Morgunblaðið - 25.03.2007, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 25. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Gunnar
Sölufulltrúi
Viðskiptafræðingur
899 0800
Bóas
Sölufulltrúi
699 6165
AÐ KAUPA OG SELJA
FASTEIGN SNÝST UM
ÞJÓNUSTU OG HJÁLPSEMI
Hringdu í okkur við erum fagmenn
Bóas 699 6165/Gunnar 899 0800
FASTEIGNIR
TRAUST • VIRÐING •ÞJÓNUSTA
RE/MAX FASTEIGNIR •Engjateig 9 • 105 Reykjavík •Sími: 578 8800
Stefán Páll
Löggiltur fasteignasali
Kík
tu á
ww
w.b
oas
.is
Glæsileg neðri sérhæð í þríbýlishúsi sem er að birtu flatarmáli 129,0 fm
þ.m.t. 23 fm bílskúr. Hæðin er endurnýjuð á vandaðan og smekklegan
hátt, m.a. gler, gólfefni, innréttingar, innihurðir, rafmagnslagnir o.fl.
Baðherbergi er flísalagt í gólf og veggi og glæsileg ný innrétting í
eldhúsi. Borðaðstaða er í eldhúsi og útgangur á svalir til suðurs. Hús að
utan nýlega viðgert. Sér geymsla í kjallara fylgir. Laus til afhendingar
við kaupsamning. Verð 41,9 millj.
Hæðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 15-16.
Verið velkomin.
Bólstaðarhlíð 32
Neðri sérhæð ásamt bílskúr
Opið hús í dag frá kl. 15-16
Björt og vel skipulögð 87 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð, íbúð 0103, auk
sér geymslu í kjallara. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, bjarta stofu/borð-
stofu með útgangi á svalir til suðurs, eldhús með snyrtilegri innréttingu,
2 góð herbergi, fataherb. innaf hjónaherbergi og baðherbergi með
þvottaaðstöðu, flísalagt í gólf og veggi. Góð íbúð á góðum stað með
skóla og alla þjónustu í göngufæri. Verð 22,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Íbúð merkt 0103.
Verið velkomin.
Álftamýri 54
3ja herb. íbúð á 1. hæð
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Falleg 80 fm íbúð á 3. hæð (efstu), íbúð 0302, með sérinngangi af svöl-
um ásamt stæði í bílageymslu. Eldhús með sprautulakkaðri innréttingu,
björt stofa/borðstofa, 2 herbergi með skápum og baðherbergi með
þvottaaðstöðu. Ljóst parket á gólfum. Suðvestursvalir. Frábært útsýni
yfir Faxaflóann úr eldhúsi. Sameign í góðu ástandi, nýlega máluð. Stutt í
leikskóla, skóla og aðra þjónustu. Verð 22,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 13-14.
Íbúð merkt 0302.
Verið velkomin.
Skeljagrandi 1
3ja herb. útsýnisíbúð með sérinngangi
Opið hús í dag frá kl. 13-14
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Við höfum verið beðin um að útvega fjársterkum kaupanda
hús í Fossvogi. Staðgreiðsla fyrir réttu eignina.
Nánari upplýsingar veita
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Kjartan Hallgeirsson lögg. fasteignasali.
EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST FRAMKOMA af hálfu Trygg-ingastofnunar ríkisins gagnvart
þegnum þjóðfélagsins er í anda
frægrar söguhetju úr verkum Dic-
kens, hr. Scrooge. Nirfils- og eig-
inhagsmunagæsla ráðamanna ís-
lensku þjóðarinnar kristallast í
gjörðum sextíu og þriggja leikara
þjóðarleikhússins við Austurvöll
eins og nirfilshátt-
urinn kemur fram í
sögu Dickens.
Sem liður í samlík-
ingunni við Scrooge í
sögu Dickens er frá-
sögn eins af þegnum
þessa þjóðfélags.
Hann fékk útreikn-
aða lífeyrisgreiðslu af
reiknimeisturum ölm-
usustofnunarinnar fyr-
ir árið 2005 að upphæð
u.þ.b. 192.000 kr. Frá
því var dregið um
70.000 kr. í stað-
greiðslu skatta svo að útborgað var
um 120.000 kr. það árið.
Er komið var fram á vetur næsta
árs fékk þessi þegn þjóðfélagsins
hirðisbréf frá ölmusustofnuninni
þar sem hann var krafinn um end-
urgreiðslu u.þ.b. 192.000 króna.
Með fylgdi í anda Scrooge hótun
þess, sem telur sig hafa valdið, um
að viðkomandi ætti að borga þetta
strax að viðlögðum óþægindum.
Krafan ber með sér að hún er
sett fram af níðingsskap og í anda
þess sem telur sig hafa valdið.
Endurgreiðslukrafan hljóðar upp
á upphæð sem er tæplega 1000
krónum lægri en viðkomandi hafði
samkvæmt kúnstum reiknimeist-
aranna fengið frá ölmusustofn-
uninni með sköttum. M.ö.o. þá átti
hann að endurgreiða þær u.þ.b.
