fædd á Heiði í
Gönguskörðum, Skag., 1. ágúst
1892, látin 23. júní 1972.
Alsystkin Ingibjargar eru
Nanna Soffía f. 1917. Lárus Krist-
inn f. 1919. Jóhann f. 1920. Sig-
urður f. 1922, d. 1994. Ragnar f.
1923. Kristján Leó f. 1925. Nanna
Regína f. 1927, d. 1933. Ásta
Lovísa f. 1930. Sammæðra, Jónas
Ráðgarð Jónasson f. 1911.
9. júlí 1932 giftist Ingibjörg
Hallgrími Konráðssyni, f. í Húna-
vatnssýslu 13. apríl 1908, d. 12.
október 1988. Foreldrar hans voru
Konráð Bjarnason f. á Ytra-
Skörðugili á Langholti, Skag., 30.
júní 1861, d. 9. ágúst 1931. Sig-
urrós Magnúsdóttir f. í Sam-
komugerði í Eyjafjarðarsveit 29.
ágúst 1867, d. 22. ágúst 1940.
Börn Ingibjargar og Hallgríms
eru: Páll f. 22. janúar
1932, maki Anna Jór-
unn Benediktsdóttir
f. 1939. Tvær dætur.
Nanna Regína f. 24.
júní 1934, maki Guð-
mundur Márusson f.
1928. Fjögur börn.
Rósa f. 4. september
1935, d. 27. október
2006, maki Bjarni
Henriksson f. 1927,
d. 1989. Sjö börn.
Ágústa Aðalheiður f.
18. janúar 1937, d. 2.
júlí 1989, fyrri maki,
Haraldur Jóhann Jónsson f. 1934.
Tvær dætur. Seinni maki, Friðrik
Henriksson f. 1925, d. 1983. Sex
börn. Konný Sigurlína f. 1. júlí
1939, maki Guðmundur Kristján
Svavarsson f. 1931, d. 1983. Tíu
börn. Jóhanna Lovísa f. 1. október
1944, maki Sigurður Guðnason f.
1943. Fimm börn. Konráð Hall-
grímsson f. 25. febrúar 1951. Hall-
grímur Ingi f. 20. júlí 1953.
Ingibjörg og Hallgrímur hófu
búskap á Sauðárkróki, en fluttu til
Reykjavíkur 1946. Þar bjuggu þau
til æviloka. Ingibjörg helgaði sig
því hlutverki að annast börnin og
heimilið. Hallgrímur vann ýmis
störf í landi og á sjó.
Síðustu árin dvaldi Ingibjörg á
Hrafnistu í Reykjavík.
Útför hennar fór fram frá Foss-
vogskirkju 7. desember 2006.
Nú er afmælisdagurinn þinn,
elsku mamma mín.
En þú ert horfin frá okkur, það
er erfitt að hugsa um það, betra að
leyfa minningunum að streyma
fram. Þær eru allar góðar. Þú
varst einstök manneskja, alltaf til
staðar fyrir alla, gerðir ekki
mannamun, svo laus við fordóma
og yfirlæti. Sást það góða í fólki.
Þú áttir alltaf stund ef illa lá á ein-
hverjum eða einhver átti bágt. Þá
veittir þú huggun og ráð og varaðir
við hálkublettunum í lífinu. Þú
hafðir sterka þörf fyrir að vernda
þá sem minna máttu sín.
Það var gott að koma í hreina
hlýja eldhúsið þitt, kaffi á könn-
unni og góður biti með. Þaðan var
haldið með nánast hátíðlegum brag
að skoða nýjasta undrið í fallegu
stofunni þinni og hlusta á góða
tónlist. Þar átti hver hlutur sinn
stað og þér þótti jafnvænt um þá
alla.
Þú hafðir yndi af tónlist, klass-
ískri, óperum og dægurlögum.
Poppið og rokkið átti líka sitt sæti.
Plötusafnið þitt var mikið og allt
valið af íhugun og gætni.
Þú varst dýravinur. Þegar ég
var unglingur áttir þú stórt, glæsi-
legt fiskabúr og það var aðdáun-
arvert hvað þú varst natin við að
hafa hreint hjá þeim og halda í
þeim lífinu. Og fuglarnir þínir áttu
góða daga hjá þér.
Ég minnist þess hve gaman þú
hafðir af því þegar ég gekk með
þér Laugaveginn að skoða í búðir
og við enduðum ferðina á kaffihúsi
yfir rjúkandi súkkulaði og tertu-
sneið. Svo fáguð og virðuleg, elsku
mamma.
Við skruppum stundum í bíó og
fyrir kom að eitthvert af mínum
börnum fór með. Ekkert kynslóða-
bil, bara gaman. Og þú lumaðir á
góðgæti í veskinu þínu. Já mamma,
þú varst best.
Sigurði og börnum okkar þótti
vænt um þig, þau ásamt tengda- og
barnabörnum okkar, eiga þökk
skilið fyrir hve vel þau reyndust
þér og voru þér góð. Og alltaf
hlökkuðum við til ef von var á þér
til okkar í sveitina.
Fyrir nokkrum árum keyrðum
við Sigurður um Laxárdal í Skaga-
firði og stönsuðum við Herjólfs-
staði þar sem þú áttir heima í
æsku. Ég eigraði um, skoðaði tóft-
irnar þar sem bærinn þinn stóð.
Svo sterk var ljúfsár tilfinningin að
mér fannst ég nánast geta séð
þig hlaupa á litlu fótunum þínum í
ósléttum haganum. Elta fiðrildi,
hrasa, brölta á fætur, halda áfram
að hlaupa.
Og seinna, þú mild og hlý og
alltaf til staðar. Heklaðir föt á
dúkkuna mína, kenndir mér að búa
til ævintýraheim úr kindabeinum
og gleðjast yfir litlu.
Ég hlakkaði alltaf jafn mikið til
þegar von var á pabba heim eftir
mánaðar siglingu um heimsins höf.
Beið við innsiglinguna í Reykjavík-
urhöfn meðan Katlan var tollskoð-
uð til að komast sem fyrst um
borð. Já, þá var gaman.
Það var gott að vera barn hjá
þér og pabba. Takk fyrir allt.
Útförin þín var falleg, sr. Hjálm-
ar með ræðu eins og honum er lag-
ið og Páll Rósinkrans söng Liljuna
og fleira af tilfinningu. Þökk sé öll-
um sem þar komu að.
Það er erfitt að sleppa, ég sakna
þín svo mikið. En vertu sæl og hvíl
í friði.
Jóhanna Lovísa.
Ingibjörg Pálsdóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Myndir | Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á mynda-
móttöku: pix@mbl.is og láta um-
sjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar