Morgunblaðið - 28.03.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 19
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Vogar | „Ég hef mjög gaman af
þessu. Það er mest gefandi þeg-
ar verkið er búið og maður sér
að þetta virkar,“ segir Sigurður
Hólm Guðmundsson, rafvirkja-
nemi við Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Hann tók þátt í Íslands-
móti iðnnema sem haldið var í
Kringlunni í Reykjavík síðastlið-
inn föstudag og stóð uppi sem
sigurvegari í sinni grein. Hann
hefur því titilinn Íslandsmeistari
í rafiðngreinum.
Rafvirkjanemarnir fengu það
verkefni að setja töflu upp á
vegg, tenglarennu við hana og
ljós. Í töfluna átti líka að setja
stýringu fyrir ljósið. Fengu
nemarnir fimm klukkustundir til
að vinna verkið. Dómarar fóru á
milli og fylgdust með og tóku
síðan verkið út í lokin og litu þá
einnig til umgengni.
Er í ættinni
„Þetta gekk þokkalega vel,“
segir Sigurður Hólmar hógvær
en dómararnir tölu hann hafa
unnið besta verkið.
Sigurður er átján ára gamall
og er á sjöttu önn í rafvirkjun
við Fjölbrautaskóla Suðurnesja
og áætar að ljúka sjöundu önn-
inni og þeirri síðustu um næstu
áramót. Ef allt gengur að óskum
tekur hann sveinspróf í byrjun
næsta árs.
„Ég veit það ekki nema hvað
þetta er í ættinni,“ segir Sigurð-
ur þegar hann er spurður hvern-
ig hann hafi fengið áhuga á þess-
ari grein. Faðir hans,
Guðmundur Sigurðsson, er raf-
virkjameistari og rekur Rafþjón-
ustu Guðmundar í Vogum á
Vatnsleysuströnd. Sigurður hef-
ur unnið hjá honum með námi
síðustu þrjú árin og hyggst
fræði og iðnfræði og reiknar
með að annað hvort verði fyrir
valinu.
Allir stóðu sig vel
Sex keppendur fóru úr Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja á Ís-
landsmót iðnnema, tveir eru í
rafvirkjun, tveir í hársnyrtiiðn
og tveir á húsasmíðabraut. Sig-
urður segir að allir hafi staðið
sig vel þótt hann hafi verið sá
eini sem vann til verðlauna að
þessu sinni. Sjálfur hefur hann
áður tekið þátt í mótinu. Það var
á síðasta ári en náði þá ekki í
verðlaun.
starfa sem rafvirki þegar hann
lýkur náminu.
„Já, verður maður ekki að
stefna að því að taka við
þessu?“ segir Sigurður Hólm
Guðmundsson þegar hann er
spurður hvort hann tæki svo
ekki við fjölskyldufyrirtækinu í
fyllingu tímans.
Hann segist hafa mjög gam-
an af faginu og hyggst vinna við
það í eitt til tvö ár, að loknu
námi. Eftir það stefnir hann að
því að fara í áframhaldandi
tækninám.
Segist Sigurður vera byrjað-
ur að kynna sér rafmagnsverk-
Það er mest gefandi að
ljúka verki og sjá það virka
Sigurður Hólmar
Íslandsmeistari
í rafiðngreinum
Í HNOTSKURN
»Keppt var í ellefu grein-um á Íslandsmóti iðn-
nema sem fram fór í Kringl-
unni í Reykjavík síðastliðinn
föstudag. Keppendur komu
af öllu landinu.
»Að þessu sinni voru allssjötíu og fimm kepp-
endur skráðir til leiks.
»Tilgangur keppninnar erað vekja athygli á iðn-
greinum og hvetja ungt fólk
til að leggja stund á iðnnám.
»Sex keppendur fóru úrFjölbrautaskóla Suður-
nesja á Íslandsmót iðnema, 2
eru í rrafvirkjun, 2 í hár-
snyrtiiðn og 2 í húsasmíði.
Virkar Sigurður Hólmar Guðmundsson rafvirkjanemi vann verkefni
sitt vel. Og kerfið sem hann setti upp virkaði eins og til var ætlast.
NÁM Í DANMÖRKU
Í boði er:
Á ensku og dönsku
• Byggingafræði
• Byggingaiðnfræði
• Markaðshagfræði
Á ensku
• Framleiðslutæknifræði
• Útflutningstæknifræði
Á dönsku
• Véltækni
• Véltæknifræði
• Landmælingar
• Tölvutæknifræði
• Aðgangsnámskeið
• Byggingatæknifræði
Hjá VITUS BERING í Horsens bjóðum við
upp á margvíslega menntun.
Fulltrúar skólans, Jørgen Rasmussen og
Johan Eli Ellendersen verða á Íslandi (Hótel Plaza) frá
23.mars til 30.mars. Þeir sem hafa áhuga geta haft sam-
band, hringið í síma 5901400, leggið inn skilaboð og við
munum hringja tilbaka, eða hringið beint í Johan í síma
8458715.
UNIVERSITY COLLEGE -
VITUS BERING DENMARK
CHR. M. ØSTERGAARDS VEJ 4
DK-8700 HORSENS
TEL. +45 7625 5000
FAX: +45 7625 5100
EMAIL: UC@VITUSBERING.DK.
www.vitusbering.dk/uc
V I T U S B E R I N G D E N M A R K
U N I V E R S I T Y C O L L E G E
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Reykjanesbær | Menning-
arráð Reykjanesbæjar
stendur fyrir málþingi
um samfélagslega ábyrgð
fyrirtækja og fé-
lagasamtaka. Þingið
verður haldið í Bíósal Du-
ushúsa á morgun,
fimmtudag, kl. 14 til 18.