120.000 kr. er hann hafði fengið
greiddar frá stofnuninni en að auki
átti hann að greiða það sem starfs-
menn stofnunarinnar höfðu dregið
af honum í staðgreiðslu skatta að
frádregnum u.þ.b. 1000 kr.
Þegar leitað var til stofnunar-
innar varðandi skýringar á þessu
og farið fram á að sjá útreikninga
var fátt um svör. Einu skýring-
arnar sem fengust hjá umræddri
ölmusustofnun voru þær að kerfið
væri svona og manninum væri holl-
ast að borga umyrðalaust því ann-
ars bættist við kostnaður og óþæg-
indi.
Til að forðast óþægindi og kostn-
að greiddi maðurinn kröfuna en var
ekki sáttur við málalok eins og
flestir munu skilja.
Á síðustu dögum þingsins eru
leikarar þjóðarleik-
hússins í kappi hver
við annan um að bjóða
eldri borgurum gull og
græna skóga ef þeir
veita þeim braut-
argengi í komandi
kosningum. Leik-
ararnir eru búnir að
hafa tæp fjögur ár til
að sýna sitt innra eðli
og hafa gert það af
miklum sóma að eigin
mati en vilja lofa
meiru. Hafa þeir, leik-
ararnir, stundað þá
iðju að bæta eigin hag með því að
hækka sín laun og enn þá hærri
eftirlaun.
Nú rignir yfir þjóðina miklum
ósannindavaðli af loforðum sem
þegar er ákveðið að svíkja eins og
loforðin sem gefin voru fyrir síð-
ustu kosningar.
Af því flóði loforða sem rennur
frá hræddum leikurum þjóðarleik-
hússins er ljóst að leikararnir eru
orðnir hræddir við þá óánægju sem
komið hefur fram á meðal eldri
borgara, sem stefna að framboði til
Alþingis. Er allt gert til þess að
draga úr hinni miklu óánægju eldri
borgara með hátíðlegum loforðum
sem augljóst er að ekki stendur til
að efna á neinn hátt.
Andstætt því sem viðgengst á
hinum almenna vinnumarkaði ráða
leikarar í þjóðarleikhúsinu eigin
vinnutíma. Þeir þurfa ekki að skila
40 stunda vinnuviku eða fullu
starfsári. Hafa leikararnir ákveðið
að hætta störfum þeim sem þeir
voru kjörnir til að inna af hendi og
snúa sér að því að ljúga að kjós-
endum um sitt eigið ágæti og reyna
að véla kjósendur til fylgis við sig.
Þeir ætla sér sjö vikur af starfs-
tíma sem þeir eiga að skila til þess
að útdeila sinni ósannindavisku á
meðal landsmanna. Vinnutíma sem
tekinn er ófrjálsri hendi ef einhver
sanngirni væri ríkjandi í vinnu-
tilhögun samanborið við aðra þegna
þjóðfélagsins. Auk þess sem leik-
ararnir halda fullum launum sam-
kvæmt eigin ákvörðun í þeim sjö
vikna vinnutíma sem tekinn er
ófrjálsri hendi hafa þeir einnig
gerst fingralangir og láta þegna
þjóðfélagsins standa straum af öll-
um kostnaði við að ferðast um land-
ið og dreifa sínum ósannindavaðli á
meðal þegnanna. Þeir hafa gengið
þannig frá málum að öðrum en
þeim sem eru áhangandi sitjandi
leikurum í þjóðarleikhúsinu er gert
illmögulegt að keppa við þá, þar
sem þeir settu sjálfir leikreglurnar
um upphæð fjárstuðnings sem hver
einstaklingur hefur heimild til að
veita til samkeppnisaðila sem ekki
á aðild að mafíufjölskyldunni sem
leikur á sviði þjóðarleikhússins.
Gamalt máltæki segir: Með lög-
um skal land byggja og ólögum
eyða.
Er nú komið að því að þörf sé á
byltingu til þess að hindra frekari
setningu ólaga? Þeim ólögum og
stjórnarskrárbrotum sem leik-
ararnir hafa velt yfir á þjóðina þarf
að snúa við ef ekki á að koma til
eyðingar á velferðarþjóðfélaginu á
Íslandi. Snúa þarf við þeirri
óheillaþróun sem gengið hefur yfir
þjóðina á síðustu árum. Sú svívirð-
ing sem leikararnir hafa sýnt með
þjóðnýtingu fyrsta lífeyrissjóðs
allra landsmanna, grunnlífeyrir, og
að gefa vildarvinum þau fyrirtæki
sem allir landsmenn stóðu að að
byggja upp, s.s. bankana, Símann,
Íslenska aðalverktaka o.fl.
Snúum vörn í sókn og skiptum
um menn í stólum þjóðarleikhúss-
ins.
Siðlaust og ólöglegt athæfi
Kristján Guðmundsson
skrifar um samfélagsmál »Með lögum skal landbyggja og ólögum
eyða.
fv skipstjóri
Höfundur er fv. skipstjóri.