Morgunblaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sá er aldeilis ratvís, þetta bjargar okkur alveg í baráttunni, ég hafði ekki grænan grun um
þennan rollu-stíg, Nonni minn.
VEÐUR
Það er vel ráðið hjá stjórn Ís-lenzku óperunnar að ráða Stef-
án Baldursson sem stjórnanda óp-
erunnar. Nánast má fullyrða, að
ekki hefði verið hægt að finna hæf-
ari einstakling í þetta starf.
Stefán Baldursson á að bakiglæstan feril í íslenzku leikhúsi,
fyrst sem leikhússtjóri hjá Leik-
félagi Reykjavík-
ur og síðar sem
þjóðleikhússtjóri.
Það er ekkiauðvelt að
stýra menning-
arstofnunum og
halda utan um
þau ólíku sjón-
armið, sem uppi
eru innan þeirra og þær þrífast að
mörgu leyti á. Stefáni Baldurssyni
fórst það einstaklega vel úr hendi í
báðum leikhúsunum.
Hann býr því að mikilli reynslu,sem hann byggir á, þegar hann
tekur nú við stjórn Íslenzku óp-
erunnar. Hún er í góðum höndum,
þar sem Stefán er og það verður
spennandi að fylgjast með því í
hvaða farveg hann beinir starfsemi
hennar.
Skoðanir hafa verið skiptar umstefnu óperunnar síðustu árin.
Það er ekki vont fyrir menning-
arstofnun að það stormi svolítið um
hana og að ýmsar leiðir séu próf-
aðar. Það hefur verið gert á und-
anförnum árum.
En nú verða tímamót á marganhátt. Gera má ráð fyrir að nýr
óperustjóri taki húsnæðismál óp-
erunnar föstum tökum og að hann
marki óperunni nýja listræna
stefnu.
Það er ástæða til að óska íslenzkuóperunni til hamingju með að
hafa fengið Stefán Baldursson til
starfa. Hennar bíður ný framtíð.
STAKSTEINAR
Stefán Baldursson
Vel heppnuð ráðning
SIGMUND
!
"#
$ %&
' (
)'
* +,
- %
.
/
*,
01 0
2
31,
1 ),
40
$
5 '67
8 3#'
! ""#
"
"
"
"
9
)#:;
) ##: )
$%& '
&
()
<1 <
<1 <
<1
$' "! *"#+ ,!"-
;
) =:
$
'! % ! (
.
/'0 " """
! & ""# <6 =
$
'! % ! (
.
/'0 " """
! & ""# <
$
& " ! & " + 1
% $
! 2
"# 0 "
""
. 3 !.
45!! % 66
"! (% /
( *"#
2&34 >3
>)<4?@A
)B-.A<4?@A
+4C/B (-A
.
0
0
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
G. Helga Ingadóttir | 27. mars
Vorhreingerningar
í Eldstó Café!
Það er í mér hugur að
opna litla kaffihúsið
mitt í vor og við erum á
kafi í að endur-
skipuleggja […] Ég
vonast til að það verði í
þessu sígandi gangur
eins og áður, suma er allavega farið
að lengja eftir að fá góðan kaffisopa
og með því. Og þá er bara að taka sig
saman í andlitinu, hætta þessu rápi á
blogginu og byrja. Híf opp og syngið
með!
Meira: trukona.blog.is
Guðríður Haraldsdóttir | 27. mars
Stóra blekkingin
Fyndið hvað ég læt
alltaf blekkjast, svona
líka gáfuð, klár og
greind stúlka, eins og
mamma sagði alltaf og
ættingjar úr Þingeyj-
arsýslunni…
Trúi og treysti þeim upplýsingum
sem fram koma og á alls ekki von á
því að fá rothögg að morgni dags…
daginn eftir að VORIÐ KOM!
Hahaha, það er hvít jörð núna og
komið þriggja trefla veður aftur,
sýnist mér, alla vega tveggja trefla.
Meira: gurrihar.blog.is
Jóhann Alfreð Kristinsson | 26. mars
Spunastríð og stríð
Er það ekki alveg
augljóst hverjir hagn-
ast mest á þessu
spunastríði sem geng-
ur um á netinu um
meintan fund Geirs
Haarde og Steingríms
J.? Eru það ekki Vg sjálfir sem að
hagnast mest á þessum orðrómi?
[…] Vg hefur mælst stærri en Sam-
fylkingin nú í fjöldamörgum könn-
unum. […] Það er ljóst að það er
ákveðin stemmning fyrir rík-
isstjórn D+Vg.
Meira: johannalfred.blog.is
Stefán Einar Stefánsson | 26. mars
Viðurlög og
viðkvæmni
Síðustu sólarhringa
hefur mikil umræða
spunnist upp í kring-
um Spaugstofu Rík-
isútvarpsins þar sem
lög um þjóðsönginn
voru þverbrotin.
