Morgunblaðið - 25.03.2007, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 25. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta verður allt annað líf fyrir liðið á löngum næturfundum, Nonni minn. Svo er líka komið
allt annað lúkk á pleisið, þetta er bara að verða eins og í útlandinu.
VEÐUR
Nú standa Vinstri grænir á vega-mótum eftir mikla velgengni í
skoðanakönnunum á undanförnum
vikum.
Ný könnun, sem Capacent Gallupgerði fyrir Morgunblaðið og
RÚV, sýnir að Ís-
landshreyfing
Ómars Ragn-
arssonar og Mar-
grétar Sverr-
isdóttur er líkleg
til þess að sækja
fylgi sitt að veru-
legu leyti til
Vinstri grænna
en að öðru leyti
til Samfylkingar
og Frjálslynda flokksins.
Ómar Ragnarsson á eftir að verðaSteingrími J. Sigfússyni þung-
ur í skauti.
Hvernig ætla Vinstri grænir aðbregðast við?
Munu þeir segja, að Ómar sé ekki
trúverðugur sem umhverfissinni?
Það er ekki vænlegt til árangurs.
Segja þeir að Ómar hafi ekkert vitá pólitík. Það væri heldur ekki
skynsamleg baráttuaðferð. Fólki
mundi ekki líka það ef Vinstri
grænir reyndu að gera lítið úr Óm-
ari með þeim hætti.
Þetta er ekki auðvelt fyrir Vinstrigræna. Getur það verið, að enn
einu sinni missi þeir sigurinn úr
höndum sér á síðasta sprettinum?
Samfylkingin er í sama vanda. Sáflokkur er í hættu að missa tölu-
vert fylgi yfir til Íslandshreyfing-
arinnar. En hvernig ætlar Samfylk-
ingin að verja sína stöðu? Veitast að
Jakobi Frímanni Magnússyni? Ein-
hverjir fara með honum.
Þetta verður erfið kosningabar-átta fyrir Vinstri græna og
Samfylkingu.
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Vinstri grænir á vegamótum
SIGMUND
!"
#$%
& '
( &
) *
+
, $
-
.
)+
/0
/
1
2
0
+ 0
(+
3/
#
4
&56
7 2
"&
!!" #
"
8
("9:;!!
!
"
"
#! $%
&
'
(( ) (
""
9 (
$
%&
'! !&! (
)
<0
< <0
< <0
$
' !* #+!, -
;=
. '!% !!-
& /!!#%
!. #0!1 !! !( 4
0
2 3 !! !& '!% /
!4 #!( !( !#!
!(3 ! /!!#% !
. #0!.' !( !%!5 #/
!! !! !
0
9
1'! '!% /!" !!
& /!!#% !&' !%!$4 !
4 #0!1 !! !! 0
23 !%!66 !( %!. (!* #
1%23>2
>(<3?@A
(B,-A<3?@A
*3C.B',A
0
0
/
/
0
0
0
0 0
0 0
0
0
0
0
0
0
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Einar Sveinbjörnsson | 24. mars
Bílar fjúka út af
Það frysti um miðjan
dag […] Vegurinn er
þá flugháll, ekki tiltak-
anlega hvasst, en þó
17–18 m/s sem er nægj-
anlegur vindur miðað
við þessar aðstæður til
þess að ökumenn verði í vandræðum
með að halda bílum sínum inni á upp-
byggðum og sléttum veginum. Þetta
hefur lítið með vanbúnað eða van-
kunnáttu að gera, frekar að ekki sé
ekið eftir aðstæðum, þ.e. slegið
nægjanlega af hraða.
Meira: esv.blog.is
Birgir Leifur Hafþórsson | 23. mars
Nokkuð bjartsýnn
Dagurinn í dag endaði
bara vel og verð ég að
segja að ég er bara
nokkuð sáttur. Stað-
setning vallarins er
uppi í fjalli og völlurinn
því mjög hæðóttur.
Stefán Már stóð sig mjög vel á pok-
anum og verður án efa í fantaformi á
morgun eftir labbið upp og niður
brekkurnar í dag.
Hótelið sem við erum á er mjög
fínt, þó að ekki sé neinu lífi hér fyrir
að fara.
Meira: birgirleifur.blog.is
Kjartan Valgarðsson | 24. mars
„Langar þér í bakkelsi?“
Ég er alinn upp við að nota nefnifall,
þolfall, þágufall og eignarfall, eintölu
og fleirtölu rétt. […]
Og mér finnst rétt
mál vera einhvers
virði, það er fallegt að
tala rétt mál, ljótt að
segja „langar þér í
bakkelsi?“ […]
Ég vil að foreldrar og skólar og
annað áhugafólk haldi uppi merki ís-
lenska fallakerfisins og innræti
börnum rétta notkun falla.