Yfirskrift þingsins er
„Ræktum frumkvæðið og
kraftinn“.
Á málþinginu verður fjallað um samfélags-
lega ábyrgð fyrirtækja, félagasamtaka og ein-
staklinga í menningarmálum og á bæj-
arhátíðum. Meðal framsögumanna eru
Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, Sif
Gunnarsdóttir, verkefnastjóri Höfuðborg-
arstofu, og Baldur Guðmundsson, markaðs-
stjóri Sparisjóðsins í Keflavík. Að loknum
framsöguerindum verða pallborðsumræður.
Öllum er heimil þátttaka og aðgangur er
ókeypis. Skráning fer fram á upplýsingavef
Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Tón-
listaratriði eru í höndum Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar.
„Ræktum frum-
kvæðið og kraftinn“
Ljósanótt sett.
Reykjanesbær | Liðlega 2.600 íbúar í Reykja-
nesbæ eru skráðir í Sjálfstæðisflokkinn. Er það
nærri þriðjungur kosningabærra manna í bæj-
arfélaginu sem er eitt hæsta hlutfall sem dæmi
finnast um hjá Sjálfstæðisflokknum.
Koma þessar upplýsingar fram í frétta-
tilkynningu fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjanesbæ um nýja stjórn og verkefni ráðs-
ins. Formaður er Margrét Ólöf A. Sanders og
Ríkharður Ibsen er varaformaður.
Stjórnin stendur fyrir upphitun fyrir kom-
andi kosningabaráttu á kosningaskrifstofu
flokksins í gamla Félagsbíói nk. föstudag, kl. 17
til 19.
Þriðjungur kjósenda
í Sjálfstæðisflokknum
REKTOR Listaháskóla Íslands seg-
ir mikilvægt að skólinn komist í sam-
band við borgarlífið í miðbæ Reykja-
víkur. Skólinn nefnir ekki ákveðinn
stað í ítrekun sinni á umsókn um lóð
fyrir skólann sem nýlega var send
borgarstjóranum í Reykjavík.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
Listaháskóla Íslands, leggur áherslu
á að Reykjavíkurborg leggi skólan-
um til lóð til frjálsrar ráðstöfunar í
miðbænum eða næsta nágrenni.
Hann segir að skólinn þurfi lóð sem
byggja megi á allt að 15 þúsund fer-
metra hús með möguleikum til
stækkunar um fimm þúsund fer-
metra. Málið er að öðru leyti lagt í
hendur borgarstjóra.
Þriðjungur húsnæðis er opinn
Vísar Hjálmar til annarra háskóla
sem haslað hafa sér völl innan borg-
armarkanna, nefnir að Háskólinn í
Reykjavík hafi nýverið fengið til
frjálsrar ráðstöfunar verðmætt land-
svæði á besta stað í borginni. Segir
rektor að á lóðinni muni skólinn
byggja sjálfur hús fyrir starfsemina
eða nýta byggingarréttinn á annan
hátt til að koma sér upp húsnæði.
Nánar spurður um það segir Hjálm-
ar að það geti til dæmis gerst með
því að leggja slíkan byggingarrétt
fram sem verðmæti í samningum við
byggingarverktaka um byggingu
húsnæðis fyrir skólann.
Leggur Hjálmar áherslu á sér-
stöðu Listaháskóla Íslands þegar
hann er spurður um mikilvægi þess
að byggja yfir skólann í miðbæ
Reykjavíkur. Í því sambandi vekur
hann athygli á því að Listaháskóli Ís-
lands sé ekki einungis menntastofn-
un heldur einnig menningarmiðstöð í
höfuðborginni. Allt að þriðjungur
byggingarinnar verði lagður undir
leikhús, tónleikasali og sýningar-
rými fyrir myndlist, hönnun og arki-
tektúr, auk þess sem í þeim hluta
verði eina alvöru listabókasafn
landsins. Þetta rými verði opið fyrir
almenning og borgarbúar og aðrir
landsmenn muni sækja þangað alls
konar listviðburði og eiga þar að-
gang að margvíslegri þjónustu á
sviði lista og menningar.
„Ég sé skólann fyrir mér sem mið-
stöð allra lista á Íslandi,“ segir
Hjálmar og segir að áætlanir geri
ráð fyrir uppbyggingu náms á fleiri
sviðum en nú eru innan vébanda
hans.
Listaháskóli Íslands er með starf-
semi á fjórum stöðum í borginni og
segir Hjálmar að það hái starfsemi
hans verulega. „Það skiptir okkur
öllu máli að sameina starfsemina á
einum stað,“ segir hann. Rifjar hann
það upp að þetta hafi verið ein af for-
sendum fyrir stofnun skólans og á
því hafi alltaf verið skilningur. „Skól-
inn byggist á sambýli margra list-
greina og sá ávinningur sem það
skapar næst ekki fram á meðan við
erum svona tvístruð,“ segir Hjálmar.
Núverandi húsnæði er algerlega
óviðunandi, samkvæmt upplýsingum
rektors, sem segir að enginn lista-
skóli geti boðið nemendum sínum
upp á slíka aðstöðu.
Borgaryfirvöld hafa haft vilja til
að finna stað fyrir skólann í miðborg-
inni en það hefur ekki gengið upp og
Hjálmar segir að borgarstjóri hafi
tekið vel umleitunum skólans.
Hjálmar er bjartsýnn á að lausn
finnist á málinu í þessari umferð.
Sjálfur telur hann nokkra staða í eða
við miðbæinn álitlega kosti en segir
of snemmt að nefna þá.
Listaháskólinn er
menningarmiðstöð
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Húsnæði Listaháskóli Íslands hefur hluta af Laugarnesvegi 91 til afnota.
Skólinn vill kom-
ast nær mann-
lífinu í borginni