Áhugavert hefur verið að fylgjast
með og taka þátt í þeim orðaskipt-
um sem um málið hafa orðið og
sjaldan eða aldrei hef ég fengið jafn
sterk viðbrögð við skrifum mínum á
alnetinu.
Margt við þessa umræðu vekur
forvitni mína og þá ekki síst við-
brögð þeirra aðila sem andmæla
þeirri skoðun minni að spaug-
stofumenn hafi haft rangt við. Ein-
kennilegast finnst mér að rýna í
skrif þeirra sem telja að Spaug-
stofan hafi verið í fullum rétti til
þess að gantast með Lofsöng Svein-
björns Sveinbjörnssonar og það af
þeirri ástæðu að ríkisstjórnin sé
alltaf að leika sér með stjórnar-
skrána og lýðræðið! Það er aldeilis
beinið í nefinu á því fólki sem rétt-
lætir ætlað lögbrot með öðru ætluðu
en þó miklu óræðara lögbroti!
Það skiptir engu máli hvað rík-
isstjórnin eða einhver aðili hefur
gert eða ekki gert, lögin um þjóð-
sönginn voru brotin og menn eiga
að svara fyrir það ef þeir komast í
kast við lögin, listamenn eða grín-
istar eru ekki undanþegnir þeirri
staðreynd. Þegar menn bera
tjáningarfrelsið fyrir sig og segja
ótækt að kæra menn fyrir að gant-
ast með þjóðsönginn þá er rétt að
minna á það að tjáningarfrelsi
manna eru ýmsar skorður settar,
m.a. með lögum sem tryggja eiga
einstaklinga gagnvart meiðyrðum. Í
raun má segja að lögin um þjóð-
sönginn sé einskonar meið-
yrðalöggjöf, þar sem það er tryggt
að sameiningartákn þjóðarinnar sé
ekki lítilsvirt eða það haft í flimt-
ingum.
Vissulega er tjáningarfrelsið einn
af hornsteinum lýðræðisins en það
er mikill og stór misskilningur að
allt skuli víkja fyrir því. Meira að
segja John Stuart Mill talaði fyrir
því að samfélaginu yrðu settar
skorður, þar sem sú regla gilti að
mönnum væri ekki heimilt að skaða
aðra (þó réttara væri að tala um að
brjóta ekki á rétti annarra […]).
Meira: stefani.blog.is
BLOG.IS
BJÓRINN Kaldi, sem framleiddur
er í Bruggverksmiðjunni á Árskógs-
strönd og seldur á Dalvík, er fyrst
fluttur til Reykjavíkur áður en hann
er fluttur í vínbúðina á Dalvík. Að-
eins um 12 kílómetrar eru á milli Ár-
skógsstrandar og Dalvíkur. Bjórinn
fer hins vegar yfir 800 km leið áður
en hann ratar í vínbúðina á Dalvík.
Bruggverksmiðjan á Árskógs-
strönd hóf framleiðslu á bjórnum
Kalda í október sl. og segir Agnes
Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
verksmiðjunnar, að viðtökurnar hafi
verið ótrúlega góðar. Varla hafist
undan að framleiða. Á næstunni
verði stærri gerjunartankar teknir í
notkun en við það sé hægt að auka
framleiðsluna um 80%. Þessi aukn-
ing gefi verksmiðjunni færi á að
hefja framleiðslu á dökkum bjór.
Starfsmenn eru nú fjórir, en fimmta
starfsmanninum verður bætt við á
næstunni.
Nær öll framleiðsla Bruggverk-
smiðjunnar er seld dreifing-
armiðstöð ÁTVR í Reykjavík. Agnes
segir að bjór sem seldur er í vínbúð-
inni á Dalvík sé því fluttur frá Ár-
skógsströnd til Reykjavíkur og það-
an aftur til Dalvíkur. Árskógsströnd
og Dalvík eru í sama sveitarfélagi og
um 12 km eru á milli staðanna.
Örn Stefánsson, innkaupastjóri
ÁTVR, segir að bjór sem fram-
leiddur er hjá Vífilfelli á Akureyri og
hjá Bruggverksmiðjunni á Árskógs-
strönd sé fluttur beint í vínbúðina á
Akureyri. Bjór á aðra útsölustaði á
landsbyggðinni sé dreift frá dreif-
ingarstöðinni í Reykjavík. Ástæðan
sé sú að ÁTVR leggi mikla áherslu á
að tryggja fullnægjandi flutninga á
vörunni. Áður hafi áfengi verið
dreift um Norðurland frá Akureyri,
en þessu hafi verið breytt fyrir
nokkrum árum. Ástæðan sé eins og
áður segir að ÁTVR leggi mikla
áherslu á fullnægjandi flutninga.
Hafa ekki undan
að framleiða Kalda
Bjór er fluttur yfir 800 kílómetra leið
frá Árskógsströnd til Dalvíkur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kaldi Bjórinn frá Bruggverksmiðj-
unni á Árskógsströnd í Eyjafirði.