Meira: kjarval.blog.is
Kristinn Pétursson | 24. mars
Ísland í dag
Hraði spenna, stress
og djöflagangur á Ís-
landi í dag – leiðir að
einhverju leyti af sér
húsnæðislausa ein-
staklinga – þá sem
verða undir í slagn-
um.
Miðað við hagtölur um vel-
gengni og hagvöxt mætti ætla að
það væri hægt að gera meira til
að hjálpa þeim sem verða undir í
djöflaganginum í samfélaginu.
Sjálfseignarstofnanir eins og
SÁÁ – sem fá opinbera aðstoð –
eru besta leiðin.
[…]
Það er mikilvægt að nýta
reynslu eintaklinga sem hafa kom-
ist á beinu brautina aftur – til að
hjálpa þeim sem eru í slíkum að-
stæðum í dag. Skilningur og sam-
úð þeirra – byggt á eigin reynslu
er þekking sem við getum nýtt til
að hámarka líkur á árangri við að
hjálpa þeim sem eiga bágt í dag.
Það er ekki nóg að við montum
okkur af hagtölum. Við eigum að
gera betur í að nýta ávinninginn.
Mjög margt hefur verið vel gert
í að hjálpa fólki í erfiðleikum og á
götunni – en það virðist ekki duga.
Þess vegna er mikilvægt að
gera enn betur. Gott getur líka
orðið betra. Það er ekkert sem
bannar það. Er það?
Meira: kristinnp.blog.is
Ísak Rafael Jóhannsson | 24. mars
Hvað er að gerast í
íslensku þjóðfélagi?
Bara af því að það komu fatafellur
á karlakvöld þá þurfti endilega
kona að kvarta, ég
meina er ekki í lagi
með þetta þjóðfélag.
En segið mér þá
eitt hvað var hún að
gera þarna ?? (sko
bréfritarinn).
Femínistafélagið
hefur tekið undir mótmælin og í
grein á vef Íþróttasambands Ís-
lands lýsir framkvæmdastjóri
sambandsins vanþóknun sinni á
framtakinu.
Held að þessi „klám“umræða sé
komin út í öfgar.
Meira: solmyrkvinn.blog.isMeira:
BLOG.IS
MÖRG fyrirtæki hafa sýnt áhuga á að
gerast styrktar- eða stuðningsaðilar
sjávarútvegsdeildar Fjölsmiðjunnar.
Þetta kom skýrt fram á fundi deild-
arinnar í seinustu viku, þar sem starf-
semi hennar var kynnt fyrir fulltrúum
fyrirtækja sem leitað hafði verið til.
Sjávarútvegsdeildin gerði í fyrra
samkomulag við þekkingarfyrirtækið
Nýsi um rekstur deildarinnar. Keypt
var 150 tonna skip, sem nú ber heitið
Fagriklettur HF-123. Skipið er tilbú-
ið til netaveiða en enn vantar nokkurt
fjármagn til þess að koma því úr höfn.
Eitt af markmiðunum með starfsemi
deildarinnar er að gefa ungmennum
sem vilja starfa í sjávarútvegi færi á
verklegri þjálfun og réttindanámi í
samvinnu við Fjöltækniskólann.
Áhöfnin klár í slaginn
Þorbjörn Jensson, forstöðumaður
Fjölsmiðjunnar, áætlar að 35–40
millj. kr. vanti til þess að hægt sé að
hefja útgerðina. „Áhöfnin er klár í
slaginn og nú vantar aðeins herslu-
muninn til að þessi draumur verði að
veruleika. Markmiðið er að nemar
Fjölsmiðjunnar geti síðan verið gjald-
gengir skipverjar og svarað kallinu
þegar vanan háseta vantar á bát,“
segir Þorbjörn Jensson.
Fjölsmiðjan er verkþjálfunarsetur
ungmenna á aldrinum 16–24 ára.
Skjólstæðingarnir eru ungt fólk, sem
hefur af einni eða annarri ástæðu
flosnað upp úr námi eða vinnu. Að
jafnaði eru ungmennin 6–8 mánuði
undir handarjaðri Fjölsmiðjunnar.
Um 270 ungmenni hafa notið leið-
sagnar þau sex ár sem Fjölsmiðjan
hefur verið starfrækt. Um 80% þeirra
hafa ýmist sest á skólabekk að nýju
eða stunda nú reglubundna atvinnu.
Margir vilja
leggjast á árar
Útgerð Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, kynnir starf-
semi hennar á fundi með væntanlegum stuðnings- og styrktaraðilum.